Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 52

Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992 Karlmennskan er ekkert grín eftirÁsþór Ragnarsson „Karlmenn eru orðnir of hlédræg- ir,“ sagði ein góð vinkona mín við mig um daginn og bætti svo við: „Það er nánast liðin sú tíð að karl- menn fari á fjörumar við konur, nema þá kófdrukknir." Þessi vin- kona mín er einstæð, en saknar samfélags við karlmann og sér ekki aðra leið til að nálgast hann, en taka sjálf fmmkvæðið. Það er vissu- lega brot á „gömlu reglunum" um samskipti kynjanna, þar sem segir að karlmaðurinn skuli taka fmm- kvæðið. Breytingar á samfélaginu og stöðu og hlutverki kynjanna hafa verið svo hraðar á undanförnum ámm, að margir karlmenn em í óvissu um hvort þær reglur sem þeim vom innrættar í uppeldinu séu enn í gildi. Karlmenn fá einnig tvö- föld skilaboð um hegðun sína og þversagnakenndar kröfur umhverf- isins hafa valdið óöryggi og óvissu meðal þeirra. Nú dugar ekki lengur að vera eins og pabbi, góð fyrir- vinna, sterkur og þögull. Kröfur nútímans em aðrar. Karlmenn em ekki lengur eina fyrirvinna heimilis- ins, og hinn „sterki" og þögli maður nær ekki því sambandi við böm sín sem nú er talið æskilegt. Á sama tíma og þess er krafist að karlmað- urinn sýni á sér nýjar hliðar við- kvæmni og veiklyndis, er einnig krafa um styrk. Streitan í þessari óvissu leikur hann svo grátt að hann endar oft með of háan blóðþrýsting, alkóhólisma eða hjartasjúkdóm. Hvemig er að vera karlmaður árið 1992? Em karlmenn að breyt- ast, eða draga þeir sig aðeins lengra inn í skel sína? Ættu þeir að breyt- ast? Hvemig? Er karlmannshlut- verkið hættulegt heilsunni? Drottna þeir yfir konum? Hvemig öðlast drengir karlmennsku? Mundu karl- menn hafa það betra ef þeir inn- rættu sér meira af kvenlegum gild- um? Þessar spumingar leita á marga karlmenn og lýsa vel óöryggi þeirra um stöðu sína og hlutverk. Umræðan um stöðu og hlutverk kynjanna hefur á undanfömum ámm að mestu verið meðal kvenna og mótast af þeim og segja má að þær hafi skilgreint flest hugtök fyr- ir karlmenn á sviði þeirrar umræðu. Hún snerist í fyrstu mest um jafn- rétti á vinnumarkaði og í skóla, sömu laun fyrir sömu vinnu og út- víkkun kvenhlutverksins. Reynt var að örva konur til að leita sér nýrra leiða í menntun, m.a. var reynt að auka þátttöku þeirra í tæknimennt- un og þeim greinum sem vora „karlagreinar". í atvinnulífinu átti hið sama sér stað. Konur vom hvatt- ar til að fara í störf sem eingöngu karlar höfðu sinnt áður, s.s. lög- gæslu, bílstjórastörf og gert var átak í því að þjálfa konur til að koma upp eigin atvinnurekstri. Þrátt fyrir nokkur skipbrot hefur konum orðið talsvert ágengt og staða og hlutverk þeirra em allt önnur en fyrir 20-30 ámm. Það verður þó að taka það fram að þessi breyting hefur ekki eingöngu orðið vegna áhuga kvenna, atvinnulífið þarfnað- ist þeirra út á vinnumarkaðinn og nú krefst einnig fjárhagsstaða heim- ilanna oftast tveggja fyrirvinna. Skilaboð kvenna til karla á undanfömum ámm hafa verið: „Nú er komið að ykkur að breytast.“ Þær segja að það gangi ekki lengur að þegar þær komi heim úr vinnu, taki þær alltaf „seinni vaktina" og beri ábyrgð á uppeldinu og heimilisstörf- unum. Þær hafa vakið athygli á kynferðislegri misnotkun og heimil- isofbeldi, þar sem gerendur em flestir karlar og krafist að þessu linni. Karlar hafa daufheyrst við og þrátt fyrir að í landinu séu karla- klúbbar í alþjóðlegu úrvali hefur enginn þeirra tekið þessi mál til al- varlegrar umfjöllunar. Þeir em flestir uppteknir í umræðu um það hvemig best megi stjóma fyrirtæk- inu/sveitarfélaginu/landinu/heim- inum. Þess á milli friða þeir sam- viskuna með söfnun af ýmsu tagi til að geta gefið sjúkrahúsum ný tæki eða fátækum í Afríku lopa- peysur og lesgleraugu. Hvers vegna tekst ekki að virkja karlmenn í umræðu um þessi mál? E.t.v. má finna ástæðu þess í uppeldi okkar karla og kröfunni um að sýna af okkur karlmennsku. Gerðar em kröfur til okkar og við erum aldir upp til framkvæðis, ábyrgrar rökhugsunar, að taka áhættu, láta ekki í ljós ótta á hættu- stundum, að rýna ekki {eigin tilfinn- ingar og leysa málin frekar með verkum en umræðu. í umræðum karla getur rökfimin verið að- dáunarverð, enda íþrótt í sjálfri sér, en við eigum erfitt með að setja okkur í spor annarra og hlusta á tilfínningaleg rök. Mikilvægi þess- ara karlmannlegu gilda hefur breyst á undanfömum áratugum með breyttri stöðu og hlutverki kvenna án þess að við karlar (og reyndar konur líka) höfum gert okkur fylli- lega grein fyrir þvn Við emm „að heyja rangt stríð“. Staða okkar er ekki ósvipuð stöðu bandarískra her- manna sem komu heim úr Víetnam- stríðinu forðum. Þeir héldu að þeir væm að fóma sér fyrir Bandaríkin og það sem þau standa fyrir, en þegar heim kom var þeim ekki fagn- að og framlag þeirra Iítils virt. Við emm ennþá að reyna að vera góðar fyrirvinnur, taka áhættu (oft óþarfa), vera sterkir og þögulir. Virðingin fyrir þessum eiginleikum karla er ekki sú sama og áður. Af- leiðingin er m.a. aukið heimilisof- beldi, áfengisvandi og að karlar draga sig meira inn í skel sína. Önnur hugsanleg ástæða fyrir áhugaleysi karla á umræðu um breytta stöðu og hlutverk kynjanna er sú að flest í þeirri umræðu er skilgreint af konum. Körlum er gjama stillt upp sem kúgumm kvenna og það er ekki fýsilegt fyrir karlmann að taka þátt í umræðu um hlutverk og stöðu kynjanna út frá þeirri skilgreiningu. Það hefur ekki tekist að koma því inn í þessa umræðu að karlar geta verið „fóm- arlömb“ sinnar eigin félagsmótunar og þarfnast skilnings og samúðar ekki síður en konur. Það er vissulega rétt sem margar konur segja, að nú sé komið að karlmönnum að breytast og að taka umræðuna um stöðu sína og hlut- verk alvarlega. Málin em þó ekki svo einföld að hægt sé að skoða karlmanninn eingöngu sem kúgara og konuna sem fómarlamb. Karl- menn hafa lítinn áhuga á umræðum á þeim nótum og komast heldur ekki í samband við hana með því móti. Fjalla verður um félagsmótun karla á breiðum gmnni, jafnt í upp- eldi sem á fullorðinsámm. Konur em ekki komnar í höfn í jafnréttisumræðunni. Þær hafa t.d. ekki mikið rætt um „völd“ sín yfir karlmanninum/bömunum. Konur hafa tilfínningalega yfirburði og vald samkvæmt því. Þær hafa einnig vald FÓTANUDDTJEKID PUNKTANUDD SEM EYKUR BLÓÐSTREYMIÐ Fzst hjá: Heilsu, Kringlunni, Fjarðar- kaupum, Hellsuvali, Grænu línunni, Heilsuhorninu Aknreyri n.fi. SENDUM í PÖSTKRttFU. BIO-SELEN UMBOÐIÐ SÍMI 76610 Um söngrerk Skúla Halldórssonar eftir Marínó Guðmundsson Dr. Victor Urbancic hafði oft orð á því við mig í tímum að sér þætti alltaf stórmerkilegt hvað margir íslendingar væm tónskáld eða semdu auðveldlega falleg lög. Hygg ég að hann hafi þá einkum haft í huga sönglög, en vafalaust líka stærri tónverk með kór. Hann var yndislegur maður og frábær kenn- Eru jólin verk Satans? Svarið er að finna í bókinni. * „Eg tel það dásamlegt þegar góð tónskáld gefa út verk sín í eigin útsetningu.“ ari, sem fór mjög mildum höndum um nemendur sína, ólíkt sumum öðmm tónlistarkennumm, t.d. þýskum, sem oft móðguðu þá af minnsta tilefni. Eitt sinn kom ég með lítið lag til hans sem ég hafði ekki, raddsett að hætti gamallar kirkjutónlistar eins og ætlast var til, og hljómaði það því öðmvísi. Hann spilaði þetta tvisvar, hlustaði vel og sagði svo: Heldurðu ekki að þetta sé einhver misskilningur? Síðan breytti hann nokkmm nót- um svo þetta hljómaði eins og kirkjutónlist, spilaði verkið aftur og brosti. Svo bætti hann við: Ég er ekkert á móti nútímamúsík og í raun og vem getur enginn sagt hvernig á að semja og útsetja mús- ík. _ Árið 1947 var ég enn í Tónlist- arskólanum í Reykjavík, en var kominn í vaktavinnu og gat því ekki alltaf mætt í tíma. Þá sagði dr. Urbancic að lítið mál væri að bjarga því. Ég skyldi bara hringja Uppboð í Svarto markaðnum kl. 16 í dag Allt frá rafmagnsáhttldum upp í húsgðgn. Gerið stórkostleg kaup. Grýla og jólasveinninn mæta kl. 15 á sunnudag. og koma heim til sín. Og það varð mjög skemmtilegt. Yngsta bam þeirra hjóna var þá enn í vöggu og þau geislandi glöð og hamingjusöm með það. Var sjálfsagt og eðlilegt (fannst mér) að koma inn til okkar með bamið, svo hjónin gætu leikið við það saman um stund og það hló og skríkti. Hafði ég mikla ánægju af þessu líka. Að því búnu héldum við áfram að skoða það sem ég hafði samið á gítarinn, en ég hafði ekki píanó og dr. Urbancic fannst alveg ágætt og skemmtilegt að femndir vom oft með, þar sem þríundir vom algengari. Þó dr. Urbancic væri góður pían- isti og kennari hygg ég að manns- röddin, fínasta, vandasamasta og kannske fullkomnasta hljóðfærið, hafi verið honum kæmst. Á þessum ámm, 1945-48, vom margir í Tón- listarskólanum sem síðar áttu eftir að semja hin ágætustu sönglög. Sumir, eins og t.d. Skúli Halldórs- son, höfðu reyndar spilað undir og samið falleg lög frá unga aldri. Hann lék t.d. úndir hjá Pétri Jóns- syni, svo einhver sé nefndur. Þegar þess er gætt að stór hluti tónlistarflutnings í landinu er ein- mitt söngur, með eða án undirleiks, tel'ég það dásamlegt þegar góð tónskáld gefa út verk sín í eigin útsetningu. Mér fínnst það líka mikið afrek hjá Skúla Halldórssyni að vera byijaður á því og vil ég hvetja þá sem ekki eiga fyrsta heft- ið af söngverkum hans að skoða það vel, því þarna em falleg lög og frábær útsetning á undirleik. Mér finnst alltaf sérstaklega gaman að því hve vel Skúli notar kontra- punkt. Við sem eldri emm þekkjum Skúla Halldórsson auðvitað, en fyr- ir hina yngri sem e.t.v. gjama vilja vita hver hann er, þá er Skúli fædd- Ásþór Ragnarsson „Það er mikilvægt að bæði kynin sameinist um að skilgreina hug- takið VALD og þá um leið nátengt hugtak, OFBELDI. Slík skil- greining gæti orðið einn af hornsteinunum í jafnréttismálum kynj- anna.“ í krafti fegurðar og þess að þær þurfa ekki að taka fmmkvæði í sam- skiptum. Það er mikilvægt að bæði kynin sameinist um að skilgreina hugtakið vald og þá um leið nátengt hugtak, ofbeldi. Slík skilgreining gæti orðið einn af homsteinunum í jafnréttismálum kjmjanna. Höfundur er sálfræðingur. Skúli Halldórsson tónskáld. ur 28. apríl 1914. Hann lærði píanó- leik m.a. hjá Áma Kristjánssyni og Rögnvaldi Siguijónssyni, en lauk námi í hljómfræði o.fl. hjá dr. Ur- bancic 1948. Skúli hefur einnig samið mörg verk fyrir hljómsveit, en hér ætla ég aðeins að segja lítillega frá fyrr- nefndu hefti, 1. hluta söngverka hans. Sigfús Halldórsson teiknaði stafí á kápu, en hana prýðir einnig lítil mynd eftir Mugg, hafmey með hörpu, en þetta 110 bls. hefti er bundið með gormkjöl sem er mikill kostur. í því em alls 32 lög og það sem mér frnnst sérstaklega gaman er að allmörg kvæðin hafa verið þýdd á ensku, þýsku og jafnvel norsku. Ifyrstu lögin em Smaladrengurinn og Smalastúlkan, sem allir kannast við. Þegar ég heyri þessi æskuverk hans dettur mér alltaf í hug myndin af unglingnum við ána á kápu gömlu íjárlaganna. Hann notar gjaman vísur eftir skyldmenni sín, Jón Thor- oddsen og Theódóm Thoroddsen, en líka ljóð eftir Öm Amarson, Sigurð Grímsson, Vilhjálm frá Skáholti, Tómas Guðmundsson, Guðmund Böðvarsson, Hannes Pétursson,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.