Morgunblaðið - 12.12.1992, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
51
unglingspilta varð ekki skýrð með
sölu bjórs, heldur juku þeir drykkju
á sterku áfengi um allt að 40% á
því ári sem byijað var að selja bjór.
Unglingamir drukku einnig oftar
áfengi eftir að farið var að selja
bjór og urðu oftar dmkknir. Fyrstu
rannsóknir sýna því ekki að bjórinn
hafi haft þá hugarfarsbreytingu
sem talsmenn hans væntu, er þeir
spáðu að fólk myndi hverfa frá
sterku drykkjunum og drekka frek-
ar bjór. Sú þróun sem kannanimar
leiddu í ljós hjá unglingspiltum
hlýtur að teljast uggvænleg. Mikil-
vægt er að fylgjast með þróun
neyslunnar til þess að meta áhrif
þeirra breytinga sem hafa orðið á
aðgengi áfengis í þjóðfélaginu og
áhrifum þeirra á nýja neytenda-
hópa.
Þetta sýnir að ekki er nóg að
skoða sölutölur fýrir áfengi, héldur
þarf að fylgjast með hvemig neysl-
an er í einstökum hópum. Því er
nauðsynlegt að fylgja eftir rann-
sóknum og kanna hvort hlutur
unglinga í heildameyslunni hefur
breyst aftur eftir að dró úr athygl-
inni sem áfengi fékk í þjóðfélaginu
á meðan verið var að koma bjórnum
inn.
íslenskir unglingar nota áfengi
þegar þeir em að skemmta sér með
vinum sínum, í heimahúsum eða
niðri í bæ. Meðal eldri pilta jókst
drykkja á veitingahúsum eftir að
farið var að selja bjór. Unglingam-
ir gera ekki greinarmun á áfengis-
neyslu og ölvun og em þau viðhorf
í samræmi við hefðbundnar
drykkjuvenjur íslendinga.
Nú em liðin þijú og hálft ár frá
því að byijað var að selja bjór á
Islandi og nýjabmmið ætti að vera
farið af. Því er tímabært að endur-
taka kannanir á áfengisneyslu til
þess að sjá hvort bjórinn hefur
valdið varanlegum breytingum á
drykkjuvenjum íslendinga eða
hvort eingöngu var um að ræða
tímabundið ástand.
Höfundur er sálfræðingur á
geðdeild Lnndspítnlans og vinnur
að rannsóknum á áfengisneyslu.
skák langa einvígisins veturinn
1984—85 þegar Karpov nægði
einn sigur í viðbót til að halda titl-
inum. Nú er hins vegar vinsælla
áð skipta upp á d4 í 10. eða 11. leik.
11. Rf5 - Bxf5 12. exf5 - exf4
13. Kbl - d5 14. Bxf6 - Bxf6
15. Rxd5 — Be5 16. Bc4
Karpov Iék 16. g3 sem er bit-
laust.
16. - b5 17. Bb3 - a5 18. a3 -
Öe8?
Veikingin á f7 á eftir að reyn-
ast svarti þung í skauti. Endataflið
eftir 18. — Dg5 19. g3! — fxg3
20. Dxg5 er varasamt fyrir svart,
svo e.t.v. ætti hann að reyna 18.
— Kh8. Xivjakov tekst strax að
notfæra sér mistökin.
19. f6! - Bxf6 20. Dxf4 - Be5
21. Df2 - Ha7
22. Rb4 - axb4 23. Hxd8 -
Hxd8 24. Dc5 — bxa3 25. Hel!
Tivjakov sér við drottningarfóm
svarts. Það var hvorki fysilegt að
leika 25. Dxc6? — axb2 26. Ba2
- Hda8 né 25. bxa3? - Hxa3
25. - Hd6 26. bxa3!
Nú hrynur svarta staðan. Auð-
vitað fellur hvítur ekki í gildmna
26. Hxe5?? — a2+ og svartur
mátar.
26. - Bxh2 27. Dh5 - Bg3 28.
He8+ - Kh7 29. Bxf7 - g6 30.
Bg8+ - Kg7 31. Df3 — Hf6 32.
Dxg3 — b4 33. axb4 og svartur
gafst upp.
Fischer teflir ekki við Júdit
Polgar
Það verður ekkert úr einvígi
þeirra Bobby Fischers og
ungversku stúlkunnar Júditar
Polgar, a.m.k. ekki í bili. Ekki er
vitað til þess að frekari
taflmennska af hálfu Fischers sé
á döfinni. Hins vegar munu þau
Júdit Polgar og Boris Spasskí tefla
12 skáka einvígi sem hefst 31.
janúar nk. og hefst í Novi Sad í
Serbíu en lýkur í Búdapest.
Verðlaunasjóðurinn verður
eitthundrað þúsund Banda-
ríkjadalir, eða jafnvirði rúmlega
sex milljóna ísl. króna. Enn er það
serbneski auðmaðurinn Jezdimir
Vasiljevic sem stendur straum af
kostnaðinum.
Áður en Júdit Polgar teflir við
Spasskí tekur hún þátt í hinu
árlega Hastingsmóti um áramótin,
ásamt fímm öðram stórmeistumm
og tveimur alþjóðlegum
meisturam.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
...alltafþegar
það er betra
VANDAÐAR VÖRUR Á GÓÐU VERÐI
Heimilistæki hf
hafa tekið við CASIO umboðinu
á íslandi
CASIO vörurnar
fást h]á okkur
og umboðsmönnum
um land allt.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 15 ■ KRINGLUNNI SlMI 69 15 20
Umboðsmenn um land allt
Heildsöludreifing: Bjarni Þ. Halldórsson,
umboðs- og heildverslun,
Skútuvogi 11, Reykjavík, sími 68 92 77.