Morgunblaðið - 07.11.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
IAUGARDAGUR 7. NÖVEMBER 1992
47
HANDKNATTLEIKUR / KORFUKNATTLEIKUR
Jakob sleit krossband
Valsmennirnir Jakob Sigurðs-
son, landsliðsmaður í hand-
knattleik og Svali Björgvinsson
þjálfari og leikmaður úrvalsdeild-
arliðs félagsins í körfuknattleik
eru báðir meiddir og ljóst er að
hvorugur verður með á næstunni.
Jakob sleit krossbönd í vinstra
hné á æfingu hjá Val f gærkvöldi
og er ljóst, að sögn Stefáns Carls-
sonar læknis, að hann verður lengi
frá, og getur ekki verið með í
heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð
í mars. „Ég var að gera gabb-
hreyfingu þegar ég rann einhvem
vegin út úr hnéinu, ef þannig má
að orði komast“ sagði Jakob við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Það er ljóst að maður verður
ekki með í HM í Svíþjóð og sjálf-
sagt eitthvað lítið á þessi íslands-
móti. Þetta er það sama og í fyrra,
bara hitt hnéið. Þá var ég frá í
þijá og hálfan mánuð en eiginlega
er ég fyrst núna orðin góður í
hægra hnéinu.
Þetta er alveg furðulegt. Maður
meiðir sig ekki í ein tíu ár, allan
sinn feril, en svo kemur þetta eins
og á færibandi. Ég fór í hinu
hnéinu 8. október f fyrra þannig
að maður er alveg árið að jafna
sig fullkomlega. Nú verður maður
bara að bíða og sjá til. Vonandi
verð ég skorinn sem allra fyrst,“
sagði Jakob.
íhné
Svali Björgvinsson þjálfari og
leikmaður úrvalsdeildarliðs Vals í '
körfuknattleik sleit liðbönd f
vinstra hné í annað skipti, í leik
á dögunum og verður ekki meira
með í vetur. Þetta er f þriðja sinn
sem hann slitur liðbönd, fyrst á
vinstra hné, sfðan á því hægra
og nú aftur á því vinstra.
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Blikar lögðu Skallagrím
og féngu sín fyrstu stig
UBK - Skallagrímur99:85
Digranes, úrvalsdeildin í körfuknattleik,
föstudaginn 6. nóvember 1992.
Gangur leiksins: 0:2, 4:2, 4:11, 12:20,
24:20, 28:23, 30:30, 35:36, 39:42, 49:44,
62:54, 69:66, 75:70, 83:81, 91:81, 99:85.
Stig UBK: Hjörtur Amarsson 30, Pétur
Guðmundsson 17, Lloyd Sergent 15, Egill
Viðarsson 14, Eiríkur Guðmundsson 13,
ívar Webster 10.
Stig Skallagríms: Alexander Ermoiinskij
30, Birgir Mikaelsson 25, Henning Henn-
ingsson 15, Þórður Helgason 8, Sigurður
Elvar Þórólfsson 3, Gunnar Þorsteinsson
2, Skúli Skúlason 2.
Áhorfendur: Um 150.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Brynjar
Þór Þorsteinsson. Dæmdu vel en vom stund-
um full smámunasamir.
UMFIM - KR 90:76
íþróttahúsið í Njarðvík:
Gangur leiksins: 4:0, 4:3, 14:5, 20:11,
24:21, 33:21, 41:28,49:34, 54:45, 60:54,
68:59, 76:73, 82:73,90:76.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 31, Gunnar
Örlygsson 14, Rondey Robinson 12, Jóhann-
es Kristbjömsson 10, Rúnar Ámason 8,
Sturla Örlygsson 7, Atli Árnason 4, Ástþór
Ingason 4.
Stig KR: Hermann Hauksson 21, Hrafn
Kristjánsson 14, Láras Ámason 14, Guðni
Guðnason 11, Matthias Einarsson 8, Óskar
Kristjánsson 4, Tómas Hermannsson 2, Sig-
urður Jónsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrfmsson og Einar
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: Um 300.
1. deild kvenna:
UMFN-ÍS....................31:53
Bikarkeppni karla:
ÍA-Þrymur.................132:60
Þór-UMFB..................102:79
BLeikurinn tafðist nokkuð á Akureyri þar
sem leikmenn bratu aðra körfuna í upphitun
I leikhléi.
Breiðablik fékk sín fyrstu stig í
úrvalsdeildinni í gærkvöldi
þegar liðið sigraði Skallagrím 99:85
f frekar daufum leik
Skúli Unnar sem var Þó mun
Sveinsson skemmtilegri í síðari
skrífar hálfleik. Gestimir
náðu átta stiga for-
skoti snemma í leiknum en þá kom
góður kafli heimamanna sem kom-
ust 28:23 yfir. í síðari hálfleik kom-
ust Blikar fljótlega yfir og héldu
forystunni til leiksloka, þó oft mun-
aði litlu.
Blikar léku svæðisvörn allan tím-
ann en Skallagrímsmenn skiptu
yfir í pressuvöm um tíma með litl-
um árangri. Blikar léku gríðarlega
skynsamleg undir lok leiksins, gáfu
sér góðan tíma og létu boltann
ganga vel manna á milli.
Hjá þeim léku eiginléga allir vel
á köflum, nema Hjörtur sem lék
vel allan tímann. Hann var reyndar
dálítið óöruggur í fyrstu en lék síð-
an mjög vel. Pétur og Sergent léku
vel og voru sterkir í fráksötum og
ekki má gleyma ívari Webster sem
tók ófá fráköstin þegar mikið lá
við. Egill og Eiríkur hmkku síðan
í gang á réttum tíma þegar á þurfti
að halda og hittu mjög vel.
Hjá Borgnesingum var Alexandr
bestur og Birgir átti þokkalega
spretti. Aðrir léku ekki vel.
UMFN skellti KR-ingum
Njarðvíkingar unnu ákaflega
þýðingamikinn sigur gegn
KR í gærkvöldi, 90:76 - og em því
■■■■■ enn með í barátt-
Bjöm unni um íslands-
Blöndal meistaratitilinn
NjarðJik ^rátt. fyrir slakt
gengi að undan-
fömu. KR-ingar urðu að leika án
Bandaríkjamannsins Larry Houzer
þar sem hann var ekki orðin lögleg-
ur en eigi að síður náðu þeir að
veita Njarðvíkingum harða keppni.
Njarðvíkingar höfðu forystuna
frá upphafí og náðu oft ágætum
köflum en þess á milli datt allur
botn úr leik þeirra og þá sérstak-
lega í síðari hálfleik. Ljóst var að
það yrði á brattan að sækja hjá
KR-ingum en þeir börðust vel og
vom nálægt því að jafna metin í
síðari hálfleik, en Njarðvíkurliðið
stóðst prófið að þessu sinni.
„Við lékum vel í fyrri hálfleik og
náðum ágætu forskoti, en síðari
hálfleikur var slakur og það er eins
og mínir menn þurfi alltaf að slaka
á þegar þeir hafa náð þægilegu
forskoti," sagði Paul Colton þjálfari
Njarðvíkingar eftir leikinn. „Það
vom mikil vonbrigði fyrir okkar að
Banaríkjamaðurinn skyldi ekki fá
að leika og því var ljóst að þetta
yrði erfítt. Eg er ekki 'ánægður með
tap en ég er samt ánægður með
leik ungu mannanna í liðinu sem
börðust vel og við emm greinilega
á réttri leið,“ sagði Friðrik Rúnars-
son þjálfari KR-inga.
ekki úr skák að hafa ekki Hásteins-
völlinn. Vallaraðstæður áttu stóran
þátt í fækkuninni."
Þrátt fyrir fækkun vom Fram-
arar með þriðju bestu aðsóknina í
ár og vóru viðmælendur sammála
um að aðstæður hefðu þar mikið
að segja. Auðvelt væri að komast
að vellinum, fljótlegt að fara í burtu
og áhorfendur sætu undir þaki, sem
væri mikill kostur. íslandsmeistar-
ar Víkings frá fyrra ári og jafnvel
Valur njóta langt því frá sömu
aðstæðna og er það ein skýring
þeirra á fáum áhorfendum.
Aðrar skýringar
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, sagði að
samkeppnin væri mikil og greini-
legt væri að Evrópukeppnin i knatt-
spyrnu s.l. vor og Ólympíuleikarnir
síðsumars hefðu haft mikil áhrif.
„Fólk var örugglega búið að fá nóg
af íþróttaefni.“ Andrés Pétursson,
varaformaður knattspyrnudeildar
Breiðabliks, var á sama máli og
Sveinn R. Brynjólfson, formaður
knattspyrnudeildar KA, bætti við
að beinar útsendingar frá íslands-
mótinu hefðu einnig dregið úr að-
sókn, einkum þegar veður var ekki
eins og best verður á kosið.
Rúnar Antonsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs á Akur-
eyri, sagði að Þórsarar væru
ánægðir með aðsóknina hjá sér, en
aðsóknin almennt væri umhugsun-
arefni. Hann nefndi sömu ástæður
°g þegar hefur verið greint frá en
tiltók einnig miðaverðið. „Við vor-
um á móti því að hækka verðið og
kannski er það of hátt.“ Lárus
Eyjamaður sagði að knattspyrnan
yrði að taka mið af þjóðfélagsað-
stæðum. „Hugsanlega er miðaverð-
ið fráhrindandi, einkum fyrir Ijöl-
skyldufólk."
Fastir leikdagar
Áhorfendur eru veigamikill þátt-
ur í knattspyrnunni og án þeirra
eiga félögin sér ekki viðreisnar
von. Staðreyndin er að 500 eða
færri áhorfendur voru á einum
þriðja hluta leikja sumarsins og 700
eða færri á tveimur af hvetjum
þremur leikjum. Þó sumir vilji gera
lítið úr áhorfendafækkuninni og
segja sem svo að hún haldist í hend-
ur við stórmót erlendis, eru for-
svarsmenn félaganna nær á einu
máli um að sameiginlegt átak þurfí
til að bæta um betur. í því sam-
bandi bentu flestir viðmælenda á
að tími væri til kominn að láta
reyna á fasta leikdaga, en Vals-
menn hafa þegar skipað nefnd, sem
á að koma með tillögur um úrbæt-
ur.
Snorri Finnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sagði að fækk-
unin væri kannski eðlileg vegna
annarra stóratburða á íþróttasvið-
inu s.l. sumar, en ógnvænlegast
væri hvað aðsóknin hefði verið lítil
í síðustu umferðunum, þó úrslitin
hefðu ekki verið ráðin. Fastir leik-
dagar væri mál, sem yrði að fara
að skoða alvarlega og forysta KSÍ
væri fylgjandi slíku fyrirkomulagi,
en hefði ekki viljað fara gegn félög-
unum.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins leggur mótanefnd til í
drögum sínum fyrir næsta sumar
að mánudagar og fimmtudagar
verði fastir leikdagar, en laugar-
dagar í tveimur síðustu umferðun-
um. Tölurnar tala sínu máli, vanda-
málið er til staðar, en boltinn er
hjá.félögunum.
HANDKNATTLEIKUR
Hörkuleikir
- segir Kristján Arason þjálfari FH-inga
ÍSLANDSMEISTARAR FH leika
tvo leiki í 16 liða úrslitum Evr-
ópukeppni meistaraliða gegn
sænsku meisturunum Ystad
um helgina. Báðir leikirnir
verða í Kaplakrika, sá fyrri í dag
kl. 17 og sá síðari á morgun
kl. 20.30.
Kristján Arason þjálfari og.leik-
maður FH telur að leikimir við
Ystad um helgina verði skemmtilegir
enda leggi bæði liðin mikið upp úr
hraðaupphlaupum. „Það er mikil-
vægt fyrir okkur að fá báða leikina
hér heima og þá sérstaklega ef við
fáum mikið af áhorfendum. Ef
stemmningin verður svipuð og var í
úrslitakeppninni í fyrra þá trúi ég
að við getum komist áfram í keppn-
inni. Ef það á að takast verður vam-
arleikurinn og markvarslan að vera
góð því annað gengur ekki I Evrópu-
keppninni," sagði Kristján Arason
þjálfari og leikmaður FH um ieikina
um helgina.
„Ég veit ekki hver ástæðan er
fyrir því að við fáum báða leikina
heima en ætli Svíamir trúi því ekki
að þeir vinni okkur enda sýnir sagan
að Svíum gengur oftast vel gegn
íslendingum. Þetta verða örugglega
hörkuleikir þar sem úrslitin ráðast
ekki fyrr en í síðari leiknum og fímm
marka sveifla, á hvorn veginn sem
er, er ekkert sem liðin geta ekki lag-
að í síðari leiknum.
Ég hef skoðað Ystad á myndbandi
og þeir eru með gott lið og Per Car-
len er þeirra bestur. Hann bindur í
rauninni tvo menn í vöminni, hann
er svo gríðarlega sterkur. Annars
leggja þeir mikla áherslu á hraðaupp-
hlaupin en ef þau ganga ekki upp
leika þeir ef til vill ekki áferðarfalleg-
asta handknattleik sem sést en þeir
leika mjög skynsamlega eins og Svíar
gera oftast. Allflestum sóknum
þeirra lýkur með skoti og þeir gera
ekki mikið af mistökum.
Markmiðið hjá okkur verður að
vera meira í vöminni og keyra á
hraðaupphlaupin. Þeir eru líka sterk-
ir í þeim þannig að þetta verður ör-
ugglega skemmtilegur og hraður
leikur. Það veltur mikið á því hvort
liðið leikur betri vörn.“
KNATTSPYRNA
Dregið í Evrópukeppninni
Dregið var í 8-liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu
í gær. Fyrstu leikirnir verða 25. nóvember, en liðin fjögur leika innbyrð-
is heima og að heiman, og efsta liðið í hvorum riðli kemst í úrslit. Fyrstu
leikirnir eru þessir; A-riðill: Club Brugge-CSKA Moskvu, Glasgow Rang-
ers-Marseille, og B-riðill: Porto-PSV Eindhoven, AC Milan-IFK Gautaborg.
Iþróttir
helgarinnar
Körfuknattleikur
LAUGARDAGUR
Bikarkeppni karla:
Grindavík, UMFG b - UFA......16
1. deild karla:
Hagaskóli, ÍS - Þór...........17
SUNNUDAGUR
Úrvalsdeild karla:
Borgames, Skallagrímur - ÍBK.16
Grindavík, UMFG - UMFN..........20
Hlíðarendi, Valur - Haukar....,.20
Seltj.nes, KR - Tindastóll....20
Stykkish., Snæfell - UBK......20
1. deild karla:
Sandgerði, Reynir - Þór.....14
MÁNUDAGUR
1. deild kvenna:
Kennarahásk., ÍS - lR.........20
Handknattleikur
■íslandsmót f 6. flokki karla og
kvenna og 7. flokki karla verður um
helgina. 14 félög senda 69 lið til
mótsins og reiknað er með um 1.000
bömum til keppni. Víkingur er fram-
kvæmdaraðili. Keppni hófst í gær
en heldur áfram í dag og úrslit hefj-
ast kl. 15 á morgun. Leikið er í
íþróttahúsi Réttarholtsskóla og í Vfk-
inni.
LAUGARDAGUR
1. deiid kvenna:
Austurberg, Fylkir - Ármann ...16.30
Laugard.höll, Fram - KR......14
Seltj.nes, Grótta - Selfoss.16.30
Valsheimili, Valur - Haukar.16.30
MÁNUDAGUR
1. deild karla:
Laugardaishöll, Fram-Valur..20
1. deild kvenna:
Garðabær, Stjaman - FH........20
■FH leikur tvo Evrópuleiki við
Ystad, í dag og á morgun. Sjá nánar
hér til hliðar.
Badminton
Afmælismót Badmintonsambandsins
hófst í gærkvöldi f TBR-húsinu við
Gnoðarvog. Keppni heldur áfram kl.
13 f dag.
Fimleikar
Nýtt mót í áhaldafimleikum, Haust-
mótið, verður haldið í Ármannshús-
inu við Sigtún á morgun, sunnudag.
Keppt er í fijálsum æfmgum og
verða keppendur 40, meðal þeirra
fslandsmeistaramir í karla- og
kvennaflokki. Mótið hefst kl. 11 með
keppni í kvennaflokki og lýkur þeim
hluta mótsins kl. 13. Karlamir keppa
svo kl. 14 til 16.30.
Sund
Unglingameistaramót fslands fer
fram um helgina f Sundhöllinni í
Reykjavfk.
Billjard
Opið forgjafarmót verður haldið f
dag og á morgun, annað mótið af
sex. Mótið verður í Ingólfsbilliard og
Billardstofunni Klöpp. Allir bestu
billjardspilarar landsins taka þátt í
mótinu auk nýliða.
Þátttökugjald er 2.000 kr. Veitt
verða verðlaun fyrir átta efstu sætin
út úr þessum sex mótum, en verð-
launin era tólf daga ferð til Eng-
lands. Einnig verður veittur eignar-
bikar fyrir þijú efstu sætin, bikar
verður veittur fyrir hæsta skorið, og
sigurvegarinn fær farandbikar til
varðveíslu í eitt ár.
Allir geta tekið þátt í mótinu því
forgjöf er allt upp f 60 stig. Styrkta-
raðilar era Flugleiðir og veitinga-
staðurinn Hrói höttur.
Hátíð í Digranesi
Kópavogsbær afhéndir Handknatt-
leiksfélagi Kópavogs fþröttahús Di-
granes formlega tii reksturs f dag
og af þvf tilefni verður viðamikil
dagskrá í húsinu. Hún hefst kl. 15
en þá marsera keppendur allra flokka
f öllum deildum félagsins f salinn.
Gunnar Birgisson, formaður bæjar-
ráðs og Sigurður Geirdal, bæjar-
stjóri, flytja ávörp ásamt Þorsteini
Einarssyni formanni HK og séra
Kristján Einar Þorvarðarson flytur
helgistund með aðstoð fulltrúa deild-
anna og samningur Kópavogsbæjar
við HK verður undirritaður.
Að þessu loknu fara fram kapp-
leikir milli HK og Breiðabliks f 5.
flokki 1 knattspymu og f 4. flokki í
handknattleik, og síðan verður blak-
deild félagsins með kynningaratriði.