Morgunblaðið - 12.12.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAMÐ LAUGARDAGUR; 12. ,D£SEMBER 1&92
%1
Björn Bjarnason
„Haukur Helgason kýs
að skipa sér í flokkmeð
einangrunarsinnunum í
Alþýðubandalaginu. Af
Morgunblaðsgrein hans
ræð ég, að hann geri
það ekki á málefnaleg-
um forsendum."
Slæmur málstaður
Með þessa forsögu í huga kom
mér nokkuð á óvart að lesa grein
eftir Hauk Helgason, sem birtist
hér í blaðinu 10. desember. Hauk-
ur var einmitt sérstakur ráðgjafí
Lúðvíks og kom nálægt samnings-
gerðinni við EB 1972. Hefði mátt
ætla, að hann hefði við þau störf
áttað sig á gildi samninga íslands
við Evrópubandalagið um verslun
og viðskipti.
Haukur Helgason kýs að skipa
sér í flokk með einangrunarsinn-
unum í Alþýðubandalaginu. Af
Morgunblaðsgrein hans ræð ég,
að hann geri það ekki á máfefna-
legum forsendum, því að greinin
er í raun ekki annað en rang-
færsla og afbökun á útdrætti úr
grein eftir mig, er birtist í Stak-
steinum Morgunblaðsins.
Það er rangt hjá Hauki Helga-
syni, að íslenskt löggjafarvald sé
framselt með EES-samningnum.
Hvergi er þess til dæmis getið í
lögfræðilegum greinargerðum til
Alþingis. Meirihluti þeirra lögfræð-
inga, sem sent hafa Alþingi skrif-
legar álitsgerðir, telur EES-samn-
inginn samrýmanlegan íslensku
stjórnarskránni.
Það er rangt, að sjálfstæðis-
menn og Alþýðuflokksmenn hafi
ekki litið á síðustu alþingiskosning-
ar sem átök um afstöðuna til EES.
Að halda öðru fram eins og Hauk-
ur gerir er ekki blekking heldur
hrein fírra.
Hvað sem útúrsnúningum
Hauks Helgasonar líður er ljóst,
að íslendingar geta sagt skilið við
EES með eins árs fyrirvara.
Haukur Helgason ætti síðan
manna best að muna eftir því, að
krafa EB um veiðiheimildir í ís-
lenskri lögsögu á ekki rætur að
rekja til aðildar íslands að EES,
heldur til fríverslunarsamningsins
við EB, sem hann og Lúðvík Jós-
epsson stóðu að 1972. Þá hófst
deila milli EB og íslands, sem nú
hefur verið leyst á einstaklega far-
sælan hátt með samningi um skipti
á gagnkvæmum veiðiheimildum.
Af þessu geta lesendur greinar
Hauks Helgasonar ráðið, að hann
fer með staðlausa stafí, þegar hann
sakar mig um ósannindi og blekk-
ingar. Því miður lætur hann stjórn-
ast af sama hugarfarinu og réð í
Sósíalistaflokknum fyrir 30 árum,
þegar tilgangurinn helgaði meðal-
ið. Kastar þó fyrst tólfunum, þegar
slíkir menn telja sig geta vitnað í
Bjarna Benediktsson máli sínu til
stuðnings.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjnvík.
Prestar auka að-
stoð við bágstödd
sóknarbörn sín
Dómkirkjusöfn-
uður útbyr 4.000
kr. innkaupalista
PRESTAR á höfuðborgarsvæðinu
hyggjast leggja aukna áherslu á
aðstoð við bágstödd sóknarbörn
sem til þeirra leita. Þetta var að-
alniðurstaða mánaðarlegs fundar
þeirra nú í vikunni. Líknarsjóðir
hafa verið til hjá mörgum söfnuð-
um og yfirleitt verið notaðir til
að aðstoða illa stadda á aðvent-
unni. Víða stendur nú til að breyta
hlutverki þeirra, þannig að hægt
sé að hjálpa fólki á öðrum árstím-
um. Annars staðar er verið að
safna í sérstaka hjálparsjóði og
má til dæmis nefna Dómkirkju-
söfnuð þar sem fundað var á
þriðjudag um fyrirkomulag að-
stoðar.
Framkvæmdastjóri Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, Jónas Þórisson, kom
á fund presta á mánudag og rætt var
hugsanlegt samstarf um aðstoð við
fólk í þrengingum. Söfnuðirnir sjálfír
eiga að sögn séra Jakobs Hjálmars-
sonar Dómkirkjuprests best með að
veita sóknarbömum bráðaaðstoð, en
umfangsmeiri vandræði verða tíðum
betur leyst hjá Hjálparstofnun eða
öðrum sem hlut gætu átt að máli.
Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisher-
inn, Rauði krossinn og Hjálparstofn-
un kirkjunnar veita efnalitlu fólki sem
fyrr aðstoð fyrir jólin, en nú hafa
þessar stofnanir sameinast um að
deila út 5.000 króna matarkortum til
að versla fyrir í stórmörkuðum.
Útdeilt hefur verið úr líknarsjóði
Árbæjarkirkju á þessum árstíma um
árabil og segir séra Guðmundur Þor-
steinsson dómprófastur að aðstoð sé
veitt mun víðar. Til dæmis í Grafar-
vogi, Laugameskirkju og Hjallasókn
í Kópavogi. í Árbæjarsókn hafi verið
reynt að hjálpa fólki'sem orðið hafi
fyrir þungum áföllum; missi fyrir-
vinnu eða alvarlegum slysum. Prestar
finni að nú sé þörfin brýnni en áður.
Séra Karl Sigurbjörnsson í Hall-
grímskirkju segir stefnt að því að
breyta líknarsjóði kirkjunnar þannig
að hægt verði að veita fólki sem kom-
ið er í þrot úrlausn árið um kring.
í Breiðholtskirkju verður farið að
safna í hjálparsjóð næsta sunnudag
og segir séra Gísli Jónasson að lík-
lega verði leitað samstarfs við verslun
um afslátt af matarinnkaupum.
I Dómkirkjunni hefur verið stofn-
aður hjálparsjóður og leitað eftir
framlögum tvo undangengna sunnu-
daga. Safnaðarsjóður kirkjunnar mun
jafnframt styrkja hjálparsjóðinn.
Prestum Dómkirkjunnar er ætlað að
úthluta illa settum sóknarbörnum úr
sjóðnum, án þess að bíða umfjöllunar
sjóðsstjórnar eins og gildir um líknar-
sjóð kirkjunnar.
Ákveðið hefur verið í safnaðar-
stjóminni að setja saman innkaupa-
lista nauðþurfta sem duga ættu móð-
ur með tvö böm í viku. Séra Jakob
Hjálmarsson segir að miðað verði við
4.000 krónur í hvert skipti, traust
fólk úr söfnuðinum muni fara og
kaupa inn þegar þarf og koma matn-
um heim til fólks.
„Ef fólk í örbirgð leitar til okkar
og við sjáum að það þarf snarar hend-
ur getum við nýtt hjálparsjóðinn,"
segir séra Jakob. „Við munum leita
leyfís fólks til að grennslast fyrir um
hag þess, þannig að ljóst sé að hjálp-
ar sé þörf og reyna að aðstoða fólk
í samskiptum við opinberar hjálpar-
stofnanir, ræða við félagsmálafull-
trúa og Tryggingastofnun."
í dag verður miðbærinn fullur af fólki, fallegum
skreytingum, jólasveinum, söngvurum, leikurum o.fl. o.fl.
Söguleikur miðbæjarins ífullum gangi
og gjafirnar í Geysisglugganum.
100 ára lystikerra ekur um bæinn með
farþega frá kl. 13.30 til 15.30.
Auk þess nær lystikerran í Stekkjastaur
í Þjóðminjasafnið og ekur honum um bæinn.
Kl. 14.00 Jólasveinamir koma, ganga um bæinn, syngja jólalög,
leika við börnin og líta í búðir.
Kl. 15.00 Upplestur úr nýjum bókum í nýja, gamla
Sögufélagshúsinu í Fischersundi.
Kl. 15.00 Grýla leikur á als oddi í porti Hlaðvarpans.
Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg flytja lög af
nýútkominni hljómplötu.
Kl. 15.10 Lúðrasveit verkalýðsins.
Kl. 15.30 KórVesturbæjarskóla gengur um götur og syngur
jólalög.
_ Kl. 16.00 Kórog hljómsveitfrá Mosfellsbæflytur jólalög.
Allar nánari upplýsingar á Aðalstöðinni 90.9 kl. 11.00
OPIÐ FRÁKL. 10-18
/er-/S v-Momin í b&m
MIÐBÆJARFÉLAGIÐ
GARÐAR ÓLAFSSON
Úrsmiður - Lœkjartorgl.
ULLARHUSIÐ
Aðalstræti 4 — Tel.: 2 69 70
Reykjavík — lceland
(HLAÐVARPINNl
Vesturgötu 3
LITSEL
Austurstræti 6
TOMMA
hamborgarar
uciSartorgi
PARÍSARbúðin
AUSTURSTRftTI 8 SÍMI M2M
Gujfeka
Dúoir^M
Fischersundi
Austurstræti 1
9Mf9M
AÐALSTÖÐIN
Aðalstræti 16