Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/LESBOK 255. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Díana ákveðin í að \ þrauka með Karli Áhlaup íKákasus “ Skæruliðar úr röðum Norður-Osseta gera áhlaup á stöðvar Ingúseta í norðurhluta Kákasus sem tilheyrir Rússlandi. Harðir bardagar hafa geisað þar að undanförnu milli þjóðabrotanna. Harðlínublaðið Pravda minntist í gær 75 ára afmælis byltingarinnar. Birt var gi-ein undir fyrirsögninni „Sósíalisminn stóðst prófið" og var hún sögð lýsa sjónar- miðunum eftir 25 ár þegar búið væri áð brjóta á bak aftur þá sem fært hefðu Rússum „dýrkun á tvöfeldni og gróðahyggju“ auk þess sem bandarísk áhrif hefðu verið að kæfa öll andleg verðmæti. Á glötunar- barminum hefði þjóðin snúið „aftur til hinna sönnu, þjóðlegu gilda sameignarinnar“. 100 ára afmælisins hefði verið minnst með því að endurreisa Sovétríkin. meinta óhamingju hennar meðan á heimsókninni stóð. í gær kom út endurbætt útgáfa af bók um Díönu sem olli miklu fjaðrafoki í sumarbyijun. I nýju útgáfunni heldur höfundurinn Andrew Morton því fram að Díana hafi alvarlega íhugað að yfirgefa hirðina í sumar. Elísabet drottning hafi hins vegar talið henni hug- hvarf og fengið hana ofan af skiln- aði. Nú sé Díana staðráðin í því að bjarga hjónabandinu og koma á eðlilegu sambandi og þrauka þar til eðlilegt samband kemst aftur á milli hennar og annarra í konungs- fjölskyldunni. Óvissa um framtíð Myndir breskra blaða af þeim saman í Kóreuferðinni voru venju- lega teknar við athafnir þar sem ekki þykir við hæfi að vera með bros á vör, svo sem við minningar- athafnir eða lagningu blómsveiga í kirkjugörðum eða við minnis- varða. Þá var skýrt frá því í gær að í byijun Kóreuferðarinnar hefði Díana fengið fregnir af andláti komabams nánustu vinkonu hennar og það kynni að útskýra London. Reuter. RITARI Karls Bretaprins viðurkenndi í gær að samlyndi þeirra Karls og Díönu konu hans væri ekki eins og það gæti best verið en sagði að ofsafengin umfjöllun breskra slúðurblaða um meinta hjónabandserfiðleika gerði aðeins illt verra. Þá fullyrti höfundur umdeildrar bókar um Díönu og líf hennar að hún væri ákveðin í að þrauka í hjónabandi í þeirri von að ástir þeirra Karls kæmust aftur í samt lag. Díana prins- essa kom í gær til Bretlands eftir fjögurra daga opinbera heimsókn þeirra Karls til Suður- Kóreu, en hann hafði nokkurra daga viðkomu í Hong Kong á Díana prinsessa heimleiðinni. Við komuna til London sendi Díana frá sér yfir- lýsingu þar sem hún gagnrýndi ij'öimiðla harðlega fyrir frásagnir af hjónabandsmálum þeirra Karls. Sagði hún tilgátur um að Elísabet drottning og maður hennar Filipp- us prins væm allt annað en skiln- ingsrík og hjálpleg væra með öllu ósannar auk þess sem þessar frá- sagnir særðu sig. Heimildarmenn sögðu að yfirlýsing Díönu hefði glatt mjög Karl prins er hann frétti af henni í Hong Kong. Yfirlýsing Díönu er óvenjuleg sakir þéss að hirðin hefur jafnan varast að láta nokkuð frá sér fara um það sem fjölmiðlar segja um kóngafólkið. GATT-viðræðnanna vegna refsiaðgerða Bandaríkiastjórnar Reynt að fá Frakka til að slaka á viðskiptahömlum London, Brussel, Washington, París. Reuter, The Daily Telegraph. Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins, svarar spurningum fréttamanna í London í gær en þangað kom hann til að flytja erindi í háskóla. Delors hefur verið sakaður um að halda til streitu sérhagsmunum Frakka í viðskiptadeilunni við Bandaríkjamenn, án þess að hafa heildarhags- muni bandalagsins í huga. Hann vísar ásökunum á bug. Bandaríkjamarkaði. Iðnaðar- og verslunarmálaráðherra Frakka, Dominique Strauss-Kahn, sagði Bandaríkjamenn hafa hagað sér dólgslega með því að setja á toll- ana, með þessu gætu þeir stefnt allri Uruguay-lotu GATT-viðræðn- anna um aukið frelsi í alþjóðavið- skiptum í hættu. Strauss-Kahn sagði að kæmu refsitollarnir til framkvæmda myndu Frakkar krefj- ast gagnaðgerða af hálfu EB. Þing- kosningar verða á næsta ári í Frakklandi, ákveðinn hefur verið niðurskurður á styrkjum EB og franskir bændur hafa látið mjög ófriðlega af þessum sökum í sum- ar. Stjómarflokkur sósíalista mun bíða afhroð í kosningunum ef marka má kannanir að undanfömu. Bill Clinton, nýkjörinn Banda- ríkjaforseti, vill ekki tjá sig um málið, segir að Bush sé enn forseti og taki allar ákvarðanir í þessum efnum. Bandarísk blöð, þ. á m. The New York Times, sögðu í gær að Evrópumenn ættu sök á því að GATT-viðræðumar væru komnar í hnút og vörðu ákvörðun stjómar Bush. Blöðin minntu á að embættis- menn GATT hefðu úrskurðað að sumar af viðskiptahömlum EB brytu í bága við alþjóðasamninga og The New York Times taldi að- gerðir Bandaríkjastjómar mjög var- færnar. Norski Verkamannaflokkuriim Brundtland segir af sér leiðtogaembætti Ósló. Rcuter. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttariíara Morgunblaðsins. GRO HARLEM Brundtland, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, lýsti því óvænt yfir á landsfundi flokksins í gær að hún hygðist láta af leiðtogaembættinu af persónulegum ástæð- um. Hún verður áfram forsætisráðherra. Brundtland var hrærð er hún flutti ávarp sitt, en hún hefur verið flokksleiðtogi í rúman áratug. „Eins og þið vitið varð ég og fjölskylda. mín fyrir þungu áfalli fyrir skömmu," sagði ráðherrann, en yngsti sonur hennar fyrirfór sér fyrir tæpum mánuði. Yfirlýsingin kom samt mjög á óvart en fundar- 'menn hafa tvo undanfarna daga rætt afstöðuna til Evrópu, vaxandi atvinnuleysi og fleiri mikilvæg mál. Forsætisráðherrann, sem er 53 ára, sagðist hafa dregið af ásettu ráði að skýra frá ákvörðun sinni; mikilvægt hefði verið að fundar- menn gætu einbeitt sér að þeim málum sem á dagskrá vora og umræður um eftirmann hefðu að- eins skaðað fundarstarfið. Margir grétu er Brundtland dró sig í hlé eftir ávarpið. Forsætisráðherra Frakklands, Pierre Beregovoy, sagði í gær að báðir aðilar, Evrópubandalag- ið (EB) jafnt sem Bandaríkin, myndu bíða ósigur ef til við- skiptastríðs kæmi milli þeirra. Með þessu virtist hann reyna að lægja öldurnar í deilunni sem upp er komin vegna verndar- stefnu Frakka er ekki vilja ganga til móts við kröfur Bandaríkja- manna um að lækka tolla og draga úr viðskiptahömlum á verslun með ýmsar landbúnaðar- afurðir. Fulltrúar annarra EB- þjóða reyndu í gær að telja Frakka á að láta undan, að sögn efnahagsmálaráðherra Þýska- lands, Jurgens Möllemanns. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sem nú er í forsæti fyrir EB, ræddi við forseta framkvæmda- stjómar EB, Frakkann Jacques Delors, í gær og urðu þeir ásáttir um að hefja bæri viðræður á ný sem fyrst um deilumálin við Bandaríkja- menn. Ónafngreindir, breskir emb- ættismenn sögðu Major hafa krafíst þess að Delors, sem sakaður er um að draga um of taum frönsku stjómarinnar, ynni heils hugar að því að fundin yrði málamiðlun. Del- ors hefur verið mjög orðaður við forsetaframboð í Frakklandi. Ummæli ýmissa annarra franskra leiðtoga voru á öðrum nótum en Beregovoys forsætisráð- herra. Jacques Chirac, helsti leið- togi stjórnarandstöðunnar, sakaði Bandaríkin um að vilja einoka al- þjóðaverslun með landbúnaðar- afurðir. „Frakkar mega hvergi hvika þegar þeir þurfa að veija hagsmuni sína“, sagði hann. Franskir bændur eru afar öflugur þrýstihópur, njóta mikilla ríkis- styrkja auk þess sem þeir hirða bróðurpartinn af landbúnaðar- styrkjum EB. Tveir þriðju hlutar útgjalda bandalagsins fara til land- búnaðar. Stjórn George Bush Bandaríkjaforseta hefur m.a. ákveðið að setja refsitoll á frönsk vín sem margfaldast nú í verði á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.