Morgunblaðið - 07.11.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
5
Kópavogur
Heildarskuldir lækka
um 230 milljónir í ár
- segir Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs
GUNNAR Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs, segir að rekstur
bæjarfélagsins sé í mjög góðu jafnvægi. Endurskoðað uppgjör vegna
fyrstu átta mánaða ársins lá nýlega fyrir og þar kemur fram að
rekstrargjöld eru heldur lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir og tekj-
ur ívið hærri. Undirbúningur að fjárhagsáætlun vegna ársins 1993
er nú í fullum gangi og er gert ráð fyrir að hún verði afgreidd
fyrir áramót.
Miðað við áætlaða stöðu um ára-
mót er reiknað með að heildarskuld-
ir bæjarfélagsins lækki um 230
milljónir á árinu og nettóskuldir um
130 milljónir, að sögn Gunnars.
Þrátt fyrir þetta framkvæmir Kópa-
vogsbær fyrir um 700 milljónir
króna í ár. Hann sagði að ástæðum-
ar fyrir aukinni niðurgreiðslu
skulda væru annars vegar rekstrar-
afgangur og hins vegar aukin sala
á lóðum í Kópavogsdal, en til sam-
anburðar hefði Kópavogsbær út-
hlutað svipuðum fjölda lóða það sem
af væri þessu ári og Hafnarfjörður,
Garðabær og Reykjavík til samans
og það segði sína sögu.
„Við höfum náð mjög góðum
tökum á rekstrinum og höfum gert
það með því að vera með mánaðar-
legar útkeyrslur úr bókhaldi bæjar-
ins. Við höfum notað bókhaldið sem
hagstjórnartæki, þannig að það
kemur okkur svo sem ekkert á óvart
sem fylgjumst með þessu frá mán-
uði til mánaðar að reksturinn sé
innan þeirra marka sem við drógum
í fjárhagsáætlun," sagði Gunnar.
Hann sagði að tímabundin
skuldaaukning hefði komið fram í
síðasta ársreikningi, þar sem öll
fjárfesting í Kópavogsdal í fyrra
hefði verið gjaldfærð. Nú væru tekj-
urnar að koma inn vegna sölu lóða
þar. 10-12 lóðir væru eftir á Nón-
hæð og lóðir í Digraneshlíðum seld-
ust mjög vel.
Reuter
Albert Reynolds forsætisráðherra Irlands afhendir Helga Jóhanns-
syni framkvæmdastjóra Samvinnuferða-Landsýnar írsku ferðamála-
verðlaunin í Dyflinni í gær.
Samvinnuferðir-Landsýn
Verðmætast að fá tækifæri
* *
til að kynna Island á Irlandi
HELGI Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða-Landsýnar, tók á móti
heiðursverðlaunum Ferðamálaráðs írlands úr höndum Alberts Reyn-
olds, írska forsætisráðherrans, við hátíðlega athöfn á hótel Berkley
Court í Dyflinni í gær. Verðlaunin eru árlega veitt þeim aðila sem
talinn er hafa lagt mest af mörkum til írskra ferðamála. Helgi segir
að það verðmætasta við verðlaunin sé að með þeim fáist tækifæri til
að kynna ísland sem ferðamannaland á írlandi.
Helgi sagði að sér hefði komið á
óvart hversu verðlaunin væru álitin
þýðingarmikil á írlandi. Hann benti
því til stuðnings á að fjallað hefði
verið um verðlaunin í blöðum og
sagt yrði frá þeim í útvarpi og sjón-
varpi.
Aðspurður um þýðingu verðlaun-
anna sagði hann að sér þætti afar
ánægjulegt að íslendingar fengju
verðlaun af þessu tagi. Slíkt sýndi
að eftir þeim væri tekið. „Það sem
mér finnst hins vegar lang þýðingar-
mest er sá möguleiki sem við fáum
í tengslum við umfjöllun fjölmiðla
hér um verðlaunin til þess að kynna
Island fyrir Irum. Það er ótvírætt
að kynning af þessu tagi skiptir
meira máli en nokkur heiðursskjöl
sem við fáum,“ sagði Helgi. Hann
lagði ríka áherslu á að þörf væri
fyrir slíka kynningu vegna þess að
írar hefðu áhuga á íslandi en vissu
ekki mikið um landið. Margir þeirra
giskuðu t.d. á að 5-7 tíma flug væri
til landsins en flug milli landanna
tekur aðeins 2 klukkustundir.
Verðlaunin fær ferðaskrifstofan
Samvinnuferðir-Landsýn fyrir fram-
lag sitt til írskra ferðamála. Helgi
sagðist hins vegar telja að það sem
vakið hefði mesta furðu væri hversu
mikill árangur hefði náðst á skömm-
um tíma því aðeins væru liðin 3 ár
síðan ferðaskrifstofan hefði af alvöru
farið að snúa sér að írlandi. Talið
er að um 7.500 íslendingar fari á
vegum ferðaskrifstofunnar til írlands
í ár og hátt í 300 írar komu hingað
til Jands í sumar.
I tengslum við verðalaunaafhend-
inguna var 250 manna matarboð á
Berkley Court hótelinu í Dylfinni í
hádeginu í gær. Meðal viðstaddra
voru fulltrúar ferðamála á írlandi og
frammámenn í atvinnulífi landsins.
Skandia
Innlausnir
um 5 millj-
ónirígær
INNLAUSNIR í verðbréfasjóðum
í vörslu Fjárfestingarfélagsins
Skandia námu alls tæpum 5 millj-
ónum króna í gær, en þar af voru
4 milljónir í Skyndibréfum. Að
sögn Brynhildar Sverrisdóttur,
framkvæmdasljóra verðbréfa-
sjóðanna, eru þetta mun minni
innlausnir en búist var við.
Engin viðskipti hafa ennþá átt sér
stað með hlutdeildarskírteinin á
fijálsum markaði í framhaldi af því
að ákveðið var að sækja um skrán-
ingu þeirra á Verðbréfaþingi. Átta
aðilar lögðu fram óformleg kauptil-
boð í skírteini í gær fyrir samtals 9
milljónir króna en gáfu ekki upp
ákveðið kaupverð. Aftur á móti bár-
ust engin sölutilboð frá eigendum
skírteinanna og kvaðst Brynhildur
telja að einhvern tíma tæki fyrir fólk
að átta sig á þessum möguleika.
-----» ♦ ♦----
Kom með
amfetamín frá
Amsterdam
MAÐUR um tvítugt var handtek-
inn á Leifsstöð við komu frá Amst-
erdam á þriðjudag með um 160
grömm af amfetamíni.
Tveir aðrir menn voru handteknir
vegna gruns um aðild að málinu en
þeir látnir lausir eftir yfirheyrslur.
Sá sem efnið fannst á hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14.
nóvember. Hann hefur áður komið
við sögu fíkniefnamála, að sögn
Björns Halldórssonar, lögreglufull-
trúa í fíkniefnadeild.
BMW ARGERÐ
- Frumsýning á sjálfskiptum BMW 316ÍA -
BMW bílar eiga langa og merkilega sögu
hér á landi. Þeir sem átt hafa BMW vita aö honum
fylgir sérstök tilfinning sem ekki finnst í öörum
bílum. BMW hefur þá nútímatækni, fágun og
stílbragð í hönnun og útliti, sem þarf til aö gefa
þessa tilfinningu.
BMW '5 línan er vinsæll og eftirsóttur
fólksbíll meðal vandlátra kaupenda um allan
heim. Stærsta bílatímarit Evrópu "auto, motor
und sport" tók árið 1990 tíu tegundir fólksbíla til
árekstrarprófunar. Þar var BMW '5 línan öllum
fremri hvaö snerti öryggi ökumanns og farþega.
BMW '3 línan er sportlegur fjölskyldubill
sem býöur upp á nýtískulegt útlit, mikiö rými og tækni
sem byggir á áratuga reynslu sérfræöinga BMW.
Bæöi '3 og '5 iínan hafa hina eftirsóttu 50%
þyngdardreifingu á milli fram- og afturöxla sem tryggir
bestu aksturseiginleika viö allar aðstæöur. í báðar
gerðir er hægt aö fá fjögurra eöa fimm þrepa
sjálfskiptingu meö sérstakri vetrarstillingu, sem ásamt
50% þyngdardreifingunni tryggir öruggan og
þægilegan akstur í snjó og hálku.
Laugardaginn 7. nóvember kl. 10-17 og
sunnudaginn 8. nóvember kl. 13-17 kynnum viö 1993
árgerðir af BMW. Merkasta nýjungin aö þessu sinni
er sjálfskiptur BMW 316iA sem frumsýndur veröur
um þessa helgi. Til nýjunga má einnig telja
búnaö sem hlotið hefur nafniö "VANOS", en
þetta er tölvustýröur búnaður til stillingar á
opnunartíma ventla í 6 strokka vélum, sem meðal
annars eru í BMW 520i.
Viö vonum aö þú sjáir
þér fært aö heimsækja okkur
um helgina til að skoöa og
reynsluaka 1993 árgeröum af
BMW.
Engum
líkur
Ðflaumboðið hf.
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633