Morgunblaðið - 29.11.1992, Síða 10

Morgunblaðið - 29.11.1992, Síða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 I Lagt á ráðin. Frá vinstri Erik Zobler, Guðmundur Jónsson, Birgir Baldursson, Stefán Hilmarsson (með húfuna), Jens Hansson, Atli Örvars- son (situr) og Friðrik Sturluson. Friðrik holufyllir. Birgir í pönkeyrslu. V eftir Árna Matthíosson, myndir Bjorni Eiríksson SÁLIN hans Jóns míns er fremst meðal íslenskra poppsveita; sveitin hefur sent frá sér hveija metsöluplötuna af annarri og leikið hvarvetna fyrir fuUu húsi um land allt. Hljómsveitin var komin með gott tak á íslenskum tónlistarmarkaði og ekki bar á öðru en formúlan, lög Guðmundar Jóns- sonar gítarleikara og textar Stefáns Hilrn- arssonar söngvara, gæti malað sveitar- mönnum gxdl um ókomin ár. Þá var það að Sálarmenn ákváðu að gera eitthvað sem þeir hefðu aldrei gert; að taka upp ný vinnu- brögð og semja öU lög í sameiningu. Af- rakstur þess er nýútkomin plata Sálarinn- ar, Þessi þungu högg, sem unnin var á aUt öðrum nótum en fyrri plötur hennar. eins og áður sagði hefur aðal Sálarinnar fram að þessu verið lagasmíðar Guð- mundar Jónssonar og textar Stefán Hilmarssonar, en eft- ir að Sálin lauk við breiðskífu sína sem út kom um síðustu jól, ákváðu menn að tímabært væri að breyta til og rétt að fleiri sveitarmeðlimir fengju að njóta sín við lagasmíðar, en auk þeirra Stefáns og Guðmundar hefur Sálin verið skipuð þeim Jens Hans- syni saxófónleikara, Atla Örvars- syni trompet- og hljómborðsleikara, Birgi Baldurssyni trommuleikara og Friðriki Sturlusyni bassaleikara síð- ustu tvö ár. í spjalli fyrir skemmstu sögðu þeir Guðmundur og Stefán að þegar þessi hugmynd vaknaði hafí Sálar- menn verið allþreyttir á hljóðvers- hangi: Guðmundur: „Þegar við lukum við síðustu plötu vorum við búnir að vera að meira og minna í fjóra mánuði og langaði því að taka næstu plötu upp á stuttum tíma, spila hana beint inn og þá í hljóðveri ytra. Þá kom líka upp á yfirborðið að gefa öllum færi á að spreyta sig í laga- smíðum með því að við kæmum saman og spinnum saman, að prófa eitthvað nýtt.“ Stefán segir að sú hugmynd að spinna saman lög á þennan hátt hafi verið ný fyrir sér og Guðmund- ur skýtur því inní að þó hann eigi sér alllangan aldur í tónlistarbrans- anum sé hún ný fyrir honum líka. Það tóku og allir því vel að fara þess leið þó ljóst mætti vera að það væri ekki hlaupið að því fyrir ráð- setta sveit að taka upp nýja háttu. Sálarmenn komu saman í æfinga- plássi sveitarinnar strax eftir síð- ustu áramót til að byrja að vinna hugmyndir og þá kom í ljós að menn höfðu mismunandi tónlistar- áhuga og Guðmundur segir tónsvið sveitarinnar vera allt frá „hreinu pönki í létt popp“. Það var einnig nýtt fyrir sveitarmönnum að vera að æfa svo stíft saman sem gert var til að semja á plötuna, enda segir Stefán að þeir félagar æfí sjaldan. Stefán: „Það var erfitt að byija á þessu, þó þetta sé eitthvað sem nánast allar hljómsveitir byija á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.