Morgunblaðið - 12.12.1992, Qupperneq 37
.MOKGUNBIADIÐ LAUGARDAGUR ) 2. DKSKMBKR, 1 &92
í87
Reuter
Vopnaðir Sómalir á verði við „grænu Iínuna“, sem skiptir Mogadishu í tvennt og skilur að liðsmenn
tveggja sómalskra stríðsherra. Tilkynnt var í gær að stríðsherramir hefðu náð samkomulagi um vopna-
hlé og að skipting sómölsku höfuðborgarínnar yrði afnumin og liðsmenn þeirra fluttir á brott þaðan.
Sómalskir stríðsherr-
ar semja um vopnahlé
Mogadishu. Reuter.
TVEIR helstu stríðsherrar Sómalíu tilkynntu í gær að þeir hefðu
náð samkomulagi um vopnahlé sem tæki þegar gildi. Þeir brostu
og féllust í faðma eftir að hafa gengið frá samkomulaginu á fyrsta
fundi sínum eftir rúmlega árs bardaga, sem hafa valdið algjöru
stjórnleysi í landinu, auk þess sem að minnsta kosti 300.000 manns
hafa dáið af völdum hungursneyðar og sjúkdóma.
Talsmaður stríðsherranna, Alis liðsmenn þeirra verða fluttir frá
Mahdis Mohameds og Mohameds
Farahs Aideeds, las fréttatilkynn-
ingu þess efnis að þeir hefðu fallist
á áætlun í sex liðum sem miðar að
því að binda enda á bardagana. í
henni felst meðal annars að vopna-
hlé tekur þegar gildi og vopnaðir
höfuðborginni, Mogadishu. Þeir
samþykktu einnig að stuðla að því
að allir Sómalir hættu að beijast.
Þeir sögðu brýnt að kalla saman
„einingarnefnd" og að „græna
línan“ svokallaða í Mogadishu, þ.e.
mörk yfirráðasvæða þeirra í borg-
£
Ozonlagið yfir Suðurskautinu
Aðstæður til gatmynd-
unar lengur til staðar
San Francisco. Reuter.
VÍSINDAMENN sögðust í gær hafa fengið mikilvægar nýjar
upplýsingar frá bandarískum gervihnetti um ózoneyðingu yfir
Suðurskautlandinu. Aðstæður til gatmyndunar í ózonlaginu
væru þar fyrir hendi rniklu fyrr á árinu en hingað til hefur
verið talið.
Gat hefur myndast í ózonlagið
yfír Suðurskautinu að vetri til, í
september-október, þegar magn
klórgas er þar í hámarki en það
vinnur á ózonlaginu.
Nú sýna nýju rannsóknirnar,
sem gerðar hafa verið við rann-
sóknarstofnun bandarísku geim-
vísindastofnunnarinnar (NASA)
í Pasadena í Kalifomíu, að skil-
yrði til gatmyndunar eru fyrir
hendi þegar í júní. Klórgasið virð-
ist þó ekki vinna mikið tjón á
ózonlaginu fyrr en seinna á ár-
inu, eða síðla í september. Reynt
verður að komast að því með
frekari rannsóknum hvers vegna
svo er.
Vísindamennirnir segja eng-
ann vafa lengur leika á því hvað-
an klórínið, sem étur ózonið,
kemur. Það sé afurð klórflúrkol-
efnis sem notað sé í úðabrúsum
og kælitækjum.
inni, yrði afnumin.
Fundur stríðsherranna fór fram
í sendiráði Bandaríkjanna í Moga-
dishu. Nokkrum mínútum eftir að
tilkynnt var um samkomulagið féll-
ust þeir í faðma og tókust í hend-
ur. Banarískar þyrlur, brynvarðar
bifreiðar og skriðdrekar fylgdu Ali
Mahdi, sjálfskipaðum forseta lands-
ins, til fundarins með Aideed, sem
var haldinn tveimur sólarhringum
eftir að bandarískir hermenn komu
til Mogadishu til að tryggja að
matvæli bærust til sveltandi fólks
í landinu.
Sómalir sögðu að bandarískir
hermenn væru aðeins 40 km austan
við Baidoa, sem nefnd hefur verið
„Borg dauðans". Vopnaðir hópar
Sómala hurfu af götum borgarinnar
um leið og þessi tíðindi spurðust.
Þýskt dagblað hafði í gær eftir
embættismanni franska utanríkis-
ráðuneytisins að þróuðum ríkjum
eins og Þýskalandi bæri „siðferðileg
skylda“ til að aðstoða við að binda
enda á bardagana og hungursneyð-
ina í Sómalíu. Volker Ruhe, varnar-
málaráðherra Þýskalands, kvaðst
aðspurður um þetta vera óánægður
með stjórnarskrárákvæði sem
banna að þýskum hermönnum verði
beitt nema til að verja vamarsvæði
Atlantshafsbandalagsins. „Sómalir
geta einfaldlega ekki beðið eftir
úrskurði þýska stjórnlagadómstóls-
ins,“ sagði Ruhe og bætti við að
þýska stjómin væri að kanna hvort
hún gæti sent hermenn til Sómalíu
til að annast verk sem ekki tengj-
ast hemaði, svo sem vegagerð og
hjúkrunaraðstoð.
Bretar vilja heilsa jólasveminum
FJÖLMARGIR Bretar að jóla-
sveinninn eigi heima í Finnlandi
þvi einungis í þessum mánuði
fara 29 leiguflugvélar fullar af
Bretum í dagsferð til ætlaðra
heimkynna sveinka í Lapplandi.
Á ferðakaupstefnu sem haldin
var í London nýlega naut rauð-
klæddur og hvítskeggjaður jóla-
sveinn, sem flogið var frá Lapp-
landi, mestrar hylli. Snotrar stúlkur
í • þjóðbúningum féllu í skuggann
af sveinka sem hvatti til ferðalaga
til heimaslóða sinna við Rovaniemi.
Kynningarátakið heppnaðist vel
því nú þegar er nær fullbókað í 29
Rovaniemi: Opinber flugvöllur
jólasveinsins, segir á skilti sem
blasir við farþegum sem þangað
koma er þeir stíga frá borði.
þotur sem fljúga munu beint frá
11 flugvöllum víðs vegar í Bret-
landi til jólasveinaflugvallarins í
Rovaniemi.
Þá verður einnig efnt til sérstaks
leiguflugs frá Dublin, írska höfuð-
staðnum, til Rovaniemi. Fyrir utan
leiguflugið býður finnska flugfélag-
ið Finnair einnig upp á pakkaferðir
til Rovaniemi um Helsinki.
Einnig var efnt til dagsferða frá
Bretlandi til jólasveinaslóða í Finn-
landi í desember í fyrra og fóru
5.200 Bretar í þær. Verða þeir fleiri
Bretamir sem heilsa upp á finnska
jólasveininn í ár.
Richard Cheney varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna
Mið- og Austur-
Evrópuríki fái
aðild að NATO
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgfunblaðsins.
Richard Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði
við blaðamenn í Brussel í gær að hann liti svo á að Atlands-
hafsbandalagið (NATO) ætti að leggja meiri áherslu á aðstoð
og samskipti við ríkin í Mið- og Austur-Evrópu í framtíðinni.
Cheney sagði að hann teldi að stefna ætti að aðild nokkurra
þeirra um leið og þau uppfylltu skilyrðin fyrir aðild að NATO.
Cheney sagði að aðgerðir um þess herafla sem þau réðu
Bandaríkjanna í Sómalíu væru
staðfesting þess að allar áhyggj-
ur í Evrópu af því að Bandarík-
in hyggðust draga sig inn í skel
og einangra sig frá umheimin-
um væru ástæðulausar. Hann
sagði að Bandaríkin ætluðu að
standa við skuldbindingar sínar
á alþjóðavettvangi og aðildin að
NATO væri lykilatriði í þeim
efnum.
Cheney kveðst telja mikil-
vægt að NATO búi sig enn frek-
ar undir friðargæslu og aðgerð-
ir til að koma í veg fyrir átök
í framtíðinni. Það væri ljóst áð
hægt væri að komast af með
minni her í framtíðinni en hann
yrði að sama skapi að vera
tæknilega fullkomnari. Það væri
þess vegna mikilvægt að aðild-
arríkin skæru ekki niður fram-
lög sín til þessara mála svo
mjög að það kæmi niður á gæð-
yfír.
Cheney lagði áherslu á nauð-
syn þess að ríkjunum í Mið- og
Austur-Evrópu yrði veitt sama
aðstoð og styrkur og Vestur
Evrópuríkjunum stóð til boða
að lokinni seinni heimsstyijöld-
inni. Hann sagði nauðsynlegt
að veita þeim allan mögulegan
stuðning á meðan lýðræði væri
treyst í sessi í ríkjunum.
Aðspurður sagði varnarmála-
ráðherrann að búist væri við því
að meginhluti bandaríska heraf-
lans í Sómalíu hyrfí á brott inn-
an þriggja mánaða en þá gætu
friðargæslusveitir tekið við.
Hann sagði að gera mætti ráð
fyrir því að sérsveitir ýmiss
konar s.s. í mannvirkjagerð og
samgöngum yrðu í Sómalíu eitt-
hvað lengur á meðan þeirra teld-
ist þörf.
Glæsilegur náttfatnaður
í úrvali -100% silki og bómull
LONDON
Ansturstræti 14