Morgunblaðið - 12.12.1992, Qupperneq 43
M
Össur Skarphéðinsson þingflokksformaður Álþýðuflokks
Mikilvægt að sljóniai'aiid-
staðan haldi vöku sinni
ANNARRI umræðu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1993 lauk kl.
3.05 í fyrrinótt. Þá hafði umræðan staðið yfir í samanlagt 13 klukku-
stundir. Undir lok þessarar umræðu ásakaði Ossur Skarphéðinsson
formaður þingflokks Alþýðuflokks stjórnarandstæðinga um að van-
rækja á næturstundu mikilvægt hlutverk sitt í lýðræðisþjóðfélagi.
Önnur umræða um frumvarp til
fjárlaga hófst kl. 13. í fyrradag.
Karl Steinar Guðnason (A-Rn) for-
maður fjárlaganefndar gerði grein
fyrir þeim breytingum sem nefndi
stendur sameiginlega að. Karl Stein-
ar gerði einnig grein fyrir þeim
breytingartillögum sem meirihluti
nefndarinnar lagði til. Eftir að for-
maður nefndarinnar hafði lokið sinni
ræðu_ tóku aðrir nefndarmenn til
máls.'en þar á eftir aðrir þingmenn
og gagnrýndu stjórnarandstæðingar
frumvarpið og jafnframt stefnu rík-
isstjórnarinnar í efnahagsmálum og
ríkisfjármálum. Fundi var frestað
kl. 19. en þá voru 14 þingmenn á
mælendaskrá.
Kl. 20.30 var aftur tekið til við
umræðuna. Urðu ráðherrar að þola
nokkra gagnrýni fyrir ráðsmennsku
sína í ríkisfjármálum og áherslur
þær sem kæmu fram í frumvarpinu
í fjárveitingum til einstakra mála-
flokka.
Egill Jónsson (S-Al) formaður
landbúnaðarnefndar dró enga dul á
að hann teldi að búvörusamningur-
inn milli Stéttasambands bænda og
landbúnaðarráðherra væru um
margt dýr og óhagkvæmur fyrir
landbúnaðinn. En það væri samt
skelfilegt að bijóta þennan samning.
Og Egill gerði grein fyrir því að
Ríkisendurskoðun teldi verulegar
fjárupphæðir vanta í þetta fjárlaga-
frumvarp til þess að búvörusamning-
urinn teldist uppfylltur. Egill vildi
trúa því og treysta að fjárlaganefnd
myndi taka þessi mál til meðferðar
milli 2. og 3. umræðu og ganga
þannig um að þrifalegra yrði um
Skólamáltíðum og fjölg-
un kennslustímda frestað
Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, hefur lagt fram
frumvarp þess efnis að framlengd verði ákvæði laga nr. 1. frá
23. janúar 1992 um að fresta gildistöku ákveðinna lagagreina í
grunnskólalögum varðandi skólamáltíðir og fækkun nemenda í
bekkjardeildum.
Frumvarp menntamálaráðherra
gerir ráð fyrir að frésta fram-
kvæmd ákvæðis um að nemendur
skuli eiga kost á málsverði á skól-
atíma. Einnig er því slegið á frest
að lengja kennslutíma nemenda í
grunnskóla en grunnskólalögin
gera ráð fyrir að fjölga vikustund-
um um 15 á þremur árum. Á næsta
ári verður miðað við þann kennsl-
utíma sem gert er ráð fyrir í fjár-
lögum 1992 og frumvarpi til fjár-
laga 1993. Ennfremur er því frest-
að að fækka nemendum í 18 í 1.
bekk og í 22 í 3 bekk. Að endingu
er einnig gert ráð fyrir því að fresta
framkvæmd ákvæðis þar sem
kveðið er á um að komið skuli á
skólaathvörfum við hvern grunn-
skóla.
í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið
1993 er gert ráð fyrir sama spam-
aði í grunnskólum og gert er ráð
fyrir í fjárlögum þessa árs. Til að
ná fram spamaði á fjárlögum þessa
árs var lögum um gmnnskóla nr.
49/1991 breytt með lögum um
ráðstafanir í ríkisfj ármálum nr.
1/1992; svonefndum „bandormi",
sem samþykktur var 23. janúar
síðastliðinn að lokinni nokkurri
umræðu. Þær breytingar sem þá
vom gerðar vom tímabundnar og
giltu aðeins fyrir árið 1992 og
skólaárið 1992-93. Nú er talið
nauðsynlegt að framlengja þessi
ákvæði vegna þess spamaðar sem
áformaður er á næsta ári.
Það kemur fram í umsögn fjár-
lagaskrifstofu fjármálaráðuneytis
að ætla megi að frestun á fækkun
nemenda í bekkjardeildum spari
um 55 milljónir króna. Spamaður
vegna frestunar á stundafjölda er
áætlaður um 45 milljónir króna,
samtals 100 milljónir króna.
Þingsályktunartillaga
Tvísköttun lífeyris-
greiðslna verði afnumin
ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um að fjármálaráðherra verði falið að breyta lögum um tekju-
og eignaskatt á þann veg sem leiði til afnáms tvísköttunar af lífeyris-
greiðslum og jafnræðis í skattalegri meðferð vaxtahluta lífeyris.
Fyrir nokkru var útbýtt þings-
ályktunartillögu svohljóðandi: „Al-
þingi ályktar að fela fjármálaráð-
herra að leggja fyrir Alþingi frum-
varp til laga um breytingu á lögum
nr. 75/1981, um tekjuskatt og eigna-
skatt, sem leiði til afnáms tvísköttun-
ar af lífeyrisgreiðslum og jafnræðis
í skattalegri meðferð vaxtahluta líf-
eyrisins." Fyrsti flutningsmaður er
Guðmundur H. Garðarsson (S- Rv)
en meðflutningsmenn eru, Sólveig
Pétursdóttir (S-Rv) og Þuríður Páls-
dóttir (S-Rv).
Flutningsmenn segja í greinargerð
að hér sé um að ræða mikið mann-
réttinda- og réttlætismál gagnvart
þúsundum aldraðra sem hafi með
ráðdeild og sparsemi lagt til hliðar
mikið fé af takmörkuðum tekjum til
að mæta ellinni. Sé þetta mál flutt
í trausti þess að eftirlaunafólk fái
framkvæmd þessa samnings.
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) fór hörðum orðum um rikis-
stjórnina og stjórnarflokkanna. M.a.
um meint svik á búvörusamningn-
um. Steingrímur gerði og grein fyrir
nokkrum breytingartillögum sem
Alþýðubandalagsmenn stóðu að,
m.a. tillögu um að veita 10 milljónum
'króna til rannsókna á hrygningu og
klaki þorsks. Steingrímur innti eftir
afstöðu og áliti Össurs Skarphéðins-
sonar (A-Rv) formanns þingflokks
Alþýðuflokks og doktors í hrygning-
arfræði fiska.
Össur Skarphéðinsson vildi fá að
að njóta þessa spamaðar, lífeyris-
greiðslnanna, með sama hætti og
aðnr sparifjáreigendur.
Á 113. löggjafarþingi, 1990-91,
var samþykkt þingsályktunartillaga
svipaðs eðlis og nú er fram lögð.
Flutningsmenn vitna til greinargerð-
ar þeirrar tillögu en þar segir m.a:
„Afar brýnt er að afnema það rang-
læti sem viðgengst í skattalegri með-
ferð iðgjalda til lífeyrissjóðanna
ásamt því hvemig lífeyrisgreiðslur
frá sjóðunum valda lækkun greiðslu
tekjutryggingar frá Tryggingastofn-
un. Þannig má í raun segja að ið-
gjald sjóðfélaganna til lífeyrirsjóð-
anna sé skattlagt í þrígang, fyrst
iðgjaldjð, síðan greiðslur frá sjóðun-
um og hvemig þær valda skerðingu
tekjutryggingar frá Tryggingastofn-
un sem auðvitað er líka skattlagn-
ing.“
vita nánar hvernig
væri fyrirhugað að
verja þessum fjár-
munum. Stein-
grímur sagði að
Hafrannsóknar-
stofnun hefði sam-
ið ágæta rann-
sóknaráætlun fyrir
þetta verkefni.
Eftir þessi svör
sýndist Össuri til-
lagan allrar athygli verð, enda væri
hann mikil áhugamaður um æxlun-
artækni þorskfisks.
Össur taldi hins vegar að gagn-
Össur
Skarphéðinsson
rýni Steingríms J. Sigfússonar á rík-
isstjórnina og stjómarflokkana hefði
verið nokkuð vanstillt. En hann vildi
þó leggja áherslu á mikilvægi þess
hlutverks stjómarandstöðunnar í
virku lýðræði að gagnrýna og veita
aðhald. En nú lægi honum við að
segja að allt loft væri úr stjórnarand-
stöðunni að Steingrími J. Sigfússyni
frátöldum. Á þessari næturstund var
honum spurn hvar stjómarandstað-
an væri. Lægi hún á bekkjum í þing-
húsinu eða væri hún horfín heim og
svæfi? (Um þetta leyti vom 5 stjórn-
arandstæðingar og 5 stjómarliðar í
þinghúsi. Innsk. blm.).
Kl. 3.05 voru ekki fleiri á mæl-
endaskrá og sleit Valgerður Sverr-
isdóttir þingforseti þá fundi. Auk
þingforseta voru þrír aðrir þingmenn
í þinghúsinu. Flokkssystkini Val-
gerðar í flokki Framsóknar, þau
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne)
og Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl).
Einn þingmaður var úr stjómarliði,
Össur Skarphéðinsson (A-Rv).
Við atkvæðagreiðslu í gær var
tillaga Alþýðubandalagsmanna um
fjárveitingar til rannsókna á hrygn-
ingu og klaki þorsks kölluð til baka
til 3. umræðu.
Tveir stjórnarliðar greiða
atkvæði með stjómarandstöðu
TVEIR Alþýðuflokksmenn studdu breytingartillögu frá stjórnarand-
stöðu við atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarp ársins 1993. Rann-
veig Guðmundsdóttir (A-Rn) og Össur Skarphéðinsson (A-Rv) þing-
flokksformaður Alþýðuflokksins eru þvi andvíg að færa innritunar-
gjöld eða skólagjöld framhaldsskóla sem sértekjur í fjárlögum. Ólafur
G. Einarsson menntamálaráðherra hins vegar telur að einungis sé
verið að færa innheimtu sem lengi hafi viðgengist til bókar.
I fjárlagafrumvarpi ársins 1993
hefur verið gerð sú breyting að inn-
ritunar- og pappírsgjöld em færð
skólunum til tekna undir liðnum
„sértekjur". í greinargerð með frum-
varpi til fjárlaga segir m.a: „Á móti
hækkun rekstrargjalda er gert ráð
fyrir nokkurri hækkun sértekna af
efnis- og innritunargjöldum og er
þá tekið mið af rekstrarreikningum
skólanna. Gert er ráð fyrir að setja
reglugerð um innritunar- og efnis-
gjöld á framhaldsskólastigi. Gjöld
þessi em nú innheimt í öllum fram-
haldsskólum en með reglugerð er
stefnt að aukinni samræmingu og
meiri festu um ráðstöfun þessara
gjalda.
Mörgum stjómarandstæðingum
sýnist að hér sé verið að koma á
með dulbúnum hætti skólagjöldum
fyrir menntun. Og að þetta verklag
samræmist ekki ákvæðum 32. grein-
ar laga um framhaldsskóla: „Ríkis-
sjóður greiðir samkvæmt lögum
þessum rekstrarkostnað þeirra
framhaldsskóla sem ríkið rekur eitt
sér eða í samstarfi við sveitarfélög."
Fjórir þingmenn stjórnarandstöðu
lögðu því fram breytingatillögu við
2. umræðu um _ fjárlagafrumvarpið
1993, Kristín Ástgeirsdóttir (SK-
Rv), Svavar Gestson (Ab-Rv), Val-
gerður Sverrisdóttir (F-Ne) og ólaf-
ur Þ. Þórðarson (F-Vf). Tillaga þing-
mannanna gerir ráð fyrir 49,9 millj-
ón króna framlagi til þess að bæta
framhaldsskólum upp tekjutap sem
þeir yrðu fyrir ef þeir innheimtu
ekki skólagjöld.
Stjómarliðar hafa hins vegar vís-
að til 8. greinar sömu laga: „Skóla-
nefnd ákveður upphæð gjalda er
nemendum er gert að greiða við inn-
ritun í námsáfanga svo sem innritun-
argjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og
nemendasjóðsgjöld. Halda skal bók-
hald um fjárreiður þessar og um
endurskoðun gilda sömu reglur og
um annan rekstur."
í gær voru greidd atkvæði um
breytingartillögur við fjárlagafrum-
varpið að aflokinni 2. umræðu.
Breytingartillögur sem fjárlaga-
nefnd stóð sameiginlega að voru
samþykktar samhljóða eða mótat-
kvæðalítið. Breytingartillögur meiri-
hluta fjárlaganefndar voru sam-
þykktar með atkvæðum stjórnarliða
en stjórnarandstæðingar greiddu
atkvæði gegn eða sátu hjá. Tillögur
stjórnandstæðinga vom allar felldar.
Lengi tíðkast
Nokkrum sinnum voru _greidd at-
kvæði með nafnakalli. Olafur G.
Einarsson menntamálaráðherra
gerði grein fyrir atkvæði sínu. Hann
sagði að í öllum framhaldsskólum
væra innheimt skólagjöld. Þar af
væra þau lægri í fimm skólum held-
ur en lagt væri til; 3.000 krónur.
Og fyrir þessum gjöldum væri ótví-
ræð heimild framhaldsskólalögum.
Því sem nú væri breytt í fjárlaga-
frumvarpinu væri aðeins það að
3.000 krónur á nemanda væru færð-
ar til bókar.
Rannveig Guðmundsdóttir
(A-Rn) gerði grein fyrir atkvæði
sínu. Þingmaðurinn sagði að skóla-
nefndir framhaldsskólanna hefðu
haft heimildir til að innheimta
greiðslur frá nemendum sem hefðu
að hluta til gengið til nemendafélaga
og að hluta til í efnisgjöld o.fl. ÞeSs-
ar greiðslur hefðu verið utan við
hefðbundnar sértekjur framhalds-
skólanna eins og þær birtust í fjár-
lögum þar sem t.d. greiðslu vegna
öldungadeilda væri að finna. Rann-
veig benti á að þess vegna hefðu
engar sértekjur verið færðar í fjár-
lögum á skóla með hefðbundna
kennslu. En nú væri í fyrsta sinn
færðar sértekjur á slíka skóla.
- Nú væru þau rök færð fram að
eingöngu væri verið að færa inn á
fjárlög þær greiðslur sem fram að
þessu hefðu verið innheimtar og
væri því ekki um skólagjöld að ræða.
Það hlyti því að vera rökrétt að
álykta að þau útgjöld sem þessar
greiðslur hefðu gengið til, væri þá
jafnframt að finna í útgjaldalið fyrir
viðkomandi skóla.
Grundvallaratriði
Rannveig sagðist vera andvíg
þessari uppfærslu í fjárlögum. Hún
liti svo á að með því að taka inn á
íjárlög ríkisins sértekjur fyrir alla
framhaldsskólana og binda upphæð-
ina við nemendur, væri verið að stíga
afdrifaríkt spor í þá átt að hér eftir
verði innheimt skólagjöld, í bókstaf-
legri merkingu þess orðs í þeim al-
mennu skólum landsins sem fram-
haldsskólarnir væru.
Rannveig sagði að hún dæmdi það
svo að hér væri um grandvallar-
atriði að ræða. Eini möguleiki sinn
í þessari stöðu væri að styðja tillög-
una. Enda liti hún svo á að ef tillag-
an yrði hún samþykkt yrði sá kostn-
aður sem tengdist þessum greiðslum
felldur út úr frumvarpi fyrir 3. um-
ræðu. Hér væri um að ræða inn-
og útgreiðslur sem ekki hefðu verið
áður verið á fjárlögum.
Fleiri þingmenn gerðu grein fyrir
atkvæði sínu. T.d. Steingrímur J.
Sigfússon (Ab-Ne) og Svavar
Gestsson (Ab-Rv) sem fagnaði stuð-
ingi Rannveigar, sögðu að í fjárlaga-
framvarpinu væri haldið út á þá
braut að skíra skólagjöld sértekjur.
Hér væri á ferðinni ólögleg gjaldtaka
sem ætti að renna til almenns rekstr-
ar framhaldskólanna. Gunnlaugur
Stefánsson (A-Al) hins vegar taldi
að i fj árlagafrumvarpinu væri verið
að laga rekstur framhaldsskólanna
að almennri bókhaldsvenju. Inn-
heimta innritunargjalda hefði við-
gengst lengi. Hér væri það staðfest.
Tillaga stjórnarandstæðinga var
felld með 32 atkvæðum gegn 26.
Auk Rannveigar Guðmundsdóttur
greiddi annar stjórnarliði atkvæði
með tillögunni, Össur Skarphéðins-
son (A-Rv) formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins.
Aðlögnn búvörulaga
að búvörusamningi
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
hefur lagt fram á Alþingi frum-
varp til breytinga á búvörulög-
um. Tilgangur frumvarpsins er
einkum sá að gera lagabreyting-
ar í framhaldi af búvörusamn-
ingi um stjórnun mjólkurfram-
leiðslu.
í búvörusamningnum felst með-
al annars sú breyting að ríkið
hættir að greiða útflutningsbætur
vegna mjólkur. Horfið er frá verð-
ábyrgð ríkissjóðs á umsömdu
magni mjólkur og í stað niður-
greiðslna á heildsölustigi koma
beinar greiðslur til bænda.
Þá er í frumvarpinu lagt til að
fallið verði frá innheimtu verðmiðl-
unargjalda nú um áramótin, en
gjöldin verði þó innheimt lengur
að því marki sem nauðsynlegt er
til að uppfylla tilteknar skuldbind-
ingar Verðmiðlunarsjóðs við úreld-
ingu mjólkursamlaga og niður-
færslu fullvirðisréttar. Verðmiðl-
unargjald er nú tæplega 4%. í stað-
inn er gert ráð fyrir sérstöku gjaldi
til að jafna flutningskostnað og
numið geti allt að 1%.