Morgunblaðið - 12.12.1992, Qupperneq 27
annað en ál sem kemur til greina,
mun minni fyrirtæki. Og fjárfesting-
arþátttaka Islendinga þyrfti ekki að
vera stór til að byija með, en þátt-
taka samt. Þó illa ári hjá mörgum
orkuiðnaðarfyrirtækjum Vestur-
landa núna er ekki ástæða til að
missa kjark og þolinmæði, nota má
tímann betur til undirbúnings og
athugana.
Það þarf að herða róðurinn
Menn þurfa að herða róðurinn í
leit að orkunýtingarverkefnum, ég
er viss um að Reykjavíkurborg
muni ekki láta sitt eftir lgigja þar.
Eins og menn vita á Reykjavíkur-
borg eitt mesta þjóðþrifafyrirtæki
íslandssögunnar, Hitaveit'u Reykja-
víkur, og auk þess góðan hlut í
Landsvirkjun. Borginni er því í lófa
lagið að leggja lóð á vogarskálina
til vitrænnar nýtingar orku til iðnað-
ar. Og meðan verið er að leita að
nýjum orkunýtingarkostum gætu
menn notað aurana sína til þess að
nýta þá raforku sem ónotuð er í
raforkukerfinu. Hverflarnir við há-
lendisbrúnina standa margir kyrrir
og bíða eftir verkefnum en safna
vöxtum. Frekar en að gera ekki
neitt gætu menn til dæmis reynt
að bjóða gróðurhúsaeigendum lýs-
ingarrafmagn á góðu verði meðan
birgðir (les afkastageta) endast, eða
togurum sem kynda ljósavélar inná
höfnum. Hvemig væri að ráða sölu-
menn, eins og önnur fyrirtæki gera,
sem færu í fyrirtæki og reyndu að
selja þeim meiri orku á því verði sem
þau geta borgað? Kannski væri bara
best að láta Aflvaka, þróunarfélag
Reykjavíkurborgar, hafa þessar litlu
20 milljónir sem fara eiga í hundana
(þeir eru tveir, hver 500 MW).
Við þurfum ekki að missa
kjarkinn
Sjávarútvegurinn er ennþá kröft-
ugur og vaxtarbroddarnir margir.
Eftir er að nýta hvalina, hákarlinn,
selinn, ígulkerin og fleira og fleira.
En íslendingar eru ekki bara fiski-
þjóð, við erum líka orkuiðnaðarþjóð
þó uppbyggingin hafi gengið hægar
en efni stóðu til. Menn ættu að hefj-
ast handa um að innræta ungum
íslendingum þessa stöðu okkar og
búa þá undir að nýta orkuna sér til
verks.
Þó Reykjavíkurborg hafi efni á
að leggja einar 20 milljnir í athugun
tel ég það hinn mesta óþarfa þar
eð sama er hvað sú hagkvæmniat-
hugun segir, fallvatnsorkuna þarf
að nýta til atvinnu innanlands. Einn-
ig er óþarfi að stuðla að því að
ágæt erlend fyrirtæki eyði fé í at-
huganir sem hafa aðeins „háskóla-
legt“ gildi. Svo vill líka til, að innan
borgarstjórnarinnar sjálfrar er fólk
sem hefur þekkingu til að átta sig
gjörla ám álinu og forsendum þess,
þeirra ráð kosta borgina ekki neitt.
Ég legg til að borgarstjórn
Reykjavíkur endurskoði afstöðu sína
strax og leggi ekki frekari drög að
því að fallvatnsorka landsins fari í
hundana.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 „,2'í
--------------------n;-:vl~rTriv‘rU rr V í.‘ • n'Ul*- -----------------------------------:----------Her-
Aðventukvöld
í Keflavíkur-
kirkju
AÐ VENTUK V ÖLD verður í
Keflavíkurkirkju sunnudaginn 13.
desember kl. 20.30. Einsöngvar-
arnir Dagný Jónsdóttir, Sigríður
Aðalsteinsdóttir, Böðvar Þ. Páls-
son, Sverrir Guðmundsson og
Steinn Erlingsson syngja.
Fjórir kórar koma fram. Kór
Keflavíkurkirkju, Bamakór Kefla-
víkurkirkju undir stjórn Einars Arnar
Einarssonar, Kór eldri borgara á
Suðurnesjum undir stjórn Hlífar
Káradóttur og The Youth Gospel
Choir frá Keflavíkurfiugvelli. Flutt
verður tónlist í anda aðventunnar og
í lokin syngja allir kóramir saman
við kertaljós og jólaguðspjallið verður
lesið.
/Vám s&m witir fíot*s£ot íato-ÍKKu.ftfiiKa
TÖLVUNOTKUN
í FYRIRTÆKJAREKSTRI
A
Tölvuskóli Stjórnunarfélags íslands
og Nýherja
Skaftáhlíð 24, 105 Reykjavík
Símar 62 10 66 og 69 77 69 (ath. nýtt númer)
SVEFNSOFAR
[ NICE
Stærð: 175 x 100 x 80
Útdreginn: 130x 195
Verö: 57.500 kr.
OOÐAN DAG
- eftir góða nótt
!; REBECCA
Stærð: 136 x 90 x 73
Útdreginn: 130x200
Verð: 37.500 kr.
PAULINE
Stærö: 165 x 80 x 86
Útdreginn: 120 x 195
Verö: 51.500 kr.
Fallegu svefnsófarnir og svefnstól-
arnir frá Lystadún - Snælandi eru
góðir daga sem nætur. Þeir eru
sannkölluð híbýiaprýði og þægi
legir að sofa á. Hönnunin er glæsi-
leg og fjölbreytt, form og litir marg-
víslegir. Stærðirnar eru mismunandi
svo auðvelt er að fá sófa eða stól
sem hentar vel í allar stærðir
herbergja. Svefnsófi frá Lystadún -
Snælandi er tilvalinn í gestaher-
bergið eða sjónvarpskrókinn og
unglingarnir kunna vel að meta >ina
þægindin að því að hafa bæði rúm
og sófa til umráða. Og til að lífga upp
á tilveruna enn frekar er til mikið
úrval af púðum í fallegum litum.
Svefnsófi frá Lystadún - Snælandi
tryggir þér góðan dag eftir góða nótt.
JOSEPHINE
Stærö: 130x80x86
Útdreginn: 130 x 190
Verö: 32.500 kr.
Stærð: 157x70x70
Útdreglnn: 135x190
Verö: 34.000 kr.
ISESAM
Stærö: 145x85x70
Útdreglnn: 140 x 190
Verö: 56.000 kr.
ell
ess
■ REBECCA-svefnstóll
Stærð: 71 x 90 x 73
Útdreginn: 65 x 200
Vcrö: 23.000 kr.
LYSTAOÚN-SNÆLAND hf
Skútuvogi 11 • 124 Reykjavík • Sími 814655 / 685588
Sendum í póstkröfu um land allt