Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B 285. tbl. 80. árg. LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Forystumenn Evrópubandalagsríkjanna á fundi í Edinborg Bjartsýni ríkir imi lausn á sér- kröfum Dana Edinborg. Reuter. MEIRIHLUTI leiðtoga Evrópubandalagsríkjanna krafðist þess í gær á fundi sínum í Edinborg, að Danir og Bretar staðfestu Maastricht-samninginn ekki síðar en í júní á næsta ári. Var haft eftir breskum embættismönnum, að það væri „útilokað“. Veruleg bjartsýni ríkti í gær á að unnt reyndist að finna í dag einhveija málamiðlun um Maastricht, sem Danir gætu sætt sig við í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er ekki aðeins vinsamleg ábending og heldur ekki nein hót- Er alnæm- isbarátt- an töpuð? Yaounde. Reuter. KOMI ekki til aukin framlög er stríðið gegn alnæminu tapað, að minnsta kosti í ríkjum þriðja- heimsins. Kom þetta fram á ráð- stefnu i Kamerún í gær en sjúk- dómurinn er farinn að valda sam- félagslegu hruni á sumum svæð- um í Afríku. Jonathan Mann, yfirmaður alnæmisstofnunar Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, sagði á sjöttu al- þjóðaráðstefnunni um alnæmi, að um næstu aldamót yrðu allt að 110 milljónir manna, fullorðins fólks, sýktir af alnæmi og að minnsta kosti 10 milljónir barna. Á sumum svæðum, tii dæmis víða í Úganda, er venjulegt samfélagsmynstur horfíð vegna sjúkdómsins og allt bendir til, að sú verði þróunin í öðrum fátæktarríkjum. Sagði Mann, að ríku þjóðirnar væru búnar að missa áhugann á þessum voða nema hvað varðaði þær sjálfar. un þegar við segjum, að öll aðildar- ríkin verði að staðfesta Maastric- ht-samninginn fyrir mitt ár. Við getum einfaldlega ekki beðið leng- ur,“ sagði Dieter Vogel, talsmaður þýsku stjórnarinnar, í gær en hátt- settir, breskir embættismenn sögðu „útilokað" að standa við þennan eindaga. Talsmenn ýmissa annarra EB-ríkja, til dæmis Frakklands, Spánar og Portúgals, ítrekuðu hins vegar yfírlýsingu Þjóðveija. „Ákvörðun“ eða „yfírlýsing" Talsmaður Frakklandsforseta, Jean Musitelli, sagði í gær, að búið væri að leysa „danska vanda- málið“ að 80% en Danir vilja aðal- lega vera undanþegnir sameigin- legri mynt og sameiginlegri varn- arstefnu. Um það er aftur á móti deilt hvort hægt sé að afgreiða dönsku undanþágurnar með „ákvörðun" eða „yfirlýsingu“ eða með öðrum orðum hvort nauðsyn- legt verði að bera Maastricht- samninginn upp að nýju á þjóð- þingum aðildarríkjanna. Þá skiptir einnig miklu hve lengi Danir eigi að njóta undanþáganna. Ekkert hefur miðað í deilunni um fjárlög EB til aldamóta en niðurstaða hennar getur ráðið miklu um úrlausn annarra mála, sem fyrir leiðtogafundinum liggja. Uppþot í Jemen vegna hungurs ÓEIRÐIR og uppþot hafa verið í mörgum bæjum og borgum í Jemen síðustu þijá daga og hafa að minnsta kosti 12 manns látið lífið. Að sögn Guðrúnar Gísladóttur, sem býr og starfar í höfuðborginni, Sanaa, er ástæðan fyrir ókyrrðinni gífurleg- ar verðhækkanir og hungur í landinu. Samkvæmt Reuters-tréttum hófust uppþotin á miðvikudag en hafa síðan breiðst út um land- ið, meðal annars til Sanaa. Hef- ur efnahagur Jemena stórversn- að eftir Persaflóastríð en þá studdu stjórnvöld íraka og olíu- ríkin brugðust við með því að hætta sínum rausnarlegu styrkj- um. Guðrún Gísladóttir, sem er gift líbönskum manni, sagði í gær í viðtali við Morgunblaðið, að síðustu tvo daga hefði fólk verið varað við að vera mikið á ferli utandyra vegna ástandsins en hún kvað uppþotin ekki hafa komið sér á óvart. Á stuttum tíma hefði gengi gjaldmiðilsins fallið um helming, verðbólga væri gífurleg og vaxandi hungur meðal almennings. Þá væri spill- ing mikil og hyldjúp gjá á milli ríkra og snauðra. Reuter Beðið eftir gestunum John Major, forsætisráðherra Breta, lét ekkert upp á sig standa í gest- gjafahlutverkinu í gær og var því mættur tímanlega í gættina á Holyrood- house í Edinborg þar sem leiðtogafundur EB-ríkjanna fer fram. NATO er reiðubúið Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. AÐILDARRÍKI Atlantshafs- bandalagsins, NATO, eru reiðu- búin til „nauðsynlegra aðgerða" til að koma á friði í Júgóslavíu ef Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, æskja þess. Var þetta ein meg- inniðurstaða fundar varnarmála- ráðherra NATO í Brussel í gær. Wörner lagði ríka áherslu á, að allt frumkvæði í þessu máli yrði að vera hjá Sameinuðu þjóðunum en sagði að legðu samtökin fram beiðni um aðstoð yrði brugðist við henni með jákvæðum hætti. Richard Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði hins vegar á blaðamannafundi í gær, að hann hefði efasemdir um árangur þess að senda fjölmennan landher til Júgóslavíu. Af öðrum málum má nefna að fagnað var þeirri ákvörðun flestra Vestur-Evrópuríkja að tengjast Vestur-Evrópusambandinu og styrkja með því Evrópustoð varnar- samstarfsins en lýst var áhyggjum af-minnkandi framlögum til vamar- mála. Rætt var einnig um góðan árangur mannvirkjasjóðs NATO en það veldur hins vegar erfiðleikum, að framlög aðildarríkjanna til hans hafa minnkað. Er gert ráð fyrir, að skýrsla um sjóðinn verði lögð fyrir fund varnarmálaráðherranna í vor. Sjá „Mið- og ...“ á bls. 37. Valdabarátta Jeltsíns og fulltrúaþingsins harðnar enn Reynt til þraut- ar að ná sáttum Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- Iands, og Rúslan Khasbúlatov, forseti fulltrúaþingsins, settust að samningaborði í gær og eiga með sér annan fund í dag þar sem hugsanlega verður gerð úrslitatilraun til að selja niður deilurnar. í gær var meðal ann- ars rætt um þá kröfu Jeltsíns, að haldin yrði þjóðaratkvæða- greiðsla um hver ætti að stjórna í landinu, þingið eða stjórnin, en á sama tíma samþykkti þó þingið viðauka við lögin um þjóðaratkvæðagreiðslur en samkvæmt honum er bannað að afnema æðstu stofnanir, t.d. þingið, í slikri atkvæðagreiðslu. Samþykkt þingsins virðist vera enn ein atlaga harðlínumanna á þingi að Jeltsín og stjóm háns en litlar fréttir eru af fundi hans og Khasbúlatovs í gær. Fyrir hann var talið, að Jeltsín féllist á, að Gennadí Búrbúlís, einn af nánustu ráðgjöfum hans, og Andrei Koz- yrev utanríkisráðherra létu af embætti en gegn því, að Jegor Gajdar, starfandi forsætisráð- herra, yrði skipaður í embættið og afturkölluð yrði heimild þings- Reuter Krossaður Lenín Stuðningsmaður Jeltsíns heldur á loft mynd af Lenín yfirstrikuðum. Þúsundir manna hafa komið saman á útifundi í Moskvu síðustu daga til að lýsa yfir stuðningi við forset- ann í átökum hans við fulltrúaþingið. ins til að ráða skipun fjögurra ráðherraembætta. Ákvörðun þingsins í gær um þjóðaratkvæða- greiðslur hefur hins vegar veikt stöðu Jeltsíns í viðræðunum við Khasbúlatov. Aðeins Gajdar Talsmaður Jeltsíns, Vyatsjeslav Kostíkov, sagði það eitt um við- ræðurnar í gær, að forsetinn hefði ítrekað, að ekki yrði um annan mann að ræða í forsætisráðherra- embættið en Gajdar, að minnsta kosti fram í apríl þegar þing kem- ur aftur saman. Annar fundur þeirra Jeltsíns, Khasbúlatovs og forseta stjórnarskrárdómstólsins verður í dag og fréttastofan ítar- Tass eftir forsetanum, að þá kæmi til „alvöru málsins". María Sallíer, þingmaður og stuðningsmaður Jeltsíns, sagði í gær, að áföllin, sem forsetinn hefði orðið fyrir á þingi, væru ekki al- vond. „Eg hafði mínar efasemdir um stuðning almennings við Jelts- ín en þær eru horfnar. Rússar vita nú, að þingið vill síst af öllu leyfa venjulegum borgurum að tjá sig.“ Sjá „Eftir næturfund ...“ á bls. 36.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.