Morgunblaðið - 12.12.1992, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
,c.-j-'U /L-iLj'UirLUí L; ?'• l~T'Pn-rtA) )Á.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Meðleigjandi óskast
(„Single White Female“).
Sýnd í Stjörnubíói. Fram-
leiðandi og leikstjóri: Bar-
bet Schroeder. Handrit:
Don Roos, byggt á sam-
nefndri bók Johns Lutz.
Aðalhlutverk: Bridget
Fonda, Jennifer Jason
Leigh, Steven Tobolowsky,
Steven Weber, Peter Fri-
edman.
Laugav*9i 45 - s. 21 25
í kvöld:
NÝ DÖNSK
Miðvikud. 16. des.
ORGILL
Fimmtud. 17. des.
K.K. BAND
Föstud. 18. des.
STJORNIN
IMIUMMIl
c'V'illllhll I llll
Laugard. 19. des.
DEEP JIMI
AND
ZEP CREAMS
Þorláksmessa:
JÓLABLÚS
VINA DÓRA
Annar íjólum:
SÍÐAN
SKEIN SÓL
Gamlárskvöld:
Auglýst síðar.
Nýársdagur:
SNIGLA-
mm
2. janúar:
BOGOMIL FONT
OG MILLJÓNA-
MÆRINGARNIR
Það er snilldarbragur á
verkum leikstjórans Barbets
Schroeders hvort sem hann
er að fjalla um útúrsukkað
rónalífið í ræsinu (Barflugan)
eðaúrkynjunþotuliðsins(„Re-
versal of Fortune") eða þá
glímir við sálfræðitryllinn
eins og hann gerir í myndinni
Meðleigjandi óskast eða
„Single White Female“, jóla-
mynd Stjörnubíós í ár. Mynd-
imar sýna ótrúlega fjölhæfni
og gera Schroeder að einum
athyglisverðasta og besta
leikstjóra Bandaríkjanna í
dag, ekki síst þessi nýjasta
sem er ógnarspennandi, frá-
bærlega leikin og meistara-
lega mynduð og uppbyggð
saga um tvær stelpur sem
leigja saman íbúð fram í
rauðan dauðann.
Þær eru einstaklega vel
leiknar af tveimur ungum og
upprennandi leikkonum, sem
eiga glæsta framtíð fyrir sér
í Hollywood ef marka má
þessa mynd og eru reyndar
af annarri og þriðju kynslóð
leikara. Bridget Fonda (dóttir
Peters) segir upp kærast-
anum sínum og auglýsir eftir
meðleiganda. Einn umsækj-
andanna er Jennifer Jason
Leigh (dóttir Vic Morrows)
og hún flytur inn til Bridget.
Brátt taka alvarlegir atburðir
að gerast sem rekja má til
Leigh og þegar Bridget tekur
aftur saman við kærastann
sinn og Léigh er orðin fyrir
snýst hún öndverð gegn því
með afleiðingum sem eiga
eftir að draga þig fram á
sætisbrúnina og halda þér
þar á ystu nöf.
Efnislega á myndin nokk-
uð sameiginlegt með spennu-
myndunum Höndinni sem
vöggunni ruggar og Frið-
helgin rofin því eins og þær
íjallar hún um heimilisvin
undir fölsku flaggi; heimili-
svinurinn verður heimilissk-
rímslið. Hann reynir að yfir-
taka líf vinar/óvinar síns,
grafa undan honum, sá grun-
semdum og eyðileggja traust;
taka yfír líf hans hægt en
Vond leigukjör; úr myndinni Meðleigandi óskast, jóla-
mynd Stjörnubíós í ár.
örugglega. Sjálft heimilið er
vettvangur átakanna. Með-
leigjandi óskast er best þess-
ara mynda.
Schroeder vinnur upp úr
safaríku og sérlega vel skrif-
uðu handriti Dons Roos.
Hann er spennuleikstjóri sem
gefur sér tíma í nauðsynlega
uppbyggingu, leggur áherslu
á sterka persónusköpun og
viðkvæm tengsl persóna.
Hann veit að allt veltur á
trúverðugleika í þessari stöðu
ogtrúverðugleiki myndarinn-
ar og þar með spennugafinn
er ekki síst falinn í persónu
Leigh, sem í aðra röndina
vinnur samúð áhorfandans
af því hún er utangarðs að
reyna að komast inn og er
haldin svíðandi sektarkennd
vegna atburðar í æsku, sem
líka er lykill að sálarflækju
hennar. En samtímis er hún
gangandi tímasprengja, sem
maður veit aldrei hvenær
springur. Leigh lýsir frábær-
lega stöðugri hnignun hennar
þar til hún missir eigið sjálf
og tekur upp útlit og klæða-
burð vinkonu sinnar, Bridget,
en það á sér dýpri rök í for-
tíð hennar sem tvíbura.
Bridget er í raun lítið síðri
þótt hlutverk fórnarlambsins
bjóði ekki upp á jafnmikla
möguleika. Hún er með öllu
grunlaus, vill vel en kannski
það hafí alltaf verið um sein-
an fyrir hana að taka á mál-
inu. Allt smellur þetta saman
í æsispennandi lokakafla þar
sem þriðja aðalhlutverkið,
sjálft fjölbýlishúsið, hvar allir
atburðir myndarinnar gerast,
verður æ ógnvænlegra.
Roman Polanski kunni að
nota fjölbýlishús sem vett-
vang spennumyndar. Schro-
eder kann það ekki síður.
Hann skapar í því þykkt og
stigmagnandi andrúmsloft
spennu og óhugnaðar sem
er ekki síst komið á fram-
færi með skammdegisbirtu,
dökkum litum og skuggum
sem boða ekkert gott. Sjálf
byggingin er ógnarleg með
sínum mikla og djúpa stiga-
gangi og myrka kjallara og
íbúðum þar sem auðvelt er
að njósna og leynast.
Hann hefur gert frábæra
spennumynd.
Djass og draumar
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Dingó. Leik-
stjóri Rolf de Heer. Handrit
Marc Rosenberg. Tónbst
Michel Legrand og Miles
Davis. Aðalleikendur Colin
Friels, Miles Davis, Helen
Buday, Joe Petrruzzi,
Bernadette Lafont,Bem-
ard Fresson. FFC. Ástalía
1991.
Árið 1969 verða umskipti
í lífi strákhnokkans Dingós
(Friels) í áströlskum smábæ.
Því djasssnillingurinn Cross
kemur líkt og himnasending
á flugvöllinn þarna úti í miðri
auðninni og trompetleikur
hans hittir drenginn í hjarta-
stað. Hann verður ekki samur
og uppfrá þessu á hann sér
það æðsta takmark í lífinu
að fá að blása með Cross í
París.
Líða nú tveir áratugir og
enn heldur Dingó í bernsku-
drauminn, þorpsbúar henda
gaman að og jafnvel eiginkon-
an. En svo rífur hann sig
uppúr ládeyðunni og heldur
öllum á óvart á fund snillings-
ins í París og þiggur tveggja
SOLIN ER
ÍÁRS
mmm
koMMMA tffta,
FommMRoq
Fiem.
/cuNmmmAÐ
MM
MPPÁAFMÆí/EM
tím?/
LAUGARDAGIHN 12. D
ALDURSIAKMARK 20 ÁRA
áratuga gamalt heimboð
hans.
Dingó er óvenjueinlæg og
aðlaðandi mynd þar sem æv-
intýraljóminn ræður ferðinni
og vendipunkturinn er sú
ákvörðun Dingós að hætta að
gæla við drauma sína og láta
þá rætast. Og sem í ævintýr-
unum gengur allt ljómandi vel
upp, hann hittir áhrifavald
sinn í lífínu og í rauninni
óþarft að segja meira. Þetta
er fallegt ævintýri, afar sak-
laust og endar vel.
Það er gaman að sjá til
snillingsins Davis og tónlistin
þeirra Legrands er -hrífandi.
Friels er geðþekkur leikari
sem kemst vel frá sínu, glæð-
ir hlutverkið hárréttri blöndu
sjálfstrausts og sveita-
mennsku. Handritið er ofur
einfalt og fyrirsjáanlegt, allt
að því barnalegt en það skipt-
ir ekki Svo miklu máli því
myndin er öll í viðfelldum
„næv“-stíl, sem annaðhvort
fellur áhorfandanum í geð eða
ekki. Og það er alveg borð-
leggjandi að enginn nýtur
Dingós nema hann trúi á
drauminn, hafi unun af djassi
og elski ævintýrið.
Vitastíg 3, simi 623137.
Laugard. 12. dos. opid kl. 20 -03
JÓLAGIEDI
Hljómsveitin
PAPAR
Eins og i gær fyrrihluta kvöldsins
ríkir irsk þjoðlagastommning en þegar
á líður nær rokkið yfirhöndinni!
KL. 22-23: ÖL Á HÁLFVIRÐI: 2 fyrir 1
afdælu (HAPPY DRAFTHOUR)
JÓLAGLÖGG OG PIPARKÖKUR A
SÉRTILBOÐI
Aðgangur aðeins kr. 500
Liðveislufól. fá 50% afsl. í boði spari-
sjöðanna gogn framvísun skirt.
Argentina steikhús byður matargest-
um boðsmiða!
TILVALIÐ KVOLD FYRIR ÞA SEM
VILJA NJÓTA JÓLAAÐVENTUNNAR
OG LYFTASÉRUPP!
PÚLSINN -
i enn meira jólaskapi!
BINGQ!
Hefst kl. 13.30
Aðalvinningur að verðmaeti
________100 bús. kr.'
Heildarverðmæti vinninqa um
300 þús. kr.
TEMPLARAHOLLIN
Eiríksgötu 5 —- S. 20010