Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
23
rqr/ringo
rm
Keuter
Víetnömsk kona hjólar framhjá skrifstofu japanska stórfyrirtækisins Tomen í Hanoi í gær, er jap-
anska stjórnin tók upp aðstoð við landið á ný. Nokkur japönsk fyrirtæki hafa opnað útibú í Víet-
nam undanfarin tvö ár.
Japanir aðstoða
Víetnama á ný
Tok^o. Hanoi. Reuter.
JAPONSK stjórnvöld tóku á ný upp aðstoð við Víetnam á föstu-
dag, þegar þau tilkynntu um veitingu 369 milljóna dollara vöru-
kaupaláns, en Japanir tóku fyrir alla aðstoð við landið í desem-
ber 1978, þegar víetnamskur her réðst inn í Kambódiu.
Af Japana hálfu var sagt, að
aðstoðin ætti að auðvelda afborg-
anir af gömlum skuldum og stuðla
að jafnvægi í Víetnam og Suð-
austur-Asíu.
Embættismenn í Hanoi töldu,
að skammt væri í að Bandaríkja-
menn afléttu viðskiptabanni á
Víetnam, fyrst Japanir hefðu stig-
ið þetta skref, því að það hefðu
þeir aldrei gert án samþykkis
Bandaríkj amanna.
Bandarísk stjórnvöld hafa gert
það að skilyrði fyrir samstarfí við
Víetnama, að þeir geri allt sem í
þeirra valdi stendur til að hjálpa
til við að afla upplýsinga um örlög
bandarískra hermanna, sem sakn-
að var eftir stríðið í Víetnam.
Hafa Víetnamar undanfarið verið
fúsir til samstarfs.
Sá orðrómur hefur gengið í
Washington, að George Bush for-
seti hyggist draga úr viðskipta-
banninu eða aflétta því með öllu
áður en hann lætur af embætti í
janúarmánuði næstkomandi.
Major forsætisráðherra frestar staðfestingu Maastricht-sáttmálans
Flokksaga framfylgt með lúa-
legum þrýstingi og ógnunum
- segja óánægðir andstæðingar Evrópusamrunans
Lundúnum. The Daily Telegraph.
TALSMENN breska Verkamannaflokksins gagnrýndu í gær yfirlýsingu
frá John Major, forsætisráðherra Bretlands, um að fresta ætti staðfest-
ingu breska þingsins á Maastricht-sáttmálanum þar til eftir fyrirhug-
aða þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku. Þeir sögðu þetta merkja að
sáttmálinn yrði ekki staðfestur fyrr en í október á næsta ári en hátt-
settur embættismaður vísaði því á bug. Nokkrir þingmenn íhaldsflokks-
ins, sem eru andvígir frekari samruna EB-ríkjanna, saka forystu flokks-
ins um að hafa beitt þá óeðliiegum þrýstingi og lúalegum ógnunum til
að fá þá til að greiða atkvæði með þingsályktunartillögu, sem sam-
þykkt var naumlega á miðvikudag og veitir stjórninni umboð til að
halda áfram á sömu braut í Maastricht-málinu.
Boeing-747
Aukið eftir-
lit ráðgert
Seattle. Reuter.
BOEING-verksmiðjurnar ’ og
bandaríska flugmálastjórnin
(FAA) íhuga nú aðgerðir er eiga
að auka öryggi breiðþotunnar
B-747 í framhaldi af flugslysinu
í Amsterdam fyrir rúmum mán-
uði. Þá hrapaði breiðþota ísra-
elska flugfélagsins E1 A1 niður á
íbúðarhverfi með þeim afleiðing-
um að a.m.k. 64 manns biðu bana.
í ráði er að fyrirskipa flugfélög-
um sem eiga Boeing 747 þotur að
skipta um bolta sem festa hreyfla
neðan í vængfestingum. Allt þykir
nú benda til að boltar hafi brostið
í báðum stjórnbórðshreyflum ísra-
elsku þotunnar og orsakað brot-
lendinguna. Hreyflarnir hafi rifnað
af hægri vængnum sex mínútum
eftir flugtak. Við það hafi kviknað
eldur í þotunni.
Poul Schluter, forsætisráðherra
Danmerkur, hefur vísað því á bug
að ákvörðun hafi verið tekin um
dagsetningu atkvæðagreiðslunnar,
þótt hann útiloki ekki að hún fari
fram í maí eða júni. Hann leggur
áherslu á að Evrópubandalagið verði
fyrst að ná samkomulagi um sér-
samning fyrir Dani til að tryggt verði
að sáttmálinn verði samþykktur í
þjóðaratkvæðinu.
Major hafði áður sagt að frumvarp
um staðfestingu sáttmálans yrði lagt
fyrir þingið áður en leiðtogar EB-
ríkjanna kæmu saman í Edinborg
11. og 12. desember. Hann hafði þó
aldrei tilgreint hvenær frumvarpið
yrði afgreitt endanlega, en háttsettir
embættismenn höfðu gengið út frá
því að það yrði gert í mars.
Talsmenn breska Verkamanna-
flokksins sögðu frestunina pólitískt
kænskubragð af hálfu Majors, sem
vildi vinna tíma til að fá andstæðinga
frekari samruna EB-ríkjanna innan
íhaldsflokksins á sitt band.
Nokkrir þingmenn íhaldsflokksins
hafa sakað forystu flokksins um að
hafa beitt lúalegum aðferðum við að
fá þá til að samþykkja þingsályktun-
ina um Evrópusamrunann á þriðju-
dag.
Einn nýkjörinn þingmaður, Bern-
ard Jenkin, er sagður hafa verið í
öngum sínum og gráti næst eftir að
flokksverðir íhaldsmanna, sem sjá
um að halda uppi flokksaga, hafi
beitt konu hans, ritara að atvinnu,
óeðlilegum þrýstingi.
Annar þingmaður, Bill Walker,
sagði að flokksverðirnir hefðu hótað
nokkrum þingmönnum að skýra frá
vafasömum tengslum þeirra við ann-
að fólk. Þingkonan Teresa Gorman
kvartaði einnig yfir framkomu
flokksbræðra sinna. „Ég var kölluð
svikari. Þeir sögðu ýmislegt sem
undir venjulegum kringumstæðum
myndi flokkast undir kynferðislega
áreitni. Mjög ruddalegt tal, sem fær
óskaplega á mann,“ sagði hún.
„Nokkrir þingmenn voru umkringdir
í þingsalnum til að koma í veg fyrir
að þeir kæmust út.“
Walter Sweeney, þingmaður frá
Glamorgan, sagði að fulltrúi flokks-
forystunnar í Wales hefði farið í kjör-
dæmið hans kvöldið fyrir atkvæða-
greiðsluna og setið mikilvægan fund
kjördæmisráðsins. „Hann sagði á
fundinum að áform mín um að greiða
atkvæði gegn tillögunni myndi stefna
framtíð forsætisráðherrans í hættu,“
sagði þingmaðurinn og lýsti þessari
íhlutun sem höggi undir beltisstað.
„Einn þingvarðanna var að gaspra
um brotnar hnéskeljar og blóð á
skyrtuna mína.“
Það voru þó ekki aðeins flokks-
verðirnir í þinginu sem voru sakaðir
um harkalega atgöngu í málinu.
Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra, gerði allt sem í henn-
ar valdi stóð til að koma í veg fyrir
að andstæðingar EB-samrunans létu
undan þrýstingnum. John Whittingd-
ale, fyrrverandi aðstoðarmaður
hennar, var kvaddur til skrifstofu
hennar í lávarðadeildinni og var eins
og skömmustulegur skóladrengur
fyrir framan skólastjóra þegar hann
skýrði henni frá því að hann hygðist
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Starfsbræður hans sögðu að hann
hefði verið öskugrár í framan og
með tárin í augunum þegar hann
hefði gengið út.
Bílanaust mun hafa opiö fyrsta laugardag hvers mánaöar frá kl. 10,00 til ló,00
Aöra laugardaga veröur opiö frá kl. 10,00 til 13,00
Rafgeymir 70 A
Snjósköfur
Startkaplar
Þurrkublöö
kr. 4.929 - (áöur 6.799 -)
Frá kr. 100 -
Frá kr. 998 -
30 % afsl.
Laugardagstilboð
Eigum einnlg mikiö úrval af haustvörum fyrir
bifreiöaeigandur s. s. frostlög, ísvara, snjósköfur,
bílaperur. rafkerti, kertaþraeöi, þokuljós, Ijóskastara,
vinnuljós, dráttartóg, startkapla og ótalmargt fleira.
Borgarúni 26 $
Sími: 91 - 62 22 62 O
ÖRE)OfC)OR£)OPÐOFEX)RE)ORE)OPÐOREX)Rf)ORE)ORE)ORE)OFeX)flEX)RE)OfCORE)OREX)Ff)Oflf)ORf)OPÐOFCX)RE)Of¥)OFK)ORF)ORf)OflE)ORE)ORE)OfCX)R£)OflF)OflE)ORE)ORE)OPÐORÐ
'PœFlEX)PÐOPE)OPIEX5RÐOPIfX)RÐOREXX4£X)PœPIEX)PÐORÐORÐOREX)PIEXDPEORÐOPtEX5RÐOPiÐOFlX)PIE)OPtEXDPÐOPtEX)PÐORE)OPÐOREXDPÐORÐOREX)FCORÐOPiEXDPeOPÐOP1g
OFlEX)REXXeDPIEXXCX)RE)OREXXCX)REX)REX>CX)PlEX)FC!OREX)fC)Ofl£X)PtEX)REXXCX)PtEX)FeDREXDRE)OPtEXXCOPBOPlEXXC)OREX)PÐOPE)OREX)PtEX5REXXC)OPÐOPEXDFC)OFC)OPÐ
00
T r-Ar „ frá kl. 10
1 1 CJI C jy til kl. 16,
)FlÐOfCX)PtTOFCOFCOPEX)FCORæPÐOfC)ORE)OfCX)RE)OFCX)PtTOROOfC)OPtE)OPtE)OPE)ORE)C)PIÐOPtfX)PtE)OPÐ