Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 9 Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 671800 Opið sunnudaga kl. 14-18 TALSVERÐ HREYFING VANTAR GÓOA BÍLA Á SÝNINGARSVÆOIÐ Kvöldsíðbuxur Guðrún, Rauðarárstíg, sími 615077. (opiöliikl. 17.00). 40% afsláttur afkjólum Stærðir 38-54. Tilvalið að fá sér kjól fyrir jólin. ’f Laugavegi 61, sími23970. BORÐSTOFUHUSGOGN Ný sending Mikið úrval af borðstofuhúsgögnum úr bæsaðri eik - hvítu - svörtu - mahóní ó mjög hagstæðu verói. Petra borð + stólar í beyki - hvítu - svörtu. Borð + 4 stólar kr. 36.600,- stgr. Visa - Euro raógreióslur 0PIÐ í DAG TILKL. 16 SUNNUDAG FRÁKL. 14-16 □□□□□□ HÚSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654100 p .nrgmi nl bihiD Meira en þú geturímyndad þér! Verkefnahrun ískipa- smfðaiðnaði Hlutdeild íslenzkra skipasmíðastöðva í smíði fiskiskipa fyrir íslendinga var 75-100% á árabilinu 1983-85 en fellur í 8% á þessu ári, samkvæmt spám. Vís- bending, vikurit um viðskipti og efna- hagsmál, fjallar nýlega um þetta efni í forsíðugrein með yfirskriftinni „Styrkur við skipasmíði". Hlutdeildar- lækkun iðnað- arins Vísbending' segir í grein uni íslenzkar skipa- smíðar: „Hlutdeild iðnaðar i ársverkum hér á landi hefur farið heldur minnkandi undanfarin ár. Árið 1981 var hlutfall- ið 16% Q)egar fiskvinnsla er ekki talin með) en árið 1990 hafði það lækkað í 13%. Ýmsar iðngreinar hafa átt í erfiðleikum. Sums staðar hafa fyrir- tæki sameinast, tll dæmis í húsgagnasmíði og ullai’- iðnaði, en það hefur ekki alltaf nægt. Auglýsingar benda til þess að sam- keppnisstaða iðnaðar sé ekki nógu góð; fólk er beðið um að kaupa ís- lenzkar vörur til þess að varðveita atvinnu, frem- ur en að höfðað sé til vörugæða. íslenzkar skipasmíða- stöðvar fá lítið að gera. Hlutdeild þeirra í smiði fiskiskipa fyrir Islend- inga var 75-100% á árun- um 1983 - 1985, en fellur í 8% á þessu ári sam- kvæmt spá Þjóðhags- stofnunar og iðnaðar- manna. Atburðir liðinna vikna benda til þess að sumir sjái nú ekki aðra leið til þess að afla ís- lenzkum skipasmíða- stöðvum verkefni en að beita valdi. En jafnframt hafa verið færð ýmis rök að því, að rétt sé að styðja skipasmíði hér á landi með jöfnunartollum eða ríkisframlögum". Vandi skipa- smíðaiðnaðar í V-Evrópu Síðar í sömu grein seg- ir: „Skipasmíðastöðvar hafa ekki einungis átt erfitt uppdráttar hér landi, heldur hefur þessi starfsemi átt í erfiðleik- um víðs vegar í Vestur- Evrópu. Vandinn á rætur sínar að rekja til þess að iipp hefur risið öflugur skipasmíðaiðnaður i Austur-Evrópu og Austur-Asíu þar sem laun eruð aðeins brot af því sem tíðkast á Vestur- löndum. Mörg Vestur-Evrópu- lönd hafa brugðizt við þessu með því að veita skipasmíðastöðvum ríkis- styrki, sem oft eru um 10% smíðakostnaðar. Nú vilja islenzk launþega- samtök að lagt sé jöfnun- argjald á innflutta skipa- smíði til þess að eyða áhrifum þessara styrkja. Með því móti losni ís- lenzkar skipasmiðjur við óeðlilega samkeppni. Út- gerðarmenn sjá aftm- á móti enga ástæðu til þess að slá hendinni á móti niðurgreiddum skipum frá útlöndum." Atvinnusjón- armiðið Vísbending segir síð- an: „Ef hér er næg at- vinna, þarf ekki að hafa mörg orð um það, að óhagkvæmt er að styrkja illa staddar atviimu- greinar. Með því væri verið að veikja þau fyrir- tæki, sem ganga vei. Málið verður flóknara þegar skortur er á at- vinnu. Þá má til dæmis fara að líta á skatt- greiðslur innlendrar starfsemi og útgjöld rík- isins til atvimiuleysis- bóta. Framkvæmdastjóri íslenzku skipasmiða- stöðvarinnar, sem nú á að gera við Búrfell, benti á, að stöðin myndi greiða 3-4 m.kr. í skatt af verk- inu, en alls munaði tæp- um 8 m.kr. á íslenzka og pólska tilboðinu. Hag- fræðingur Aiþýðusam- bands hefur skoðað áhrif þess að smíða skip að andvirði eins milljarðs hér á landi fremur en að flytia það inn. Hann telur að ríkið fái tæplega 300 m.kr. í aukna skatta, en spari auk þess um 200 m.kr. í atvinnuleysisbæt- ur. Þá aukizt landsfram- leiðslaum 1.1 milljarð...“ í grein Vísbendingar kemur fram að frá með síðastliðnum áramótum hafi veitt lán til skipa- smiði hérlendis numið 65% af kostnaði en aðeins 46% ef skipin eru smíðuð erlendis. Annað dæmi um aðstoð stjómvalda við innlenda skipasmiði á árinu er sú ákvörðun að auka hlutafé Slippstöðv- arinnar á Akureyri en framlag ríkisins þar verður 45 m.kr. I greininni er einnig litið á framvindu mála frá sjónarhomi Pólverja. Umskipti frá sósíalisma yfir í markaðshagkerfi hafi verið erfið. Atvinnu- leysi í landinu er nú um 12%. Skuldir Pólveija við Vesturlönd em og geysi- miklar. Ekki sé úr vegi að líta á „óeðlilega góð kjör frá ríkinu“ (í kaup- um pólskra skipasmíða- stöðva á stáli) í ljósi þess- ara kringumstæðna. „Margir hafa talið það bera vott um hræsni Vesturiandabúa", stend- ur þar, „að veita fátæk- um ríkjum þróunarað- stoð en neita svo að kaupa framleiðslu þeirra". Sagan (allt frá aðdrag- anda gamla sáttmála á 13. öld til veruleikans í tveimur heimsstyrjöldum á 20. öld) hefur fært okk- ur heim sanninn um að eyþjóð, sem byggir af- komu sína að stærstum liluta á fiskveiðum og er verulega háð millilanda- siglingum, er illa sett án skipasmíðaiðnaðar. Það er því eðlilegt að hlut- deildarfall hérlendra skipasmiðastöðva í smíði íslenzkra fiskiskipa úr 75-100% í 8% á fáeinum árum vekji nokkur við- brögð í vaxandi atvinnu- leysi. Hótel íslandi, sunnudaginn 8. nóvember kl. 15 til 17 Um þessar mundir eru 15 ár liðin frá stofnun SÁÁ. Af því tilefni verður 15 ára afmælishátíð haldin á Hótel íslandi, á morgun, sunnudag 8. nóvember. Á dagskrá verða ræðu- höld, skemmtiatriði, ávarp ráðherra, frumsýning á nýju merki SÁÁ, kaffiveitingar og fleira. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis en greiða þarf fyrir kaffiveitingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.