Morgunblaðið - 29.11.1992, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.11.1992, Qupperneq 32
32 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992 Bretland Dauðahafshandrítin valda deilum London. Daily Telegraph. KOMIÐ hefur til orðasennu vegna útkomu nýrrar bókar um Dauðahafshandritin, þar sem því er haldið fram, að kristnir menn hafi í upphafi verið árás- argjarnir, fullir af þjóðrembu og hallast að heimsendakenn- ingum. Deilan, sem sérfræðingur nokk- ur spáði að yrði „ekki uppbyggj- andi“, snýst um túlkun 50 texta, sem fundust fyrir tilviljun á strönd Dauðahafsins árið 1947, en voru ekki aðgengilegir til almennra rannsókna fyrr en nýlega. Tveir bandarískir höfundar bókarinnar „Hulunni svipt af Dauðahafshand- ritunum" staðhæfa, að textamir dragi upp allt aðra mynd af frum- kristninni en haldið hafí verið al- mennt á loft og muni vekja furðu margra, því að samkvæmt þeim hafí kristnu frumheijarnir verið herskár sértrúarflokkur sem hat- aðist við útlendinga. En breskir sérfræðingar, sem fagnað hafa aukinni útbreiðslu textanna (sem sumir telja að hafí verið haldið leyndum), vísa fyrr- nefndri staðhæfíngu á bug. Dr. Geza Vermes, prófessor í gyðing- legum fræðum við Oxford- háskóla, sagði, að hún væri langt frá því að vera sprengifim eins og höfundarnir vildu vera láta, því að textarnir bæru þess öll merki að vera „gamlar lummur“. Hvað sem því líður segja höf- undarnir, að handritin dragi upp allt aðra mynd en venjulega hafí verið gefin af kristni í Palestínu til loka fyrstu aldar. Þeir segja, að trúflokkurinn, sem skrifaði þau, hafí verið ráðandi hreyfing krist- inna manna þess tíma, og kristnin, eins og við þekkjum hana nú og mótaðist með Páli postula, hafi verið klofningskenning. Sam- kvæmt þeirra túlkun er leiðtoginn, sem nefndur er í textunum, líklega Jakob, bróðir Krists, og til hans vitnað sem „sannleiksflytjand- ans“. Páll postuli er fordæmdur sem „lygamörður". Annar höfundanna, Robert Eis- enman, sérfræðingur í trúarbrögð- um Mið-Austurlanda og prófessor við Kaliforníuháskóla, sagði að kristnir menn á þessum tíma hefðu gert ráð fyrir „úrslitabaráttu gegn öllu hinu illa á jörðinni". Hann sagði: „Þeir líktust mjög Aya- tollunum í ofstæki sínu.“ Eisen- man, sem skrifaði bókina með Michael Wise prófessor, sérfræð- ingi í arameisku við Chicago- háskóla, sagði: „í stað þess að söfnuðurinn, sem skrifaði þessar bækur, elskaði óvini sína hataði hann þá.“ Flestir breskir sérfræðingar telja, að handritin hafí verið verk fámenns hóps gyðinga, sem hafí verið utan við meginstraum krist- innar hreyfíngar. Philip Alexand- er, nýkjörinn forseti rannsóknam- iðstöðvar gyðinglegra fræða við Oxford-háskóla, sagði, að honum fyndist bók Bandaríkjamannanna alls ekki sannfærandi. Hann spurði: „Hvers vegna þróaðist kristindómurinn eins og raun ber vitni, fyrst hann var upprunalega svona ólíkur því sem síðar varð? Bókin minnist ekki einu orði á þetta misræmi." Dr. Vennes mótmælir einnig þeirri staðhæfíngu, að handritin hafí verið skrifuð af herskáum trúflokki, og segir það byggt á mistúlkun vegna þess að margir hópar gyðinga hafi notað krass- andi myndmál til að tjá skoðanir sínar. ------» ♦ ♦------ Bretland Kynningadagar í Örtölvutækni Dagana 1., 2., 3. og 4. desember verður mikið um að vera hjá okkur í Örtölvutækni. Ný og glæsileg húsakynni okkar verða almenningi til sýnis og höíúm við kaffi á boðstólum. A tveimur hæðum verður haldin sýning á tölvum, Fann fjár- sjóðfrá rómversk- um tíma hugbúnaði og jaðartækjum þar sem m.a. verður kynnt ný tölva frá Digital, DEC 3000 AXP, en hún er öflugasta vinnustöð á íslandi. í tengslum við sýninguna verða haldnir fyrirlestrar alla dagana. Tilkynna þarf þátttöku á fyrirlestrana Þónmni Þórisdóttur í síma 687220. Þriðjudagur 1.12. Miðvikudagur 2.12. Fimmtudagur 3.12. Föstudagur 4.12. Kl. 10:00 AutoCAD Nýjungar í útgáfu 12 Arnlaugur Guðmundsson Örtölvutækni Digital Skrifstofúumhverfi Teamlinks MailWorks Heiðar Guðnason Örtölvutækni Oracle Elvar Þorkelsson Oracle á íslandi Informix Gagnasafns- og þróunar- hugbúnaður Snorri Bergmann Strengur hf. 13:00 Stólpi Verkbókhald og strikamerki Björn Viggósson Kerfisþróun hf. OpusAllt Innflutningskerfi heildsala Baldur Guðlaugsson Vífilfelli hf. Digital Alpha og framtíðin Stig Orloff DECA/S Danmörk (talað á ensku) Digital Alpha og framtíðin Stig Orloff DECA/C Danmörk (talað á ensku) 15:00 Borland Samhæfing hugbúnaðar Sigurður Jónsson Örtölvutækni Bústjóri Innheimtukerfi lögmanna Sveinn Guðmundsson Strengur hf. Ingres Nýr gagnagrunnur á íslandi Halla Björg Baldursdóttir Ingres á íslandi SAS Upplýsingar í fyrirtækjum Torben Christensen SAS Institute A/S (talað á ensku) = ÖRTÖLVUTÆKNI = Skeifúnni 17 sími 687220 Þekking, þróun, þjónusta. London. Reuter. ROSKINN garðyrkjumaður, sem var að leita að hamrinum sínum með málmleitartæki nýlega, gróf upp geysiverðmætan fjársjóð gulls og silfurs frá rómverskum tíma. Eric Lawes, en svo heitir maður- inn, var að sigta mold á bóndabýli í Suffolk í austurhluta Englands, þegar hann rakst á glitrandi gull- pening, síðan annan, þá heljarmikla gullfesti, skeiðar, skraut og skart- gripi alsetta gimsteinum. Fjársjóður þessi, sem nú er talinn sá verðmætasti frá rómverskum tíma í Bretlandi og verður ekki metinn til fjár, fannst í síðustu viku á stað sem haldið er leyndum. „Allir sem nota málmleitartæki vonast til að fínna fjársjóð," sagði Lawes, „en þetta fór langt fram úr mínum villtustu draumum.“ Svo virðist sem rómverskur höfð- ingi, sem þarna hefur haft aðsetur fyrir um 1600 árum, hafi sett fjár- sjóðinn í timburkistu og grafið í jörðu. Kistan er löngu horfín, en hjarirnar hafa verið úr gulli og sett- ar gimsteinum. „Þetta eru óhemjufallegir mun- ir,“ sagði fornleifafræðingurinn Judith Plouviez, sem er sérfræðing- ur í rómverskri listíð. „Þeir gefa hugmynd um þá muni sem verið hafa í eigu rómversku hástéttarinn- ar seint á fjórðu öld og í byrjun hinnar fímmtu." Réttarrannsókn verður að fara fram út af fundi fjársjóðsins, en sérfræðingar búast við, að Lawes fái að minnsta kosti eina milljón sterlingspunda (um 95 milljónir ÍSK) í verðlaun hjá yfirvöldum. Hann fann hins vegar aldrei hamar- inn, sem hann leitaði að. 3M Límbönd-193teg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.