Morgunblaðið - 12.12.1992, Síða 33
MOKGUNBMUIB 1AUGAKDAGUK 12. Dg^EMBEJR 1992
33
Sölusýning
og kynning
á Kópavogs-
hælinu
SÖLUSÝNING verður í vinnustof-
um Kópavogshælis á rnorgnn,
sunnudaginn 13. desember, á milli
kl. 14 og 17, i tilefni þess að 40
ár eru liðin frá því að fyrstu
þroskaheftu einstaklingarnir
komu þangað til dvalar.
Á sölusýningunni verða ýmsir
munir, sem unnir hafa verið á vinnu-
stofunum, til sölu. Einnig verður
starfsemi vinnustofanna kynnt.
Kópavogshæli tók á móti fyrstu
þroskaheftu einstaklingunum til
dvalar þann 13. desember 1952 og
heldur þannig upp á 40 ára starfsaf-
mæli sitt á sunnudag. Kópavogs-
hæli tekur tii lækninga, meðferðar
og vistunar einstaklinga af öllu land-
inu með alvarlega þroskahömlun,
svo og þá sem vegna veikinda eða
slysa.er líkt á komið með og þurfa
þá sérhæfðu meðferð sem Kópavogs-
hæli býður upp á.
Nú dvelja 133 einstaklingar á
Kópavogshæli á 14 heimiliseining-
um. Þar af eru fimm sambýliseining-
ar, þrjár bama- og unglingadeildir,
tvær atferlismótunardeildir og fjórar
blandaðar deildir. Auk þess er veitt
sérhæfð læknis-, hjúkrunar- og sál-
fræðiþjónusta, þroskaþjálfun og
sjúkra- og sundþjálfun. Á vinnustof-
um Kópavogshælis er hæfing og
vinnuþjálfun auk launaðrar vinnu
sem íbúar staðarins og fólk af sam-
býlum sækir.
Nýendurbætt húsnæði, þar sem
fyrirhugað er að hafa iðjuþjálfun og
Þjálfunarskóla ríkisins verður til
sýnis á sunnudag. Einnig verður
sjúkraþjálfun staðarins, ásamt leik-
fangasafni og tómstundum, með
opið hús til að kynna starfsemi sína.
..........♦ ♦ ♦-----
Alls engin
hætta var
á ferðum
- segir flugstjórinn
sem hætti við lend-
ingu vegna ruðnings-
tækis á brautinni
„ÞAÐ VAR alls engin hætta á
ferðum, heldur fórum við auka-
hring, eins og svo oft er gert, til
að fyllsta öryggis væri gætt,“
sagði Ingimar Sveinbjörnsson
flugstjóri. Hann stýrði þotunni,
sem var látin hækka flugið að
nýju fyrir lendingu á Keflavíkur-
flugvelli á fimmtudagsmorgun,
þar sem snjóruðningstæki var á
vellinum.
Ingimar sagði að tækið hefði
verið á leiðinni út af brautinni og
vélin hefði ekki farið á það, þó hún
hefði lent. „Það kemur oft fyrir að
menn fari aukahring fyrir lendingu,
til dæmis vegna vindhviðu, vegna
þess að öryggiskröfur eru svo
strangar. Hins vegar var alls engin
hætta á ferðum og óþarfi að hafa
um þetta mörg orð,“ sagði Ingimar
Sveinbjörnsson flugstjóri.
FYRIR
Ævintýraleg
saga úr
furðuheimum
í Glerfjallinu lenda Gúndína og
Halli í ótrúlegum ævintýrum er þau
leita að Frikka sem týndist með dul-
arfullum hætti. Þau kömast m.a. í tæri
við óhugnanleg illfygli og villast í
musteri morgundrauganna. Myndræn
saga og spennandi!
ÓDAR B/EKUR
BESTA
ACÆZIKX Á53E8SSIGI3ESSQgC
filÆPF.IAUJn
FÓLICIÐ!
M Glerfjallið er
önnur barnabók
Aðalsteins Asbergs
Sigurðssonar sem
AB gefur út. Hin fyrri, verðlauna-
sagan Dvergasteinn, hlaut mjög
góðar viðtökur. f Glerfjallinu má
sjá gullfallegar myndskreytingar
Rebekku Ránar Samper.
Adda - barn
allra tíma!
ddubækurnar hafa notið
feikilegra vinsælda frá því
þær komu fyrst út fyrir nokkrum
áratugum. Adda er fyrsta bókin í
þessum frábæra og sígilda bóka-
flokki sem nú er haftn endurútgáfa
á. Velkomin aftur Adda!
FÓLKIÐ í STEINUNUM
@ EinarMár
Guðmundsson
hefur getið sér
afbragðsgott orð
fyrir fullorðins-
sögur sínar og ljóð. Fólkið í stein-
unum er fyrsta bamabók hans og
hér er hann ekki síður í essinu sínu!
Sérlega fsllegar myndir Erlu
Sigurðardóttur prýða bókina. <
>
i
o
00
■ ólkið í steinunum fjallar um ævin-
týraheim bamanna, holtin með stóru
«sm steinunum. Hvemig bregðast bömin
við þegar vinnuflokkamir koma og
Vémrricir í ^da að slétta yfir holtin? Og hvað
. .. taka vinir þeirra, íbúar steinanna, til
UlClKSniim bragðs? Falleg bók fyrir náttúmböm!
1
Hvenær er
maður öðruvísi?
latnsberarnir em aðlaðandi lífverar, öðruvísi en menn í
útliti en hugsa líkt. Hvernig bregðast þeir við þegar ung vatns-
berahjón eignast dreng sem er allt öðmvísi en allir hinir vatns-
beramir? Hann er nefnilega eins og afkvæmi manna - sem
þessar vemr hafa aldrei séð! Bókin er unnin út frá sömu ein-
stæðu hugmynd og samnefnt leikrit Herdísar sem naut mikilla
vinsælda. Vatnsberamir örva í senn ímyndunarafl bama og vekja
þau til umhugsunar um það að allir eiga sinn tilverarétt!
StOILDAB I. ISUItfKAR BARtUUUEKUR
Adda
JL JHL |ENNA OG HREIDAR
■H ■■
Wh Fáir höfundar
eigajafn auðvelt
með að ná til bama
með það sem skipt-
ir þroska þeirra máli og Herdís
Egilsdóttir. Vatnsb’eramir hennar
em prýddir fádæma fallegum mynd-
um Erlu Sigurðardóttur.
é>
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF
- góð bók um jólin!
f| Jennaog
Hreiðar em
meðal ástsæl-
ustu höfunda
íslenskra
bamabóka. Endurútgáfa Öddubók-
anna er gleðiefni öllum þeim sem
unna góðum bókmenntum. Rebekka
Rán Samper myndskreytti Öddu.
HVAR ER
VALLI NÚNA?
LEITUN
LÐ ÖÐRUM
EINS BÓKUM!
ækurnar um Valla hafa farið sigurför víða
um lönd. Um leið og bókin er opnuð hefst æðis-
gengin leit að furðufuglinum Valla sem hefur
einstakt lag á að láta sig hverfa í mannhafinu.
Valli leynist víða: Á ströndinni, íþróttavellinum,
tjaldstæðinu, járnbrautarstöðinni - alls staðar í
iðandi mannþrönginni. Hann ferðast einnig um
tímann og hann má finna ef grannt er leitað á
meðal hellisbúa, Fom-Egypta, Rómverja, víkinga,
riddara, smábænda, Asteka, geimvera og margra
annarra. Bók sem getur reynst erfitt að ná af
pabba og mömmu!
ALMENNA BOKAFÉLAGIÐ H F
- góó bók um jólln!