Morgunblaðið - 22.09.1992, Side 35

Morgunblaðið - 22.09.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ,<;S HUOAdUUUHtl UJfHKI VIÐSKIPTI/AT VINNCLÍF n'/WIT'HHÍUIV dlGAJ.'WUOHOM ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1992 35 Flugrekstur Evrópsk flugfélög glata trausti fjárfesta Viðbrögð stjórnenda eru harkalegur niðurskurður Financial Times Undanfarnar vikur hefur gengi hlutabréfa í flestum evrópskum flug- félögum fallið langt umfram almenna hlutabréfavísitölu. Gengi bréf- anna endurspeglar skaðlegt fargjaldastríð, lélega sætanýtingu og tiltölulega háan kostnaðargrunn. Stjórnendur flugfélaganna treysta á að verulegur niðurskurður muni skila sér í aukinni samkeppnis- hæfni og hærra hlutabréfaverði. Verð hlutabréfa í bæði Swissair og Austrian Airlines hefur lækkað um meira en fjórðung á þremur mánuðum. Stjómendur Swissair hafa einsett sér að minnka kostnað um 300 milljónir svissneskra franka (12,4 milljarða ÍSK). Þar af eiga tíu milljónir franka að spar- ast með því að flytja innheimtu- deild fyrirtækisins til Bombay á Indlandi. Fram til loka september verður 420 af rúmlega 19.000 starfs- mönnum Swissair gert að hætta. Til samanburðar var störfum hjá British Airways fækkað um 4.600 eða tæplega 10% á síðasta fjár- hagsári. British Airways er um þessar mundir arðbærasta flugfé- lag á vesturhveli jarðar. Hlutabréf í félaginu hafa eigi að síður lækk- að í verði um nærri 7% frá miðjum maí. Markaðsverð hlutabréfa í þýska flugfélaginu Lufthansa hefur hrap- að um 40% síðan í febrúar. Á fyrri helmingi yfírstandandi árs nam rekstrartap Lufthansa 550 milljón- um þýskra marka (20,4 milljörðum ÍSK) eða 4,1% af tekjum. Þótt far- þegar væru 19% fleiri og tekjur 9% hærri jókst tapið um 66% mið- að við sama tímabil í fyrra. Líkt og almennt gildir um þýsk fyrirtæki er kostnaðargrunnur Lufthansa hærri en hjá keppinaut- unum. Ollum mannaráðningum hefur nú verið hætt og 1.000 störf verða lögð niður á þessu ári. Sam- hliða hefur nokkrum flugvélum verið lagt. Til þess að auka sveigjanleika og rekstrarábyrgð var innanlandsflug skilið frá ann- arri starfsemi og gert að sjálfstæðu fyrirtæki, Lufthansa Express. En vandi Lufthansa er svo mik- ill að slíkar ráðstafanir duga ekki. Jurgen Weber, aðalframkvæmda- stjóri, hefur boðað róttækari spamaðaráætlun sem trúlega verð- ur kynnt í næsta mánuði. Fyrir utan almenna erfíðleika í flugrekstri og margvísleg innri vandamál hefur umhverfið verið Lufthansa afar óhagstætt. Verk- fall opinberra starfsmanna í Þýskalandi kostaði félagið 60 millj- ónir marka (2,2 milljarða ÍSK), afgreiðslugjöld á þýskum flugvöll- um hafa stöðugt verið að hækka, farþegum til Tælands snarfækkaði vegna stjórnmálaólgu í landinu og lækkandi gengi Bandaríkjadals rýrir tekjur af flugi yfir Atlantshaf- ið. Lufthansa hefur um 30% tekna sinna af Atlantshafsflugi. Þar er verðsamkeppnin hörðust og tapið mest. Stjórnendur Lufthansa þrýsta á að loftferðasamningur Þýskalands og Bandaríkjanna verði endurskoðaður. Lufthansa fær aðeins að fljúga til tíu borga í Bandaríkjunum, á meðan banda- rísk flugfélög hafa mun greiðari aðgang að flugvöllum í Evrópu. Hollenska flugfélagið KLM hef- ur einmitt þegar notið góðs af drögum að nýjum loftferðasamn- ingi Hollands og Bandaríkjanna. Þar er KLM veitt heimild til flugs innan Bandaríkjanna. Ólíkt öðrum evrópskum flugfélögum hefur KLM vegnað vel á hlutabréfamörk- uðum aði undanfömu. Framtíð Lufthansa er óvissari fyrir þær sakir að ríkisstjómin í Bonn hefur lýst því yfír að hún vilji selja helming af 51% hlut ríkis- ins í félaginu. Líklegt er að nýir eigendur gerðu strangari kröfur um arðsemi og krefðust enn frek- ari niðurskurðar. British Airways og KLM hafa þegar gengið í gegn- um slíkan niðurskurð að banda- rískri fyrirmynd. Gæðamál Dönsk fyrirtæki notfæra sér gæðastjórnun NÝ KÖNNUN í Danmörku leiddi í ljós að um 90% fyrirtækja innan by&KÍngariðnaðarins hafa tekið upp gæðastjórnun af einhverju tagi. í könnuninni kom einnig fram að á alþjóðlegan mælikvarða er danskur það voru einkum kröfur frá yfirvöld- um og öðrum viðskiptavinum sem urðu til þess að fyrirtækin tóku upp gæðastýringu. Afleiðingin er sú að byggingariðnaður nú einna lengst kominn í að tryggja gæði fram- leiðslu sinnar. Þrátt fyrir þetta háa hlutfall fyr- Aukin framleiðslugeta í kanadískum áliðnaði Jókst um 26,5% 1991 og áætluð aukning á þessu ári 16,5% Alouette-álbræðslan i Quebec í Kanada er um þessar mundir að senda frá sér fyrstu framleiðsluna, aðeins þremur árum eftir að framkvæmdir við verksmiðjuna hófust. Er áætlað að framleiða 70.000 tonn á þessu ári en árleg framleiðslugeta er 215.000 tonn. Byggingarkostnaður verksmiðj- unnar var rúmlega-63 milljarðar ÍSK. og er þá innifalinn undirbún- ingur undir stækkun, sem tvöfald- aði afköstin. Vegna lágs verðs á áli nú um stundir er þó óvíst hve- Flug Ný tækifæri fyrir KLM í Bandaríkjunum YFIRVÖLD í Bandaríkjunum og HoIIandi hafa gert með sér samkomu- lag sem felur í sér að flugfélög frá löndunum tveim fá ótakmarkaðan aðgang að flugvöllum hvors lands um sig. Þar með verður hollenska flugfé- lagið KLM fyrsta evrópska flugfélag- ið sem fær tækifæri til að fljúgja til allra borga Bandaríkjanna frá Evr- ópu, sem og að fljúga til þriðja lands- ins frá Bandaríkjunum. A sama hátt fá bandarisk flugfélög svipuð réttindi í Hollandi. Þar í landi er búist við að samkomulagið verði mikil lyfti- stöng fyrir flugvöllinn í Amsterdam og geti hugsanlega orðið til að koma af stað nýrri hrinu af afnámi hafta í flugumferð innan Evrópu. Þetta er talið opna fyrir aukna möguleika á enn frekari verðlækkunum á öllum helstu flugleiðum yfír Atlantshafið. Búast má við að bandarísk stjóm- völd reyni nú að nota samkomulagið til þess að þvinga stjórnvöld í löndum svo sem Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu til að gera sam- bærilegan samning. Fyrir KLM þýðir samningurinn ennfremur að félagið getur í auknum mæli tengt þjónustu sína við Nort- hwest Airlines, sem KLM á 49% í. nær í hana verður ráðist. Eigéndur verksmiðjunnar eru VAW Alumi- nium, Austria Metals, Hoogovens, samstarfsfyrirtæki Kobe Steel og Marubeni í Japan og SGF (Société Générale de Financement) í Qu- ebec og er hlutur þeirra allra jafn eða 20%. Segjast talsmenn þeirra ákveðnir í að stækka hana strax og aðstæður leyfa en verða að taka ákvörðun um það fyrir lok ársins 1994. Er kveðið á um það í samn- ingi við Hydro Quebec, sem sér verksmiðjunni fyrir rafmagni næstu 25 ár, en ekki hefur verið skýrt frá efni hans opinberlega að öðru leyti. Með Alouette-verksmiðjunni hefur alls verið ijárfest í kanadísk- um áliðnaði fyrir um 185 milljarða ISK. á fáum árum og. vegna þess jókst framleiðslugetan í Kanada um 26,5% á árinu 1991 og áætluð aukning á þessu ári er 16,5%. Er framleiðslugetan nú tvær milljónir tonna og öll 1 Quebec að undan- skildum 200.000 tonnum. Stafar það af miklu framboði þar af ódýrri vatnsaflsorku. Mestur hluti framleiðslu Alou- ette-versins verður notaður hjé eigendum þess í Evrópu enda er ódýrara að flytja álið þangað með skipi en með bílum til Bandaríkj- anna. ★ Pitney Bowes Frjmerkjavélar og stimpilvélar Vélar til postpökkunar o. fl. OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavík Simar 624631 / 624699 B/LALE/GA Úrval 4x4 fólksbfla og statlon bila. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bilar. Farsímar, kerrur f. búslöðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 inierRent Europcar BILALEIGA AKUREYRAR Fá&u gott tilboð! Rykgrímur fyrir allar aðstæður ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 687222 -TELEFAX 687295 irtækja sem nota gæðastýringu hafa aðeins örfá þeirra fengið kerfi sín skráð, þó svo að langflest kerfín virki mjög vel. Þannig hafa þrjú af hveij- um fjórum fyrirtækjum gefið út handbók eða bækling um kerfi sitt. Ástæða þess að svo fá kerfi hafa verið skráð virðist einkum vera sú að ISO-staðallinn henti byggingar- iðnaðinum ekki vel. Af þeim sökum hafa samtök byggingarverktaka og annara aðila byggingariðnaðarinns tekið höndum saman við danska staðlaráðið og dönsku iðntækni- stofnunina um verkefni sem felst í því að aðstoða fyrirtæki við að laga kerfi sín að ISO 9000 staðlinum. Bílamarkaóurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraub Kópavogi, sími 671800 MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, stein- grór, sjálfsk., ek. 14 þús. Einn m/öllu. Sem nýr. V. 1550 þús. stgr. Ford Bronco XL II '88, rauður, 5 g., ek. 44 þ.km. Toppeintak. V. 1390 þ. stgr. Nissan Micra GL '89. 5 g., ek. 52 þ. V. 390 þús. stgr. MMC Lancer 4x4 hlaðb. '92, rauður, 5 g., ek. 27 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 1080 þús. stgr. MMC L-300 4x4, 8 manna '88, grásans, 5 g., ek. 68 þ. sportfelgur o.fl. V. 1180 þ. Sk. ód. Nissan Patro diesel '83, 5 g., ek. 40 þ. ó vól, 7 manna. V. 820 þ. stgr. Subaru 1800 DL 4x4 station '91, 5 g., ek. 38 þ.km. V. 1050 þ. stgr. MMC Pajero Turbo diesel '88, grásans., 7 manna, 5 g., ek. 136 þ. Fallegur bíll. V. 1500 þ. stgr. MMC Galant GLSi '89, 5 g., ek. 49 þ., rafm. í öllu o.fl. V. 950 þ. stgr. Sk. ód. Fiat X1/9 Bertone Spider '80, rauður, 5 g., ek. 55 þ. Óvenju gott eintak. Skoöaður '93. V. 430 þús., sk. á ód. Volvo 440 GLT89, rauður, 5 g., ek. 38 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 930 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL '92, 5 dyra, blásans. 5 g., ek. 11 þús.. vökvast., central o.fl. Sem nýr. V 920 þús. stgr. Cherokee Pioneer 4.0 I 87, brúnsans., sjálfsk., ek. 160 þús., raf. rúður, o.fl. Mjög gott óstand. V. 1250 þús. stgr. Toyota Corolla Uftback GTi ’88. Svartur, 5g., ek. 87 þ., sóllúga, álfelgur, rafm. í öllu. Toppeintak. V. 890 þús., sk. á ód. URVAL GODRA BIFREWA Á MJÖG GÓDUM STGR.AFSUETTI Dodge Shadow 88, hvítur, 5 dyra, sjólfsk. ek. 37 þ. mílur. Fallegur bfll. V. 890 þús. stgr. MMC Colt GTI 16v 90, steingrár, 5 g. ek. 43 þ., vökvast., ólfelgur o.fl. V. 1050 þýs., sk. á ód. MMC Pajero V-6 90, svartur, 5 g., ek. 7 þ., 31" dekk, rafm. rúður o.fl. V. 1800 þús. stgr. Ford Ranger XLT Super Cap 89, 6 cyl sjólfsk. ek. 45 þ. V. 1280 þ. stgr., sk. á ód. Nissan King Cap m/húsi '87, 6 cyU sjólfsk., ek. 74 þ. Fallegur bfll. V. 1080 þ. stgr. Plymouth Laser RS Twin Cam 16v '90, grósans, 5 g., ek. 32 þ. mílur, rafm. í öllu o.fl. Glæsilégur bfll. V. 1490 þús. stgr., sk. á ód. Ford Econoline 150, 8 farþega '91 sjólsk., ek 28 þ. V. 1550 þ., sk. á ód. Nissan March GL '88, 5 g., ek. 43 þ. V. 390 stgr. Cherokee Laredo '88. Einn m/öllu, sjálfsk., ek. 56 þ. mflur. Fallegur jeppi. V. 1750 þ. sk. ó ód.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.