Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 2
2__________________________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
Samskip hækka farm-
gjöldin um rúm 4%
Mikil hálka var og allhvasst á Hellisheiði í gær. Vindhviða slengdi rútu til,
svo hún rann af veginum og festist í skafli. Á eftir henni ók vörubfll með
tengivagni og hemlaði ökumaður hans þegar hann sá örlög rútunnar. Við
hemlunina rann hann út í vegkant og festist. Engin slys urðu á fólki.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Frá uppboði Fiskmarkaðar Suðumesja í gær. Á tölvuskjánum er tilboð norska kaupandans í Myre
í 100 kg af karfa.
Samstarf við fiskmarkaði í
Noregi og Hollandi skoðað
FYRIRHUGAÐAR eni viðræður milli fískmarkaða á íslaiidi, í
Noregi og Hollandi um samstarf þeirra í milli. Norðmaður stadd-
ur i borginni Myre í Norður-Noregi keypti í gær 100 kg af karfa
á uppboði Fiskmarkaðar Suðurnesja í gegnum tölvukerfi. Ólafur
Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri markaðarins, sem hefur ver-
ið á námsstefnu um fiskmarkaði sem norskir aðilar standa að,
segir að miklir möguleikar séu á samstarfi fiskmarkaða í Evrópu.
Ólafur hélt fyrirlestur á náms-
stefnunni og bauð mönnum að
fylgjast með uppboði og bjóða í
fisk hjá Fiskmarkaði Suðumesja.
Hann sagði að uppboðið hefði
gengið vel.
Ólafur sagði að Norðmenn væru
í upphafsstöðu hvað varðar upp-
byggingu fiskmarkaða og litu mjög
til reynslu Islendinga á því sviði,
en hér á landi hafa slíkir markaðir
verið reknir um fímm ára skeið.
Nýlega hefur verið stofnaður fisk-
markaður í Myre og mikil umræða
hefði farið fram í Noregi um al-
þjóðlega fiskmarkaði þar sem fisk-
kaupendur gætu keypt fisk hvað-
anæva að úr heiminum. Þá hefðu
forsvarsmenn fiskmarkaða í Ijmu-
iden, sem er helsta fiskmarkaðs-
höfnin fyrir Amsterdam, og á Shet-
landseyjum haldið fyrirlestra. Á
hollenska markaði voru seld um
17 þúsund tonn af fiski á síðasta
ári, en heildarsala íslenskra fisk-
markaða í fyrra var á milli 65-70
þúsund tonn. Ólafur sagði að þess-
ir markaðir gætu alltaf tekið við
meiru. „Það var mjög mikill áhugi
á því að fiskmarkaðir Hollands,
íslands og jafnvel Noregs geti
tengst. Það voru allir sammála um
það að í framtíðinni yrði hægt að
bjóða í fisk hvar sem er, en það
þyrfti að þróa flutningsleiðir,"
sagði Ólafur.
Hann sagði að vonir stæðu til
að erlendir aðilar hefðu í þessu
tilliti lítinn áhuga á því að flytja
út roð, bein og hausa yfir hafið.
„Ég held að íslensk fiskvinnsla
verði alltaf samkeppnisfær og við
höfum enga ástæðu til að ætla
annað en að fiskurinn verði unninn
heima, ekki síst í ljósi EES. Með
því að flytja fiskinn óunninn á er-
lendan markað er flutningskostn-
aðurinn helmingi hærri en ef um
unninn físk væri að ræða. Þetta
kemur sér líka vel ef það stefnir
í offramboð á heimamarkaði. Það
er markmið fiskmarkaða að skila
sínum umbjóðendum hæsta verði.“
Á HLUTHAFAFUNDI Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans í dag verð-
ur tekin afstaða til tillögu stjórnar um að hluthöfum sem þess óska
verði gefinn kostur á að skipta út hlutabréfum í félaginu fyrir hluta-
bréf í Islandsbanka. Jafnframt liggur fyrir fundinum tillaga um breytta
fjárfestingarstefnu fyrir félagið þannig að fjárfest verði í fleiri félög-
um en bankanum eftir nánari reglum stjórnar.
Nokkrar umræður hafa verið um sjónarmiði verið haldið fram að rétt
framtíð eignarhaldsfélagsins frá því
íslandsbanki var stofnaður m.a.
vegna þrýstings frá forráðamönnum
hinna félaganna tveggja, Eignar-
haldsfélaga Iðnaðar- og Verslunar-
banka um að félögin verið leyst upp
sem fyrst. Innan félagsins hefur þvi
sé að leggja það niður en stærstu
hluthafamir geti eftir sem áður stað-
ið saman. Á hinn bóginn hafa verið
uppi hugmyndir um að eignarhalds-
félagið eigi að snúa sér að öðrum
verkefnum nú þegar sameiningu
bankanna sé lokið. Hingað til hefur
Vandræði íhálku og roki á Hellisheiði
Bjöm Halldórsson stjómandi frum-
rannsóknar kókaínmálsins yfír-
heyrður í héraðsdómi. 24-25
Leiðari________________________
Verðbréfamarkaðurinn og Skan-
dia. 24
Lesbók
► Orgelið í Hallgrímskirkju-
Hvað er á óskalista túristanna-
Er kirkjan lifandi afl eða steinr-
unnin stofnun- Keflvíkingasaga
Þórarins Eldjárns.
Menning/Listir
► Þórarinn Eldjárn segir frá
nýútkominni bók sinni - Laufey
Helgadóttir skrifar um sýning-
una Documenta í Kassel í Þýska-
landi.
Tillaga um breytt hlutverk Eignarhaldsfélags Alþýðubankans
SAMSKIP hf. hafa ákveðið að
hækka farmgjöld í millilandasigl-
ingum um rúmlega 4% að meðal-
tali frá og með 10. nóvember
næstkomandi. Félagið fylgdi for-
dæmi Eimskips í síðasta mánuði
með þvi að tilkynna 6% hækkun.
Samskip drógu hækkun sína til
baka og Eimskip fór niður í 4%
hækkun um mánaðamótin. Þó
meðaltalshækkun Samskipa sé
Saksóknari
óskar eftir
málsgögnum
RÍKISSAKSÓKNARI hefur óskað
eftir því við lögreglustjórann í
* Reykjavík að fá til sín gögn sem
snerta mál fyrrum starfsmanna
fikniefnadeildar lögreglunnar.
Hafa þeir óskað eftir opinberri
rannsókn á ummælum Bjöms Hall-
dórssonar lögreglufulltrúa í tímarits-
viðtali. Að sögn ríkissaksóknara
. verður ekki tekin ákvörðun um hvort
efnt verði til opinberrar rannsóknar,
fyrr en umbeðin gögn hafa borist frá
lögreglustjóra.
svipuð og Eimskips eru breyting-
arnar mismunandi á milli gjald-
miðla. Samskip hækka flutnings-
gjöld til og frá Bandaríkjunum og
Norðurlöndunum minna en Eim-
skip en tilkynna meiri hækkun til
og frá meginlandi Evrópu.
Ómar Hlíðkvist Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samskipa, sagði að frá
því félagið dró áform um hækkun
til baka í síðasta mánuði hafi starfs-
menn félagsins farið nákvæmlega
yfír allan rekstur fyrirtækisins í þeim
tilgangi að reyna að fínna leiðir til
að komast hjá hækkun flutningstaxt-
anna. Eiigar aðrar leiðir hefðu fund-
ist til að auka tekjumar.
Ómar benti á að mikil lækkun
hefði orðið á almennum sjóflutninga-
gjöldum á undanfömum árum og
ekki síst á þessu ári. Þetta hafí gerst
samhliða minnkun í flutningum.
Sagði hann að Samskip hf. væru
rekin með tapi á árinu, þrátt fyrir
mikinn sparnað í rekstrarútgjöldum.
Ómar sagði að þó Samskip hefðu
aukið markaðshlutdeild sína veru-
lega væri félagið enn með innan við
40% af stykkjavöruflutningunum og
viðurkenndi hann að erfítt væri fyrir
minni aðilann á markaðnum að
ákveða allt aðra verðstefnu en keppi-
nauturinn þegar tap væri á rekstri.
Hluthafar eigi kost á beinni
eignaraðild að Islandsbanka
ítalskt
sendiráð í
Reykjavík
ánæstaári
ÍTALIR hyggjast opna sendi-
ráð í Reyiyavík eftir áramót
og segir stjórnarerindreki í
ítalska sendiráðinu í Osló að
aðeins standi á því að fínna
fólk til starfa hérlendis.
Þáverandi utanríkisráðherra
Ítalíu lýsti því yfir í fyrra, þeg-
ar á heimsókn forseta landsins
til íslands stóð, að opnað yrði
sendiráð í Reykjavík. Sendi-
herrann í Osló staðfesti í gær
að stefnt sé að því að koma hér
upp ítölsku sendiráði eftir ára-
mótin.
í dag
Leiklist______________________
Uppsetningin hefur heppnast vel,
segir gagnrýnandi Morgunblaðsins
um leikritið Hræðileg hamingja í
Alþýðuleikhúsinu. 12-13
Breski íhaldsflokkurinn_______
Þingmenn í íhaldsflokknum saka
forystuna um lúalegar ógnanir. 23
Kókainmálið
það sjónarmið verið ráðandi að eign
þess í Islandsbanka sé félagslegt
samstarfsverkefni í framhaldi af
rekstri Alþýðubankans. Af þeirri
ástæðu sé- rétt að halda eignarhalds-
félaginu og afmarka starfsemi þess
við eignarhaldið á hlut þess í íslands-
banka.
í greinargerð Ásmundar Stefáns-
sonar, stjómarformanns Eignar-
haldsfélagsins, frá því í september
eru reifaðar hugmyndir um hvemig
megi koma til móts við hin ólíku sjón-
armið. Þær hafa nú að hluta litið
dagsins ljós í tillögunum sem liggja
fyrir hluthafafundinum í dag. Þar
er um að ræða að hluthöfum verði
gefinn kostur á að skipta út hluta-
bréfum sínum fyrir hlutabréf í ís-
landsbanka. Jafnframt breyti eignar-
haldsfélagið starfsemi sinni þannig
að það verði almennt eignarhaldsfé-
lag en takmarki ekki eignina við hlut
í Islandsbanka. Þá er gert ráð fyrir
að hlutafé félagsins verði aukið til
að gefa aukið svigrúm til kaupa á
hlutafé í öðmm fyrirtækjum. Loks
verði stefnt að því að hlutafé í ís-
landsbanka verði eftir breytingu í
mesta lagi 20% heildarhlutafjár
bankans. Asmundur telur að skipting
á eignum Eignarhaldsfélagsins með
hinu nýja fyrirkomulagi geti verið
þannig að 60-65% sé í traustum
markaðshæfum hlutabréfum, 5-10%
í erlendum hlutabréfum en 30% yrði
varið til fjárfestinga í nýsköpunar-
verkefnum og til endurskipulagning-
ar fyrirtækja.
Um síðustu áramót var eignar-
hluti eignarhaldsfélagsins í íslands-
banka talinn tæplega 1.470 milljónir
en eigið fé í heild 1.840 milljónir.
Auk þess réð félagið yfír rúmlega
180 milljónum um síðustu áramót
sem fengnar vom að láni frá ríkis-
sjóði í tengslum við kaupin á Útvegs-
bankanum. Þannig hafði félagið ti!
ráðstöfunar um síðustu áramót rúm-
lega 550 milljónir. Fram kemur í
greinargerðinni að hlutafjárútboð sé
áformað í íslandsbanka en ákvörðun
hafi ekki verið tekin.
Skíðasvæði
í Bláfjöllum
og Skálafelli
opnuð í dag
SKÍÐASVÆÐIN í Bláfjöll-
um og Skálafelli verða opn-
uð í dag klukkan 10 í fyrsta
skipti á þessum vetri ef veð-
ur leyfir.
í Bláfjöllum er stefnt að því
að opna stólalyftuna og tvær
minni lyftur í dag og tvær tog-
lyftur í Skálafelli.
„Hér er komið algert vetrar-
ríki og býsna góður snjór,“
sagði Þorsteinn Hjaltason um-
sjónarmaður Bláfjallasvæðisins
í gær. Hann sagði að nánari
upplýsingar myndu liggja fyrir
nú í morgunsárið.