Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
19
iVIISSAW
mönnum væri mikill ógreiði gerður
með því að reka þá frá Reykjavík
því þar er þjónusta eins góð og
best getur orðið. Gistiaðstaða, elds-
neyti, viðhaldsþjónusta, stæði og
afgreiðsla allt á sama stað, af þessu
öllu höfum við nokkrar tekjur. A
Keflavíkurflugvelli er þjónusta það
dýr. og aðstaðan ekki góð svo að
allir sem ekki eiga þangað sérstakt
erindi forðast völlinn. Þó að einka-
flugmenn séu líklega þeir sem síst
myndu kvarta yfir flutningi vegna
þess hve sjaldan þeir fljúga og þá
yfírleitt í góðu veðri og munar þess
vegna minna um að aka einhvem
spöl út á sinn völl þá munu þeir
missa af þeirri reynslu sem því fýlg-
ir að fljúga í þeirri umferð sem hér
er. En þess utan þá hafa þeir þegar
fjárfest mikið í flugskýlum á vellin-
um sem þeir yrðu að fá bætt.
Þegar minnst er á kennsluflug
vill brenna við hjá mörgum, og það
sjónarmið sýnist mér koma fram
hjá Ólínu, að þar sé um að ræða
hálfgerðan óþarfa eða leikaraskap.
En ég held að þessu fólki sé hollt
að athuga að þeir flugmenn sem
fljúga í áætlunarflugi og leiguflugi
innanlands, sem og milli landa, eru
að stórum hluta menn sem stund-
uðú sitt nám einmitt hér í Reykja-
vík. Til þessara manna eru gerðar
töluverðar kröfur og ef þeir flug-
menn sem við treystum fyrir líf!
okkar eiga að standa undir þeim
þarf aðstaða til náms að vera góð
og hún verður hvergi betri hér á
landi en einmitt hér í Reykjavík
vegna þeirrar umferðar og aðstöðu
sem hér er. Það er líka þess vegna
sem það væri lítil lausn að flytja
aðstöðuna með þeim kostnaði sem
því fylgdi annað, því eftir flugtak
annars staðar færi stór hluti lend--
inga og blindflugsæfinga fram í og
við Reykjavík eftir sem áður.
Áætlunar- og leiguflug hér á
landi er oft erfítt vegna þess hve
tíð er- rysjótt. Stundum þarf að
seinka flugi, stundum fella niður
ferðir og stundum kalla farþega til
flugs með skömmum fyrirvara. Það
að hafa völlinn jafn miðsvæðis og
raun ber vitni gerir þetta til mikilla
muna þægilegra fýrir alla aðila. I
stað þess að þurfa að keyra langa
leið og síðan hangsa klukkutímum
saman, jafnvel heilu og hálfu dag-
ana þegar veður hamlar flugi, þá
getur fólk sinnt sínum erindum í
greitt frá Tryggingastofnun ríkisins
og krafðist lögbanns á þennan
samning. Það er eftirtektarvert að
félagið gerði ekki kröfu um að lög-
bann yrði sett á starfsemi mína,
heldur aðeins á samninginn í heild.
Þegar lögbannið var svo kveðið upp
hljóðaði það upp á að samningurinn
gilti áfram að öðru leyti en því er
tekur til tannsmíðavinnu í munnholi
þess er þarfnast gervitapna, sem
er eins fjarri kröfugerð TÍ og hægt
er. Að öðru leyti var ekki tekin af-
staða til lögbannskröfunnar og það
þykir mér merki þess að ekki sé
grundvöllurinn sterkur, því TÍ þurfti
að leggja fram í peningum 10 millj-
ón króna tryggingu fyrir hugsanleg-
um skaðabótakröfum mínum á
hendur TÍ. Þessi munnholsvinna
sem um ræðir er oft og iðulega
unnin af aðstoðarstúlkum tann-
lækna, enda ekki vandasamt verk
og geta reyndar þeir sem tannsett
þurfa hæglega gert það sjálfír og
er þá vandséð gegn hverjum TI
ætlar að beina lögbannskröfu sinni.
Hins vegar ætti tannlæknirinn að
vita manna best að það er samanbit-
ið á gervitönnunum sem er aðalat-
riðið við gervitannsmíði og munn-
holsmáltakan aukaatriði.
TÍ hefur kosið að ófrægja mig í
fjölmiðlum og stafar það af óöryggi
um málstað sem ekki nýtur samúð-
ar almennings. Tannlæknirinn og
TÍ eru að berjast fyrir riftun á samn-
ingi sem er til hagsbóta fýrir ríkið
og þá sem þurfa á gervitönnum að
halda, vegna þess að samningurinn
gerir ekki ráð fyrir milliliðagreiðsl-
um til tannlæknis eins og verið hef-
ur. Við gervigómasmíði telst tann-
læknirinn í þessu sambandi til hins
óþarfa milliliðs og verður bara að
sætta sig við þá staðreynd, hvort
sem honum líkar betur eða verr.
Höfundur er tannsmíðameistnri.
NÚ EINIMIG MED 2.7 DÍSa TURDO
• Ein aflmesta díselvél sem fáanleg er.
• Hlaðinn aukahlutum, rafdrifnum rúðum, samlæsingum sóllúgu ofl.
• Fjögurra dyra og mikið rými.
• 75% læsing á afturdrifi.
• Slaglöng fjöðrun aö aftan og framan.
• Einn vinsælasti jeppinn í Ameríku og Evrópu
• Eigum einnig nokkra IMissan Terrano Dísel Turbo, árgerð 1992, á sérstöku verði
• Komið og leifið sölumönnum okkar að koma ykkur á óvart
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
síma 91-674000
bænum og fylgst með í gegnum
síma. Þetta myndi mest bitna á
landsbyggðarfólki sem oft þarf að
erinda í bænum. Þetta eru menn
víða erlendis að sjá betur eins og
t.d. í London þar sem tekinn var í
notkun nýr flugvöllur í hjarta borg-
arinnar fyrir nokkrum árum.
Lokaorð
Eins og af framansögðu má ráða
tel ég það bæði hið mesta óráð og
þarfleysu að reka einka- og
kennsluflug frá Reykjavík og að
leggja flugvöllinn niður með öllu
væri álíka gáfulegt og að flytja
umferðarmiðstöðina upp á Sand-
skeið eða Reykjavíkurhöfn upp á
Kjalames. Raunar geri ég ráð fyrir
því að flestir þeir sem kynnt hafa
sér málið séu á svipaðri skoðun og
ekki ætla ég Ólínu þá skammsýni
að vera öðru vísi. Reyndar tel ég
líklegast að þarna sé fýrst og fremst
um atkvæðaveiði að ræða frá fólki
sem einhverra hluta vegna óttast
flugið. Sá ótti er að nokkru skiljan-
legur sem ótti við hið óþekkta, einn-
ig eiga fjölmiðlar þar nokkra sök á
fyrir það hvernig umijöllun um
óhöpp í flugi fær, ef miðað er við
aðra atburði. Að endingu mætti
benda á að líklegt er að ef þeir sem
að umferðarkennslu standa tækju
meira mið af flugkennslu mætti
draga töluvert úr umferðaróhöpp-
um. Þar veit ég að Ólína fyndi sér
verðugt verkefni, minnug þess að
það skiptir engu máli hver ber fram
góðar tillögur, heldur það eitt að
þær nái fram að ganga.
Höfundur er yfirkennari /ya
Flugtaki.
Hafnarfjörður
Kristniboðsdagar
FJÓRAR kristniboðssamkomur verða haldnar á vegum KFUM og K,
Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði. Fyrsta samkoman verður sunnudaginn
8. nóvember og hefst kl. 20.30. Guðlaugur Gunnarsson, sem starfað
hefur um árabil í Eþíópíu, flytur þá hugleiðingu og sýnir myndir frá
kristniboðsstarfinu í Afríku. Halldóra Agústsdóttir syngur einsöng.
Aðrir ræðumenn á samkomunum og annarri uppbyggingu. Mikill
verða kristniboðamir Skúli Svavars-
son, formaður Kristniboðssambands-
ins og Ragnar Gunnarsson. Einnig
syngur Ólöf Magnúsdóttir. Síðasta
samkoman verður nk. miðvikudag.
Kristniboðar eru að störfum á veg-
um Sambands íslenskra kristniboðs-
félaga bæði í Eþíópíu og Kenýu.
Þeir sinna boðun, hjúkrun, fræðslu
annarri
árangur hefur orðið af kristniboðs-
starfínu á undanfömum árum. Kost-
aður er að mestu leyti borinn upp
af vinum og velunnumm starfsins
og verður tekið á móti gjöfum til
kristniboðsins á samkomunum í
Hafnarfírði.
Allir em velkomnir á samkomum-
ar. (Fréttatilkynning)
ISSAIXI TERRAIUO
Fjögurra dyra