Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 21 Borgarstjórn Alvarlegustu að- dróttamr sem ég hef heyrt í 18 ár - segir Magnús L. Sveinsson forseti borgarslgórnar MAGNÚS L. Sveinsson, forseti borg-arstjórnar, segir að á fundi I borgarstjórn í sumar hafi Óiína Þorvarðardóttir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs, látið falla alvarleg- ustu aðdróttanir sem hann hafi heyrt á þeim vettvangi í 18 ár. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá opnum borgarafundi á Seltjarnarnesi. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, er I ræðustóli og honum á vinstri hönd sjást bæjarstjórnarfulltrúar. Opinn borgarafundur á Seltjarnarnesi Svæðið vestan við núver- andi byggð verði fólkvangur OPINN borgarafundur var haldinn á Seltjarnarnesi síðastliðinn fimmtu- dag. Tilefnið var skipulag svokallaðs vestursvæðis á Seltjarnarnesi en deilur hafa staðið um hvort þar eigi að rísa byggð eða ekki. Fundur- inn var haldinn bæði til kynningar á skipulaginu og eins til þess að íbúar Seltjarnarness gætu spurt bæjarfulltrúana og komið fram með eigin hugmyndir um skipan mála. Tvær ályktanir voru samþykktar á fundinum með miklum meirihluta. Önnur var á þá leið að gerð skyldi skoðanakönnun um málið meðal íbúanna en með hinni beindi fundur- inn þeim tilmælum til bæjarstjórnar að umrætt svæði yrði gert að fólkvangi. Erna Nielsen, forseti bæjarstjóm- ar, setti fundinn. í máli hennar kom fram að skipulagsnefnd hefði ekki enn tekið neinar ákvarðanir en tillög- urnar hefðu verið unnar í samráði við náttúruverndarráð og sýndu í dag verulega skerðingu á byggða svæð- inu frá því, sem upphaflega var áætlað. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnamess, var framsögumaður og kynnti tillögurnar, eins og þær liggja fyrir og útskýrði hverrrig upp- haflegum tillögum, sem lagðar voru fram fyrir 30 ámm, hefði verið breytt. Unnið hefur verið að útgáfu náttúrufarsskýrslu um Seltjarnar- nes, sem áætlað er að komi út um áramótin, og sagðist Sigurgejr hafa átt gott samstarf við höfunda þeirrar skýrslu og nefndi Kristbjörn Egilsson sérstaklega í því sambandi. „Og ég vona að enginn sé hér inni, sem haldi í alvöru að við séum að vinna skemmdarverk á Seltjarnarnesi." Sigurgeir sagði að bærinn velti um 400 milljónum króna á ári og hafí að undanfömu keypt land fyrir 120 milljónir og þar af væm 100 milljónir ógreiddar. Það land, sem þyrfti að kaupa til að geta fram- kvæmt hugmyndir um fólkvang, væri metið á um 94 milljónir. „Fjár- hagurinn er góður en afborganir vegna landakaupa em það miklar á næstu fimmtán ámm að peningar eru ekki til fyrir meira án þess að skrúfa fyrir aðrar framkvæmdir," sagði Sigurgeir og nefndi þar sér- staklega framkvæmdir vegna íþróttamannvirkja, sex skólastofa til að gera Mýrarhúsaskóla einsetinn og kostnað við að grjótveija fjörur. Næst tók til máls Siv Friðleifsdótt- ir, bæjarfulltrúi í minnihluta, og minnti fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á kosningaloforð þgirra um verndun lands og náttúm vestan Nesstofu (vestursvæðís). Hún spurði eftir stefnu flokksins í dag og sagði að- eins tvo fulltrúa hans hafa lýst af- stöðu sinni. Siv sagðist hafna hring- veginum í skipulaginu og byggð á vestursvæðinu. Á eftir Siv tóku til máls margir fundarmenn og virtust skoðanir þeirra á einn veg, að ekki mætti byggja á vestursvæðinu. Anna Birna Jóhannesdóttir, er í stjórn Náttúru- gripasafns Seltjarnarness, og sagði það ekki rétt hjá bæjarstjóra að sam- starf hafi verið haft við náttúru- vemdarráð. Hún sagði að fyrirhug- aða byggðin myndi hindra aðrennsli jarðvatns í Bakkatjörn og sagði enn- fremur að í fyrrnefndri skýrslu kæmi fram það álit að svæði vestan byggð- ar yrði gert að fólkvangi. Guðrún Þorbergsdóttir, bæjarfull- trúi í minnihluta, tók til máls og sagðist vilja friðlýstan fólkvang á vestursvæðinu. Hún taldi hafa örlað á blekkingarleik hjá Sigurgeiri þegar hann hafi dregið upp gamla skipulag- ið til að sýna að tillögurnar væru á leið til betri vegar. „Fjárhagurinn er góður og því þá að barma okkur ... Ef við viljum ekki hækka skatta þá. getum við bæjarbúar gripið inn í myndina beint," sagði Guðrún og varpaði fram þeirri hugmýnd að gef- in yrðu út skuldabréf, sem bæjarbú- um yrði gefinn kostur á að kaupa. Þá ættu bæjarbúar hluta í landinu og svo gæti bærinn leyst þessi bréf til sín smátt og smátt. „Skattahækk- unin er til en þetta er öðruvísi að- ferð, sem ég vildi koma hér að.“ Kristinn Magnússon, fomleifa- fræðingur og starfsmaður Nesstofu- safns, tók ekki afstöðu til málsins en sagði að töluvert væri af minjum vestan Nesstofu, sem lítið hafa verið rannsakaðar en allir þeir sérfræðing- ar, sem hann hafi borið málið undir væru sammála um að þarna væri um mannaverk að ræða. Sigurgeir Sigurðsson kom aftur upp og ítrekaði margt af því, sem hann hafði áður sagt en bætti við: „Þótt náttúran sé góðra gjalda verð, verður hún að skipa sæti á eftir böm- unum,“ og var hann þar að vísa til fyrirhugaðrar viðbyggingar Mýrar- húsaskóla. „Þetta mál er ekki eins einfalt fyrir bæjarstjóra, sem verður að taka ákvarðanir í öllum hinum málurium líka.“ Sigurgeir hafnaði ennfremur ályktun Guðmars Marels- sonar, fyrrverandi forseta bæjar- stjórnar, um að allri undirbúnings- vinnu yrði frestað fram yfir næstu kosningar. Sú tillaga kom aldrei til atkvæðagreiðslu því fundurinn sam- þykkti aðra ályktun frá Önnu Bimu, sem gekk lengra og var þannig: „Við íbúar á Seltjarnamesi óskum eftir breytingum á aðalskipulagi Sel- tjarnarness þannig að óbyggða svæð- ið vestan við núverandi byggð verði skipulagt sem fólkvangur og bæjar- stjórn leiti leiða til að kaupa þetta land fyrir hönd bæjarbúa." Önnur ályktun frá Steini Jónssyni var sam- þykkt en með henni lagði fundurinn til við bæjarstjórnina að hún gengist fyrir skoðanakönnun meðal íbúa um skipulagi vestursvæðisins. Ólína taldi að forseti borgarstjórn- ar hefði átt að víta ummæli Markús- ar Arnar Antonssonar borgarstjóra á síðasta borgarstjórnarfundi þar sem hann sagði að sér fyndist allur málflutningur borgarfulltrúans, Ól- ínu Þorvarðardóttur, einkennast af skinhelgi, sem væri ríkur þáttur í eðlisfari borgarfulltrúans. Á fundin- um í fyrrakvöld spurði Ólína hvernig forseti borgarstjórnar túlkaði 17. grein samþykktar um stjórn borgar- innar og fundarsköp þar sem segði að ef borgarfulltrúi bæri aðra menn brigslum eða viki verulega frá um- ræðuefninu, skyldi forseti víta hann. Magnús sagði að í stjómmálaum- ræðunni féllu oft stór orð en þeir sem teldu það fyrir neðan virðingu sína að sitja undir tilteknum málflutn- ingi, ef hann beindist að viðkom- andi, ættu ekki að viðhafa ummæli um aðra sem orkuðu tvímælis,_ svo ekki væri fastar að orði kveðið. í því sambandi rifjaði hann upp orð sem Ólína beindi að borgarfúlltrúum Sjálfstæðisflokksins á fundi borgar- stjórnar 18. júní sl. þar sem rætt var um lokun miðeyju á Laugavegi fyrir fráman Hekluhúsið. Þá sagði Ólína: „Það er greinilegt að þetta eina bana- slys er ekki nóg miðað við þá hags- muni sem flokkurinn á að gæta, að halda góðu sambandi við þetta til- tekna fyrirtæki." Magnús sagði Ólínu þarna hafa haldið því fram að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tækju hagsmuni flokksins fram yfir mannslíf og væru þetta alvarlegustu aðdróttanir sem hann hefði heyrt í umræðum í borg- arstjórn þau 18 ár sem hann hefði verið í borgarstjórn. Ólína sagði svar Magnúsar vera snautlegt og hrokafullt. Tilvitnuð ummæli væru óheppilegur sam- anburður þar sem þeim hefði ekki verið bdffit að ákveðnum borgarfull- trúa. Nýjar bækur Skáldsaga eftir Þór- unni Valdimarsdóttur ÚT ER komin skáldsagan Júlía eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Þetta er fyrsta skáldsaga hennar er áður hefur Þórunn sent frá sér ljóðabók auk sagnfræðirita og ævisagna. „Júlía er magslungið skáldverk," segir í kynningu Forlagsins. „Hún er öðrum þræði spennusaga um ástir og örlög, ástarsaga Júlíu og Starkað ar og geymir í sér lausn á gátunni um dauða söguhetjunnar, hvers vegna var Júlía myrt? Um leið má líka lesa hana sem táknrænt framtíð- arskáldverk. Sagan ólgar af erótík og brugðið er upp heillandi sýnum og svikulum tálmyndurn." Útgefandi er Forlagið. Ess- emm/Tómas Hjálmarsson hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi hr. prent- aði. Bókin er 203 bls. Verð 2.880 kr. Þórunn Valdimarsdóttir BÓI IÐUNN KAMi ERLENDI ARKAi IURI INN Jólavörur - ótrúlegt \ Opið alla helgina rerð IÐUNN, forlagsverslun , Bræðraborgarstíg 16 — -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.