Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 30
^ÖRGUMIiÁBÍÐtTAljGÁRDÁÖUfcttót1 DÉSBMfiÉíí' l<te2
Lækkun endurgreiðslna virðisaukaskatts og gengisfelling
Svínakjöt, kjúklíngar og e
þyrftu að hækka um 10-11%
- segja forystumenn búgreinafélaganna
SVÍNAKJÖT, kjúklingar og egg þurfa að hækka um 10-11% í
verði vegna kostnaðarhækkana í kjölfar gengisfellingarinnar á
dögunum og þó sérstaklega vegna fyrirhugaðrar lækkunar á
endurgreiðslu ríkissjóðs á virðisaukaskatti. Segja talsmenn bú-
greinanna að reynt verði að hækka afurðaverðið því framleið-
endur standi illa og geti ekki tekið þessa tekjuskerðingu á sig.
Það verði þeir þó að gera að einhveiju leyti í upphafi því mark-
aðsaðstæður séu þannig að ekki sé grundvöllur til hækkana nú.
Þeir segja að með þessum aðgerðum hækki matarskatturinn á
svínakjöt, kjúklinga og egg úr tæplega 15% upp í 20% en þeir
segja að eðlilegra hefði verið að setja afurðirnar í 14% skatt-
þrep um leið og endurgreiðslurnar væru felldar út. Þá eru þeir
óánægðir með að virðisaukaskattskerfið skuli vera notað til
mismununar búvara á markaðnum, því á sama tíma og virðis-
aukaskattur hefðbundinna búvara sé endurgreiddur orðalaust
séu endurgreiðslur vegna annarra lækkaðar um meira en helm-
ing. Þetta hafi ekki verið markmið virðisaukaskattskerfisins.
Eggjabóndi með hluta af af-
rakstri dagsins.
Hugað að sláturgrísum.
Foiystumenn Svínaræktarfélags
íslands, Félags kjúklingabænda og
Félags eggjaframleiðenda hafa
tekið saman upplýsingar um afleið-
ingar aðgerða ríkisstjórnarinnar að
undanförnu, sérstaklega fyrirhug-
aða iækkun endurgreiðslu á virðis-
aukaskatti vegna afurða þessarra
búgreina, og önnur atriði sem
snerta rekstrarskilyrði þeirra sér-
staklega. Hafa þeir komið þessum
upplýsingum á framfæri við stjóm-
völd, þingmenn og ýmsa aðra til
að reyna að hafa áhrif á ákvarðan-
imar.
„Matarskatturinn"
hækkaður úr 12 í 20%
Frá árinu 1988 hefur söluskattur
og síðar virðisaukaskattur verið
endurgreiddur að hluta af innlendri
búvöruframleiðslu, m.a. svínakjöti,
kjúklingum, eggjum, nautgripa-
lcjöti og hrossakjöti. í upphafí sam-
svaraði endurgreiðslan því að eftir
stæði 12% skattur af þessum afurð-
um. Síðan hefur endurgreiðslan
haldist í krónutölu og því rýmað
hlutfallslega. í ár situr eftir 14,75%
virðisaukaskattur þegar tekið er
tillit til endurgreiðslna. í fjárlaga-
framvkrpi næsta árs er boðuð
lækkun endurgreiðslna um 200
milljónir kr., úr 460 í 260 milljónir
kr. Fyrirhugað er að skera fjárlög
meira niður og er rætt um að lækka
endurgreiðslumar um 50 milljónir
til viðbótar þannig að þær verði
210 milljónir kr. Eftir þessa lækkun
endurgreiðslnanna situr 20% virðis-
aukaskattur eftir af svínaafurðum,
samkvæmt útreikningum Svína-
ræktarfélags íslands. Staðan er
svipuð í eggjum og kjúklingum.
Að sögn Kristins Gylfa Jónsson-
ar formanns Svínaræktarfélagsins
mun þessi lækkun endurgreiðslna
virðisaukaskatts og hækkun fóður-
verðs í kjölfar gengislækkunarinn-
ar í nóvember hafa í för með sér
rúmlega 10% hækkun smásölu-
verðs svínaafurða eða 9% lækkun
á afurðaverði til bænda. Áhrifín era
svipuð á egg og kjúklinga, að sögn
Bjama Asgeirs Jónssonar for-
manns "Félags iqúklingabænda og
Bjarna Stefáns Konráðssonar
framkvæmdastjóra Félags eggja-
framleiðenda. Segja þeir að þessi
250 milljóna króna lækkun á endur-
greiðslum þurfí að koma fram í
verði afurðanna. Telja þeir að þeg-
ar milliliðimir og ríkissjóður hafi
fengið sitt hækki útgjöld heimil-
anna í landinu vegna auka á þess-
um afurðum um 400 milljónir kr.
Leggja þeir áherslu á að nú þeg-
ar búið sé að bijóta grundvallar-
regluna um að hafa aðeins eitt
skatthlutfall í virðisaukaskatti, með
nýju 14% þrepi á húshitun, fjöl-
miðla, bækur og fleira, sé ekki með
nokkru móti hægt að réttlæta það
að láta matvæli vera í efsta þrepinu
með 24,5% virðisaukaskatt. Benda
þeir á að endurgreiðsla virðisauka-
skatts vegna þessarra búgreina í
ár hafí haldið matarskattinum í
14,75% þannig að ef afurðimar
yrðu settar í 14% skattþrep og
endurgreiðslumar felldar út stæðu
bændur og neytendur í svipuðum
sporum og áður.
Samkeppnisaðstaðan skekkist
Talsmenn búgreinanna segja að
bændur hafi ekki svigrúm til að
taka lækkun endurgreiðslnanna á
sig. Aðstæður séu hins vegar þann-
ig nú á yfírfullum en jafnframt
minnkandi kjötmarkaði að ekki sé
mögulegt að hækka verðið og lendi
lækkunin því á bændum fyrst í
stað. Þessar búgreinar hafa allar
gengið í gegn um þrengingar á
undanfömum áram og nú stendur
kjúklingaræktin sérstaklega illa,
að sögn þeirra félaga. Segja þeir
að þessar aðgerðir muni senda
fjölda bænda til skiptaráðanda.
Kristinn Gylfí segir að bændum
í þessum þremur búgreinum þætti
illa að sér vegið mpð þessum að-
gerðum og segir þær stríðsyfírlýs-
ingu við framleiðendur innan
þeirra. Hann segir að búgreinamar
framleiði um 7.500 tonn af afurð-
um á ári sem er litlu minna en fram-
leitt er af lambakjöti í landinu.
Benda þeir á að þrátt fyrir það
hafí þeir ekki málsvara í landbún-
aðarkerfínu. Ef ráðast eigi á hefð-
bundnu búgreinamar bregðist
bændaforystan hart til vamar og
hóti meðal annars málsókn. Því sé
alltaf farið í ftjálsu greinarnar þeg-
ar þurfí að skera niður útgjöld eða
skattleggja. Með slíkri mismunun
sé vegið að þessum búgreinum og
neyslunni stýrt frá þeim í afurðir
hefðbundnu búgreinanna.
Þeir segja að þessar búgreinar
hafí gengið á undan með hagræð-
ingu og lækkun afurðaverðs á und-
anfömum áram. Benda þeir á að
afurðirnar hafí lækkað veralega að
raunvirði. Bjarni Stefán segir sem
dæmi um þetta að egg hafi lækkað
í verði um 20% á fjórum áram.
Segja þeir að íslensk búvörufram-
leiðsla standi nú frammi fyrir vax-
andi samkeppni frá erlendum
starfsbræðrum. Bændur þurfí að
geta mætt þessari samkeppni með
því að auka hagræðingu og lækka
afurðaverð enn frekar. Þær aðgerð-
ir sem að þeim beinist nú sérstak-
lega veiki aftur á móti stöðu inn-
lendu framleiðsiunnar og geri
bændum í þessum búgreinum erfið-
ara um vik að keppa á markaðnum.
í viðræðum sínum að undan-
fömu við fulltrúa stjómvalda og
stjómmálamenn hafa fulltrúar
svínabænda, kjúklingabænda og
eggjabænda óskað eftir því að tvö
átriði í rekstrarskilyrðum þeirra
verði sérstaklega tekin til skoðun-
ar. Leggja þeir til að 25% grann-
gjald á kjamfóður verði fellt niður
og að gjöld í sjóði landbúnaðarins
lækkuð.
Kjarnfóðurskattur verði
felldur niður
Kjamfóður er langstærsti kostn-
aðarliðurinn í rekstri þessarra bú-
greina. Kjamfóðurverð hefur
hækkað að undanfömu og mun
fóðurbætisskatturinn hækka sem
því nemur. Telja framleiðendur sig
ekki eiga um aðra kosti að velja
en að hækka afurðaverðið sem
þessu nemur þegar færi gefst eða
afla fóðurvara með hagkvæmari
hætti.
Nú er lagt 25% gjald á kjamfóð-
ur, svokallað granngjald, og rennur
það í ríkissjóð. Gjald þetta mun
nema um 60 milljónum kr. á næsta
ári og samsvarar 2,4% af verði
afurðanna. Leggja talsmenn bú-
greinanna til að skattur þessi verði
felldur niður í tengslum við lækkun
endurgreiðslna virðisaukaskatts.
Peningar úr matarbuddum
til að leiðrétta mistök
Þá leggja þeir til að hætt verði
að innheimta svokallað neytenda-
og jöfnunargjald af afurðum svína
og alifugla en þetta gjald, sem
rennur í Stofnlánadeild landbúnað-
arins, hækkar verð afurðanna um
2%. Gjald þetta var upphaflega lagt
á til að brúa bil milli óverðtryggðra
útlána Stofnlánadeildarinnar og
verðtryggðra lána sem hún þurfti
að taka. Ríkið hafí greitt mótfram-
Iag. Benda talsmenn búgreinanna
á að gjald þetta hafí á seinni áram
verið notað til annars, það er að
byggja upp afskriftareikning hjá
Stofnlánadeildinni og að ríkið hafí
hætt að greiða sinn hluta. Nú eigi
að nota sjóðinn til að afskrifa lán
loðdýraræktarinnar í landinu. Þar
með sé verið að taka peninga úr
matarbuddum almennings til að
bæta fyrir mistök stjómmálamanna
við lánveitingar til loðdýraræktar.
Samkvæmt útreikningum félag-
anna greiðir alifugla- og svína-
ræktin 41-43 milljónir kr. í neyt-
enda- og jöfnunargjald til Stofnl-
ánadeildarinnar í ár. Það er fyrir
utan umsamda vexti, verðbætur og
afborganir lána hjá deildinni.
Benda talsmenn félaganna á að ef
neytenda- og jöfnunargjaldið rynni
til að greiða höfuðstól útistandandi
lána Stofnlánadeildarinnar til sér-
hæfðra bygginga í þessum búgrein-
um myndu þau öll greiðast upp á
tæpum fjóram áram. Væra gjöldin
talin með vöxtum teldust greinam-
ar greiða 27% vexti af lánum sín-
Bjami Ásgeir kjúklingabóndi
sagði að óréttlæti þessarar gjald-
töku væri yfirþyrmandi. Nefndi
hann sem dæmi að bú hans greiddi
4,5 milljónir í neytenda- og jöfnun-
argjald á ári en höfuðstóll lána
hans þar væri einungis 9 milljónir
kr. Með þessu gjaldi gæti gæti
hann greitt lánið upp á tveggja ára
fresti. Þá benti hann á að stærðar-
takmarkanir væra í útlánareglum
Stofnlánadeildarinnar og því væri
fjöldi framleiðenda í þessum bú-
greinum að greiða háar fjárhæðir
til lánasjóðsins án þess eiga kost á
lánafýrirgreiðslu. Fram kom hjá
þeim félögum að ýmsir teldu að
gjaldheimta sem þessi stæðist ekki
stjórnarskrá lýðveldisins.
Kristinn, Bjami Ásgeir og Bjarni
Stefán nefhdu fleiri dæmi um það
sem þeir telja mismunun búgreina
þeirra miðað við aðra búgreinar. Á
það bæði við skattheimtu og gjald-
töku af framleiðslu og möguleika
þeirra til að njóta þjónustu og fjár-
muna til þróunarverkefna.
Lögðu þeir áherslu á að rekstrar-
skilyrði búgreinanna yrðu löguð
þannig að þær gætu mætt harðn-
andi samkeppni á næstu mánuðum
og áram.
um.
« *
Starfsmannafélag Islandsbanka og Samband bankamanna
Bankaráði óheimilt að
ráða Asmund til starfa
STARFSMANNAFÉLAG fslandsbankav og Samband íslenskra
bankamanna, SÍB, hafa sent bankaráði íslandsbanka, ályktanir þar
sem ráðningu Ásmundar Stefánssonar í sérfræðingsstörf hjá bank-
anum er mótmælt. í ályktun Starfsmannafélagsins segir m.a. að
ráðning Ásmundar sé brot á kjarasamningi við starfsmenn bank-
ans. Þar er því einnig harðlega mótmælt að á sama tíma og sextán
manns hafi verið sagt upp störfum I íslandsbanka sé maður utan
hans ráðinn tU starfa. í ályktunum þessara samtaka er þess krafist
að bankaráð íslandsbanka afturkalli ráðningu Ásmundar og aug-
Iýsi stöðuna.
í ályktun Starfsmannafélagsins
segir: „Þann 8. desember sl. ákvað
bankaráð íslandsbanka að ráða
Ásmund Stefánsson til starfa í
bankanum. Samkvæmt tilkynningu
bankaráðs er Ásmundur ráðinn til
starfa sem sérfræðingur. í grein
11.1.1 í kjarasamningnum segir:
„Nýtt starf eða starf sem losnar
skal auglýsa laust til umsóknar með
fjögurra vikna fyrirvara i viðkom-
andi banka ogtilkynning send skrif-
stofu SÍB. I auglýsingu skal þess
getið hvaða starfsheiti samkvæmt
grein 1.6 hið auglýsta starf tilheyr-
ir. Heimilt er að stytta umsóknar-
frest að fengnu samþykki formanns
Starfsmannafélagsins. Ákvæði
þessarar greinar gilda einnig um
stöðu aðstoðarbankastjóra og aðrar
hliðstæðar stöður. Ákvæði þessarar
greinar gilda ekki um störf nýliða,
bankaritara, varða, gjaldkera og
aðstoðarfulltrúa."
Stjóm Starfsmannafélags ís-
landsbanka áteiur harðlega það brot
á kjarasamningi starfsmanna bank-
ans sem felst í þessari ráðningu.
Sérstaklega mótmælum við því að
á sama tíma og verið er að segja
upp 16 starfsmönnum bankans
skuli vera ráðinn til starfa aðili utan
bankans. Við teljum að í íslands-
banka starfí mjög hæft fólk og
þurfí því ekki að leita út fyrir raðir'
starfsmanna til að ráða í nýjar stöð-
ur eða stöður sem losna. í grein
11.1.3 kjarasamningsins segir:
„Bankastarfsfólk skal að jafnaði
sitja fyrir við ráðningar í stöður
þessar. Við viljum taka það sérstak-
lega fram að mótmæli okkar bein-
ast ekki gegn Ásmundi Stefánssyni
persónuiega.““
Undir ályktunina ritar Geir Þórð-
arson, formaður Starfsmannafélags
íslandsbanka. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið að mikil ólga
væri í starfsmönnum bankans
vegna þessa máls. Hins vegar hefði
ekki verið ákveðið hvort gripið yrði
til frekari aðgerða vegna þessa
máls. Hann sagði að ályktun SÍB
væri í meginatriðum samhljóða
ályktun Starfsmannafélagsins.
í henni segir m.a. að samkvæmt
lögum um viðskiptabanka mega
bankaráð eingöngu ráða banka-
stjóra, innri endurskoðendur, úti-
bússtjóra og aðstoðarbankastjóra.
Með ráðningu Ásmundar sé banka-
ráð íslandsbanka að fara út fyrir
starfsvið sitt.
Ásmundur Stefánsson sat í bank-
aráði íslandsbanka þegar það gerði
fyrrgreindan kjarasamning við
starfsmenn bankans. Hann vildi
ekki tjá sig um þetta mál þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær.