Morgunblaðið - 07.11.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 11
Nýjar bækur
Skáldsaga eftir Olaf
Gunnarsson komin út
SKÁLDSAGAN Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson er komin út á
veguin Forlagsins. Þetta er sjötta skáldsaga Ólafs, sem einnig
hefur sent frá sér smásögur, ljóð, þýðingar og leikrit fyrir börn,
auk fjölda greina í dagblöð og tímarit.
Olíumálverkin hafa þetta rými til
að bera í ríkum mæli, eins og vænta
má með myndir sem eru um þrír
metrar á lengd. Hin lárétta áhersla
er er síðan styrkt enn frekar með
beitingu pensiis og sköfu, sem fylgir
þessum línum, þannig að það hrein-
lega geislar af landinu, t.d. í nr. 2,
7 og 16. Listakonan notar einnig
matta og glansandi áferð yfirborðsins
á hnitmiðaðan hátt í litasamsetning-
um sínum til frekari áréttingar, eink-
um hvað varðar skil himins og jarð-
ar, eins og í nr. 10 og 13. Myndirnar
eru því ekki af örsnauðum eyðimörk-
um, heldur bera þær í litavalinu með
sér gróðursöguna, sem og blámann,
myrkrið og jökulbirtuna, hver í sínu
lagi.
Stálverkin, sem eiga að sýna línur
landsins eins og þær ber við himin,
eru athyglisverð tilraun til að færa
þessa sýn á landið yfir í annan mið-
il. En það verður strax ljóst við stutta
skoðun að meginhluta þeirra vantar
undirstöðuna, hina láréttu grunnlínu;
án hennar eru verkin aðeins fábrotið
línuspil, án virkra tengsla við landið.
Guðrún Kristjánsdóttir er þroskuð
listakona, sem hefur góð tök á mál-
verkinu sem listmiðli og því mynd-
efni, sem hún hefur valið sér að tak-
ast á við, eins og kemur berlega fram
á þessum ágætu sýningum hennar
að þessu sinni. Undanfarin ár hefur
hún sýnt nokkuð erlendis, og í ljósi
þess má vænta þess að hún eigi eftir
að láta meira að sér kveða á þeim
vettvangi í framtíðinni.
Sýningum Guðrúnar Kristjánsdótt-
ur í Norræna húsinu og FÍM-salnum
við Garðastræti lýkur sunnudaginn
15. nóvember.
Tónlistarráð
í stað Tónlist-
arbandalags
Aðalfundur Tónlistarbandalags
íslands var haldinn 31. október
á íslenskum tónlistardegi. A
fundinum lagði stjórnin tilað
gerðar yrðu grundvallarbreyt-
ingar á skipulagi Bandalagsins,
þannig að formenn og forsvars-
menn aðildarfélaga sætu í
stjórn þess. Akveðið var að
stofna Tónlistarráð og leggja
Tónlistarbandalagið niður.
Aðalfundurinn var vel sóttur af
helstu forsvarsmönnum tónlistar-
samtaka, félaga og einstaklinga.
Hann var haldinn í framhaldi af
tónlistarráðstefnu sem Bandalagið
skipulagði og gerður var góður
rómur að.
í skýrslu formanns Tónlistar-
bandalagsins, Símonar H. ívars-
sonar kom fram að starfsemin
hafi aldrei verið jafn mikil og far-
ið vaxandi frá ári til árs. Meðal
helstu verkefna. Bandalagsins
voru: Ar söngsins, íslenskur tón-
listardagur, stofnun tónlistarfé-
laga á landsbyggðinni, könnun á
tónlistariðkun á Islandi, upptökur
sjónvarpsins með leik tónlistar-
manna til styrktar byggingu tón-
listarhúss, útgáfa á mánaðarriti
um menningar- og listviðburði og
ótal margt fleira.
í fréttatilkynningu segir að í
skýrslu formanns komi eftirfar-
andi fram: Með tilliti til að starf-
semi Tónlistarbandalagsins hefur
aldrei verið blómlegri, kann
ákvörðun um stofnun Tónlistarr-
áðs að koma mörgum spánskt fyr-
ir sjónir. En með stofnun þess
hefst nýtt upphaf á nýju sam-
starfi, þar sem formenn og for-
svarsmenn ólíkra félaga eru til-
búnir til að starfa saman. Það eitt
sér er næg ástæða til að gleðjast."
í lok aðalfundarins var sam-
þykkt tillaga stjómar um að Tón-
listarbandalaginu yrði ekki slitið
fyrr en reikningsári þess lýkur,
þar sem frágangi á ýmsum störf-
um þess væri ekki lokið. Tillagan
var einróma samþykkt. Og for-
maður lagði til stofnun Tónlistarr-
áðs íslands um leið og hann sleit
aðalfundi.
í kynningu Forlagsins segir:
„Tröllakirkja gerist í Reykjavík á
sjötta áratug aldarinnar og fjallar
um Sigurbjörn arkitekt og fjöl-
skyldu hans. Sigurbjörn hefur
ýmis stórbrotin áform á prjónun-
um og vor eitt lætur hann til skar-
ar skríða og ákveður að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd.
Það á eftir að draga dilk á eftir
sér og kalla á voveiflega atburði.
Tröllakirkja er efnismikil og
dramatísk skáldasaga þar sem
spurt er um sektina og fyrirgefn-
inguna, manninn og Guð. Margar
ljóslifandi og eftirminnilegar per-
sónur koma við sögu og frásögnin
er víða lituð þeirri sérstæðu sagna-
gleði sem lesendur Ólafs Gunnars-
sonar þekkja en um leið er leikið
á fleiri strengi; stíllinn er fjöl-
breytilegur, fáorður og knappur,
en jafnframt litríkur og ljóðrænn."
Útgefandi er Forlagið. Grafít
hf. hannaði kápu og Prentsmiðj-
Ólafur Gunnarsson
an Oddi hf. prentaði. Bókin er
279 bls. Verð 2880 krónur.
Listasjóður
stofnaður
í tilefni af 60 ára starfsafmæli
Pennans verður sérstakur „Lista-
sjóður Pennans" stofnsettur til
minningar um hjónin Baldvin
Pálsson Dungal og Margréti
Dungal.
í fréttatilkynningu segir að til-
gangur sjóðsins sé að efla menningu
og listir, m.a. með styrkveitingu til
íslenskra myndlistarmanna. í stjórn
hans sitja Anna Líndal myndlista-
maður frá SÍM, Bjarni Daníelsson
skólastjóri frá MHI og Guhnar B.
Dungal af hálfu Pennans sem jafn-
framt er stjórnarformaður.
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum verður
300 þúsund krónur. Auk þess verður
listamanni boðin 200 þúsund króna
vöruúttekt í skiptum fyrir listaverk.
Þurfa umsóknir að berast stjórn
sjóðsins fyrir 1. desember 1992. Út-
hlutun fer fram í byrjun næsta árs.
EKKIOF HORÐ,
EKKIOF MJÚK,
HELDUR FULLKÖMIN
AÐLÖGUN
Á haröri dýnu
liggur hryggjarsúlan t sveig
Þar sem
þú eyðir
u.þ.b. 8 tím-
um á sólar-
hring í rúm-
inu, eða þriðjungi ævi þinnar, ætti góð
dýna að vera eitt af þínum allra mikil-
vægustu fjárfestingum.
Arum
saman hefur
því verið
haldið fram
að stífar
dýnur séu betri fyrir bakið.
Sérfræðingar okkar hjá Dux x Svíþjóð
mfi—iilinii niinnri if
Á Dux-dýnu
liggnr hryggjarsúlan bein
hafa sannað hið gagnstæða.
Þeir hafa sannað að stíf dýna hamlar á
móti, frekar en að lagast að eðliiegri lögun
líkamans, þannig að í hvíld liggur
hryggjarsúlan í sveig.
Dux-dýnurnar eru hannaðar sérstaklega
til þess að gefa eftir á réttum stöðum svo
að hryggjarsúlan fær að hvílast í náttúru-
legri stöðu. Þær koma í veg fyrir margan
bakkvillann og gefa þér nauðsynlegan
stuðning til þess að sofa djúpum endur-
nærandi svefni.
Er ekki kominn tími til að heimsækja
Dux verslunina í Faxafeni og líta á okkar
fjölbreytta úrval af Dux-rúmum?
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími 689950
15 ÁRA ÁBYRGÐ Á DUX-DÝNUM