Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 4
4
01 H39M3VÖVÍ ,T HUOAQHAOUAJ UIUAJHVíUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
Fundi lokað í borgarstjóm
Ábyrðarleysi að taka mál-
ið upp með þessum hætti
••
- segir Markús Orn Antonsson borgarstjóri
MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri, segir það ábyrgðarleysi af Sigur-
jóni Péturssyni borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, að taka upp mál
með þeim hætti sem hann gerði á síðasta fundi borgarstjórnar. Sigur-
jón hefði mátt vita að ekki yrði farið leynt með nöfn embættismann-
anna, sem hann bar þungum sökum og því ekki rétt að óska eftir lokuð-
um fundi. Auk þess væri annar mannanna ekki embættismaður borgar-
innar heldur sjálfstætt vinnandi ráðgjafi en hann ætti sér alnafna sem
er skrifstofustjóri borgarverkfræðings.
Að ósk Siguijóns, var fundi borg-
arstjómar lokað um tíma síðastliðinn
fimmtudag, meðan hann greindi
borgarfulltrúum frá nöfnum tveggja
embættismanna, sem hann taldi að
hefðu gert siðlausan verksamning
við fimm skólapilta en þrír piltanna
væru synir embættismannanna.
Borgarstjóri sagði, að hér væri um
að ræða þá Bjöm Halldórsson for-
stöðumann skólaskrifstofunnar og
Ágúst Jónsson verkfræðing, en hann
hefur starfað við verk á vegum skóla-
skrifstofu sem sjálfstæður verkfræð-
ingur og ráðgjafi. „Hann er ekki
embættismaður borgarinnar," sagði
Markús.
Um er að ræða tilboð, sem piltam-
ir gerðu í lóðarfrágang við Selja-
skóla. Sagðist Markús ekki geta séð
á þeim gögnum sem fyrir lægju hvort
eingöngu væri um launagreiðslur að
ræða eða hvort útlagður kostnaður
þeirra væri innifalinn í greiðslunum
en Siguijón taldi að laun piltanna
hefðu verið 75 þús. kr. á mann á
viku. „Siguijón hafði lítið í höndun-
um og það sem hann hafði fékk
hann frá Bimi Halldórssyni,“ sagði
Markús. „Þess vegna er erfítt að
átta sig á hvers vegna hann fór fram
á umræður fyrir luktum dymm, þar
sem hægt er að taka mál sem þetta
upp í borgarráði. Auðvitað mun eng-
in leynd hvíla yfír þessu máli. Það
er ábyrgðarleysi að ræða um ónafn-
greinda embættismenn borgarinnar
og láta það standa þannig um tíma
á meðan allir em að velta því fyrir
sér hver á í hlut. Þannig fengju gróu-
sögur byr undir báða vængi. Þetta
sýnir hvað það er hæpið að taka mál
upp með þessum hætti og slá því
fram að þetta séu tveir embætt-
ismenn borgarinnar og þama er al-
nafni annars mannsins sem vinnu
hjá byggingadeild borgarinnar."
Borgarstjóri sagði, að Bjöm Hall-
dórsson fengi tækifæri til að skýra
sitt mál, þar sem margt væri enn
óljóst. Vonaðist hann til að það yrði
á fundi borgarráðs á þriðjudag.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 7. NÓVEMBER
YFIRUT: Skammt sustur af Gerpi er 985 mb laegð 8em hreyfist austnorðaustur, en
é Graenlandshafi er vaxandl 1.018 mb hæð.
SPÁ: Það laeglr og styttir upp í nótt og framan af degi verður bjart og styllt veður
um naerri allt land. Undir kvöld þykknar upp með vaxandi suðaustanátt sunnanlands
og vestan-. Það frystir f nótt, en hiýnar aftur um síðir.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan- og suðvestanátt, sums staðar nokkuð hvöss um
tíma, víða rlgning eða skúrir. Hiti 6-9 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suövestanátt, kaldi eða stinningskaldi, víða skúrir eða
stydduél sunnan- og vestanlands, en að mestu úrkomulaust annars staðar. Hiti frá
tveimur stigum niður í tveggja stiga frost.
HORFUR A ÞRIÐJUDAG: Austan- og norðaustanátt, nokkuð hvöss um vestanvert
landið, en mun hægeri annars staðar. Norðan- og austanlands má búast við snjó-
komu eða slyddu en úrkomulltlu eða urkomulausu veðri á suðvestanverðu landinu.
Vægt frost um allt land.
Nýir veðurfregnatfmar: 1.30,4.30,7.30,10.48,1ÍL46,16.30,19.30,22.30. Svarsfmi
Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 890600.
O tík
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
&
Skýjað
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
v súld
== Þoka
riig-.
(Kl. 17.30ígser)
FÆRÐA VEGUM:
Talsverð hálka er nú á Hellisheiði og f Þrengslum. Sama er að segja um ýmsa vegi
á Suðurl8ndi. Annars er greiöfært með suðurströndinni og austur á Austflrði. Mos-
fellsheiði verður mokuð I dag fyrir hádegi. A Vesturfandi og Norðurtandi er vföa hálka
á vegum en vegir annars greiðfærir um Borgarfjörð, Snæfellsnes og norður í land.
Á Vestfjörðum er verið að moka vegina um Klettsháls, Dynjandisheiði, Hrafnseyrar-
heiði og Breiðadals- og Botnseiðar og gert ráð fyrir að þær verði færsr fljótíega.
Fært er frá Patreksfiröi til Bíldudals og einnlg suður á Baröaströnd. Steingrimsfjarð-
arheiði er fær en þar er vonskuveður og versnandi færð. ( Strandaaýslu sunnan
Bjarnarfjarðar og á Norður- og Austurlandi eru vegir víðast færir en hálir. Beðið er
þó átekta meö mokstur á Vopnafjarðarheiði, á Möðrudalsöræfum og Hellisheiði
eystri.
Upplýsingar um færö eru veittar hjá Vegaeftlrllti í síma 91-631500 og á grænni llnu
99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hiti 3 3 veöur rigning skýjaö
Bergen 10 skýjað
Helslnki +1 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Narssarssuaq 3 úrkoma
Nuuk 1 slskýjað
Ósló 1 þoka
Stokkhólmur 3 rigning
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 22 heiðskirt
Amsterdam 13 þokumóða
Barcelona 18 þokumóða
Berlín 12 alskýjað
Chicago 1 alskýjað
Feneyjar 12 þoka
Frankfurt 13 léttskýjað
Glasgow 14 rigning
Hamborg 11 skýjað
London 16 mistur
LosAngeles 14 lóttskýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Madrid 17 heiðskirt
Malaga 19 Iétt8kýjaö
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal 2 skýjað
NowYork vantar
Orlando 21 alskýjað
París 9 þoka
Madelra 20 skýjað
Róm 23 þokumóða
Vín 16 skýjað
Washington 5 léttskýjað
Wlnnipeg +9 alskýjað
Ljósm. Halldór Benóný Nellett
Erlend skip við 200 mílurnar
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sýn, kom að fímm erlendum fiski-
skipum að karfaveiðum rétt utan við 200 sjómílna lögsöguna VSV
af Reykjanesi í gær. Um var að ræða þrjá þýska togara, Heinz
Daduna, Otto Wickbolt og Fritz Dettmann, ásamt þýska eftirlitsskip-
inu Frithjof. Þá var þar einn færeyskur togari, VA-300, og norski
togarinn Koralen, sem var einungis um 4 sjómílur undan lögsögu-
mörkunum. Athygli vakti að enginn íslenskur togari var á þessum
slóðum.
Sameinuðu þjóðirnar
Störf við friðargæslu
verða auglýst bráðlega
LISTAR með nöfnum íslendinga sem reiðubúnir eru til stjórnunar-
starfa í tengslum við friðargæslu verða sendir Sameinuðu þjóðun-
um síðar í þessum mánuði, að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanrikisráðherra. Stofnunin biður um fimm menn með reynslu
af stjórngæslu til starfa í fyrrum Júgóslavíu og átta háskóla-
gengna starfskrafta á ýmis friðargæslusvæði.
Fulltrúar utanríkis- og Ijármála-
ráðuneyta könnuðu málið og ríkis-
stjómin samþykkti á fundi sínum
í gærmorgun að verða við beiðni
Sameinuðu þjóðanna um mann-
skap. Óskað er eftir fímm mönnum
til stjómunarstarfa í friðargæslu
þar sem áður hét Júgóslavía og
áskilið að þeir hafí sex ára reynslu
af stjómsýslu. Jón Baldvin segir
að yfírmönnum ráðuneyta og opin-
berra stofnana verði falið að at-
huga hvort þeir hafi hæft og vilj-
ugt fólk. Kostnaður vegna þessara
aðila yrði að sögn Jóns væntanlega
greiddur af íslenska ríkinu, en
miðað er við launataxta SÞ á svo-
nefndu P3-stigi.
Landsvirkiun
Jafnframt er beðið um átta há-
skólamenntaða menn til stjómun-
arstarfa í einhveijum af friðar-
gæslusvæðum SÞ og segir ráðherr-
ann að þessi störf verði væntanlega
auglýst bráðlega. Hann segir að
samið verði við SÞ um greiðslu
kostnaðar vegna starfskraftanna,
líklegast sé að íslenska ríkið borgi
þeim kaup. Sameinuðu þjóðirnar
óska eftir nafnalistum seinna í
mánuðinum og segir Jón Baldvin
að stofnunin hafí svo eftir þörfum
samband við fólk sem þar er lýst
reiðubúið til starfa. Ekki sé um
hemað að ræða, heldur skrifstofu-
störf.
Veitaafslátttil
stórra kaupenda
STJÓRN Landsvirkjunar hefur samþykkt að veita einnar krónu
afslátt á verði umframrafmagns til stórra rafmagnskaupenda.
Gert er ráð fyrir að afslátturinn gildi í fimm ár og frá og með
L janúar 1993. Þeir rafmagnsnotendur sem rétt eiga á afslætti
skuldbinda sig til að kaupa eftir sem áður jafn mikið forgangsraf-
magn á ári eða minnst 300 MWst., miðað við síðustu 12 mánuði.
Talið er að rúmlega 300 stórir rafmagnskaupendur gætu notfært
sér afsláttinn.
í frétt frá Landsvirkjun kemur
fram, að um sérstaka skilmála sé
að ræða og er þetta tilboð gert til
að örva sölu á rafmagni. Heildsölu-
verð Landsvirkjunar á forgangsr-
afmagni til almenningsrafveitna
er að meðaltali um kr. 2,65 á
kWst og á afslátturinn að skila
sér óskertur um rafveiturnar til
viðskiptavina þeirra. „Verð raf-
veitna á forgangsrafmagni til
flestra stórra notenda er hins veg-
ar á bilinu 4 til 5 krónur á kWst
án virðisaukaskatts. Þeir raf-
magnsnotendur sem eiga rétt á
afslættinum og hyggja á aukna
rafmagnsnotkun geta því fengið
umframrafmagn á bilinu 3 til 4
krónur á kWst án virðisaukaskatts
eftir rafveitum og orkumagni."
Unnið er að gerð kynningarefn-
is um sölu á umframrafmagni og
munu rafveitur geta veitt upplýs-
ingar um söluskilmála innan fárra
daga.