Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Flugleiðin Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík
Tvö félög sækja um
TVÖ flugfélög, Flugfélag Aust-
urlands og íslandsflug, sóttu um
leyfí til áætlunarflugs á flug-
Verðlagsráð
Hækkun Flug-
leiða samþykkt
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti í gær
beiðni Flugleiða um 4,5% hækkun
á far- og farmgjöldum í innan-
landsflugi. Hækkunin tekur gildi
15. þessa mánaðar.
Flugleiðir sóttu um hækkun m.a.
vegna kostnaðarhækkana í kjölfar
gengisfellingarinnar. Verðlagsráð
samþykkti beiðnina í gær. Að sögn
Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra var
fallist á rökstuðning félagsins.
Fullt fargjald báðar leiðir milli
Akureyrar og Reykjavíkur hækkar
um rúmar 500 kr. Fargjald með flug-
vallarskatti fer úr 11.610 kr. í um
12.117 kr. Algeng afsláttarfargjöld,
APEX-fargjöld með 50% afslætti,
hækka úr 5.970 kr. í um 6.224 kr.
leiðinni Reykjavík-Egilsstaðir-
Reylyavík. Umsóknarfrestur
um leyfið rann út um síðustu
mánaðamót. Leyfið verður veitt
með þeim skilyrðum að sæta-
framboð verði ekki meira en
10% af heildarsætaframboði á
umræddri flugleið í vetraráætl-
un og sumaráætlun samkvæmt
mati samgönguráðuneytisins.
Flugleiðir hafa nú 90% af sæta-
framboði á flugleiðinni Reykja-
vík-Egilsstaðir-Reykj aví k.
Um næstu áramót breytast sér-
leyfi til áætlunarstaða í flugi í al-
menn áætlunarleyfi, þar sem ár-
legur meðálfjöldi farþega árin
1990 og 1991 var hærri en 12
þúsund farþegar. Á þeirri forsendu
auglýsti samgönguráðuneytið eftir
umsóknum flugrekenda um leyfi
til áætlunarflugs á umræddri flug-
leið.
Flugráð mun fjalla um umsókn-
imar á næstunni sem umsagna-
raðili. Samgönguráðherra veitir í
framhaldi af því leyfið.
Hvolfþak yfir Árbæjarlaug
Morgunblaðið/Þorkell
Við sundlaugina í Árbæjarhverfí er verið að reisa
hvolfþak yfir anddyri, miðasölu, veitingaaðstöðu
og um 10 metra innilaug. Að sögn Guðmundar
Pálma Kristinssonar deildarverkfræðings er búið
að reisa grindina sem síðan verður glerjuð. Auk
innilaugar verður 25 metra útilaug, vatnsgufu-
bað, bamalaug og heitir pottar. Gert er ráð fyr-
ir að laugin verði tekin í notkun vorið 1994 og
er kostnaður áætlaður um 500 milljónir. Hönnuð-
ir era arkitektamir Jón Þór Þorvaldsson, Bjöm
Hallsson og Baldur Ó. Svavarsson.
VEÐURHORFUR I DAG, 12. DESEMBER
YFIRLIT: Yfir Skagafirði er nokkuð kröpp 989 mb iaagð sem hreyfist austur og
grynnist, en við Hvarf er að myndast lægð og kemur hún upp að landinu vestan-
verður um miðjan dag á morgun.
SPÁ: SA kaldi eða stinningskaldi og fer að snjóa Vestanlands í fyrramálið, en
lengst af dagsins verður þurrt og nokkuð bjart eystra, þó má búast við lítilsháttar
snjókomu SA-lands og A-lands síðta dagsins. Heldur kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: NA-átt, nokkuö hvöss á Vestfjörðum en haagari annars
staðar. Snjókoma eða él N- og A-lands en úrkomulaust annarstsðar. Frost 1 -5 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: N- og NA-átt, hvöss um mestallt land. Snjókoma um
norðanvert landið en skýjað með köflum syðra. Hlti nálaagt frostmarki.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: NA-átt, vfðast fremur haeg. Él um landíö norðaustan-
vert en víða lóttskýjað annarstaðar. Frost 2-6 stig.
Nýir veAurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30.Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
Q ' m :<á * m
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
r r r * r * * * *
' r * r * *
r r r r * r * * *
Rigning Slydda Snjókoma
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyik,
heil fjóður er2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
stig.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 fgær)
Víða um land er veruleg hálka á vegum og á öllum vesturhluta landsins
gengur á með éljum og víða er dálítill skafrenningur, Fært er um vegi
í nágrenni Reykjavikur og austur um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfells-
heiði, sömuleiðis um Suðurland og með suðurströndinni til Austfjarða
og þar er viðast ágæt færð. Fært er fyrir HvalfjÖrð um Borgarfjörð og
Snæfellsnes. Fært er f Dali og Gufudalssveit um Heydal, en Bratta-
brekka er ófær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan tll
Bfldudals. Fært er um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og um Steingríms-
fjarðarheiði tii Isafjarðar og Bolungarvíkur. Frá Isafirði er fært til Þingeyr-
ar og Súgandafjarðar. Fært er um Norðurland, til Siglufjarðar, Ólafsfjarð-
ar og Akureyrar. Frá Akureyri er fært til Húsavfkur og þaðan með strönd-
inni til Vopnafjarðar. Fært er frá Húsavík í Mývatnssveit, Mýtvatns- og
Möðrudalsöræfi,
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐURVÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +3 skýjeð
Reykjsvik 0 haglél á síð.klst.
Bergen 6 skýjað
Helslnki 2 rigning
Kaupmennahöfn 4 rigning
Narssarssuaq +7 snjókoma
Nuuk +5 snjðkoma
Osló 4 léttskýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Þórshöfn 4 akýjað
Algarve 16 heiðsklrt
Amsterdam 6 rignlng
Barcelona 9 rykmistur
Berlín 3 alskýjað
Chlcago +2 heiöskfrt
Feneyjar 8 þokumóða
Frankfurt 5 skýjeð
Glasgow 7 rigning
Hamborg 3 rigning
London B rign. 6 sfð.klst.
LosAngeles 11 skýjað
Uixemborg 1 alskyjaö
Madrid 7 hoiðskírt
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 11 þokumóða
Montreal 2 alskýjað
NewYork vantar
Orlando 11 heiðskfrt
Paris 4 alskýjað
Madelra 18 skýjað
Róm 10 þokumóða
Vín 2 alskýjað
Washington 4 rignlng
Winnipeg +15 skýjað
Atlantsflug
Vantar 10 milljónir
til að rétta af stöðuna
Starfsmenn Atlantsflugs eru enn
á launaskrá en hafa ekki fengið
greidd laun frá því í september.
-----♦ ♦ 4
Landsvirkjun
tekur 4,5 millj-
arða erlent lán
HALLDÓR Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, undirritaði í gær
í New York samning milli Lands-
virkjunar og bandarískra lána-
stofnana um lántöku að fjárhæð
4,5 milljarðar króna (72 milljónir
bandaríkjadala) með skuldabréfa-
útgáfu á lánamarkaði í New York.
Skuldabréfakaupendumir eru
fímm og kaupir Metropolitan Life
stærsta hluta en JP Morgan Securiti-
es Incorporated hafði umsjón með
útgáfunni. Af heildarlánsfjárhæðinni
eru 3,9 milljarðar lán til tíu ára og
um 600 milljónir til 15 ára. Vextir
af 10 ára lánshlutanum em 8% á ári
en 8,27% á ári af 15 ára hlutanum.
Lánsfénu verður varið til endurfjár-
mögnunar eldri lána.
Kvæðasafn Snorra
Hjartarsonar komið út
ÚT ER komið Kvæðasafn Snorra
Hjartarsonar. Páll Valsson sá um
útgáfuna og ritar ítarlegan inn-
gang.
í kynningu útgefanda segirm.a.:
„Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Snorra Hjartarsonar. Bækur hans
ijórar em hér prentaðar í samræmi
við síðustu gerðir þeirra, en þá hafði
skáldið breytt ýmsum ljóðum frá
fyrstu prentun. Einkum á það þó við
um fyrstu bókina Kvæði. Á eftir
ljóðabókunum fjórum em prentuð 26
þeirra kvæða sem Snorri Hjartarson
skildi eftir sig þegar hann lést árið
1986. Um þau segir Páll Valsson í
inngangi bókarinnar:
„Um þessi síðustu ljóð Snorra er
það að segja að flest bera þau höf-
undi sínum glöggt vitni og eru að
yrkisefni og aðferð eðlilegt og rök-
rétt framhald síðustu bókar hans.
Það er ljóst að dauðinn hefur orðið
honum sífellt hugstæðari, en einnig
hefur hann kappkostað að hnita form
sitt enn frekar. Þó birtist okkur hér
vel æðruleysi hans og þótt hönum
sé oft dimmt fyrir sjónum lætur hann
það ekki buga sig.“
í bókinni eru prentaðar þrjár ljós-
Snorri Hjartarson
myndir af Snorra Hjartarsyni og
þrjú kvæði með rithönd hans. Þá er
þar skrá yfir rit hans og það sem
um_ hann hefur verið skrifað."
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 308 bls., prentuð í Prent-
smiðjunni Odda hf. Hún kostar
2.880 krónur.
ATLANTSFLUG vantar tíu millj-
ónir kr. í nýtt hlutafé til að rétta
af eiginfjárstöðu fyrirtækisins, en
samgönguráðuneytið hefur gert
jákvæða eiginfjárstöðu fyrirtæk-
isins að skilyrði fyrir veitingu
flugrekstrarleyfis. Halldór Sig-
urðsson, stjórnarformaður Atl-
antsflugs, segir að eigendur Bo-
eing-vélarinnar sem félagið hafði
á leigu, væru reiðubúnir að skuld-
breyta um 30 milljóna kr. skuld
Atlantsflugs í hlutafé, og því snerist
málið um að ná inn tíu milljónuni kr.
Halldór sagðist meta það svo að
40 milljónir kr. skorti í nýju hlutafé
til að rétta af eiginfiárstöðu félags-
ins. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafði Flugráð áætlað að fé-
lagið þyrfti á milli 60 og 70 milljón-
ir kr. um áramótin.
Atlantsflug átti í sumar viðræður
við á milli 25 og 30 aðila um hluta-
fjáraukningu, en Halldór sagði að
áhugi flestra hefði dvínað þegar fór
að halla undan fæti. Enn ættp 3-4
stórir aðilar eftir að gefa endanlegt
svar og sagði Halldór að þar væri
um að ræða stóra aðila í inn- og
útflutningi sem þyrftu á flugsam-
göngum að halda.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
1
\
I