Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/LESBOK
255. tbl. 80. árg.
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Díana ákveðin í að
\
þrauka með Karli
Áhlaup íKákasus “
Skæruliðar úr röðum Norður-Osseta gera áhlaup á stöðvar Ingúseta
í norðurhluta Kákasus sem tilheyrir Rússlandi. Harðir bardagar hafa
geisað þar að undanförnu milli þjóðabrotanna. Harðlínublaðið Pravda
minntist í gær 75 ára afmælis byltingarinnar. Birt var gi-ein undir
fyrirsögninni „Sósíalisminn stóðst prófið" og var hún sögð lýsa sjónar-
miðunum eftir 25 ár þegar búið væri áð brjóta á bak aftur þá sem
fært hefðu Rússum „dýrkun á tvöfeldni og gróðahyggju“ auk þess sem
bandarísk áhrif hefðu verið að kæfa öll andleg verðmæti. Á glötunar-
barminum hefði þjóðin snúið „aftur til hinna sönnu, þjóðlegu gilda
sameignarinnar“. 100 ára afmælisins hefði verið minnst með því að
endurreisa Sovétríkin.
meinta óhamingju hennar meðan
á heimsókninni stóð.
í gær kom út endurbætt útgáfa
af bók um Díönu sem olli miklu
fjaðrafoki í sumarbyijun. I nýju
útgáfunni heldur höfundurinn
Andrew Morton því fram að Díana
hafi alvarlega íhugað að yfirgefa
hirðina í sumar. Elísabet drottning
hafi hins vegar talið henni hug-
hvarf og fengið hana ofan af skiln-
aði. Nú sé Díana staðráðin í því
að bjarga hjónabandinu og koma
á eðlilegu sambandi og þrauka þar
til eðlilegt samband kemst aftur á
milli hennar og annarra í konungs-
fjölskyldunni.
Óvissa um framtíð
Myndir breskra blaða af þeim
saman í Kóreuferðinni voru venju-
lega teknar við athafnir þar sem
ekki þykir við hæfi að vera með
bros á vör, svo sem við minningar-
athafnir eða lagningu blómsveiga
í kirkjugörðum eða við minnis-
varða. Þá var skýrt frá því í gær
að í byijun Kóreuferðarinnar hefði
Díana fengið fregnir af andláti
komabams nánustu vinkonu
hennar og það kynni að útskýra
London. Reuter.
RITARI Karls Bretaprins viðurkenndi í gær að samlyndi þeirra
Karls og Díönu konu hans væri ekki eins og það gæti best verið
en sagði að ofsafengin umfjöllun breskra slúðurblaða um meinta
hjónabandserfiðleika gerði aðeins illt verra. Þá fullyrti höfundur
umdeildrar bókar um Díönu og líf hennar að hún væri ákveðin í
að þrauka í hjónabandi í þeirri von að ástir þeirra Karls kæmust
aftur í samt lag.
Díana prins-
essa kom í gær
til Bretlands
eftir fjögurra
daga opinbera
heimsókn þeirra
Karls til Suður-
Kóreu, en hann
hafði nokkurra
daga viðkomu í
Hong Kong á Díana prinsessa
heimleiðinni.
Við komuna
til London sendi Díana frá sér yfir-
lýsingu þar sem hún gagnrýndi
ij'öimiðla harðlega fyrir frásagnir
af hjónabandsmálum þeirra Karls.
Sagði hún tilgátur um að Elísabet
drottning og maður hennar Filipp-
us prins væm allt annað en skiln-
ingsrík og hjálpleg væra með öllu
ósannar auk þess sem þessar frá-
sagnir særðu sig. Heimildarmenn
sögðu að yfirlýsing Díönu hefði
glatt mjög Karl prins er hann frétti
af henni í Hong Kong. Yfirlýsing
Díönu er óvenjuleg sakir þéss að
hirðin hefur jafnan varast að láta
nokkuð frá sér fara um það sem
fjölmiðlar segja um kóngafólkið.
GATT-viðræðnanna vegna refsiaðgerða Bandaríkiastjórnar
Reynt að fá Frakka til að
slaka á viðskiptahömlum
London, Brussel, Washington, París. Reuter, The Daily Telegraph.
Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins, svarar spurningum fréttamanna í
London í gær en þangað kom hann til að flytja erindi í háskóla. Delors hefur verið sakaður um að halda
til streitu sérhagsmunum Frakka í viðskiptadeilunni við Bandaríkjamenn, án þess að hafa heildarhags-
muni bandalagsins í huga. Hann vísar ásökunum á bug.
Bandaríkjamarkaði. Iðnaðar- og
verslunarmálaráðherra Frakka,
Dominique Strauss-Kahn, sagði
Bandaríkjamenn hafa hagað sér
dólgslega með því að setja á toll-
ana, með þessu gætu þeir stefnt
allri Uruguay-lotu GATT-viðræðn-
anna um aukið frelsi í alþjóðavið-
skiptum í hættu. Strauss-Kahn
sagði að kæmu refsitollarnir til
framkvæmda myndu Frakkar krefj-
ast gagnaðgerða af hálfu EB. Þing-
kosningar verða á næsta ári í
Frakklandi, ákveðinn hefur verið
niðurskurður á styrkjum EB og
franskir bændur hafa látið mjög
ófriðlega af þessum sökum í sum-
ar. Stjómarflokkur sósíalista mun
bíða afhroð í kosningunum ef
marka má kannanir að undanfömu.
Bill Clinton, nýkjörinn Banda-
ríkjaforseti, vill ekki tjá sig um
málið, segir að Bush sé enn forseti
og taki allar ákvarðanir í þessum
efnum. Bandarísk blöð, þ. á m.
The New York Times, sögðu í gær
að Evrópumenn ættu sök á því að
GATT-viðræðumar væru komnar í
hnút og vörðu ákvörðun stjómar
Bush. Blöðin minntu á að embættis-
menn GATT hefðu úrskurðað að
sumar af viðskiptahömlum EB
brytu í bága við alþjóðasamninga
og The New York Times taldi að-
gerðir Bandaríkjastjómar mjög var-
færnar.
Norski Verkamannaflokkuriim
Brundtland segir af
sér leiðtogaembætti
Ósló. Rcuter. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttariíara Morgunblaðsins.
GRO HARLEM Brundtland, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi
Verkamannaflokksins, lýsti því óvænt yfir á landsfundi flokksins í
gær að hún hygðist láta af leiðtogaembættinu af persónulegum ástæð-
um. Hún verður áfram forsætisráðherra.
Brundtland var hrærð er hún
flutti ávarp sitt, en hún hefur verið
flokksleiðtogi í rúman áratug. „Eins
og þið vitið varð ég og fjölskylda.
mín fyrir þungu áfalli fyrir
skömmu," sagði ráðherrann, en
yngsti sonur hennar fyrirfór sér
fyrir tæpum mánuði. Yfirlýsingin
kom samt mjög á óvart en fundar-
'menn hafa tvo undanfarna daga
rætt afstöðuna til Evrópu, vaxandi
atvinnuleysi og fleiri mikilvæg mál.
Forsætisráðherrann, sem er 53
ára, sagðist hafa dregið af ásettu
ráði að skýra frá ákvörðun sinni;
mikilvægt hefði verið að fundar-
menn gætu einbeitt sér að þeim
málum sem á dagskrá vora og
umræður um eftirmann hefðu að-
eins skaðað fundarstarfið. Margir
grétu er Brundtland dró sig í hlé
eftir ávarpið.
Forsætisráðherra Frakklands,
Pierre Beregovoy, sagði í gær
að báðir aðilar, Evrópubandalag-
ið (EB) jafnt sem Bandaríkin,
myndu bíða ósigur ef til við-
skiptastríðs kæmi milli þeirra.
Með þessu virtist hann reyna að
lægja öldurnar í deilunni sem
upp er komin vegna verndar-
stefnu Frakka er ekki vilja ganga
til móts við kröfur Bandaríkja-
manna um að lækka tolla og
draga úr viðskiptahömlum á
verslun með ýmsar landbúnaðar-
afurðir. Fulltrúar annarra EB-
þjóða reyndu í gær að telja
Frakka á að láta undan, að sögn
efnahagsmálaráðherra Þýska-
lands, Jurgens Möllemanns.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sem nú er í forsæti fyrir
EB, ræddi við forseta framkvæmda-
stjómar EB, Frakkann Jacques
Delors, í gær og urðu þeir ásáttir
um að hefja bæri viðræður á ný sem
fyrst um deilumálin við Bandaríkja-
menn. Ónafngreindir, breskir emb-
ættismenn sögðu Major hafa krafíst
þess að Delors, sem sakaður er um
að draga um of taum frönsku
stjómarinnar, ynni heils hugar að
því að fundin yrði málamiðlun. Del-
ors hefur verið mjög orðaður við
forsetaframboð í Frakklandi.
Ummæli ýmissa annarra
franskra leiðtoga voru á öðrum
nótum en Beregovoys forsætisráð-
herra. Jacques Chirac, helsti leið-
togi stjórnarandstöðunnar, sakaði
Bandaríkin um að vilja einoka al-
þjóðaverslun með landbúnaðar-
afurðir. „Frakkar mega hvergi
hvika þegar þeir þurfa að veija
hagsmuni sína“, sagði hann.
Franskir bændur eru afar öflugur
þrýstihópur, njóta mikilla ríkis-
styrkja auk þess sem þeir hirða
bróðurpartinn af landbúnaðar-
styrkjum EB. Tveir þriðju hlutar
útgjalda bandalagsins fara til land-
búnaðar. Stjórn George Bush
Bandaríkjaforseta hefur m.a.
ákveðið að setja refsitoll á frönsk
vín sem margfaldast nú í verði á