Morgunblaðið - 07.11.1992, Page 36
fclk í
fréttum
Samningunnn frágenginn, f.v. Arnór Benónýsson, Jón Pétursson formaður Lögreglufélagsins, Gunnar
Bender og Kristján Kristjánsson.
VEIÐI
Leikari og ritstjóri leigja
regnbogalj ömina
Þeir Amór Benónýsson leikari
og Gunnar Bender ritstjóri
Sportveiðiblaðsins hafa tekið hönd-
um saman og leigt veiðitjömina í
Hvammsvík í Kjós af Lögreglufé-
lagi Reykjavíkur. Samningurinn er
í gildi í vetur og ætla þeir félagar
að leyfa silungsveiðar allar helgar
í vetur, stangaveiði á meðan að
veður leyfír, en dorgveiði er ís
hneppir tjömina í vetrarfjötra.
Gunnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að um 5000 regnbogasil-
ungar væm í vatninu, allt fískur
af góðri stærð og myndu þeir félag-
ar passa vel upp á að aldrei skorti
físk. „Það er hugmyndin að hafa
þetta svolítið Qölbreytt, efna til
námskeiða af ýmsu tagi og dorg-
veiðimóta í vetur. Svo gæti farið
að Norðurlandamótið í dorgveiði
fari fram hér á landi í janúar eða
febrúar og þá gæti það allt eins
gerst að hluti mótsins færi fram í
Hvammsvík. Við gemm okkur von-
ir um að þetta sé aðeins byrjunin
á blómlegu samstarfí okkar við
Lögreglufélagið, en næsta vor
verða málin rædd á ný og þá skor-
ið úr því hvort að leigan verði fram-
lengd,“ sagði Gunnar.
Veiði hófst um síðustu helgi og
veiddist nokkuð er á daganna leið,
en morgunkuldi dró úr fiskeríi
B/LALE/GA
Úrval 4x4 fólksbila og statlon bfla.
Pajero jeppar o.tl. teg. Pickup-bílar
með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bllar. Farslmar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
iníerRent
Europcar
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Fáðu gott tilboð7
framan af. Er það hlýnaði með
deginum fór fískur að vaka víða
um vatnið og nokkrir drógu væna
físka. Þeir em orðnir margir sem
Elle McPherson.
hafa dregið sína fýrstu físka í
Hvammsvík, en þangað hafa löng-
um streynmt bæði vanir og óvanir
veiðimenn.
Hinn sálsjúki Gary Moore.
HARMLEIKUR
Sálsjúkur maður veittist
að súpermódelinu
Súpermódelið Elle McPherson
fékk að fínna fyrir því að
frægðin er ekki alltaf geðþekk og
full unaðar og munaðar. Hún tók
þátt í undirfatasýningu f 6 hæða
stórmarkaði í Adeleide í Ástralíu
og þar varð sú uppákoma sem hún
vildi helst gleyma en mun aldrei
geta.
Undirfatasýningin var í djarfari
kantinum og var margt um mann-
inn í risavöxnu verslunarhús-
næðinu. Meðal þeirra var hinn 22
ára gamli Gary Moore sem fór allt
í einu að hreyta ókvæðisorðum að
ungfrúnni er hún sprangaði um í
nærfötunum. Kallaði hana fúlum
nöfnum á borð við „gleðikonu" og
fleira í sama dúr og hafði Moore
sig svo mikið í frammi, að sýningar-
hölduðir kusu að hringja í lögregl-
una. Fjarlægði hún Moore sem
braust nokkuð um og æpti enn
hærra er hann var leiddur burt.
Ekki fengu Elle MePherson, stöll-
ur hennar og áhorfendur lengi að
halda uppteknum hætti því Moore
birtist á ný. Fór hann mikinn,
mælti ekki orð af vörum, en hljóp
sem skjótast upp á efstu hæð versl-
unarkeðjunnar. Þar mölvaði hann
rúðu í veitingasal og fór svo að
þruma yfír sýningargestum niður
rúllustigaganginn, en við enda hans
fór sýningin einmitt fram. Eftir
nokkrar fortölur vó Moore sig upp
á handrið og kastaði sér niður. í
opinn dauðann.
EFTIRLAUN
Reagan
nýtur
lífsins
að var glaðbeittur Ronald
Reagan, sem birtist ásamt
konu sinni Nancy á tennismóti
sem haldið var í hennar nafni
fyrir skömmu. Það hefur lítið
heyrst og sést af þessum fyrrum
forsetahjónum Bandaríkjana síð-
ustu fjögur ár. Ekki verður annað
sér en að þau njóti lífsins, en
hætt er við að brosið sé ekki al-
veg eins breitt nú, í ljósi úrslita
forsetakosningana þar í landi.
Nancy og Ronald glerfín á einni
af fínni samkomum ársins.
Ronald og Nancy Reagan, ásamt Evu Gabor og Merv Griffen.
ÞORSHÖFN
Norðurljósin
heilluðu tón-
listarkennarann
Þórshöfn.
Við Tónlistarskólann á Þórshöfn
hefur verið ráðinn nýr tónlist-
arkennari. Það er ung kona frá
Belgíu, Sophie Schoonjans að
nafni. Þó að franska sé hennar
móðurmál hefur það ekki valdið
samskiptaerfíðleikum, því hún er
ágætlega enskumælandi og auk
þess fljót að læra íslensku og hún
óskaði eftir að búa á íslensku heim-
ili í því skyni að verða fljótari að
læra málið.
Sophie kennir á píanó, hljóm-
borð, blokkflautu og gítar auk
hörpu sem er hennar sérgrein. 41
nemandi er í Tónlistarskólanpm.
Sophie flutti með sér tvær hörp-
ur frá Belgíu, aðra fremur litla en
hina stóra. Minni hörpuna hefur
hún í skólanum þar sem hún kenn-
ir á hana en þá stóru hefur hún
heima.
Innan skamms eiga Þórshafn-
arbúar og nærsveitarmenn þess
kost að hlýða á hörpuleik Sophie
en hún mun leika á hörpuna á
árshátíð Hestamannafélagsins
Snæfaxa 7. nóvember nk. Víst er
að enginn ætti að verða fyrir von-
brigðum því þarna er listamaður á
ferð.
Sophie hóf sitt tónlistarnám að-
eins sex ára gömul og lauk námi
árið 1985. Aðspurð sagði Sophie
að henni líki vel á Þórshöfn og hún
varð ekki fyrir menningarsjokki
við komuna hingað. íslenskur mat-
ur finnst henni góður, hún borðaði
jafnvel glerhákarl og sagði hann
bragðast líkt og gamlan gráðost.
Hún er afar hrifin af hestum og
langar á hestbak. Vélsleða langar
hana einnig að reyna en snjórinn
hefur enn ekki komið nema í mý-
flugumynd. Sophie fær vonandi
óskir sínar uppiylltar innan
skamms.
Fyrir komuna til Islands vann
Sophie Schoonjans við hörpuna
sína.
Sophie í Kína þar sem hún spilaði
í sinfóníuhljómsveit í Hong Kong.
Hún segist kunna betur við Þórs-
höfn þar sem allt er yfírhlaðið
bæði af fólki og farartækjum svo
ekki sé talað um mengunina. Sop-
hie fer mikið út að ganga og kann
vel að meta hreina loftið. Norður-
ljósin heilluðu hana mjög og hafði
hún ekki áður séð það fyrirbæri.
Ef til vill þarf útlendinga til að
opna augu okkar íslendinga fyrir
því hve mikill fjársjóður hreina
landið okkar er, þegar mengunin
í heiminum er orðin alvarlegt
vandamál.
Norðausturhornið er nú orðið
ágætlega mannað af tónlistar-
kennurum því að tii Raufarhafnar
hefur verið ráðinn tékkneskur tón-
listarkennari og pólsk hjón til
Vopnafjarðar.
- L.S.