Morgunblaðið - 12.12.1992, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Vorum að fá stórglæsilega sendingu
af sófasettum og hornsófum í leðri.
Margir litir. Obreytt verð.
Opib laugardagfrá kl. 10-18.
Sunnudagfrá kl. 14-17.
Yálhúsjiögn
Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
/ / / • / /
IJOLAUMBUÐUM A JOLAVERÐI
I JÓLAKOKURNAR, JOLAMATINN OG
JOLAGOTTIÐ!
Vímuefni o g heil-
brigðisþj ónusta
eftirHannes
Pétursson
í umræðu um nauðsynlegan nið-
urskurð ríkisútgjalda hafa stjórn-
völd meðal annarsjagt til að með-
ferðaraðstaða SÁÁ verði skert og
að Vífilsstaðadeild geðdeildar
Landspítala verði lokað. Það hefur
varla farið framhjá nokkrum manni
að áfengis- og sérstaklega annar
vímuefnavandi hefur farið hratt
vaxandi hér á landi undanfarin ár.
Forsvarsmenn SÁÁ og geðdeildar
Landspítala, þeir Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir, og Tómas
Helgason, prófessor, rituðu ítarlega
grein hér í blaðið í síðustu viku og
færðu veigamikil fagleg rök fyrir
því, að fallið yrði frá framangreind-
um tillögum um niðurskurð á með-
ferðarúrræðum fyrir áfengis- og
vímuefnasjúklinga.
Sérhæfð meðferð
Vímuefnaneysla ræðst alla jafn-
an af samspili flókinna þátta, þar
sem hæst bera vímuáhrif viðkom-
andi efna, persónugerð neytandans
og samfélagsaðstæður. Meðferðar-
úrræði fyrir áfengis- og vímuefna-
sjúklinga hér á landi eru að mörgu
leyti ákjósanleg. Komin er veruleg
reynsla á samverkun meðferðar-
stofnana SÁÁ þar sem kostir
fijálsra félagasamtaka eru hag-
nýttir og hins vegar vímuefnaskor-
ar geðdeildar Landspítala, sem
byggir á áratuga reynslu í þessum
efnum. Það virðist stundum gleym-
ast í umræðunni um vímuefni, að
geðsjúkdómar og vímuefnaneysla
fara mjög oft saman hjá viðkom-
andi einstaklingi og þarfnast sér-
hæfðrar meðferðar ef árangur á
að nást.
Um nokkurra ára bil stóð hið
opinbera hér á landi að hluta undir
kostnaði vegna utanferða íslend-
inga á meðferðarstofnanir fyrir
áfengis- og vímuefnasjúklinga er-
lendis. Rökin fyrir þeim ferðum
voru oftast þau að hér skorti viðeig-
andi meðferðaraðstöðu og/eða að
nauðsynleg sérhæfing væri ekki til
staðar. Var þá einkum átt við að
sú aukning sem átti sér stað í vímu-
efnaneyslu hérlendis á stuttum
tíma krefðist sérhæfðari meðferð-
arúrræða. Flestir gerðu sér ljóst
að íslendingar sjálfir yrði að bæta
úr þessu og fyrir nokkrum árum
hætti íslenska ríkið að mestu að
styrkja ferðir einstaklinga til með-
ferðar erlendis á þessu sviði.
Áframhaldandi öflug starfsemi
SÁÁ er nauðsynleg og Vífilsstaða-
deild geðdeildar Landspítalans er
algjör forsenda þess að hægt sé
að þróa sérhæfða meðferð, einkum
þar sem alvarlegir geðsjúkdómar
eru samfara áfengis- og vímuefna-
neyslu.
Vímuefni og afbrot
Þegar rætt er um áfengi og önn-
ur vímuefni er nauðsynlegt að gera
sér grein fyrir því hve víðtækur
vandinn getur verið, eins og sést
m.a. í samverkandi þætti áfengis í
slysum, líkamlegum og geðrænum
sjúkdómum, vinnutapi og fleiru.
Utleysandi þættir áfengis og ann-
arra vímuefna í afbrotum, einkum
ofbeldisafbrotum, eru augljósir.
Fræðilegar rannsóknir hér á landi
sem og annars staðar hafa sýnt
fram á þýðingu áfengis og á seinni
árum annarra vímuefna í þessu
sambandi. Þó áfengi og önnur
vímuefni séu alls ekki einu orsaka-
valdarnir í afbrotum, þá hefur ver-
ið sýnt fram á fylgni milli heildar-
áfengisneyslu annars vegar og al-
varlegra ofbeldisbrota hins vegar.
Hér á landi, eins og meðal ná-
grannaþjóða, eiga sér nú stað örar
og að sumu leyti ógnvænlegar
breytingar, sem kalla á ákveðin og
skipuleg viðbrögð, m.a. í heilbrigð-
is-, dóms- og menntamálum. Við
getum lært að vissu marki af
reynslu útlendinga í þessum efnum,
en verðum í flestu að aðlaga að-
gerðir íslenskum aðstæðum.
Rannsóknir og forvarnir
Meðferð og endurhæfing áfeng-
is- og vímuefnasjúklinga hefur
Afmœtistw"
e
sein gilclir úi deseniber!
Stingsagir - borvélar o
Rafhlöðuvél BSE 7,2
Verð áður: 16.086 kr. Verð áður:17.055 kr.
Verð nú: 12.798 kr. Verð nú: 14.498 kr.
~T1
Borvél SB2E 650R Kapaltromla VK 43S12M
Ný vél - gamalt verð
Verð: 13.798 kr.
Verð áður:2.285 kr.
Verð nú: 1992 kr.
BRÆÐURNIR
fe. T ?T|7
p»i
Lágmúla 8-9. Sími 38820
Hannes Pétursson
„Áframhaldandi öflug
starfsemi SAA er nauð-
synleg og Vífilsstaða-
deild geðdeildar Land-
spítalans er algjör for-
senda þess að hægt sé
að þróa sérhæfða með-
ferð, einkum þar sem
alvarlegir geðsjúkdóm-
ar eru samfara áfengis-
og vímuefnaneyslu.“
gjarnan einkennst af nokkurri
svartsýni á árangur og vist er að
einstaklingar veikjast oft aftur.
Eins og fram kemur í grein þeirri
er getið var hér að framan virðist
meðferðarárangur hér á landi þó
mjög viðunandi. Þekking á eðli og
orsökum vímuefnaneyslu hefur far-
ið vaxandi á undanförnum árum
og nú hillir undir sértækari og virk-
ari meðferð. Raunhæfasta leiðin til
að takast á við áfengis- og vímu-
efnavandann er að efla fræðilegar
rannsóknir, sérhæfða meðferð,
kennslu heilbrigðisstarfsmanna og
forvamir. Við þær aðstæður sem
nú er við að glíma ber að efla geð-
heilbrigðisþjónustu og að tryggja
áframhaldandi rekstur Vífilsstaða-
deildarinnar og sjúkrastöðva SÁÁ.
Höfundur eryfirlæknir
geðdeildar Borgarspítalans og
dósent í læknadeild Háskóla
íslands. Hann eríhópi
sérfræðinga Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar í
áfengis- og vímuefnamáium.
♦ ♦ ♦-----
Tíu sækja
um stöðu hér-
aðsdómara
TÍU manns hafa sótt um stöðu
héraðsdómara við Héraðsdóm
Reykjavíkur. Dómsmálaráðu-
neytið bíður niðurstöðu um-
sagnarnefndar um umsækjend-
ur, en I nefndinni eiga sæti full-
trúar Dómarafélags íslands,
Lögfræðingafélags íslands og
Hæstaréttar.
Niðurstöðu umsagnarnefndar
er að vænta á næstu dögum, sam-
kvæmt upplýsingum frá dóms-
málaráðuneytinu. Þeir sem sóttu
um eru: Bjarni Stefánsson, deild-
arlögfræðingur hjá Lögreglu-
stjóraembættinu, Gréta Baldurs-
dóttir, deildarstjóri hjá Sýslu-
manninum í Reykjavík, Halla
Backmann Ólafsdóttir, héraðs-
dómsfulltrúi við Héraðsdóm
Reykjavíkur, Ingveldur Þ. Einars-
dóttir, héraðsdómsfulltrúi við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur, Jón Finn-
björnsson, aðstoðarmaður hæsta-
réttardómara, Jónas Jóhannsson,
héraðsdómari við Héraðsdóm
Vestfjarða, Sigurður Tómas
Magnússon, skrifstofustjóri í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur, og Skúli
Pálmason hæstaréttarlögmaður.
Tveir umsækjendur óskuðu
nafnleyndar.