Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 48
ffrgtmÞIðfrtfe BB * N/ÍTrDrvcrkCT MICROSOFT. einar j. WINDOWS. SKÚLASONHF MORGUNBLAÐW, AVALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVlK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Skilaði vsk af ólöglegri áfengissölu LÖGREGLAN stóð verslunareig- anda að ólöglegri áfengissölu á fimmtudag. Maðurinn hélt því fram að salan hefði ekki verið ólögleg að öllu leyti. Hann hefði stimplað söluna inn í búðarkass- ann, svo hann skilaði virðisauka- skatti af viðskiptunum. Lögreglan hafði haft spurnir af því að ólögleg áfengissala færi fram í söluturni mannsins við Rauðarár- stíg. Um kl. 21 á fimmtudagskvöld fylgdust lögreglumenn svo með því þegar maður kom í söluturninn og keypti þar bæði bjór og vodka. Versl- unareigandinn, sem hefur áður verið staðinn að ólöglegri áfengissölu, ját- aði brotið en færði sér til tekna að hann hefði stimplað söluna sam- viskusamlega inn í búðarkassann, svo ríkissjóður fengi sinn virðisauka- skatt. ----» ♦ «--- Fór inn á 7 Vetrarundirbúningur við Faxagarð Morgunblaðið/Sverrir Við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn er verið að lagfæra viðlegukant Akra- bakkann. Hannes Valdimarsson hafnarstjóri sagði í samtali við Morgun- > borgarinnar. Að auki hafa verið sett upp skilti og merkingar við hafnar- blaðið að nú væri verið að dytta að og laga til við höfnina fyrir veturinn. Talsmaður Elkem um björgim Jámblendiverksmiðjunnar á Grundartanga Frumkvæðið verður að koma frá íslendingnm íðnaðarráðherra telur Elkem vilja taka þátt í uppbyggingu verksmiðjunnar TALSMENN norska fyrirtækis- ins Elkem segjast þurfa frekari upplýsingar íslenskra stjórnvalda um stöðu Járnblendiverksmiðj- unnar á Grundartanga til að ákveða hvort þeir auki hlutafé sitt. Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra segir að verið sé að senya svarbréf til Elkem og japanska fyrirtækisins Sumitomo sem einnig á hlut í verksmiðjunni. Forráðamenn Járnblendiverk- smiðjunnar telja hana þurfa 560 milljónir króna til að komast út úr kreppu, en iðnaðarráðherra segir að kannað verði hvort lægri upphæð dugi. Iðnaðarráðuneytinu barst bréf Elkem í gær og kveðst Jón Sigurðs- son túlka það svo að fyrirtækið vilji taka þátt í uppbyggingu Jámblendi- verksmiðjunnar. Einn forráða- manna Elkem sagði við Morgun- blaðið að fyrirtækið skorti forsendur til að taka endanlega ákvörðun hvað verksmiðjuna á Grundartanga varð- ar. Hann sagði að íslenska iðnaðar- ráðuneytið verði sem aðaleigandi að taka fyrsta skrefíð til bjargar gorksmiðjunni. Samningar við Landsvirkjun um hagstæð kjör í orkukaupum séu einnig vendipunkt- ur í málinu. Iðnaðarráðherra segir að íslensk stjómvöld hafí þegar tekið fyrsta skrefíð með tillögu til Norðmanna og Japana um hlutaijáraukningu. Þennan vilja þurfí að ítreka og end- urmeta íjárhæðir sem rætt sé um að þurfí. Ráðherrann hélt í gær fund með stjómendum Jámblendi- verksmiðjunnar og hlutaðeigandi ráðuneyta og segir að gerð hafí verið drög að bréfum til hinna er- lendu hluthafa. Hvað raforkuverð varðar segir hann að þar verði rekstraraðilar verksmiðjunnar að semja beint við Landsvirkjun. Rætt hefur verið óformlega um möguleika á bættum kjörum Jám- blendiverksmiðjunnar í orkukaup- um af Landsvirkjun. Nefndar hafa verið tilfærslur á greiðslum, þannig að verksmiðjunni sé gefið svigrúm til að bíða með borgun skulda, og breyting í þá veru að verð raforku til hennar verði háð afurðaverði eins og t.d. gildir um sölu til ÍSAL. Forráðamenn Jámblendiverk- smiðjunnar telja að 560 milljónir króna þurfí til að lifa af erfíðleika næstu missera. Þar af þyrfti ríkið, sem á 55% í fyrirtækinu, að leggja fram 308 milljónir, Elkem, sem á 30%, 168 milljónir og Sumitomo, sem á 15% hlut, 84 milljónir. hótelher- bergi með höfuðlykli ÞJÓFUR lét greipar sópa um áfengi og tóbak á a.m.k. sjö her- bergjum á Hótel Sögu síðdegis á fimmtudag. Auk þess hafði hann farsíma upp úr krafsinu. Þegar lögreglunni var tilkynnt um atburðinn kl. 16.46 hélt starfsfólk hótelsins að farið hefði verið inn á þijú herbergi. í ljós kom hins vegar að farið hafði verið inn á a.m.k. sjö herbergi, öll á sama gangi. Þjófurinn hafði nælt sér í svokall- aðan höfuðlykil sem gengur að öllum herbergjum, úr vörslustað hans á hótelinu og eftirleikurinn varð mann- inum auðveldur. Hann virðist aðal- lega hafa ágimst áfengi og tóbak, en að auki stal hann Mitsubishi-far- síma. Starfsfólk hótelsins sá til grun- samlegs manns á hótelinu. Rann- sóknarlögregla ríkisins fer með rann- sókn málsins. Enginn hafði verið handtekinn vegna þess í Heimsókn tíl íslands ásamt Fischer yrði afar ánægjuleg sagði Borís Spasskí í samtali við Morgunblaðið BORÍS Spasskí sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að nú þegar einvígi þeirra Bobby Fischers væri lokið kæmi vel til álita að þeir heimsæktu Island saman i tilefni þess að tuttugu ár væru liðin frá einvígi aldarinn- ar í Reykjavík og til að fagna því að Fisc- her væri aftur sestur að tafli. Blaðamaður Morgunblaðsins hafði símasam- band við Spasskí þar sem hann býr á hóteli í Belgrad. Var borin undir hann sú hugmynd sem Guðmundur G. Þórarinsson, forseti Skáksam- bands íslands, hefur sett fram opinberlega að þeir Fischer kæmu til íslands í tilefni þess að tuttúgu ár eru liðin frá einvígi aldarinnar. Spasskí tók vel í þessa hugmynd í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist ekki hafa rætt slíka Fischer og Spasskí Mögulegt er að þessir skákkappar komi til Islands i tilefni af 20 ára afmæli ein- vígis aldarinnar. heimsókn við Fischer á meðan einvígið stóð en það hefði hann gert fyrr, áður en einvígið í Júgóslavíu kom til sögunnar. „Þá fannst honum hugmyndin umræðuverð," sagði Spasskí. Spasskí sagði að Fischer væri þessa dagana kampakátur yfír sigrinum í einvíginu. Líklega ætlaði hann að dvelja í Júgóslavíu næstu vikurn- ar a.m.k. En Spasskí kvaðst ekki vita annað en Fischer væri opinn fyrir öllum hugmyndum. Hann væri líka orðinn viðræðubetri og félags- lyndari en fyrir einvígið. Kvaðst Spasskí ætla að ræða hugsanlega heimsókn til íslands við Fischer. „Við hjónin komum gjama til íslands því þar hefur okkur alltaf liðið vel. Slík heim- sókn yrði því afar ánægjuleg," sagði Spasskí. Guðmundur G. Þórarinsson forseti Skáksam- bands íslands sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að geysilegur áhugi væri í íslensku skák- hreyfingunni á að fá Fischer og Spasskí hingað og þeim yrði tekið hér opnum örmum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.