Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 UM HELGINA A Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík. Tónlist Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tónleika FYRSTU tónleikar hljómsveitar Tónlistarskólans í Reykjavík á þessu skólaári verða haldnir í Langholts- kirkju sunnudaginn 8. nóvember og hefjastkl. 17.00. A efnisskrá er: „Fanfare for Comm- on Man“ eftir Aaron Copland; „The Unanswered Question“ eftir Charles E. Ives; Fingals-hellir, forleikur op. 26 eftir Felix Mendelssohn; Rúmenskir þjóðdansar eftir Béla Bartok og Norsk- ir dansar op. 35 eftir Edward Grieg. Stjómandi er Örn Óskarsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeyp- is. Raðtónleikar TÓNLEIKAR verða haldnir á veg- um Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Hafnarborgar sunnudaginn 8. nóv- ember kl. 17. Þetta eru 14. tónleik- arnir í tónleikaröð skólans og Hafn- arborgar, þar sem kennarar skólans koma oftast fram. Hafnarfjarðar- bær hefur styrkt tónleikana, en kennarar gefið vinnu sína. Styrkur- inn frá bænum hefur runnið í styrkt- arsjóð skólans, sem aftur hefur styrkt cfnilega nemendur til nám- skeiðahalds. Á tónleikunum á sunnudaginn koma fram þau Ármann Helgason klarinettu- leikari og Guðrún Guðmundsdóttir píanóleikari. Á efnisskrá eru verk eftir Henrich Joseph Bearmann, Robert Schumann, Howard Ferguson og André Messager. Ármann Helgason lauk einleikara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík vorið 1988. Aðalkennarar hans þar voru Einar Jóhannesson og Sigurður Snorrason. Ármann stundaði fram- haldsnám við Royal Northem College of Music í Manchester og hjá prófessor John Mc Caw í Lundúnum. Hann hefur leikið með ýmsum kammerhópum og hljómsveitum. Og tekið þátt í nám- skeiðum meðal annars hjá Walter Bo- eykens og Jack Brymer. Síðastiiðinn vetur dvaldist Ármann um skeið í Kjarvalsstofu í París og sótti þá tíma hjá Philippe Cuper. Um Guðrúnu Guðmundsdóttur segir í fréttatilkynningu: Hún lauk píanó- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík árið 1979 og stundaði framhalds- nám í Köln árin 1984-1986. Guðrún hefur verið virk sem undirleikari með kóram, einleikuram og einsöngvuram. Ármann og Guðrún eru bæði kenn- arar við Tónlistarskóla Hafnarflarðar. Tónleikamir heijast kl. 17.00 á sunnu- dag og taka um hálfa klukkustund. Aðgangur er ókeypis. Myndlist Verk Steingríms Eyfjörð SÝNING á verkum Stcingríms Ey- fjörð Kristmundssonar verður opn- uð í neðri sölum Nýlistasafnsins, Vatnsstíg 3b, í dag, 7. nóvember kl. 16.00. Þetta er ijórtánda einkasýning Steingríms, en í fréttatilkynningu seg- ir að hann hafí tekið þátt í flölmörgum samsýningum heima og erlendis. Með- al annars í Hollandi, Sviss, Ítalíu og Svíþjóð. Á sýningunni era 50 teikningar og textaverk unnin á síðustu árum. Sýningin er opin kl. 14-18 alla daga. Henni lýkur 22. nóvember. Kynning á listaverka- gjöf og bókverkum NÝLISTASAFNIÐ kynnir nýlega listaverkagjöf Þórs Vigfússonar, myndlistamanns á sérstakri sýningu scm verður opnuð í dag kl. 16.00. Einnig verður opnuð sýning á 104 bókverkum sem Níels Hafstein setti saman og gaf safninu. Á sýningu listaverkagjafar Þórs Vig- fússonar eru tvö stór verk, annars veg- ar málverk í 12 hlutum (90x90) og fjallar um innbyrðis afstöðu framlit- anna. Hins vegar skúlptúr í 24 tening- slaga einingum (43x43x43) sem allar era málaðar eins í framlitum og and- stæðum litum. I fréttatilkynningu segir að það fari eftir uppröðun teninganna og nálægð þeirra hvers við annan, hvemig gildi eins litar hefur áhrif á gildi annars. Til dæmis er blár andspænis gulum frábrugðinn bláum á móti rauðum og svo framvegis. Litirnir annaðhvort dýpka og dökkna, skýrast og lýsast — en era þó áfram hinir sömu. Verkin voru gerð og sýnd á Kjarvalsstöðum árið 1979. Bókverkin sem Níels Hafsteir. setti saman era úrklippubækur um allar list- greinar á tímabilinu 1968-1978 (40x27 og 29x27). Þeim er raðað upp á hal- landi flöt sem myndar samstæða heild. Myndlistarhluti bókverkanna lá frammi á kynningarsýningu um stofn- gjafir til Nýlistasafnsins sem var hald- in í Ásmundarsal árið 1979. Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-18. Þeim lýkur sunnudaginn 22. nóvember. Hrafnhildur með grafík OPNUÐ verður einkasýning á verk- um Hrafnhildar Sigurðardóttur textíllistakonu i dag kl. 15.00 i Sneglu, listhúsi, á horni Grettisgötu og Klapparstígs. Hrafnhildur brautskráðist úr text- íldeild Myndiista- og handíðaskóla ís- lands árið 1986. Hún rekur textílvinnu- stofuna „4 grænar og 1 svört“ í Garðabæ, ásamt þremur öðram lista- konum. Hún er einnig ein af fimmtán listakonum sem standa að Sneglu, list- húsi. Á sýningunni eru grafíkverk unnin á silki með sáidþrykki, ætingu og ein- þrykki. Verkin eru öll unnin áþessu ári. í fréttatilkynningu segir að það sé nokkur nýlunda hér á landi, að grafík- verk séu unnin á önnur efni en hið hefðbundna, það er að segja pappír. Listakonan hefur stuðst við þær að- ferðir og notað þau efni sem henni era tömust úr textíllistinni. Sýning Hrafnhildar er opin á al- mennum afgreiðslutíma Sneglu kl. 12-18 virka daga, en kl. 10-14 á laug- ardögum. Lokað á sunnudögum. Sýning á dúkristum í Hlaðvarpanum SÝNING á dúkristum Katrínar Bílddal verður opnuð í Hlaðvarpan- um, Vesturgötu 3, í dag, 7. nóvem- ber kl. 14.00. í fréttatilkyiiningu segir að Katrín nefni sýningu sína „Spáðu i það“. Sýningin verður opin á virkum dög- um kl. 14-17 og um helgar kl. 13-16. Leiklist Brúðuleiksýning á dönsku í Norræna húsinu Brúðuleikhúsið Sögusvuntan sýnir Músina Rúsínu í Norræna húsinu sunnudaginn 8. nóvember kl. 17.30. Leikþátturinn verður fluttur á dönsku. Hallveig Thorlacius samdi verkið og flytur það ásamt Helgu Arnalds. Leikstjóri er Brynja Bene- diktsdóttir. Það er afmælisdagur Rúsínu. Hall- veig og Helga eru að undirbúa afmælis- veisluna. í öllum undirbúningnum taka þær ekki eftir því að Skolli refur hefur fengið áhuga á Rúsínu litlu. Hann nær henni og fer með hana í lundaholu í fuglabjargi til að fita hana. En þá koma áhorfendur til sögunnar með harla óvenjulegum hætti. í fréttatilkynningu segir að þær Haliveig Thorlacius og Helga Arnalds séu nýkomnar úr þriggja vikna leikferð frá Grænlandi. Músin Rúsína hefur einnig verið sýnd í Færeyjum. Á næstu dögum eru þær á teið til Silkiborgar í Danmörku með leikþáttinn, en ætla að sýna hann í Norræna húsinu á dönsku áður en þær leggja upp í ferð- ina. Sýningin tekur um eina klukku- stund. Allir 'eru velkomnir. Aðgangur er ókeypis. VÍ sýnir Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari? LEIKRITID „Hvenær kemurðu aft- ur rauðhærði riddari?" hefur verið tekið til sýninga í Verslunarskóla íslands. Nemendur skólans fara með hlutverkin undir leikstjórn Þor- steins Bachmanns. í fréttatilkynningu hvetja verslunar- skólanemar alla til að mæta, þar sem hér sé á ferðinni Ieikrit á léttum nótum sem höfði til allra aldurshópa. Frum- sýning var 6. nóvember. Aðrir sýning- ardagar eru 8., 10., 13., 15. og 17. nóvember. Allar sýningar heíjast kl. 20.00. Sýnt er í hátíðarsal Verslunar- skóla íslands. Hrafnhildur við eitt verka sinna. Fjötrar frelsisins __________Leiklist_____________ Súsanna Svavarsdóttir Alþýðuleikhúsið Hræðileg hamingja Höfundur: Lars Norén Þýðandi og leikstjóri: Hlín Agn- arsdóttir Aðstoðarleikstjóri: Rúnar Guð- brandsson Leikmynd, búningar og leikmun- ir: Elín Edda Árnadóttir Málverk: Magnús Kjartansson Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason Mótsagnir og aftur mótsagnir eru einkenni persónanna í þessu leikriti Lars Norén frá 1981. Tvenn hjón, Teó og Tessa, Erik og Helen, eyða saman kvöldstund, „ánægju- legri,“ eins og Helen segir, þótt hver einasta manneskja með hálf- heilbrigða dómgreind hefði gengið út úr samkvæminu — og það snemma. Þeir Teó og Erik hafa greinilega verið vinir mjög lengi, Teó er mál- ari og Erik er rithöfundur. Þeir eru af ’68 kynslóðinni, sem var (og er kannski) svo frjáls í athöfnum að tilfinningum er kyrfilega troðið ofan í pott og hlemmi skellt á. Frelsið er mjög líkamlegt; Erik og Tessa girnast hvort annað, kela og káfa hvort á öðru í hvert sinn sem Teó bregður sér frá, en hann og Tessa girnast hvort annað líka — þau geta bara ekki gert það lengur. Það er einhver tregða. Kynlífið er líka ónýtt hjá Erik og Helen og Helen girnist Teó. En svo er ekki annað að heyra en að Erik og Teó hafi alltaf haft líkamleg samskipti. Samt eru allir yfir sig ástfangnir af sínum eigin maka. Ó þetta er svo frjálst. En auðvitað kraumar í pottinum og vanræktar tilfinningarnar bijót- ast út án þess að persónurnar hafi nokkra stjórn á því hvernig það gerist og hvenær. Þær ráða ekki heldur við það að tilfinningarnar bijótast út á neikvæðan hátt. Þær eru árásargjarnar, andstyggilgar, orðljótar og líf þeirra sem birtist manni þessa einu kvöldstund er vægast sagt „gróteskt". Þeim líður greinilega öllum illa. Hvert og eitt þeirra reynir að hefja sig yfir hitt; Teó er kaldhæðinn og meinlegur, Tessa reynir að ögra honum með keleríi sínu við Erik en Teó bregst ekki við því. Erik er nautnasjúkur og ofbeldishneigður og Helen reynir að ögra honum með því að vinna í kvennaathvarfi. í rauninni eru þetta ákaflega leið- inlegar manneskjur. Þau drekka iátlaust, nema Erik til að byija með; hann er að reyna að hætta. Þau halda einræður sem eiginlega ganga út á að „pabbi minn var verri en pabbi þinn“ hjá körlunum (Tarsan er greinilega ekki hetja þessarar kynslóðar) og þau dragn- ast öll með uppeldi sitt á vörum í gegnum lífið. Það er orðið að því- líkri þráhyggju að þau njóta einskis í tilverunni. Sársaukinn yfir því að hafa aldrei verið til, tilfinnninga- lega, er að buga þau. En þau kunna ekki að koma sér út úr þjáning- unni, heldur þvert á móti — þau Frönsk kvikmyndavika Evrópubúar verða að halda uppi kyndli evrópskrar menningar - segir Philippe Maynial forstjóri hjá Gaum- ont, stærsta kvikmyndafyrirtæki Frakklands. FRÖNSK kvikmyndavika hefur göngu sína í dag og verða sýndar fimm nýjar franskar myndir og ein íslensk. Alliance Francaise og menningardeild franska sendiráðsins standa að hátíðinni auk Há- skólabíós, þar sem myndirnar verða sýndar. Einn af gestum Frönsku kvikmyndavikunnar er Philippe Maynial, forstjóri alþjóð- legs markaðssviðs Gaumont, sem er stærsta framleiðslu- og dreif- ingarfyrirtæki Frakklands á sviði kvikmynda. Gaumont framleiðir þrjár þeirra mynda sem sýndar verða á kvikmyndavikunni; „IP5- Fílaeyjan" eftir leikstjórann Jean-Jacques Beineix, „Céline“ eftir leikstjórann Jean-Claude Brisseau og „Hógværa stúlkan“ eftir Christian Vincent. Frakkar framleiða um 120-130 kvikmyndir árlega, og á næsta ári framleiðir Gaumont og dreifir 10 myndum sjálft, auk mynda sem fyrirtækir dreifir fyrir aðra. Fyrir- tækið á 250 sali í Frakklandi einu, og leggur fé bæði í kvikmyndir efnilegra leikstjóra og þeirra sem eldri og reyndari eru. Meðal þekktra leikstjóra í yngri kantinum sem eru á þeirra snærum kannast íslenskir kvikmyndahúsagestir eflaust við Luc Besson og Jean- Jacques Beineix, en þeir koma líka óþekktum aðilum á framfæri, eins og Cristian Vincent, leikstjóra „Hógværu stúlkunnar". „Ungir leikstjórar verða að byija einhvers staðar og ef við höfum trú á fram- takinu, fjármögnum við það, en við erum í þeirri aðstöðu að verða að veðja oftar á örugga hesta,“ segir Philippe Maynial. Að sögn Maynials fékk Gaumont nýlega áhuga á Norðurlöndunum, og hefur hann verið með málefni þeirra á sinni könnu í tvö ár. „Ásamt innlendum sérfræðingum í myndum Norðurlanda höfum við rýnt í kvikmynda- og sjónvarps- markaðinn þar, og samið söluáætl- un til að dreifa og selja franskar myndir. Þetta er í fyrsta skipti sem ég heimsæki ísland, en við höfum gert okkur grein fyrir því að Island sé ekki jafn langt í burtu og við héldum, og alls ekki vanbúið með tilliti til kvikmyndahúsa og þess tækjakosts sem þar er að finna, þótt eflaust megi finna að ein- hveiju smáræði. Næsta ár höldum við áfram að kynna franskar kvik- myndir, og komum með leikstjóra og leikara hingað til að auka veg og fjölda franskra kvikmynda í íslenskum kvikmyndahúsum. Einnig þurfum við að huga að myndbandamarkaðinum og koma á hógværu sölukerfi rétthafa sem svarar þeirri eftirspurn sem þegat' er til staðar og auka hungur al- mennings smátt og smátt eftir öðru en bandarískum kvikmynd- um. Hnattstaða íslands og menn- ingargerð er þess eðlis, að landið ætti að vera afskaplega opið fyrir ólíkum menningarstraumum, en þess í stað eru amerísk áhrif alls- ráðandi. Frakkar glíma líka við þetta ofríki, en í stað þess að 95%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.