Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1992 31 AMERÍKA Deilur Woody og Miu taka sinn toll Ljósmynd sem tekin var örstuttu áður en allt fór í háaloft og sýnir Woody Allen og Miu Farrow fara á söngleik á Broadway með nokkr- um barnanna. Það er Dylan sem hefur leitað skjóls hjá Allen undan mannþrönginni, og virðist ekki standa neinn sérstakur stuggur af fósturföður sínum. Um fátt hefur verið rætt meira og ritað síðustu vikur en deilur Woody Allens og Miu Farrow, sem snúast um forræði yfír syni þeirra og tveimur fósturbörnum. Deilan einkennist af fádæma hörku og hefur óvægnum meðulum verið beitt hiksta- laust til að sverta andstæð- inginn, og hefur Allen að öll- um ólöstuðum orðið fyrir mestum hluta skítkastins sem mun vera runnið undan rifjum hins umdeilda lög- fræðings Miu Farrow. ALAN Dershowitz heitir maðurinn, prófessor við laga- deild Harvard- háskóla og sérhæfir sig í málum sem aðrir vilja ekki snerta með töngum. Hann virðist hafa mestan áhuga á innanmein- um í hópi fræga fólksins og hefur með ýmsum lagaklækj- um og hártogunum verið í sviðsljósi fjölmiðla á annan áratug, varið t.d. Claus von Bulow sem ákærður var fyrir að hafa komið eiginkonu sinni fyrir kattamef, sjón- varpsklerkinn Jimmy Baker sem viðurkenndi hórdóm og ftjálslega meðferð á fjármun- um safnaðar síns í beinni útsendingu, og nú seinast boxarann Mike Tyson, sem ekki hafði látið sér nægja að vera fjölþreifínn við konur heldur hætt sér út í valdbeit- ingu til áð koma fram vilja sínum. Móðir Miu, fomfræg Tarzan-mynda leikkona að nafni Maureen O’Sullivan hefur líka verið virkjuð í bar- áttunni um bömin, og meðal annars komið fram með gíf- uiyrta fordæmingu á sam- band Woody og fósturdóttur Farrow er heitir Soon-Yi vegna aldursmunar þeirra á milli. Virðist hún hafa gleypt því að Mia Farrow var jafngömul Soon-Yi þegar hún gekk í eina sæng með kvennabósanum og stórraul- aranum Frank Sinatra, sem þá var á svipuðum aldri og Woody Allen er nú, og heyrð- ist ekki múkk frá O’Sullivan um aldursmun þegar þau giftu sig. Vinir Woody Allen, sem hafa til þessa staðið dyggan vörð um einkalíf leik- stjórans, hafa fundið sig knúna til að rjúfa þagnarm- úrinn og segja að ásakanir um brenglaða kynhneigð Woody Allens séu jafn ótrú- legar og að segja að hann sé geimvera. Þeir segja að Woody Allen taki málinu mjög þunglega, þótt hann reyni að bægja því frá sér með stöðugri vinnu, og sár- ast svíði honum fullyrðingar Miu um að hann hafi leitað á bamunga fósturdóttur þeirra Dylan.„Þetta óþokka- bragð kom honum fyllilega í opna skjöldu,“ sagði einn vin- ur hans og samstarfsmaður í nýlegu viðtali við bandarískt tímarit,„og átti hann þó fullt eins von á að deilan um for- ræði yrði illvíg.“ Sá sem tek- ur viðtalið spyr þá afhveiju Woody hafi ekki skilið strax við Miu þegar hann gerði sér ljóst að hann væri orðinn ástfanginn af Soon-Yi? „Auð- vitað hefði hann gert það,“ er svarið, „en ég held það taki flesta langan tíma að telja í sig kjark tíl að geta sagt konunni sem þú hefur verið í sambandi með í rúm tólf ár, að þú sért yfir þig hrifinn af fósturdóttur henn- ar.“ GESTRISNI • • Ollum kirkjugestum boðið í messukaffi Húsavík. irkja hefur verið að Þverá í Laxárdal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu lengur en menn muna og er enn bændakirkja, sem nú munu ekki vera margar hér á landi. Núverandi bændur að Þverá eru Áskell og Jón Jónassynir og halda þeir enn þeim gamla sið að gefa öllu messufólki kaffi að aflokinni messu. Á myndinni er Jón hreppstjóri að veita sóknarprestinum, séra Kristjáni Val Ingólfs- syni, sem í haust fer í tveggja ára leyfi til að taka við rekt- orsstarfinu í Skálholti. í fjar- veru hans mun Þórir Jökull Þorsteinsson, sem á næst- unni mun hljóta vígslu, þjóna Grenjaðarstaðaprestakalli, en hann situr séra Kristjáni Val á hægri hönd. - Fréttaritari Morgunblaðið/SPB LOKAÐ í KVÖLD! y/ií mar^verrisson skemmtir Opið frá kl. 19 til 03 - lofar góðu! INGIMAR EYDAL OG HUÓMSYEIT Það verður olvöru norðlensk sumarsveifla sem ræður ríkjum í danshúsinu i kvöld. SJÁUMST HRESS - MÆTUM SNEMMA Aðgangseyrir kr. 800,- Snyrtilegur klæðnoður. Opiðfró kl. 22.00 - 03.00. BREYTT OG BETRA DANSHUS Vitastíg 3 Sími 623137 Laugard. 29. ágúst opið kl. 20-03 í fyrsta sinn á Púlsinum CUBA LIBRA Gestur kvöldsins SIGURDUR SIGURÐSSON hinn frábæri söngvari og munnhörpuleikari TREGASVEIT ARINN AR. í tilefni síðustu helgar sumarsins: Aðgangur kr. 500,- Liðveislufélagar fá ókeypis inn i boði sparisjoðana gegn framvísun Liðveisluskírteina! PULSINN við kveðjum sumarið í kvöld! Ælim Liðveislumánufiur ÆHiM 20. ágúst-10. sept. Næstu helgi: KK - BAND , Páll Óskar Hjálmtýsson, Ástrós * Cunnarsdóttlr, Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Elin Helga Sveinbjömsdóttir meb glæsilega dans- og söngsýningu úr kvikmyndum M.G.M. frá áratugnum 40-50. ★ ☆ ★ * tfy A* ☆ Glæsileg undirfatasýning frá versluninni ÉG og WJ Abal- og vinsœlasta hljómsveitin G I L D R A Stúlkur frá Jazzballettskóla Báru sýna Jazzdansa undir stjórn Nadiu Babin. leika fyrir dansi til kl. 03.00. Kynnir er hin landsfræga RÓsa Ingólfsdóttir. Húsib opnab kl. 22.00. 687111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.