Morgunblaðið - 29.11.1992, Page 17

Morgunblaðið - 29.11.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 B 17 Félagslífið gott í vetur að sem mér hefur þótt standa upp úr það sem liðið er af vetri er árshátíð skólans sem haldin var um miðjan nóvembermánuð. Hún var mjög skemmtileg og vel heppnuð í alla staði. Það var alltaf eitthvað um að vera í frímínútum síðustu dagana fyrir hátíðina og á sjálfan árshátíðardaginn var svo heilmikið um húllumhæ. Dagurinn hófst á því að í löngu frímínútum lék hljómsveitin Bossa nova band fyrir okkur. Um miðjan daginn var svo hátíðarsýning á Hótel íslandi en þar var fjöldinn allur af skemmti- atriðum frá nemendum og kennur- um og síðast en ekki síst var síð- kjólaball um kvöldið á Hótel Sögu. Það var mjög virðulegur blær yfir dansleiknum og mér þótti það hæfa skólanum vel, að gerðar væru kröf- ur um kvöldklæðnað á Árshátíð Skólafélagsins. Annars hefur félagslífið verið mjög gott það sem af er vetri. Ég skemmti mér mjög vel á Pressuball- inu sem var haldið í október, ástæð- an er nú kannski sú að Todmobile Einar Geir Jónsson Einar Geir Jónsson V. bekk lék fyrir dansi og var vægast sagt frábær. En svo hefur mjög margt annað verð að gerast hér í MR. Til dæmis var mjög skemmtilegt opn- unarkvöld i byijun september, það var pakkað af góðum skemmtiatrið- um, bæði úr skólanum og aðkeypt. Gysbræður fóru á kostum og Jet black Joe rokkuðu fram eftir kvöldi og félagsaðstaðan okkar í kjallara Casa nova líktist helst gufubaði. Svo er alltaf uppákoma í frímínut- um á föstudögum þar sem nemend- ur hafa ofan af fyrir hver öðrum með skemmtiatriðum. Þessi uppá- koma er kölluð Neminn. Þá eru fjöldamörg listafélagskvöld og ræðukeppnir eru algengar. Það er heilmikil útgáfustarfsemi í Menntaskólanum. Skólatíðindi er snepiil sem kemur út hálfsmánaðar- lega í dagblaðsformi og færir okkur fréttir af því sem er helst á döfinni næstu tvær vikur og er auk þess vettvangur fyrir spaugara skólans að láta ljós sitt skína. Svo koma út skólablöð, símaskrá, Fauna, Vet- ur, Cursus honorum og margt fleira. )i bíll stendur |t ab baki - í veröi! Sædís Sævarsdóttir Er mjög stolt af skólanum Eg kem frá Keflavík og því hefði legið beinast við að fara í FS heima. En ég vildi frekar fara í skóla sem gerði meiri kröfur en aðrir og því sótti ég um í Menntaskólanum í Reykjavík. Reyndar bjóst ég alveg við að námið yrði mér ofviða og að mér myndi kannski ekki líka vistin hér vel. Ég hugsaði sem svo að ef mér líkaði ekki í MR þá færi ég bara sæl og glöð í FS. En skólinn kom mér skemmtilega á óvart. Auðvitað tekur námið alltaf á og oft finnst mér sem ég sé að keppa við ofjarl minn en skólinn er skemmtilegur. Kennaramir eru góð- ir, flestir hveijir og margir þeirra afskaplega skemmtilegar manneskj- ur sem maður kemur til með að minn- ast alla ævi. Sumum finnst aðferðim- ar hér gamaldags og er það líklega rétt. Ekki er talin ástæða til að end- urskoða námsefnið of oft. Til dæmis eru stafsetningaræfingamar svo gamlar, að elstu menn ættu að kann- asat við margar þeira frá sínum menntaskólaámm. Mörgum þótti Sædís Sævarsdóttir IV. bekk stökkið stórt frá gmnnskóla upp í menntaskólann en ég var svo heppin að vera mjög vel undir búin og tókst því bærilega að spjara mig hér mirin fyrsta vetur. Enda þótt námið taki sinn tíma hef ég nógan tíma til að sinna áhugamálum og félagslífmu. Að sjálfsögðu er maður fullur af stolti yfir skólanum enda er hann elsti og líklega virtasti skóli lands- ins. Hér er urmull af gömlum og rótgrónum hefðum sem gaman er að fylgjast með. Til dæmis er mjög gmaan að tolleringu, gangaslag, dimmisjón og öllum virðulegu emb- ættisnöfnunum við skólann. Hér höf- um við til dæmis ennþá embætti hringjara skólans og kallast það inspecotr platearum, en hann sér um að hringja inn og út úr tímum.“ VENTO GL BENZ 190E BMW 316i Lengd, mm 4380 4448 4433 Breidd, mm 1695 1690 1698 Hæö, mm 1425 1375 1393 Breidd að innan, mm 1409 1360 1358 Vélarstær&/rúmtak, cc 1800 1800 1600 Hestöfl, din 90 109 100 Samlæsingar i° i° ’|ó Aflstýri i® jó Íó Lita& gler Íó nei Íó Höfu&pú&ar a& aftan \á nei nei Farangursrými, litrar 550 410 470 Framhjóladrif jó nei nei Ver& m/ry&vörn og skróningu 1.389.000 2.585.000 1.980.000 Hér er miðað við staðalbúnað samkvæmt sölugögnum bilaumboðanna. SR-500 1,2 m diskur, stereo móttakari m/þrábl. fjarstýringu, pólfesting, pólskiptir og lágsuosmagnari (LNB 0,8 dB) MfflO gervihnattadiskur oq móttökutæki K s\ Yfir 30 stöbvar meö fjölbreyttu efni á ýmsum tungumálum M: 66.810;- 59.790r 25% útborgun: 16.703,-kr. og aðeins kr. á mán. í 18 mán. m/Munaláni SKIPHOLT119 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.