Morgunblaðið - 07.11.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR -7. NÖVEMBER 1992
37
Langur laugardagur
TILBOÐ
30% afsláttur
af öllum úlpum
Mikið úrval - stærðir 74-1 76
Aðeins í dag
en&labörnín
Bankastræti 10, Reykjavík.
Árni Jónsson golfkennari með ungum og áhugasömum verðlaunahöfum.
GOLF
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Krakkarnir héma hafa
uppgötvað golfið
VERKFRÆÐINGAR
í tilefni af 80 ára afmæli VFÍ býður
Landsvirkjun verkfræðingum í „opið hús“
í dag kl. 16-18 í stjórnstöðinni
á Bústaðavegi 7, Reykjavík.
Verkfræðingafélag íslands.
Sauðárkróki.
Flestar helgar sumarsins er mik-
ið um að vera á athafnasvæði
golfmanna á Sauðárkróki, við Hlíð-
arenda, og ekki minnkar álagið
þegar sígur að hausti og háð er
„Bændaglíma", og allskonar mót,
sem nefnd eru hinum ýmsu nöfnum
og eru mörg samantekt á sumrinu.
Eitt slíkt var nú síðla hausts, og
var þá venju fremur líflegt á Hlíð-
arenda.
Verið var að gera upp sumar-
starfið í unglingadeild golfklúbbs-
ins, og var það gert á veglegan
hátt, með því að haldið var mót,
þar sem leiknar voru 18 holur, en
að því loknu var öllum þátttakend-
um ásamt foreldrum og öðrum
aðstandendum boðið í pylsu- og
kókveislu.
Reynir Barðdal, formaður ungl-
inganefndar, ságði að áformað
hefði verið að bjóða til mótsins
unglingum af Norðurlandi vestra,
en því miður hefðu kylfingar í þess-
um aldurshópum frá nágranna-
sveitarfélögunum ekki séð sér fært
að koma og því væru aðeins heima-
menn á mótinu að þessu sinni.
Þáttakendur voru 26, á aldrinum
8 til 14 ára, og var keppt í þrem
flokkum, í stúlknaflokki, A flokki
drengja, en þar keppa þeir sem
teljast ekki byijendur og komnir
eru með forgjöf, en í B flokki eru
þeir sem tóku til við golfiðkunina
nú í vor.
Reynir sagði að þetta væri ann-
að sumarið sem klúbburinn væri
með öflugt unglingastarf, og væri
nú að koma í ljós árangur af því
starfi, með mörgum mjög efnileg-
um ungum golfleikurum. „Krakk-
arnir hérna hafa uppgötvað golfið,
og þau eru vissulega enn fleiri hér
í dag I keppninni, en nokkur sem
hafa verið hér fastagestir á æf-
ingasvæðinu frá því í vor, eru í
sumarfríum með foreldrum sínum,
og gátu því ekki verið með.“
„Við höfum verið rnjög heppnir,
haft afbragðskennara, Arna Jóns-
son frá Akureyri, sem er einn
reyndasti kylfingur landsins, og
hann hefur náð mjög vel til krakk-
anna. Hér á æfingasvæðinu hafa
verið um 40 krakkar upp á hvern
einasta dag í allt sumar, hvernig
sem hefur viðrað, og sum hafa
komið hingað uppeftir fyrir klukk-
an tíu á morgnana, haft með sér
nesti, sem þau hafa borðað hér
efra, ef þau þá höfðu tíma til, og
síðan verið alveg fram að kvöld-
mat.“
Reynir sagði það býsna gott að
vera með rúmlega 30 virka krakka
í golfinu, eftir sumarið, og einnig
væri mjög ánægjulegt hversu vel
margir foreldrar fylgdust með
börnum sínum í þessari íþrótt.
Árni Jónsson golfkennari ávarp-
aði keppendur og gesti og þakkaði
þeim ánægjulegt sumar, og af-
henti nokkra verðlaunapeninga,
sem ekki höfðu komist til réttra
eigenda, frá mánudagsmótum
sumarsins. Að lokum afhenti Árni
ýmis aukaverðlaun, svo sem fyrir
bestu hegðunina, bestu umgengni
á vellinum, mestu framförina, og
fleiri góða eiginleika, sem verða
að vera með, ef menn ætla sér að
verða góðir golfleikarar.
Úrslit sumarmótanna urðu
þessi: í stúlknaflokki, Dúfa Ás-
björnsdóttir, Dagmar Birgisdóttir
og Lilja Ingimundardóttir.
í A-flokki drengja: Gunnlaugur
Erlendsson, Guðmundur I. Einars-
son og Gestur Siguijónsson.
í B-flokki drengja: Snorri Stef-
ánsson, Þorsteinn Hjálmar Gests-
son og Rúnar Guðlaugsson.
Að lokum þökkuðu nemendur
og foreldrar Árna Jónssyni fyrir
skemmtilegt sumar, og lofuðu báð-
ir hinum, að hittast örugglega að
vori.
Styrktaraðilar mótsins voru:
Búnaðarbanki íslands, Golfbúð
Davids, Akureyri, Vífilfell, og
Kaupfélag Skagfirðinga.
- BB.
Langur laugardagur til lukku
í Dimmalimm frá kl. 10-17.
Bjóðum 20% afslátt af úlpum
og útigöllum. Aðeins í dag.
DIMMALIMM
Bankastræti 4
,101 reykjavík,
st'mi 11222
Liegelind®Oualilát barnaföt á o e ára
COSPER
- Ég kann vel við þessa mynd. Mér þykir hrossa-
kjöt svo gott.
Royai
INSTANT PUDOINC
... pu nuiNt
'Vt
Ungir og aldnir njóta þess aö borða
köldu Royal búðingana.
Bragðtegundir: —
Súkkulaði, karamellu, vanillu og
jarðarberja.
LANGUR LAUGARDAGUR VIÐ LAUGAVEGIDAG
Á Laugavegi 12
Allt nýjar vörur
er
veittur 10% afsláttur X&Z
Póstsendum
barnaföt,
Laugavegi 12, sími 62 16 82.
r