Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 Sinfóníutónleikar ________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika sl. fimmtudag í Háskólabíói. Á efnisskránni voru þrjú verk, Reflection, eftir Árna Egilsson, píanókonsertinn a-moll, eftir Schumann og níunda sinfónían eftir Shostako- vítsj. Einleikari var Krystyna Cortes en stjórnandi Hannu Koivula. Reflection eftir Árna Egils- son er, eins og stendur í efnis- skrá, „tónalt“ verk og var í heild fallega hljómandi og á köflum íhugult. Úrvinnsla ýmissa tónhugmynda er mikið bundin við þrástefja (ostinato) aðferðina, sem gerði tónferlið af og til nokkuð kyrrstætt en kaflaskil aftur á móti glögg. Einraddaður leikur strengja undir lokin, leiddi yfir í fallegan og íhugandi kafla en verkinu lauk á veikum smábjölluhljómi. Reflection er ágætt verk, ekki stórt í sniðum en á köflum fal- legt. Píanókonsertinn í a-moll eftir Schumann er eitt af glæsiverk- um píanóbókmenntanna, erfítt verk, nær einn samfelldur píanóleikur, með örfáum hljóm- sveitarinnskotum. Krystyna Cortes lék á píanóið og valdi að leika konsertinn nokkuð hægt og leggja áherslu á fínlega túlkun, sem víða í 1. kaflanum en þó einkum í þeim hæga, var fallega útfærð. Fyrir bragðið vantaði spennu í verkið, sér- staklega síðasta þáttinn, sem auk þess var allt 'of tóndaufur, sérstaklega hratt tónferlið í hægri hendinni. Tónleikunum lauk með níundu sinfóníunni eftir Shos- takovítsj. Saga þessa mikla tón- skálds er sérkennileg. Á sama tíma og flest tónskáld Sovétríkj- anna lögðust eins lágt og stjórn- völd vildu, tókst Shostakovítsj að halda sínu striki, flúði aldrei af hólmi, þó að honum væri vegið. Það er í raun stórkostlegt að hann skuli geta samið svo glaðlegt verk, sem þá níundu, en þar blandar hann saman gamansemi og trega, eins og háðskur trúður, sem segir sann- leikann á þann hátt, að undan svíður. Upptaktsstefið í básún- unum, í fyrsta þætti, er eins konar fyrirskipun, sem ekki er tekið mark á en fær sorglegan svip í öðrum þætti, því þar miss- ir það sérstöðu sína og verður hluti tónvefnum, t.d. í undirleik strengjasveitarinnar. í þessu verki er tónvefurinn mjög ljós og þar fá tréblásturshljóðfærin ýmislegt skemmtilegt að spila, t.d. Hafsteinn Guðmundsson á fagott, Einar Jóhannesson á klarinett, Jón Sigurbjörnsson á flautu og margir fleiri. Leikur hljómsveitarinnar var mjög góð- ur, leikandi léttur og einnig al- varlegur og auðheyrt að Hannu Koivula er góður stjórnandi og vel heima í Shostakovítsj. Stakfell Fasteignasala Sudurlandsbraut 6 687633 if Lögfrædingur Þórhildur Sandholt Sölumenn Gísli Sigurbjörnsson Sigurbjörn Þorbergsson Opið í dag, laugardag, kl. 11-14 911 Kfl 91 97fl LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I lvJU"tlO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteígnasau Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Fyrir smið eða laghentan 2ja herb. rúmg. íb. í kj./jarðh. á vinsælum stað í gamla vesturbænum. Samþykkt. Þarfn. nokkurra endurb. Laus strax. Verð aðeins kr. 4,1 millj. Aðalhæð í tvíbýlishúsi 5 herb. 138 fm nettó við Lyngbrekku Kóp. Glæsilegur trjágarður. Bílsk- réttur. Eignask. mögul. Mjög gott verð. Nýleg sérhæð í tvíbýlishúsi Neðri hæð 4ra herb. 104,3 fm nettö skammt frá Háskólanum. Vel skipulögð. Allt sér. Frágengin lóð. Góður bílsk. Laus fljótl. Skammt frá Menntask. við Hamrahlíð Neðri hæð 6 herb. í þríbhúsi um 140 fm auk geymslu og föndurherb. í kj. 3 svefnh. í svefnálmu, forstofuherb. m. sérsnyrt. Allt sér. Góður bílsk. Ágæt sameign. Hæðin er öll eins og ný. í nágr. grunnskólans við Hamrahlíð óskast til kaups góð 4ra-5 herb. ib. á 1. hæð. Við Bústaðaveg eða nágr. Leitum að góðri 4ra-6 herb. íb. helst með sérinng. og bílskúr. Má þarfn. endurbóta. 2ja herb. íbúðir óskast i Vesturb., í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Góðar greiðslur í boði. • • • Opiðídagkl. 10-16. Fjársterkir kaupendur á skrá. Almenna fasteignasalan sf. ________________________________ var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 AtMENNA FASTEIGNASALAN I Kbre0uii$(fibtfr ~ Guðrún Krisljánsdóttir: Landslag. Olía á striga, 1991—92. Guðrún Krislj ánsdóttir Myndlist Eiríkur Þorláksson Hálendi íslands er undarlegur heimur andstæðna, sem sífellt fleiri hafa verið að uppgötva hin síðari ár. Um leið hefur orðið mikil viðhorfs- breyting til þessa hluta landsins, sem áður var gjarnan lýst sem einskis nýtri eyðimörk, en er nú með réttu talið eitt fjölskrúðugasta en um leið viðkvæmasta svæði íslenskrar nátt- úru, sem þarf að umgangast með varúð og virðingu. Stækkandi hópur listamanna hefur sótt þangað mynd- efni sitt, eins og listunnendur kann- ast við frá ýmsum sýningum undan- farin ár, og má segja að þetta mið- svæði landsins sé að taka við hlut- verki sögustaðanna, fossanna og skógarlundanna sem helsta einkenni íslenska landslagsmálverksins. Um þessar mundir standa yfir tvær sýningar listakonunnar Guðrúnar Kristjánsdóttur, sem byggja á sýn hennar til þessa svæðis. Hér er um að ræða sýningu í FÍM-salnum við Garðastræti, þar sem getur að líta klippimyndir og veggmyndir úr stáli, og síðan í sýningarsal Norræna húss- ins, þar sem stór olíumálverk ráða ríkjum, en einnig eru þar nokkrar veggmyndir úr stáli. Myndir Guðrúnar eru ekki bundnar ákveðnum stöðum; hún nefnir þær allar einfaldlega „Landslag". Hér er um að ræða endurminningar, áhrif, sýn listakonunnar á landið; staðir eða heiti skipta ekki máli. Hins vegar hefur Guðrún fyrir löngu fundið það grunnatriði, sem einkennir allt þetta landssvæði, þrátt fyrir allan fjöl- breytileik þess; það er hin lárétta lína sjóndeildarhringsins, sem ræður ríkj- um á hálendi íslands og skapar jafn- vægi þess og ró, sem er einn sterk- asti þátturinn í aðdráttarafli þess. Þetta kemur fram á sterkan hátt í flestum verkum listakonunnar. Þau eru löng og mjó, og myndbyggingin 'er traust og einföld; sléttan í for- grunni leiðir augun upp að ljósu bandi í miðri myndinni, sem getur verið jökulfijót eða stöðuvatn; handan þess taka við lág fjöll, jöklar og/eða hi- minninn. Klippimyndirnar í FÍM-salnum leggja grunninn, og tekst allvel, eink- um vegna þess hve litun hins hand- unna pappírs hefur tekist vel. íjöllin virðast jafnvel fljóta ofan á sléttunni líkt og hillingar, og er það ekki íjarri þeirri sjónreynslu sem góðviðrisdagar á hálendinu bjóða upp á. Hins vegar hefta smæðin og glansandi álramm- arnir þessar myndir, þannig að þær ná sér ekki nægilega vel á flug; þær skortir einfaldlega stærðina, meira rými. Umsjónarmaður Gísli Jónsson 665. þáttur Þorsteinn E. Jónsson í Reykjavík skrifar ínér m.a. á þessa leið: „í 659. þætti þínum (Mbl. 26. ág. ’92) birtir þú fróðlegt bréf frá Ö. Th. sem bersýnilega ber gott skynbragð á íslenzkt mál. Eitt rakst ég samt á í bréfi hans sem vakti forvitni mína. í bréf- inu stendur orðrétt: „Kunnugir segja þó að þar (í helvíti) sé hurðarlaust. Samkvæmt því eru vistmenn aldrei innandyra, svo notað sé hugtak er fjölmiðlurum er tamt.““ Þ.E.J. telur unnt að vera inn- andyra, þó hurð vanti í dyrnar, og spyr hvort það sé misskilning- ur hjá sér. Umsjónarmaður svar- ar spurningunni neitandi. Þá segir Þ.E.J. í öðru lagi: „Ég hefi stundum séð á prenti raðtöl- ur ritaðar á eftirfarandi hátt: 3 ja, 5 ta, 8 unda, 15 da, 20 usta o.s.frv. Er þetta ekki bæði vit- leysa og smekkleysa?“ Umsjón- armaður svarar aftur neitandi. Hann hefur þó jafnan séð skrif- aða tölustafí og aðra starfi í samfellu, þegar svona stendur á (dæmi; „á 12tu öld“ í Handrita- spjalli Jóns Helgasonar). Fyrir þess konar rithætti er ævagömul hefð, og ætli hver verði ekki að hafa sinn smekk í þessu efni. Annars hefur umsjónarmaður forðast (frá upphafi) stafsetn- ingu í pistlum þessum. í síðasta lagi ber Þ.E.J. undir umsjónarmann málshátt og seg- ir: „Langflesta heyri ég segja: „Batnandi mönnum er bezt að lifa“, en er ekki rökréttara að segja: Batnandi er mönnum bezt að lifa?“ og biður síðan umsjón- armann vel að lifa. Umsjónarmanni er tamt að segja: „Batnandi manni er best að lifa.“ Hins vegar er orðaröð svo ftjáls í íslensku að þetta breytir ekki merkingu. Elstu dæmi, sem Orðabók Háskólans hefur um þetta orðtak, eru öll eins: Batnandi manni er best að Iifa. Hið elsta er frá 17. öld, úr ritum Guðmundar Andrésson- ar, en hin eru úr orðataka- eða málsháttasöfnum Jóns • Rúg- manns og Guðmundar Jónsson- ar. Eins og þetta er skráð hjá þeim, og mér er tamast, þá er batnandi einkunn með manni, en eins og Þ.E.J. vill heldur, er batnandi viðurlag. En ég finn ekki merkingarmun og sé því ekki að annað sé rökréttara en hitt. Það er svo annað mál, hvort ekki er skiljanlegt að menn hafi gruflað út í þetta, því að danska þýðingin í Blöndal er ekki mjög gagnorð: „batnandi manni er best að lifa, egl. for et Menn- eske former Livet sig lykkeligst, ved at han gaar stadig frem el. forbedrer sig i moralsk Hen- seende, — bruges sædvanlig om en Person, som i et el. flere givne Tilfælde handler bedre en man ifolge hele hans Fortid skuide hafa tiltrot ham.“ ★ Vilfríður vestan kvað: Frú Jónína Davíðs á Dröngum var dðpur og mædd á því löngum, þegar kvöldsvæfur kallinn var á koddann sinn fallinn, hvað fáir þar gistu í göngum. ★ Bjartey er norrænt nafn, sett saman af lo. bjartur og hvorug- kynsnafnorðinu ey = gæfa, gengi. Furða er hversu svo gott nafn hefur verið sjaldgæft. Það er t.d. hvorki í Landnámu né Sturlungu, en í bæjamafninu Bjarteyjarsandur (Strandarhr., Borg.) gætu verið minjar þess, en auðvitað þarf Bjartey í því sambandi ekki að hafa verið kona. Sr. Oddur Oddsson á Reynivöllum hefur það þó í mannanafnaskrá sinni 1646. Aðeins ein kona bar þetta góða nafn 1703: Bjartey Jóns- dóttir, 68 ára, Kóranesi á Mýr- um. Síðan hverfur nafnið úr heimildum langa hríð, en birtist í aðalmanntali 1910. Var þá ein Bjartey á öllu landinu, fædd Árnesingur. Árin 1921-50 var aðeins ein mær skírð Bjartey en svolítið hefur lifnað yfir nafn- inu síðustu árin, og orðnar sex í þjóðskrá 1989. ★ Svo er sagt, að Benedikt Gröndal (1826-1907) hafi veitt Dönum tilsögn í því að yrkja á íslensku og þá með þessu dæmi (samhenda; hagkveðlingahátt- ur); Holder Gæs og giver sold, gaar til Messe i Herrens Vold; fodt i Hessen, brav og bold, Baronesse Lavenschiold. Löngu seinna slógu íslenskir stúdentar upp á rímglens á ensku (iíkt oddhendum gagara- ljóðum); In the hall, upon the wall, I saw a tall and mighty fly. Smoking Raleigh, ugly all, Is Macaulay, dirty guy. ★ 1) Á fjölmennu þingi sagðist maður hafa þurft að taka erfiða ákvörðun. Áður en svo væri, kvaðst hann hafa „lagst á stúf- ana“. Ég sé að vísu manninn einna helst fyrir mér á fjórum fótum, en líklega hefur hann verið að rugla saman orðtökun- um að leggjast djúpt og að fara á stúfana enda þótt þau séu ekki náfrændur að merk- ingu. _ 2) I útvarpsfréttum sagði frá því, að tiltekið mál hefði í stjórn- málaflokki valdið „fjaðraþyt“. Við erum vanari orðinu fjaðra- fok í þessu sambandi, og skylt er að geta þess, að ekki var tal- að um „fjaðraþyt og söng“. 3) Enn lýsir umsjónarmaður gleði sinni yfir þrifnaði orðsins listhús, sbr. texta í sjónvarpi og ekki síst Listhús í Laugar- dal. Ótækt er að eiga ekki ís- lenskt orð yfir jafnalgengt fyrir- bæri og það sem útlendingar nefna gaiierí (gallery). Því má auðvitað sletta líka mín vegna, ef vill, en nú eigum við a.m.k. tveggja kosta völ. Þriðji kostur- inn gæti verið myndhús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.