Morgunblaðið - 07.11.1992, Qupperneq 27
see
3V0K .T HU0A03A0UAiI aiGAJHVÍUOÍJOM
MORGUNBLAÐIÐ LA.UGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992
27
Olíufélagið hf
-hvernig sem viðrar
Verkun á hafbeitar-
laxi í Grundarfirði
Grundarfirði.
I VAXANDI atvinnuleysi undanfarna mánuði hefur athyglin beinst
að því að skapa ný atvinnutækifæri. í Grundarfirði er fyrirtækið
Friðfínns hf. gott dæmi um slíka viðleitni. Fyrirtækið sem framleið-
ir reyktan lax og fleiri slíkar vörur í neytendapakkningar hefur nú
verið starfandi I tæplega eitt ár og hefur eftirspum eftir framleiðsl-
unni aukist jafnt og þétt á þessu tímabili.
Hugmyndin að starfseminni tveim árum. Urriðann veiddi hann
kviknaði þegar aðaleigandinn Frið- í Hraunsfirði en þar er starfandi
fínnur Friðfínnsson fór að reykja laxeldisstöðin Silfurlax. Vinir og
urriða til heimabrúks fyrir u.þ.b. vandamenn fengu að smakká á
SÁÁ fagnar 15 ára afmæli
FIMMTÁN ára afmælishátíð SÁÁ, Samtaka áhugafólks um áfengis-
og vimuefnavandann, verður haldinn á Hótel íslandi á sunnudaginn
8. nóvember.
Meðal atriða á afmælishátíðmni
má nefna ávarp formanns SÁÁ,
ávarp félagsmálaráðherra, heiðurs-
viðurkenpingu, frumsýningu á nýju
merki SÁÁ, ágrip af sögu samtak-
annna og tónlistarflutning kammer-
sveitar FÍH og söngkonunnar Rut
Reginalds. Afmælishátíðin hefst kl.
15 og er aðgangur_ ókeypis.
Stofnfundur SÁÁ var haldinn í
Háskólabíói í október 1977 og fram-
haldsstofnfundur á Hótel Sögu.
Hilmar Helgason var kjörinn fyrsti
formaður SAÁ. Samtökin hófu þeg-
ar rekstur göngudeildar og afeitr-
unarstöðvar, fyrst í Reykjadal í
Mosfellssveit, síðan að Silungapolli
og lokst á sjúkrahúsinu Vogi, sem
tók til starfa í árslok 1983.
Fyrsta eftirmeðferðarheimili
SÁA tók til starfa að Sogni í Ölf-
usi árið 1978 en árið 1991 fluttist
starfsemin að Vík á Kjalarnesi.
Eftirmeðferðarheimilið að Staðar-
felli í Dölum tók til starfa_1980.
Frá upphafi starfsemi SÁÁ hafa
um 10 þúsund einstaklingar komið
í afeitrun og meðferð í samtals 23
þúsund innlögnum eða að meðaltali
2,3 sinnum hver einstaklingur. Af
þessum íjölda hefur rúmlega helm-
ingur farið í eftirmeðferð á Sogni,
Staðarfelli og Vík.
Núverandi formaður SÁÁ er Þór-
arinn Tyrfíngsson.
(Fréttatilkyiming)
3. ársþing HIS hefst í dag
Stjórnin leggur til
skyldunotkun reiðhjálma
ENN ÞINGA hestamenn, því nú um helgina er röðin kornin að Hesta-
íþróttasambandi íslands. Þingið verður haldið í félagsheimili Fáks
í Víðidalnum og hefst klukkan tíu en það stendur yfir í einn dag.
Um sextán tillögur liggja fyrir þinginu auk fjárhagsáætlunar.
Stjóm sambandsins leggur til að
að skylduð verði notkun reiðhjálma
í öllum greinum hestaíþrótta í öllum
aldursflokkum en um slíkt er ekki
að ræða í fullorðinsflokki eins og
nú hagar til. Fjórar tillögur liggja
fyrir.þinginu um íslandsmót en þær
fjalla um tvo keppnisvelli, lág-
marksstigj B-úrslitakeppni og fyrir-
komulag Islandsmóta.
Þijú boð liggja fyrir þinginu um
íslandsmótsstað 1994. íþróttadeild-
irnar á Vesturlandi bjóða Kaldár-
mela fyrir mótið, Sörli í Hafnarfirði
býður sitt svæði og Gustur í Kópa-
vogi býður fram sitt svæði í Glað-
heimum. íslandsmótið 1993 verður
hins vegar haldið í Eyjafírði, annað-
hvort á Akureyri eða Melgerðismel-
um. Gert er ráð fyrir að þinginu
ljúki um kvöldmatarleytið í kvöld.
Sigurður Sigurðsson og Dóra Pálsdóttir að vinna á íslenskum tal-
gervli.
Námsstefna um
tölvur og fatlaða
í TILEFNI af fimm ára afmæli Starfsþjálfunar fatlaðra verður hald-
in sýning og námsstefna um tölvur og fatlaða dagana 8.-10. nóvem-
ber. Starfsþjálfun fatlaðra stendur fyrir sýningunni i samvinnu við
framleiðslunni og fljótlega fór að
spytjast út um sveitir að fískur
þessi væri afbragð annarra físka
"hvað snerti bragð og önnur gæði.
Varð þetta Friðfinni hvatning til
að reyna að hefja framleiðslu á
reyktum laxi til sölu í nærliggjandi
matvöruverslanir. Um þessa starf-
semi var hlutafélagið Friðfínns hf.
stofnað. -
Laxinn hefur verið fenginn frá
Silfurlaxi í Hraunsfirði og er haf-
beitarlax. Er laxaseyðunum sleppt
út úr fírðinum þegar þau eru u.þ.b.
10 sm að stærð og þegar fiskamir
leita heimahagana í Hraunsfírði
aftur að ári eru þeir veiddir. Laxinn
er þá flattur og reyktur við sag og
tað. Síðan er honum pakkað í neyt-
endaumbúðir og seldur í verslanir.
Eftirspumin hefur aukist jafnt
og þétt og nú era u.þ.b. 40 verslan-
ir á landinu með vöru þessa til sölu
og að auki er laxinn seldur í ýmis
veitingahús. Reykti laxinn er ekki
eina varan sem Friðfínnur framleið-
ir heldur hefur hann einnig sett á
markað graflax og graflaxsósu og
laxasalat. Hafa þessar vörutegundir
notið mikilla vinsælda.
Tilraunir hafa verið í gangi und-
anfarið með fleiri vörategundir og
á næstunni er von á nýrri tegund
af hungangslegnum graflaxi á
markaðinn.
Nú er starfsemi hlutafélagsins
orðinn svo umfangsmikil að rétt
hefur þótt að ráðast í kaup á
vinnsluhúsnæði. Þessa dagana er
unnið að því að lagfæra húsnæðið
og verður það væntanlega tekið í
notkun fyrir áramótin.
- Hallgrímur.
Tölvumiðstöð fatlaðra.
Af þessu tilefni kemur til lands-
ins norskur sérfræðingur, Jens Toll-
efsen, sem kynna mun hugbúnað
til notkunar við sérkennslu auk sér-
búnaðar fyrir hreyfíhamlaða.
Vakin er sérstök athygli á því
að íslenskur talgervill verður kynnt-
ur í fyrsta sinn opinberlega á þess-
ari sýningu. Gerð íslensks talgervils
hefur verið samstarfsverkefni Ör-
yrkjabandalags íslands, Háskóla
Islands og sænska Tækniháskólans
með tilstyrk norrænu nefndarinnar
um málefni fatlaðra. Hann hefur
verið í þróun hjá Málvísindastofnun
HÍ frá 1989 og í reynslunotkun hjá
Starfsþjálfun fatlaðra undanfarið
ár en er nú tilbúinn á íslenskan
markað.
ísbliss, talsjá, blindraskjár, tjá-
skiptatæki og stækkunarforrit
verða kynnt á sýningunni auk þess
sem fleira verður á dagskrá.
Námsstefnan 9. nóvember er
fyrst og fremst ætluð þeim sem
vinna að endurhæfíngu og kennslu.
Á þriðjudaginn 10. nóvember verð-
ur opið hús frá kl. 14 til 17.
Skoðanakönnun DY
Fylgi Alþýðubanda-
lagsins hefur aukist
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ eykur fylgi sitt en Sjálfstæðisflokkur og
Kvennalisti tapa fylgi frá þvi í september, samkvæmt kosningaspá sem
DV birtir í gær á grundvelli nýgerðrar skoðanakönnunar blaðsins um
fylgi stjórnmálaflokkanna. Alþýðuflokkur er með lítið eitt meira fylgi
en í september og Framsóknarflokkur lítið eitt minna fylgi, samkvæmt
könnuninni. 64,4% þátttakenda sögðust andvigir rikisstjórninni en 35,6%
fylgjandi.
í skoðanakönnuninni sem DV'
gerði fyrr í vikunni voru 36,8% þátt-
takenda óákveðnir og 6,2% vildu
ekki svara. Fylgi flokkanna skiptist
þannig, þegar aðeins er litið á þá sem
taka afstöðu: Alþýðuflokkur fengi
12,3% atkvæða. Flokkurinn fékk
15,5% í síðustu alþingiskosningum.
Framsóknarflokkur fengi 24,6% at-
kvæða en hafði 18,9% í kosningun-
um. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
37,1% atkvæða nú, hafði 38,6% í
kosningunum. Alþýðubandalag fengi
14,6% ef kosið væri nú, hafði 14,4%
í síðustu kosningum. Kvennalistinn
fengi 11,1% atkvæða nú, hafði 8,3%
í síðustu alþingiskosningum.
DV gerir kosningaspá á grund-
velli niðurstaðna skoðanakönnunar-
innar. Þar er fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins lækkað niður í 31% en fylgi ann-
ara flokka hækkað, mismunandi
mikið. Þetta ber blaðið saman við
samskonar kosningaspár undanfarna
mánuði. Við þarin samanburð kemur
í ljós að Alþýðubandalagið hefur
aukið fylgi sitt frá því í september
en Sjálfstæðisflokkurinn og Kvenna-
listinn hafa tapað fylgi. Alþýðuflokk-
urinn hefur bætt lítillega við sig og
fylgi Framsóknarflokksins dalað lítið
eitt.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns og jafnt skipti milli kynja
og landsbyggðar og höfuðborgar-
svæðis. Spurt var: Hvaða lista mund-
ir þú kjósa ef þingkosningar færu
fram núna.
DV spurði þáttakendur einnig
hvort þeir væra fylgjandi eða andvíg-
ir ríkisstjóminni. Af þeim sem af-
stöðu tóku sögðust 35,6% vera henni
fylgjandi en 64,4% andvígur. Stuðn-
ingur við ríkisstjómina hefur sam-
kvæmt þessu dalað frá skoðanakönn-
unum DV í júní og september, er
um það bil 40% þátttakenda Iýstu
yfír stuðningi við hana.
VETRI?
Líttu inn á næstu ESSO-stöð. Við bjóðum
sérstaka vetrarþjónustu fyrir bílinn þinn.
Starfsfólk okkar veit hvað gera þarf.