Morgunblaðið - 01.12.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992
23
lega hjá námsmönnum með böm
á framfæri, bæði einstæðum for-
eldrum og hjónum eða sambúðar-
fólki. Námsmenn sem hófu nám
þegar þessi fjölgunarsveifla átti
sér stað hafa verið að ljúka námi.
A það er bent og er kjarni niður-
stöðu starfsmanna LIN að alls
ekki sé óeðlilegt að fækkun lán-
þega LÍN verði nokkur um þessar
mundir vegna þessa enda var við
því búist án tillits til breytinga á
lögum og reglum sjóðsins. Auk
þess sé ekkert óeðlilegt við að
námsmönnum með böm á fram-
færi fækki hlutfallslega meira nú
þegar þetta fólk er að hætta námi.
Sérstaklega er á það bent að allt
of snemmt sé að gera því skóna
að ný lög og reglur LÍN valdi
fækkun lánþega nokkmm mánuð-
um eftir að þessum lögum og regl-
um var breytt.
íslenskir námsmenn njóta
mikils stuðnings
Það er athyglisverð staðreynd
að þrátt fyrir breytingar á lögum
og úthlutunarreglum LÍN njóta
íslenskir námsmenn eftir sem áður
meiri stuðnings en námsmenn frá
öðmm Norðurlöndum og þar með
víðast í heiminum. Þá er átt við
að upphæð sem námsmönnum í
framhaldsnámi er ætluð til fram-
færslu er hæst til íslenskra náms-
manna, sérstaklega að því er varð-
ar fjölskyldufólk. Þar emm við
íslendingar í algemm sérflokki.
(Sjá meðfylgjandi súlurit.) Svíar
eru eina Norðurlandaþjóðin sem
styður einstaklinga í námi með
hærri fjárhæð en við íslendingar.
Þegar þessi mikilvæga stað-
reynd er höfð í huga er það alveg
óskiljanlegt að Svavar Gestsson
og sumir fulltrúar námsmanna
halda því á lofti að fjölskyldufólk
eigi svo sérstaklega erfitt upp-
dráttar eftir breytingar á lögum
og reglum LÍN og lánþegum fækki
hjá sjóðnum af þeim sökum. Sann-
leikurinn er sá að íslenskir náms-
menn og sér í lagi námsmenn með
börn á framfæri njóta meiri að-
stoðar en gerist meðal þjóða
heims.
Útlegging Svavars
prófverkefni í stjórnmálafræði
Það er annars afar athyglisvert
hvernig Svavar Gestsson alþingis-
maður hefur lesið og túlkað vænt-
anlega með góðri samvisku þá
skýrslu sem hann fékk í hendur
frá starfsmönnum LÍN sem full-
trúi í menntamálanefnd Alþingis.
Sú skýrsla liggur þar frammi.
Væri nú ekki verðugt verkefni hjá
Félagsvísindadeild Háskóla Is-
lands að taka út hvernig Svavar
Gestsson sem stjórnmálamaður
notaði upplýsingar sem hann hafði
í höndum í Morgunblaðsgrein 17.
nóvember og hvernig stjórnmála-
menn geta umgengist staðreyndir
eða það sem almenningur nefnir
stundum sannleikann? Það yrði
áreiðanlega gagnleg athugun fyrir
verðandi stjómmálafræðing.
Höfundur er stjórnarformaður
LÍN.
BÍLALEIGA
Úrval 4x4 fólksbfla og station bíla.
Pajero jeppar o.tl. teg. Pickup-bílar
með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og
12 sæta Van bílar. Farsímar, kerrur f.
búslóðir og farangur og hestakerrur.
Reykjavík 686915
iníerRent
Europcar
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Fáðu gott tilboð!
Hvatning Rannsóknaráðs
Hörður Amarson hjá
Marel verðlaunaður
DR. HÖRÐUR Arnarson rafmagnsverkfræðingur og þróunarstjóri
Marels hf veitti á föstudag viðtöku hvatningarverðlaunum Rannsóknar-
áðs ríkisins. Verðlaunin hafa verið afhent árlega siðan 1987 ungum
og efnilegum vísindamanni. Að þessu sinni er verðlaunaféð 1,7 milljón-
ir og Herði til frjálsrar ráðstöfunar.
I dómnefnd sátu dr. Jakob Krist-
insson, Iðntæknistofnun, dr. Grímur
Valdimarsson, Rannsóknastofnunn
fiskiðnaðarins, og dr. Gunnar Stef-
ánsson, Hafrannsóknastofnun. Tíu
vísindamenn voru nefndir til verð-
launanna og var miðað við eftirfar-
andi: Gæði rannsókna og afköst,
einkaleyfi og umsóknir um þau, gagn
rannsókna í atvinnulífinu og áhrif til
nýbreytni þar, brautryðjendastarf og
atorka.
Dr. Hörður Arnarson er þrítugur
og hóf störf hjá Marel fyrir sjö árum.
Hann lærði rafmagnsverkfræði við
Háskóla íslands og hlaut doktorsgr-
áðu í Danmörku 1990. Hörður er nú
þróunarstjóri Marels og hefur fyrir-
tækið meðal annars hannað rækju-
skanna og formflokkara fyrir fisk.
Skanninn reiknar þunga án vigtunar
og er Marel eitt fyrirtækja í heimin-
um um að bjóða slíkt tæki. Þegar
hafa nærri 20 stykki selst hérlendis
Morgunblaðið/Kristinn
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands afhendir dr. Herði Arnar-
syni hvatningarverðlaun Rannsóknaráðs.
og á Grænlandi. Gunnar Stefánsson tölfræðingur og
Fyrri verðlaunahafar eru dr. Jakob dr. Áslaug Helgadóttir plöntuerfða-
K. Kristjánsson líffræðingur, dr. fræðingur.
Lokar þú augunum fyrir
jólafríi í útlöndum?
Ef svo er getur þú opnað þau fyrir ódýru jólafargjöldunum hjá SAS, þau eru ótrúleg en sðnn
og spennandi áfangastaðir bíða þín um alla Evrópu.
Kaupmannahöfn
Gautaborg
Malmö
Osló
Stavanger
Bergen
Kristiansand
a».9°0’'
Stokkhólmur
Norrköping
Jönköping
Kalmar
Vesterás
Váxjö
Kynniö ykkur SAS hótelbæklinginn sem
liggur frammi á öllum feröaskrifstofum.
Boðiö er upp á hótelgistingu á mjög góðu
verði í fjölmörgum löndum.
Lágmarksdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuöur. Barnaafsláttur er 33%. Rugvallarskattur er ekki innifalinn í uppgefnu veröi:
1250 kr. á íslandi, auk 630 kr. á fargjald til Kaupmannahafnar.
Sölutímabil er 1. til 30. nóvember. Brottför frá íslandi þarf aö eiga sér staö f desember.
Brottfarardagar: Mánudagar, mlðvlkudagar og laugardagar.
Komudagar: Þriðjudags-, föstudags- og sunnudagskvöld.
Haföu
eða
viðSAS
þina.
* Háö samþykki stjórnvalda.
M/S/U
SAS á íslandi - valfrelsi i flugi!
Laugavegi 172 - Sími 62 22 11