Morgunblaðið - 16.08.1992, Qupperneq 29
- - - anuc i 'M igQHÆm/iíMgxgflÆifm ,Tm,
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1992
29
Sjónvarpið með stórborgarkynningar;
Reynt að finna ann-
an flöt en fólk þekkir
Er hægt að gera eitthvað annað í Glasgow en innkaup?
Tökuferð í Helsinki. Frá vinstri: Haraldur Friðriksson, kvikmynda-
tökumaður; Sigmar B. Hauksson, Henrik frá Ferðamálaráði Hels-
inki og Vilmundur Þór Gíslason, hljóðmaður.
Texti: Hildur Friðriksdóttir
í KVÖLD sýnir Sjónvarpið
fyrsta hlutann í þáttaröðinni Sjö
borg^ir. Undirbúningur að gerð
þáttanna hófst fyrir rúmu ári,
en hugmyndin varð til í tengslum
við Evrópskt ferðamálaár 1991.
„Þetta eru helstu borgir sem
Islendingar heimsækja og við
erum að reyna að finna annan
flöt á borgunum en fólk kannski
þekkir,“ sagði Sigmar B. Hauks-
son umsjónarmaður þáttanna í
samtali við Morgunblaðið.
„Markmiðið er að reyna að
fanga andrúmsloft og stemmn-
ingu hverrar borgar fyrir sig
og finna út að hvaða leyti ein
borg er frábrugðin annarri.
Einnig vonumst við til að þeir
sem sjá þættina og hafa hug á
að fara til einhverra þessara
borga hafi meiri ánægju af ferð-
inni og viti þá að hverju þeir
eiga að leita þegar þeir koma á
staðina."
í hveijum þætti er ein borg tek-
in fyrir og varð Amsterdam fyrsta
borgin sem varð fyrir valinu.
„Amsterdam er meðal annars sér-
stök fyrir það að íbúarnir hafa
verið mjög frjálslyndir í verki. Þar
hafa ofsóttir aðilar eins og gyðing-
ar átt griðstað. Sömuleiðis hafa
ýmsir fyrrum nýlendubúar Hol-
lands sest þar að og sagt er að á
fáum stöðum í heiminum sé eins
lítið kynþáttamisrétti og í Amster-
dam. Það eru gyðingar sem stjóma
gimsteinaviðskiptunum og Asíu-
fólkið hefur nánast yfirtekið veit-
ingareksturinn og ýmis þjónustu-
störf.“
Hvað býður Glasgow upp á?
Borgimar sem kynntar verða í
næstu þáttum eru Trier, Helsinki,
Vínarborg, Glasgow, New York og
Lúxemborg. Sigmar tekur eina
þessara borga sem dæmi. „Þegar
Islendingar fara til Glasgow em
langfiestir með verslunarferð í
huga. Við lítum hins vegar á hvað
hægt er að finna þar annað en
verslanir. Glasgow var eitt sinn
næststærsta borg breska heims-
veldisins. Þegar Bretum tókst að
bijóta niður skoska ættarveldið
fluttu höfðingjamir til borga eins
og Glasgow og gerðust þar kaup-
menn. Á sama tíma vom Bandarík-
in að opnast sem framleiðsluland
og þessir menn urðu feikilega rík-
ir, aðallega á viðskiptum á tóbaki
við Bandaríkin, en einnig á sykri
og öðmm vömm frá Vestur-Ind-
íum. Þannig myndaðist mjög auðug
stétt manna í Glasgow og borgin
varð fljótt öflug. Þetta má m.a. sjá
á byggingum, sem era feikilega
merkilegar. Einnig eru þama
merkileg listastöfn sem byggjast á
verkum sem þessir efnuðu tóbaks-
kaupmenn og fýrram höfðingjar
höfðu safnað."
— Er þá andrúmsloft Glasgow-
borgar að þínu mati þessar gömlu
byggingar og listasöfnin?
„Já, ég tel það. Borgin er
kannski meiri menningarborg en
margar aðrar borgir á Bretlands-
eyjum, enda hlaut hún nafnbótina
Menningarborg Evrópu 1990. í
Glasgow er til dæmis Sinfóníu-
hijómsveit Skotlands með aðsetur
og þar er skoska óperan, svo dæmi
séu tekin. Fólk þarf sem sagt ekki
að Ieita til London til að hlusta á
góða tónlist eða fara í leikhús, því
Citizen leikhúsið er einnig ljómandi
gott. Auk þess halda merkir menn
eins og Pavarotti og fleiri tónleika."
Rætt við aðstoðarmann
Taggarts, MacPherson
— Þið eigið síðan viðtöl við ís-
lendinga og aðra, sem búa í borg-
unum. Geturðu nefnt dæmi um ein-
hverja?
„I Glasgow tala ég meðal annars
við MacPherson, þann sem leikur
aðstoðarmann rannsóknarlög-
reglumannsins Taggarts í sjón-
varpsþáttunum, en hann er sann-
kallaður Glasgowbúi. í Vínarborg
tála ég m.a. við Manuelu Wiesler
flautuleikara, sem ólst þar upp. í
þættinum frá Amsterdam, sem
sýndur er í kvöld, tala ég við Þóm
Kristínu Johnsen semballeikara og
tónlistarkennara, en hún hefur búið
lengi í borginni og þekkir hana
vel. Auk þess tala ég við Daníel
Þorsteinsson ungan píanóleikara
sem stundar nám í Amsterdam.
Þau segja frá því hvernig borgin
kemur þeim fyrir sjónir og við reyn-
um að finna að hvaða leyti hún er
sérstök."
Sigmar segir að hver borgarferð
um sig hafi tekið 5-6 daga og að-
spurður hvort eitthvað skemmtilegt
hafi hent í ferðunum svarar hann:
„Ég get nefnt dæmi um hvað
Bandaríkjamenn em markaðssinn-
aðir. Við vomm að kvikmynda í
Greenwich Village í New York.
Þama var djassband að skemmta
og við spurðum hvort við mættum
mynda þau. Jú, jú, það var alveg
sjálfsagt. Skiljanlega vom þau for-
vitin hvaðan við væmm og við
sögðum þeim það. Þegar mynda-
tökum lauk bað söngkonan um
nafnspjaldið mitt, sem hún fékk.
Ég var ekki fyrr kominn heim en
mér bárast geisladiskar og allar
upplýsingar um söngkonuna frá
umboðsmanni hennar með ósk um
tónleika á íslandi eftir að búið
væri að senda út þáttinn frá New
York.“
— Gastu orðið við óskum kon-
unnar? Ætlar hún að halda tónleika
hér á landi?
„Ja, ég er ekki í skemmtana-
bransanum, þannig að ég kom því
til viðeigandi aðila. — Þetta er ekki
nein fræg söngkona, en þarna get-
ur maður séð hvað Bandaríkjamenn
em markaðshugsandi og fjölmiðla-
vanir.
Við tókum meðal annars kvik-
myndir af blökkumanni ásamt öðr-
um af kínverskum ættum, sem
spiluðu gömul Jimi Hendrix lög.
Jú, jú, við fengum að leyfí til að
taka skot af þeim og ætluðum að
hefjast handa, en þá sagði blökku-
maðurinn: Nei, heyrðu, taktu held-
ur hérna vinstra megin við mig,
ég kem betur út þannig!"
Slöð 2:
Ein og yfirgefin
■■■■■ Eng-
OO 15 >nn
"" — veit
sina ævi fyrr en
öll er, er máltæki
sem á sérstak-
lega vel við sjón-
varpsmyndina
Ein og yfirgefin
(The Last To
Go). í upphafi
myndarinnar er
Slattery-fjöl-
skyldan að flytja Slattery-feðginin á góðri stundu.
í hús drauma
sinna í Connecticut í Bandaríkjunum. Hins vegar gerist margt sem
ekki var hægt að sjá fyrir, sumt gleðilegt annað sorglegt og allir
þessir atburðir em blaðsíður í óskrifaðri sögu heimilisins.
Rás 1;
Brot úr Irfi og starfi
IMínu Sveinsdóttur
■ í þættinum Þau stóðu í sviðsljósinu í dag verður sagt frá
00 Nínu Sveinsdóttur, en þessi þáttur var upphaflega fluttur
í þáttaröðinni í fáum dráttum. Nína var gamanleikari og
ásamt Emelíu Jónasdóttur og Auróru Halldórsdóttur talin með fyndn-
ari konum á fyrri hluta aldarinnar. í þættinum verður leitað fanga
í segulbandasafninu og eins ræðir umsjónarmaðurinn, Viðar Eggerts-
son við vini Nínu og samferðamenn.
VERKTAKAR
s!
Til sölu steypuhrærivél 350 It. með rafmótor og
vökvalyftu á skúffu, á hjólum og með dráttarbeisli.
Verð aðeins kr. 378.510 m/vsk. staðgreitt.
Til afgreiðslu strax.
Pallar hf.
Dalvegi 16, Kópavogi, sími 64 10 20
V ————^
390 MANNS TRYGGÐU SERIVIKUNNI BORGARVEISLU I EDINBORG,
3ja daga ferð frá 14ra daga ferð frá
o
*Verð miðast við staðgnsiðslu ferðakostnaðar.
Föst aukagjöld, samtals 3550 kr., eru ekki inrirfalin í verði.
5 daga ferð frá
^fÚRVAL-ÚTSÝN
/Mjódd: sími 699 300; við Austurvöll: s(mi-2 69 00
( Hafnarfirði: simi 65 23 66; við Ráóbústorg á Akureyri: sími 2 50 00
- og bjá umboðsmörinum um land allt