Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
.....f 1 ■.‘j f )I; I i i A U>! AI)!! A, | f| KfAJi 1ríU! >ií(>M
Risamarkaður i vestri
Ameríka -
eftir Jóhann J.
*
Olafsson
Eins og flestum er kunnugt risu
miklar deilur á vegum GATT á
milli Bandaríkjanna og Evrópu-
bandalagsins, Frakka, sérstaklega
vegna landbúnaðarmála. Þó að
samkomulag sé nú í höfn eru enn
viðsjár með mönnum. í ljósi þess-
ara umræðna væri hollt að skyggn-
ast örlítið fram í tímann og reyna
að gera sér grein fyrir þróun mála.
Síðan á dögum Rómarsáttmál-
ans, þegar sex ríki, Frakkland, ítal-
ía, V-Þýskaland, Holland, Belgía
og Lúxemborg hófu hina löngu
göngu í átt til sameiningar Evrópu
í einn markað, hefur margt gerst.
Viðskipti, hagsæld og friður hafa
blómgast .og nú eru ríkin tólf, Eng-
land, írland, Spánn, Portúgal,
Grikkland og Danmörk hafa bæst
við. Nútíðarmönnum finnst þessi
þróun hafa verið bæði löng og
ströng en eftirkomendur okkar
munu furða sig á því hversu fljótt
og vel þessi samruni hefur gerst.
Enn er verið að efla þetta sam-
starf með EES-samkomulaginu og
nýlega sóttu Norðmenn um aðild
að Evrópubandalaginu.
En við erum ekki einir í heimin-
um þótt fjölmennir séum Evrópu-
menn. Fyrir vestan ísland er heil
heimsálfa, Ameríka. Þar eru menn
einnig að hugsa á svipaðan hátt.
Nýlega var gerður samningur um
Norður-Amerískt markaðssvæði
Bandaríkjamanna, Kanadamanna
og Mexikómanna (NAFTA). Það
er með þróun þessa markaðar sem
íslendingar þurfa að fylgjast sér-
staklega vel með og bera hana
saman við þróunina í Evrópu.
Norður-Ameríku markaðinn
byggja 344 millj. manna á 21,3
millj. ferkílómetra svæði þar sem
16 manns að meðaltali búa á fer-
kílómetra. 319 millj. af þessum
mannfjölda búa fyrir sunnan
Kanada í mjög heitum löndum frá
ea. 49. til 15. breiddargráðu eða á
svæði sem myndi liggja á milli
Parísar og Senegal fyrir sunnan
Sahara í Afríku.
Þessi lörid hafa mikla yfírburði
til stórmarkaða fram yfir Evrópu
eða gamla heiminn.
1. Löndin eru aðeins þrjú,
Kanada, Bandaríkin og Mexíkó.
2. Aðeins þrjú tungumál mjög
skyld eru töluð á svæðinu. Enska
langmest, spænska og franska í
einu fylki í Kanada, Quebeck. Mjög
margir spænsku- og frönskumæl-
andi menn tala ensku og margir
Evrópa
enskumælandi menn skilja
spænsku.
3. Trúarbrögð eru ekki vanda-
mál.
4. Stærsta landið, Bandaríkin,
hefur stundað stórmarkaðshag-
kerfi í 200 ár og er því mjög til-
búið til þessarar þróunar. Það hefur
leyst flest vandamál i þessu efni
fyrir löngu og ekki verður breyting-
in í hinum löndunum tveimur, sem
eru risastór á evrópskan mæli-
kvarða, jafn erfið og í gamla heim-
inum.
5. Kanada og Bandaríkin eru
með þróuðustu menningar-, iðnum
og landbúnaðarlöndum heims.
6. í Mexikó búa 80 millj. manna
sem tala eina vestræna tungu,
spænsku, eru duglegt fólk en fá-
tækt. Land þeirra er fjórum sinnum
stærra en Spánn og liggur langtum
sunnar á hnettinum. Landbúnaði
Mexikó mun opnast risamarkaður
í norðri. Landsmenn þurfa ekki
lengur að skríða undir vírnet á
landamærum til að vinna á banda-
rískum búgörðum en rækta ávexti
og grænmeti í eigin landi. Hag-
kvæmni í landbúnaði mun flytjast
sunnar á svæðinu. Þessar vörur
munu stórlækka í verði og auka
kaupmátt fólksins gífurlega. Stór-
aukin fjárfesting í iðnaði mun hefj-
ast í Mexikó þar sem ódýrt vinnu-
afl er, og heppilegra að byggja upp
gagnkvæm viðskipti á svæpinu en
að standa undir uppbyggingu iðn-
aðar í Asíu, sem Ameríkumönnum
hefur stundum fundist um of á
aðra hlið.
Gagnkvæm áhrif yfir Atlants-
„En tilgangur þessara
skrifa er sá að benda
mönnum á að hugleiða
þann mun sem er á þró-
un stórmarkaða í nýja
og gamla heiminum.
Mitt álit er það að þrór
unin geti orðið mun
hraðari og árangurs-
ríkari í Ameríku af
ástæðum sem þegar
hefur verið bent á.“
hafið á milli gamla og nýja heims-
ins hafa löngum verið mjög mikil.
Aðilar Rómarsáttmálans sáu yfir-
burði Bandaríkjanna í tveimur
heimsstyrjöldum og vildu hagnýta
sér kosti stórmarkaða og frjálsrar
verslunar, þegnum sínum til friðar
og hagsbóta. Árangurinn er þegar
orðinn gífurlegur, svo mikill að nú
eru Ameríkumenn að leika næsta
leik til þess að dragast ekki aftur
úr.
í núverandi Evrópubandalagi
(EB) eru eins og fyrr sagði 12 þjóð-
ríki sem 338,6 milljónir íbúa byggja
á landsvæði sem 2,3 millj. ferkíló-
metra eða 144 íbúar á hvern fer-
kílómetra. Þetta landsvæði er lítið
stærra en Mexíkó. Þar eru töluð
a.m.k. 10 höfuðtungumál. Þegar
talað er um að færa þetta sam-
starf enn frekar út með EES-sam-
komulaginu. Á svæði EES búa 370
millj. íbúa á 3,68 millj. km2 eða um
100 íbúðar á hvern km2. Þessar
þjóðir tala a.m.k. 14 tungumál.
Allar þjóðirnar, sem bætast við
eru mjög þróaðar og skyldar EB-
þjóðunum svo líklegt er að 370
millj. manna markaður sé raun-
veruleiki í náinni framtíð. Næsta
skref í útfærslu stórmarkaðar í
gamla heiminum væri samstarf við
Eystrasaltslöndin, Austur-Erópu-
ríkin og Tyrkland. Evrópa, án
Rússlands, en ásamt Austur-Evr-
ópu og Tyrklandi, er byggð 550
millj. íbúa á 5,89 millj. km2 svæði
og íbúar eru u.þ.b. 94 á km2. Á
þessu landsvæði eru töluð yfir 25
tungumál, múhameðstrú bætist við
sem sterkt afl. Samstarf við þessi
ríki verðar ekki tekin upp fyrr en
smám saman á löngum tíma. Fyrst
tala menn um inngöngu Ungverja-
lands, Tékkóslóvakíu (sem nú er
að skiptast í tvö ríki), Póllands og
Eystrasaltslandanna. Önnur ríki
eiga ennþá lengri útivist fyrir hönd-
um.
Suma dreymir um Stór-Evrópu
sem nær frá Reykjavík í vestri, til
Vladivostok í austri.
Á þessu landsvæði, sem er rúm-
ir 28 millj. ferkílómetrar búa nú
um 830 millj. manna eða um 30
íbúar á ferkílómetra (ég tel Græn-
land aldrei með). Ef þetta svæði
er tekið til skoðunar verða lands-
svæðin í nýja heiminum og þeim
gamla eitthvað lík, þ.e. 21 millj.
km2 og 28 millj. km2 en íbúar meira
en helmingi fleiri í þeim gamla.
Vandamálin í gamla heiminum
myndu margfaldast. Tungumálin
yrðu yfir 50, stafróf 5, trúarbrögð
fleiri o.s.frv. Óvíst er hvaða stefnu
ríki múslima í fyrri Sovétríkjunum
myndu taka. 15 klukkustunda
tímamunur er innan þessa svæðis,
sem nær yfir meira en helming
ummáls norðurhvels jarðar.
Mér hefur verið tíðrætt um fólks-
fjölda, flatarmál landa, trúarbrögð,
tungumál og fjölda íbúa á ferkíló-
metra. Þetta er fyrst og fremst
Jóhann J. Ólafsson
gert til þess að bera saman ýmsa
þætti, hlutföll og stærðir, sem út
af fyrir sig eru ekkert afgerandi.
Inn í þessar hugleiðingar vantar
tilfínnanlega samanburð á þjóðar-
framleiðslu og margt fleira.
En tilgangur þessara skrifa er
sá að benda mönnum á að hugleiða
þann mun sem er á þróun stór-
markaða í nýja og gamla heimin-
um.
Mitt álit er þáð að þróunin geti
orðið mun hraðari og árangursrík-
ari í Ameríku af ástæðum, sem
þegar hefur verið bent á. í Evrópu
hefur stefnan lengst af verið sú,
að menn af sömu tungu, trúar-
brögðum og kynþætti byggju sam-
an á afmörkuðum svæðum og
leystu vandamál sín innan þessara
marka. Þróunin frá þessu fyrir-
komulagi er bæði löng og erfið.
Ameríkumenn eru einfaldlega
komnir miklu lengra og hafa ekki
sömu vandamál.
Landbúnaðarstefna Evrópu-
bandalagsins er og mikil hindrun
og erfið. Ekki svo að skilja að
Ameríkumenn eigi ekki við vanda-
mál í landbúnaði að stríða. Yfir-
csoO’
Reykjavík1
Norður-
Ameríski
stórmarkaðurinn,
Bandaríkin,
Kanada, Mexíkó
Ibúar, millj.:
Flatarmál, millj. ferkm:
ibúar á ferkm:
EVRÓPSKI STÓRMARKAÐURINN
I. Evrópubandalagið
íbúar, millj.: 338,6
Flatarmál, millj. ferkm: 2,3
Ibúaráferkm: 144
II. Evrópu-
bandalagið og EES
Ibúar, millj.: 370
Flatarmál, millj. ferkm: 3,7
íbúaráferkm: 100
III. Evrópu-
bandalagið, EES auk
A-Evrópu og Tyrklands
Ibúar, millj.: 550
Flatarmál, millj. ferkm: 5,8
Ibúar á ferkm: 94
IV. Stórevrópa
með Síberíu, frá
Reykjavík til Vladivostok
Ibúar, millj.: 830
Flatarmál, millj. ferkm: 28
íbúar á ferkm: 30
ODYRAR JOLAGJAFIR ODYRAR JOLAGJAFIR
leikfangaverslun
Síbumúla 21
(Selmúlamegin)
ÓDÝRAR JÓLAGJAFIR ÓDÝRAR JÓLAGJAFIR
Hnfeffr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁ RÁDHÚSTORGI