Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.12.1992, Qupperneq 24
24 'MO*RÖU^lÍéíi^ÐÍE)' ÞrÍðÍÚDAGtíR1 í. DESEÍÍéEíii ÍÓÖ2 70 ARA STARFSAFMÆLI BRÆÐRANNA ORMSSON HF. Olíkar stoðir treysta fjölbreyti- legan rekstur fyrirtækisins Rætt við Karl Eiríksson stjórnarformann og Eirík Karlsson framkvæmdastjóra Á MEÐAN almennt hefur hallað undan fæti hjá heildsölum hefur heildsala hjá fyrirtækinu Bræðurnir Ormsson farið vax- andi undanfarin ár. For- svarsmenn fyrirtækisins þakka það öflugu umboðsmannaneti um allt land. Bræðurnir Ormsson hefur frá upphafi, síðastliðin 70 ár, verið fjölskyldufyrirtæki og er það nú í eigu fjölskyldu Karls Eiríkssonar sonar Eiríks Orms- sonar, annars stofnanda fyrir- tækisins. Sonur Karls, Eiríkur, er núverandi framkvæmdastjóri og hefur verið það sl. 10 ár. Það sem vekur einna mesta athygli þegar starfsemi fyrirtækisins er sljoðuð er hinn fjölbreytilegi rekstur, sem Karl og Eiríkur segja vera eina meginástæðuna fyrir velgengni fyrirtækisins. Þegar illa ári á einu sviði þá treysti annars konar starfsemi rekstur fyrirtækisins. Velta Bræðranna Ormsson var á sl. ári um 500 milljónir króna, fyrir utan umboðssölu fyrirtækisins og eru starfsmenn nú um 45 talsins. Þann 1. desember fyrir 70 árum var fyrirtækið Bræðurnir Ormsson stofnað af þeim Eiríki og Jóni Orms- sonum. í upphafí var það megin- starf þeirra bræðra að raflýsa sveit- arbæi, breyta gaslömpum og gas- ljósakrónum í rafmagnsljóstæki og síðar lögðu þeir rafmagn í hús í Reykjavík, þ. á m. Dómkirkjuna. „Fyrr á árum fólst starfsemi fyrir- tækisins m.a. í smiði rafstöðva og uppsetningu þeirra, þjónustu við skip og báta og almennri rafverk- takavinnu. Segja má að fyrirtækið hafí átt stóran þátt í rafvæðingu fiskiskiptaflotans í upphafi," sögðu feðgamir Karl Eiríksson og Eiríkur Karlsson í viðtali við Morgunblaðið. í gegn um árin hefur rekstur fyrirtækisins þróast í takt við breytta tíma en alltaf hefur megin- áhersla verið lögð á starfsemi sem tengist rafmagni. „Verktakastarf- semin nær hápunkti þegar fyrir- tækið er með allar raflagnir í álver- inu í Straumsvík og Búrfellsvirkjun á sama tíma. Þá voru starfsmenn samtals um 200 talsins og þar af hátt í 150 rafvirkjar. Að því loknu fækkar verkefnum fyrir rafvirkja fyrirtækisins verulega og áherslur breytast. Starfsemin flyst að vem- legu leyti út í verslun og þjónustu t.d. fyrir Bosch og AEG og al- mennri rafvirkjavinnu er hætt.“ Aukin umsvif verslunar kölluðu á stærra húsnæði Hin auknu umsvif verslunar hjá Bræðmnum Ormson síðastliðinn áratug leiddu til þess að ákveðið var að byggja nýtt húsnæði fyrir- tækisins í Lágmúla 8. Þangað voru skrifstofur einnig fluttar og verk- stæði fyrir heimilistæki. Þegar gengið er um verslunina kemur í ljós að þar er ekki einungis hægt að fá ýmsar gerðir rafvæddra heim- ilistækja, heldur einnig potta og pönnur, leirtau o.fl. „í þessu nýja húsnæði getum við boðið upp á mun fjölbreyttari vöru og því höfum við aukið úrvalið mjög. Á síðastliðnum 2-3 árum höfum við einnig lagt áherslu á að auka mjög framboðið af Bosch bifreiða- varahlutum sem passa í allar gerðir bifreiða en Bosch hefur verið leið- andi í ýmiskonar tækniþróun á þessu sviði. Það hefur verið áhuga- vert að fylgjast með þeirri þróun sem hefur orðið og geta boðið sér- fræðiþjónustu í þessum hátækni- búnaði." Sala heimilistækja stór hluti veltu Bræðrunum Ormsson hf. er skipt upp í 8 deildir. Þar af er heimilis- tækjadeild stærst með hátt í helm- ing af veltu fyrirtækisins. Nú er aðalsölutímabilið í þeirri deild geng- ið í g.arð og stendur það fram að jólum. Deildirnar eru: 1. Heimilistækjadeild 2. Röntgendeild 3. Bosch-þjónustudeild 4. Handverkfæradeild 5. Tæknideild 6. Lyftudeild 7. Þungavinnuvéladeild 8. Becks-deild Uppistaðan í heimilistækjunum er umboð fyrirtæksisins fyrir þýska merkið AEG sem hefur verið hjá Bræðrunum Ormsson síðan árið Karl Eiríksson og sonur hans Eiríkur Karlsson, segja að velgengi Bræðranna Ormsson hf. byggist að miklu leyti á góðu starfsfólki þess. Góður andi sé innan fyrirtækisins og hópurinn sé samheldinn, því sé ekki mikið um mannaskipti. Á myndinni eru deildarstjórar og forsvarsmenn fyrirtækisins, Hinrik Siguijónsson, Skúli Karlsson, Snorri Ingason, Ragnheiður Pétursdóttir, Karl Eiríksson, Eiríkur Karls- son, Ásgeir Þórðarson, Elke Sthamer og Ellert B. Guðjónsson en á myndina vantar Richard Hansen. Ráðstefna um kostnað verður haldin í Norræna húsinu fimmtudaginn 3. desember nk. kl. 13.00-17.30 á vegum félagsins Verkefnastjórnunar og félags ráðgjafarverkfræðinga. Dagskrá: 13.00-13.15 13.15-14.15 14.15-14.30 14.30-15.00 15.00-15.30 Ráðstefnan sett, Sigurjón M. Jóhannsson, formaður félagsins Verkefnastjórnunar. Per-Willy Hetland: „Cost-Engineering - from Quantity Survey (QS) to Total Cost Management (TCM)“. Fyrirspurnir og umræður um erindi Hetlands. Pétur Stefánsson: „ Reynsla ráðgjafarverkfræðings". Guðmundur Pálmi Kristinsson: „Kostnaðarferli framkvæmda hjá Reykjavíkur- borg". 15.30- 16.00 16.00-16.30 16.30- 17.00 17.00-17.15 17.15-17.30 Kaffihlé. Guðmundur Ólafsson: „Umhverfi kostnaðaráætlana". Örn Steinar Sigurðsson: „Kostnaðarlíkan fyrir Landsvirkjun". Umræður og fyrirspurnir. Samantekt og ráðstefnuslit, Ólafur Erlingsson, formaður félags ráðgjafarverkfræðinga. Skráning þátttakenda er á skrifstofu félags ráðgjafarverkfræð- inga, Engjateigi 9, sími 34200. Skrifstofan er opin daglega frá kl. 10-12. Ráðstefnugjald er kr. 5.000,- m lnfpjwl M Metsölublaó á hverjum degi! Morgunblaðið/Arnór Sveit DV sem sigraði í firmakeppni Bridssambandsins um helgina. Talið frá vinstri: Eiríkur Jónsson; Hallur Símonarson, Stefán Guðjohnsen og ísak Örn Sigurðsson. A myndina vantar einn af sigur- vegurunum, Ellert B. Schram ritsljóra. Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Selfoss og nágrennis Höskuldarmótið, sem er jafnframt aðaltvímenningur félagsins, var spilað í september og október. Tuttugu og tvö pör tóku þátt í mótinu sem var fímm kvölda barómeter. Sigurvegarar urðu þeir Sigfús Þórðarson og Gunnar Þórðarson. Suðurlandsmótið, í tvímenningi var spilað laugardaginn 21. nóvember sl. Átján pör tóku þátt í mótinu sem spilað var á Hvolsvelli. Röð efstu para: Kristján Már Gunnarsson - Helgi G. Helgason 101 SigfúsÞórðarson-GunnarÞórðarson 86 Steinberg Rikharðsson - Daníel Gunnarsson 7 4 Hraðsveitakeppni félagsins er nýlok- ið. Tíu sveitir tóku þátt í mótinu sem lauk með sigri sveitar Ármanna. í sveitinni spiluðu Ríkharður Sverrisson, Stefán Jóhannsson, Brynjólfur Gests- son og Sigfinnur Snorrason. Röð efstu sveita varð þessi: SveitÁrmanna 189 SveitHPKökugerð 189 SveitDaníelsGunnarssonar 167 Bæjarkeppnin við Hafnarfjörð var spiluð 7. nóvmeber sl. í Hafnar- fírði og móttaka heimamanna var eins og alltaf stórglæsiieg. Þetta er í fer- tugasta og sjöunda sinn sem þessi- keppni er haldin, óslitið síðan 1946. Spilað var á sex borðum og úrslitin urðu Selfoss 101 stig, Hafnarfjörur 75 stig. Bæjarkeppnin við Kópavog var spiluð 27. nóvember sl. hér á Sel- fossi. Þar er líka spilað á sex borðum og endaði sú keppni 96 stig gegn 82 Selfoss í vil. DV vann firmakeppnina Dagblaðið Vísir sigraði í fírma- keppni Bridssambands ýslands sem fram fór um helgina. í sigursveit- inni spiluðu Ellert B. Schram, Hall- ur Símonarson, Stefán Guðjohnsen, ísak Örn Sigurðsson og Eiríkur Jónsson DV tók forystu strax í mótinu og hélt henni til loka. Fyrir mótið var sveit Ríkisspítalanna talin sig- urstranglegust en sveitin náði ekki að sýna sitt besta og hafnaði í fjórða sæti. Lokastaðan: DV 166 Herðir hf. 156 ístak hf. 147 Ríkisspítalar 142 Sveit Herðis hf. frá Egilsstöðum stóð sig með miklum ágætum, hirti silfurverðlaunin, en sveit ístaks, sem sigraði síðast í keppninni, tap- aði fyrir báðum Egilsstaðasveitun- um og þar með voru möguleikar á sigri í mótinu úti. Elín Bjarnadóttir afhenti verð- launin en Kristján Hauksson sá um útreikninga. M.a. var reiknaður út árangur einstakra para, en i þeirri keppni urðu Hallur Símonarson og Ellert B. Schram efstir. Þátttakan í mótinu var mjög dræm, aðeins níu sveitir. Kauphallarmótið 1992 Kauphallarmót Bridssambands íslands og Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka verður haldið á Hótel Loftleiðum helgina 4.-6. desember. Mótið hefst með uppboði paranna föstudagskvöldið 4. desember. Upp- boðshaldari veður Haraldur Blön- dal. AHir eru velkomnir á þetta ein- staklega skemmtilega uppboð sem verður í Auditorium Hótels Loft- Ieiða kl. 21 föstudagskvölið 4. des- ember. Spilamennskan hefst síðan kl. 13 laugardaginn 5. desember og er spilað allan daginn og á laugardagskvöldið. Sunnudaginn 6. desember er byijað aftur kl. 13 og spilað fram undir kvöldmat. Á með- an á mótinu stendur starfrækir Verðbréfamarkaður íslandsbanka kauphöll á staðnum og þar er hægt að kaupa og selja hluti í pörunum sem eru að spila.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.