Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 24
24
MORGUNBLABIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
Hljóðhönnun
Hallgrímskirkj u
eftir Gunnar H.
Pálsson
Brátt rennur upp sú stóra stund
að hið glæsilega orgel Hallgríms-
kirlq'u stendur fullgert og verður
vígt. Margir hafa beðið þessa atburð-
ar sem telja verður til hinna merkari
í íslenskri tónlistarsögu. Fyrirhugað
er að vígsla orgelsins fari fram 13.
des. nk., en smíði þess hófst fyrir
réttu einu ári. Er það undravert að
smíði, uppsetning og stilling á svo
margbrotnum hlut skuli ekki taka
lengri tíma.
Allt þetta ár, samhliða smíði org-
elsins, hefur verið unnið kappsam-
lega að hönnun á lokafrágangi
kirkjuskipsins sem að miklu leyti
hefur verið tengd endanlegum hljóm-
burðaraðgerðum sem frestað var
þegar kirkjan var vígð og tekin í
notkun árið 1986.
Ekki var unnt að draga þær að-
gerðir lengur, þar sem stilling („inton-
ering") orgelsins er háð því að kirkju-
skipið sé endanlega frágengið og
ómtímanum ekki breytt frekar. Still-
ing þessa mikla hljóðfæris tekur á
þriðja mánuð og því mjög erfítt og
kostnaðarsamt að endurstilla það
væri ómtíma kirkjunnar breytt. Að-
eins munu vera örfáir menn í heimin-
um, sem geta annast þetta verk.
Arkitekt kirkjunnar, Guðjón
Samúelsson, gerði teikningar af
kirkjunni kringum árið 1940 og haf-
ist var handa við bygginguna árið
1945. Sérteikningar af innanhússfrá-
gangi frá hendi Guðjóns voru ekki
til og má því líta á teikningar hans
af kirkjunni sem bygginganefndar-
teikningar, sem eftir var að útfæra.
Allar vinnuteikningar arkitekta
hafa verið unnar af embætti Húsa-
meistara ríkisins, eftir lát Guðjóns
1950, í samvinnu við verkfræðinga
kirkjunnar og safnaðarstjóm. Þar
hafa því margir komið við sögu á
löngum hönnunar- og byggingar-
tíma.
Eins og eðlilegt má teljast kemur
ekki neitt fram á teikningum Guð-
jóns sem gefur til kynna að sérstak-
lega hafi verið hugað að hljómburði
í kirkjunni enda ekki um vinnuteikn-
ingar að ræða og engir hérlendis sem
unnt var að leita til með útreikninga
eða ráðgjöf um efnisval á þeim tíma.
Á ýmsum gömlum blaðagreinum
má þó sjá að málið hefur verið rætt
af íslenskum tónlistarmönnum, sem
voru á einu máli um að hljómburður-
inn yrði að vera góður, án þess þó
að skilgreina það nánar.
Stórar gotneskar kirkjur erlendis
sem reikna má með að hafí verið
hafðar til hliðsjónar eru allar með
langan ómtíma (allt að 8-10' sek.).
Þær eru þó flestar með afar óreglu-
legum eða brotnum flötum og oft
mikið um útflúr, sem dreifir hljóði
vel.
í hinum stóru erlendu kirkjum
fara athafnir fram með orgelleik,
söng eða tónun, sem þarf að viðhafa
svo boðskapurinn sem fluttur er kom-
ist til skila. Þessar kirkjur voru
byggðar úr mjög þykkum steinhleðsl-
um og eru útveggir óeinangraðir.
Veðurfar er hlýrra þar en hérlendis,
auk þess sem þykkir steinveggir eru
betur hitaeinangrandi og hafa meiri
varmageymd en 20 sm steinsteyptir
veggir.
Hús, sem byggð eru á íslandi,
þurfa upphitun og útveggir verða að
vera hitaeinangraðir. Kirkjan er hita-
einangruð að innan og því verulega
frábrugðin hinum stóru kirkjum er-
lendis hvað innfleti varðar, og þurfti
þetta sérstakrar athugunar við.
Eftir að tum kirkjunnar hafði ver-
ið byggður í fulla hæð árið 1973 var
farið að huga að uppsteypu sjálfs
kirlcjuskipsins. Þá var jafnframt haf-
ist handa við hönnun hljómburðarins.
Gerðar voru frumtillögur að hljóm-
burðaraðgerðum og sett formlega
fram markmið, sem stefnt skyldi að.
Fyrstu hugmyndir um hljómburð
mótuðust mjög af því að hérlendis
vantaði tónlistarhús til flutnings allra
almennra tónverka. Margir litu því
hýru auga til Hallgrímskirkju sem
lausn á þessum vanda, og var talað
um ómtíma 2-2,5 sek. í því sam-
hengi. Má í því sambandi benda á
ýmsar frægar kirkjur af svipaðri
stærð og Hallgrímskirkja sem hafa
ómtíma á þessu bili. Jafnvel var
ríiinnst á breytilegan ómtíma.
Þessi markmið hafa breyst og þró-
ast á þem tíma sem liðinn er og
ætíð hefur verið náin samvinna við
arkitekta, orgelleikara kirkjunnar og
fleiri aðila til að ákvarða það mark-
mið sem stefnt skyldi að og þætti
ásættanlegt. Mjög fljótlega var tekin
ákvörðun um að ómtíminn skyldi
miðast við flutning orgelverka og
kórsöng. Sú ákvörðun ásamt stærð
lýmisins hafði í för með sér að töluðu
máli yrði að koma til skila um hátal-
ara með seinkunarbúnaði.
Síðan kirkjan var tekin í notkun
26. okt. 1986 hefur margt verið
rætt og ritað um hljómburð Hall-
grímskirkju sem því miður var oft
byggt á vanþekkingu um byggingar-
stig kirkjuskipsins, en segja má að
kirkjuskipið hafi verið þar til nú ný-
verið aðeins tilbúið undir tréverk.
Þegar sú ákvörðun var tekin 1985,
að hefjast handa við innanhússfrá-
gang svo taka mætti kirkjuna í notk-
un var ákveðið að ganga frá einangr-
un og múrhúðun útveggja og hvelf-
inga ásamt flísalögn á gólf, gleijun
og hitakerfi. Lögð var áhersla á að
Ijúka endanlega þessum verkþáttum,
og aðeins skyldi framkvæma hljóm-
burðaraðgerðir sem tengdust þeim
en annað látið bíða betri tíma.
Gerðar voru tilraunir á efni, sem
áður var áætlað að nota sem loka-
áferð innflata. Á grundvelli þeirra
tilrauna var tekin ákvörðun um ann-
að yfirborðsefni, sem betur hentaði.
Þá var einnig í samræmi við ómtíma-
útreikninga tekin ákvörðun um efni-
sval fyrir útveggi. Múrhúðaðir fletir
til hliðar við ofna voru gerðir ósam-
síða. Veggir í kór voru á þeim tíma
endanlega frágengnir. Ólík efni og
efnisþykktir voru valin til að ná fram
.betri dreifingu hljóðísogs fyrir lág-
tíðni.
Aðalástæða þess að ekki var unnt
að halda áfram árið 1986 var fjárs-
kortur. Ýmsar tillögur lágu þó fyrir
um framhaldsaðgerðir, en þeir sem
málið varðaði voru ásáttir um að
gefa sér rýmri tíma meðan verið var
að koma sér saman um endanleg
markmið og þróa hugmyndir. Ekki
lá þá heldur fyrir endanleg ákvörðun
um stærð og staðsetningu orgels.
Orgelhönnuðir sem rætt hafði verið
við töldu ráðlegt að bíða með frekari
hljómburðaraðgerðir þar til nánari
upplýsingar lægju fyrir um orgelið.
Óttuðust þeir m.a. að ómtími kirkj-
unnar yrði of stuttur, og lögðu mikla
áherslu á verulega lengri ómtíma en
stefnt var að.
Af þessum sökum hefur hljóm-
burður kirkjunnar ekki vefið eins og
skyldi. Því miður hafa þeir, sem ekki
þekkja til, gefið sér það að frágangi
kirkjunnar væri lokið og miðað um-
ræðu sína við það. Hörður Áskelsson
orgelleikari hefur þó gert góða grein
fyrir stöðu þessara mála í blaðagrein-
um og viðtölum en mál hans hefur
ekki komist nægilega vel til skila.
Þegar um er að ræða jafn stóran
sal og aðalskip Hallgrímskirkju, sem
nota á jöfnum höndum til guðsþjón-
ustu- og tónleikahalds eru skiptar
skoðanir á því hver ómtíminn ætti
að vera. Ýmsir töldu hættu á að
ómtíminn yrði of stuttur þegar allt
væri frágengið og'orgelið uppsett.
Eins og áður er getið var snemma
á hönnunartímanum stefnt að því
að ómtíminn yrði miðaður við flutn-
ing orgelverka og sambærileg verk,
og að hann yrði sem næst 3,5 sek.
á sem breiðustu tíðnisviði, en þó
lengri fyrir lágtíðni og styttri fyrir
hátíðni. Jafnframt var álitið nauð-
synlegt að hafa bólstraða bekki,
þannig að ómtíminn væri að mestu
óháður fjölda kirkjugesta. Þegar
kirkjan er fullsetin verður þó ekki
hjá því komist að ómtíminn lækki
nokkuð.
Við frekari skoðanir og að ráðum
ýmissa aðila, þar á meðal orgel-
smiða, varð niðurstaðan sú að stefnt
skyldi að ómtíma, sem væri urn 4,5
sek. og hafa hljómburðaraðgerðir
Gunnar H. Pálsson
„Það er því von þeirra
sem hlut eiga að máli
að kirlgugestir og flytj-
endur taiaðs máls og
tónverka geti héðan í
frá verið ánægðir með
þann árangur sem
náðst hefur, því auk
prédikana býðst hér að
hlusta á stærsta og full-
komnasta konsertorgel
á íslandi og þó víðar
væri leitað. Ekki eru
líkur á því að sambæri-
legt hljóðfæri verði
byggt á íslandi í fyrir-
sjáanlegri framtíð.“
verið miðaðar við það og jafnframt
tekið mið af ómtímamælingu í tómri
kirkju eftir að hún var vigð í október
1986.
Þegar ómtími er eins langur og
hér um ræðir, krefst það þess að
töluðu máli sé komið til skila gegnum
magnarakerfi og hátalara með seink-
unarbúnaði, eins og áður er getið.
Hátalarar þurfa að vera af réttri
gerð og halla rétt að áheyrendum,
svo þeir skili hlutverki sinu eðlilega
og beint hljóð frá þeim nái ekki að
endurkastast frá hörðum flötum,
heldur lendi á áheyrendum. Lokastill-
ing slíks kerfis er háð ómtíma rýmis-
ins, svo ekki hefur verið unnt að stilla
kerfið endanlega fyrr en nú, að
hljómburðaraðgerðum er lokið. Ýmis
önnur hljóðkerfi hafa komið fram
hin síðari ár, sem eiga að skila töluðu
máli betur en það kerfi sem valið
var, en þau eru margfalt dýrari. Má
þar t.d. nefna kerfi þar sem hátalar-
ar eru innfelldir í sjálfa bekkina. Þá
hefur verið komið fyrir loftneti sem
sendir talað mál inn á tæki fyrir
heymardaufa.
Hafa ber í huga að hönnun á
hljómburði í hús eins og Hallgríms-
kirkju kostar mikla og nána sam-
vinnu við arkitekta og ýmsa aðra
aðila, sem málið varðar. Fara þurfa
saman ísogseiginleikar, útlit og notk-
unargildi. Tillögur ganga milli aðila
áður en allir verða ánægðir, eða í
það minnsta sæmilega sáttir.
Þá þarf einnig að meta aðgerðir
með tilliti til kostnaðar þar sem að-
gerðir sem þessar hafa að jafnaði
verulegan kostnað í för með sér.
Þær hljómburðaraðgerðir sem ráð-
ist hefur verið í hafa verið vel undir-
búnar, m.a. með mælingum á ísogs-
eiginleikum ýmissa þeirra efna eða
hluta sem notaðir hafa verið. Niður-
stöður mælinganna hafa stuðlað að
markvissari hönnun bg því ekki þurft
að endurvinna verk.
Við hljómburðarhönnun þarf að
skoða ýmis fleiri atriði en ómtímann,
þó hann sé mjög stór þáttur máls-
ins. Þar má til nefna jafna dreifing
hljóðs og hindrun samþjappaðs hljóðs
og hæfilegt endurkast flata. Útiloka
þarf bergmál og standbylgjur milli
samsíða flata, gæta að styrkleika,
rýmd, og varma auk fleiri atriða.
Lokaaðgerðir hafa verið
þessar helstar:
Smíðaðir voru bekkir með bólstr-
aðri setu og baki fyrir um 500 gesti.
Eins og aðrar innréttingar kirkjunn-
ar eru bekkirnir hannaðir af emb-
ætti húsameistara ríkisins en gerð
bólstrunar og magn ákveðin með til-
liti til hljómburðar. Þess má geta að
bekkir eru hannaðir þannig að unnt
er að snúa sér að orgeli eða altari,
eftir þvi hvað fram fer í kirkjunni.
Smíðaðir voru raufaflekar og
hengdir í loft á hliðarskipum.
Settir voru skermar yfir ofna á
langhliðum, með sama skásniði og
veggir til hliðar við þá.
Settur var teppisrenningur langs-
um eftir miðju kirkjugólfi til að
hindra truflun frá gönguhljóði.
Ýmislegt fleira hefur verið gert,
svo sem að setja skerma á kór-
veggi, og hljóðdeyfa rými á 2. hæð
umhverfis bakhlið orgels. Þetta rými
er tengt kirkjuskipi meðfram orgeli
og með tveim 15 m2 opum til hliðar
við orgel. Arkitektum þótti eðlilegra
að hafa þessa fleti opna og tengja
rýmið sjálfu kirkjuskipinu í stað þess
að loka opunum með gleri sem virt-
ist vera heppilegra m.t.t. hljómburð-
arins. Ekki er þó að heyra að þetta
komi að sök.
Þá má geta þess að hannaður var
°g byggður 10 m hár glerveggur sem
myndar bakhlið orgelsins og endurk-
astar hljóði fram í kirkjuna. Valinn
var glerveggur eftir að ýmsir aðrir
möguleikar höfðu verið skoðaðir.
Þannig má sjá innviði orgelsins aft-
anfrá. Veggurinn er hannaður þann-
ig að orgel og veggur mynda eina
heild þótt hann sé íslensk hönnun
og smíð, en orgelið þýskt. Þessi lausn
er skemmtileg nýjung, sem ekki er
þekkt annars staðar frá og hafa org-
elsmiðir lýst ánægju sinni með hana.
Hafa verður í huga að í sal sem
þessum verða aðeins flutt tónverk,
sem krefjast langs ómtíma, svo sem
orgel- og söngverk ýmiskonar. Vönt-
un hefur verið á slíku húsi hér á
landi og bætir Hallgrímskirkja þar
úr brýnni þörf.
Þegar hið nýja tónlistarhús er ris-
ið við höfnina munu þessi tvö tónlist-
Ný Dögun
Fimm ára afmæli - Af-
mælishátíð á sunnudag
SAMTÖK um sorg og sorgarviðbrögð voru stofnað í Reykjavík þann
8. desember 1987, sem síðar hlutu nafnið Ný Dögun. Á þessum tíma-
mótum er efnt til afmælishátíðar í Víkingasal Hótels Loftleiða sunnu-
daginn 13. desember nk. kl. 15-18. Ölium aðstandendum og velunnur-
um Nýrrar Dögunar er boðið tii þessa fagnaðar.
Samtökin hafa á starfstíma sínum
unnið að því að styðja syrgjendur
og þá, sem vinna að velferð þeirra,
með því að: Efna til almennra
fræðslufunda og samverustunda,
veita þá upplýsingaþjónustu sem
auðið er á hveijum tíma, vinna að
stofnun stuðningshópa, greiða fyrir
samskiptum stuðningsaðila og syrgj-
enda, standa fyrir námskeiðahaldi
og þjálfun stuðningsaðila og efla
almenna fræðslu um sorg og sorgar-
viðbrögð í fjölmiðlum og sem víðast
á opinberum vettvangi.
Meðlimir Nýrrar Dögunar eru nú
á fimmta hundrað en ennfremur eru
starfandi sorgarsamtök víða annars
staðar í landinu, Samtökin sinna
ekki einvörðungu þeim sem eiga um
sárt að binda vegna ástvinamissis,
heldur einnig þeim sem líða vegna
annars missis, svo sem vegna skiln-
aðar, skerðingar á líkamsímynd
o.s.frv.
Ný Dögun hefur gefið út fræðslu-
efni fyrir syrgjendur og vill veita
stuðning í sem víðustum skilningi.
Opnu hús samtakanna, námskeið,
námstefnur og fyrirlestrar hafa ver-
ið fjölsótt. Starfsemi samtakanna
hefur teygt arma sína víða um land.
(Fréttatilkynning)