Morgunblaðið - 12.12.1992, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ IJVUGARDAGUK 12. DESEMI3ER 19þ2
Mezzoforte
á gömlum
slóðum
Jass
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðjón Guðmundsson
ÁHEYRENDUR hylltu félagana
í Mezzoforte í lok tónleikana á
Tveim vinum sl. fimmtudagskvöld
og slepptu þeim ekki af sviðinu
fyrr en þeir höfðu leikið tvö auka-
lög, Garden Party og Rockall. Þar
með lauk fyrstu tónleikum sveit-
arinnar í Reykjavík í rúm þijú ár,
frábærum tónleikum góðra tón-
listarmanna.
Efnisskráin var að mestu byggð
upp af lögum sem hljómsveitin
hefur áður gefíð út, en einnig
voru flutt lög af sólóskífu Friðriks
Karlssonar, Point Blank. Mezzo-
forte er nýkomin úr tónleikaferða-
lagi frá Noregi, þar sem hún á
sér dyggan hóp aðdáenda. Hún
var því vel slípuð fyrir tónleikana
á Tveim vinum og keyrði áfram
prógrammið af krafti.
Með þeim félögum, Eyþóri
Gunnarssyni, Jóhanni Asmunds-
syni, Friðriki Karlssyni og Gunn-
laugi Briem lék norski saxafón-
leikarinn Kare Kalve. Hann féll
vel inn í heildarmyndina og stóð
fyllilega fyrir sínu í sólóköflum.
Tónlist Mezzoforte í gegnum
árin er uppfull af fallegum laglín-
um en aðalsmerki sveitarinnar er
þéttur rytmaleikur og góður
spuni. Tónleikarnir hófust á Hitc-
hiker og Fjörkippum af Mezzó 4.
Síðan var keyrt á Expressway af
næstsíðustu hljómplötunni, Play-
ing for time. Hratt fönkbítið í
þessu magnaða lagi fékk hárin til
rísa. Eitt af bestu lögum Mezzo-
forte, að mati þess sem þetta rit-
ar. Jóhann sýndi hve flinkur raf-
bassaleikari hann er og fékk unga
bassanemendur sína í salnum til
að standa á öndinni í sólóköflum.
Friðrik er rokkaðri en áður í sínum
sólóum en á það enn til að vera
rómantískur, eins og í ballöðu
sinni, GK-straumar, sem var eina
nýja lagið á tónleikunum. Eyþór
stendur næst djassinum í sínum
spuna. Hann var með heilt safn
af sándum innbyggt í hljóðgervil
sinn og hljómaði vel.
Gaman hefði verið að heyra
meira af nýju efni frá Mezzoforte
á tónleikunum, en alltof lítið fór
fýrir því. Einlægir Mezzoforte-
aðdáendur þó huggað sig við það
að sveitin er komin saman á ný,
og miðað við orð Jóhanns Ás-
mundssonar ætla þeir ekki aftur
að láta líða jafnlangan tíma á
milli tónleika. Einnig það að
Mezzoforte ætlar að gefa út nýja
plötu, líklega á seinnihluta næsta
árs.
Jólasveinarnir munu
skemmta í Kringlunni
JÓLASVEINARNIR eru að koma
til byggða og á sunnudaginn
verður flokkur jólasveina í
Kringlunni og munu þeir
skemmta kl. 13.30 og 14.30.
Verslanir í Kringlúnni verða
opnar lengur nú um helgina. í
dag, laugardag, er opið til kl. 18
og á morgun, sunnudag, verður
opið frá kl. 13 til 17.
Á sunnudaginn verður opið í
Kringlunni og jólasveinar verða á
ferðinni í húsinu og skemmta þeir
kl. 13.30 og 14.30. Á vegum versl-
ana verða bóka- og plötukynningar
og m.a. munu Jet Black Joe og
Bubbi Morthens flytja 2-3 lög.
Einnig verður tískusýning kl. 15.15.
Þetta er annar sunnudagurinn í
desember sem allar verslanir og
veitingastaðir Kringlunnar eru opn-
ar. Verslanimar verða opnar frá
kl. 13 til 17 en veitingastaðirnir
verða opnir lengur.
Nýtt greiðslukortatímabil hófst
hjá flestum fyrirtækjum í Kringl-
unni þann 10. desember. Vörukaup
sem gerð eru nú út á kort koma
því til greiðslu í byijun febrúar,
Viðskiptavinir geta um helgar til
jóla nýtt bílastæði í nágrenni
Kringlunnar. Heimilt er að leggja
á lóð Verslunarskólans og norðan
við Útvarpshúsið. í dag, laugardag,
verða starfsmannastæði Kringlunn-
ar austan við húsið einnig rýmd og
viðskiptavinir geta lagt bílum sínum
þar.
--..-.+-»-»----
Aðventu-
kvöld í Að-
ventkirkjunni
AÐVENTUKVÖLD verður í Að-
ventkirkjunni í Reykjavík á
sunnudagskvöld kl. 20.
Kirkjukór Aðventkirkjunnar í
Reykjavík syngur undir stjórn
Krystynu Cortes. Einsöngur, tví-
söngur og almennur söngur. Hug-
leiðingu flytur Laura Scheving
Thorsteinsson, hjúkrunarfræðing-
ur. Kveikt verður á kertum meðan
sunginn verður sálmurinn Heims
um ból. Boðið verður upp á heitt
súkkulaði og piparkökur á eftir.
Allir eru velkomnir.
JOLAMALTIÐ
Þá er það jólamáltíðin, sú máltið sem allir leggja mikla alúð
við. Yfírleitt hafa fjölskyldur komið sér upp hefðum með
matinn á aðfangadagskvöld. En þegar bömin fara að
búa, verða stundum árekstrar, þar sem bæði vilja hafa
matinn hennar mömmu.
Ég er ein af þeim sem ólst upp upp við rjúpur á aðfangadags-
kvöld, en ég giftist manni, sem ekki gat hugsað sér að borða rjúp-
ur, enda mikill fuglavinur. Ég gat hæglega skipt um og borðað
ánnað en ijúpur. Fyrir nokkram áram dvaldist skosk stúlka hjá
okkur og hún átti ekki orð til að lýsa hneykslan sinni á því að ég
borðaði þennan fallega, gæfa fugl. Hún átti heima í stóru skógar-
svæði á Norður-Skotlandi, þar sem pabbi hennar var skógræktar-
stjóri. Ég er nú komin á þá skoðun, að við eigum að láta þennan fugl
í friði, við höfum nóg annað að borða.
Hins vegar fínnst mér allt í
lagí að borða þá fugla, sem við
ræktum til manneldis, svo sem
kjúklinga eða endur, en það er
einmitt pekingönd sem ég ætla
að bjóða upp á í þessari jólamál-
tíð. Forrétturinn verður laxaís,
en ábætisrétturinn trifli. Máltíð-
in er ætluð handa 6. Gleðileg jól.
Laxaís með melónu
250 g reyktur lax
1 hálfdós niðursoðnirtómatar
3 skvettur úr tabaskósósu-
flösku
1 tsk. sítrónusafi
3 blöð matarlím
1 frekar lítil melóna.
1. Takið roðið af laxinum og
fjarlægið öll bein. Setjið í kvöm
(mixara) og malið mjög fínt.
2. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn í 5 mínútur.
3. Takið 1 dl af tómatsafanum
úr dósinni, hitið að suðu, vindið
matarlímið upp úr vatninu, setjið
í tómatsafann og látið bráðna.
Kælið án þess að þetta hlaupi
saman. Setjið saman við laxinn í
kvöminni, setjið tabaskósósu og
sítrónusafa samari við. Setjið í
djúpa skál og fiystið.
5. Skerið hýðið utan af melón-
unni, skerið síðan heila melónuna
í sneiðar þversum. Fjarlægið
steina.
6. Leggið eina melónusneið á
smádisk, skafið laxaísinn upp með
skeið og setjið í hringinn inni i
melónusneiðinni. Setjið steinselju-
grein ofan á til skreytingar.
Fyllt pekingönd
2 endur, um 2 kg hvor
3 lítrar vatn + 1 msk. gróft
salt
3 tsk. sykur
3 tsk. salt
6gráfíkjur
10 döðlur
Vi dl rúsínur
50 g valhnetur
1 dl sherry
2 msk. soyasósa
rifínn börkur af Vi appelsínu
1 meðalstór laukur
6 hvítlauksgeirar
1 msk. matarolía + 1 msk.
smjör fyrir laukinn
2 msk. hunang, 2 msk. smjör
og safí og börkur af Vi
appelsínu til að pensla með.
1. Takið harða stilkangann
af gráfíkjunum, saxið síðan
gróft ásamt döðlum og rúsínum,
valhnetum og rifnum
appelsínuberki. Setjið í skál og
hellið sherry og soyasósu yfír.
Látið standa í 5-6 klst.
2. Afhýðið lauk og hvítlauk,
saxið fínt. Setjið smjör og
matarolíu í pott og sjóðið lauk
og hvítlauk í feitinni við vægan
hita. Má alls ekki brúnast.
Setjið laukblönduna saman við
ávaxtablönduna.
3. Setjið vatn og salt í pott,
sem rétt rúmar endumar. Setjið
endumar í sjóðandi vatnið og
sjóðið við vægan hita í 20
mínútur. Þannig rennur mikil
fíta af þeim. Takið endurnar
úr vatninu, setjið á grind og
látið þoma þar við opinn
glugga. Þerrið þær síðan vel
að utan og innan og nuddið
með sykri og salti að utan og
innan. Setjið síðan fyllinguna
inn í þær. Festið opið saman
með kjötpinnum eða stórum
stoppunálum.
4. Hitið bakaraofn í 150°C,
blástursofn í 130°C. Setjið
endumar í steikingarpott eða
annað ílát með loki, bringan
snúi upp. Setjið 1-2 dl af vatni
á botninn. Steikið í 75 mínútur.
5. Aukið hitann á
bakaraofninum í 210°C,
blástursofni í 190°C. Athugið
hvort bæta þarf vatni í botninn.
6. Blandið saman smjöri,
hunangi og appelsínusafa.
Penslið endumar með því. Setjið
endurnar á grind og steikið
áfram í 30 mínútur. Penslið
öðra hveiju með
hunangs/smjörblöndunni.
Sósan
1. Búið til uppbakaða sósu.
Notið smjör og soð af innyflum
og úr steikingarpottinum, en
fleytið alla fítu ofan af.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKEtSSON
2. Bragðbætið sósuna með
madeira, sherry eða
rifsbeijahlaupi.
Trifli
6 dl ijómabland (mjólk og
i , -1 iu .JlAi hjört-um, Pvi -1 J J drott-iiM þóm. a j. m J61- í myrkr-um næt-ur Ji. JlJti J J J
ir r >n ff-VAJi. Æ 1. =r=c=J Kk-i.-v-.-7 u r 1 f-1
v' r'trr ir- T'jTb ^ r r r -r--. sól._ Er m nmt retr- ar g^ts-ar storm-ur' J)J) J) f r strið-nr, J J- fi p ■ slend-ur J> JJ) n fl B hjá onsfHO-ar engr-Lu t' P p ÍU r bUð - ur, Og- tj J.|.J' V r r
-i . rj Jii i' > Jl -j-.t-
t~r r dvtn, Oss ti p:p rT P'P r r drjtt-tn^bírt - *> krinf-um P |
)>e(r-ar ljös-10 ds^s-lmi drott- ins blrt - a krlng-um giAÍ.-! J skin, Oss J J •fe=.V= skin.
ijómi til helminga)
Vi 1 vanillustöng
3 msk. sherry
7 eggjarauður
4 eggjahvítur
3'/2 msk. sykur
8 blöð matarlím
u.þ.b. 150 g
möndlumakkarónur,
íslenskar, þær eru betri
1 Vi dl góð jarðarbeijasulta
Vi hálfdós niðursoðin
jarðarber
J Vi dl af sherry til viðbótar
fersk jarðarber til
skreytingar.
1. Setjið makkarónukökur í
þunnt lag á botninn á flatbotna
skál. Hellið 1 Vi dl af sherry
yfir og látið blotna vel.
2. Meijið dósajarðarberin
lauslega með gaffli og setjið
saman við sultuna. Setjið yfír
markkarónukökurnar.
3. Hrærið eggjarauðprnar
með sykrinum.
4. Hritið ijómablandið,
kljúfíð vanillustöngina og skafíð
úr henni saman við. Látið sjóða,
hellið þá ögn af ijómablandinu
saman við eggjahrærana, takið
pottinn af hellunni á meðan.
Bregðið aftur á hitann og látið
þykkna án þess að sjóða. Hafið
hröð handtök og hrærið stöðugt
og hratt í og setjið pottinn ofan
í kalt vatn í eldhúsvaskinum á
meðan. Setjið sherry saman við.
5. Leggið matarlímið í bleyti
í kalt vatn í 5 mínútur, vindið
síðan úr vatninu og bræðið í
íláti yfír heitu vatni. Hellið því
síðan í mjórri bunu út í
mjólkurblönduna. Látið kólna
þar til þetta er við að hlaupa
saman, en hellið þá yfir það sem
er í skálinni. Látið standa í
kæliskáp í minnst 6 klst.
6. Skreytið með þeyttum
ijóma og ferskum jarðarbeijum,
þegar borið er fram.