Morgunblaðið - 12.12.1992, Síða 76
SÍMI 691100,
AÐIÐ, AÐA
\ SÍMBRÉF
691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Hætta er á
að Jökulsá
rjúfí veginn
Grímstungu.
HÆTTA ER talin á að Jökulsá á
Fjöllum hlaupi yfír veginn, því
farið er að hækka verulega í
ánni vegna knapastíflu fyrir neð-
an brúna á þjóðvegi 1.
Mikil snjókoma undanfarið og
frost síðustu daga hafa orðið til
þess, að mikill krapi hefur myndast
á grynningum neðan við brúna, en
áin hefur annars verið auð það sem
af er vetri. Hækkað hefur töluvert
í Jökulsá og hætta talin á að hún
hlaupi yfir veginn. Áin hefði þegar
rofið veginn, ef ekki hefði verið
gerður varnargarður við brúna í
haust.
- Bragi
Golfvöllur
við Korp-
úlfsstaði
FRAMKVÆMDIR við nýjan
18 holu golfvöll í landi Korp-
úlfsstaða hefjast á næsta ári
og á að taka hann í notkun
innan tveggja ára, að því er
fram kom í máli Júliusar Haf-
stein, borgarfulltrúa og for-
manns íþrótta- og tómstunda-
ráðs, á aðalfúndi GR.
Teikningar af fyrirhuguðum
golfvelli GR í landi Korpúlfs-
staða eru nú til sýnis í golfská-
lanum í Grafarholti. Áður voru
hugmyndir uppi um að byggja
völl í Keldnalandi eða á gömlu
sorphaugunum í Gufunesi, en
fallið hefur verið frá því.
Sjá íþróttasíðu, bls. 75.
Heilbrígðisráðherra
Framtíðar-
stefiiu vantar
Sighvatur Björgvinsson, heil-
brigðisráðherra, sagði á ársfundi
Ríkisspítalanna í gær að framtið-
arstefna í uppbyggingu sjúkra-
húsþjónustu hefði ekki verið mót-
uð og væri brýnt að ráða bót á því.
Ráðherra greindi frá því að um-
ræður um nánara samstarf.Landspít-
ala og Borgarspítala hefðu staðið
yfír frá því í haust. Ekki yrði langt
að bíða niðurstöðu.
Sjá bls. 39.
Jólasveinarnir eru komnir til byggða
Morgunblaðið/Kristinn
Eflaust hafa mörg börnin glaðst í morgun þegar þau aðgættu hvort
fyrsti jólasveinninn hefði laumað einhveiju í skóinn þeirra í nótt. Góðu
börnin fengu sitthvað fallegt eða bragðgott, en trúlega hefur einhver
óþekktaranginn fengið skemmda kartöflu í sinn skó.
Ráðherrafundur EFTA í Genf um framtíð Evrópska efnahagssvæðisins
Afar mikilvægtað staðfest-
ingn samnings ljúki án tafar
Þessum orðum er beint til íslendinga, segir utanríkisráðherra
Genf. Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
RÁÐHERRAR annarra EFTA-rílga en Sviss lýstu því yfir á fundi í Genf
í gær að afar mikilvægt væri að staðfestingu samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið yrði lokið án tafar svo samningurinn gæti tekið
gildi eins skjótt og unnt væri á fyrri hluta ársins 1993. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að
þessum orðum væri beint til íslendinga. Samningurinn hefur nú verið
samþykktur á öllum þjódþingum EFTA-ríkjanna nema á Alþingi. Þjóð-
aratkvæðagreiðsla verður um samninginn í Liechtenstein á morgun,
sunnudag. „Ráðherrarnir höfðu áhyggjur af stöðu mála á íslandi,"
sagði Jón Baldvin. „Ég varð að róa þá og fullvissa um að það væri
ástæðulaust að óttast um meirihluta með samningnum á Alþingi."
Efnt var til ráðherrafundarins í
Genf til að ræða þá stöðu sem upp
er komin vegna þess að Svisslend-
ingar felldu EES-samninginn í þjóð-
aratkvæðagreiðslu síðastliðinn
sunnudag.
Jón Baldvin sagði á blaðamanna-
fundi að loknum ráðherrafundinum
að Alþingi myndi væntanlega sam-
þykkja samninginn með 33 atkvæð-
um, 22 yrðu á móti og 8 sætu hjá;
það væri aðeins tímaspursmál hve-
nær af því yrði. „Á elsta þingi Evr-
ópu ríkir hin einstæða og stundum
leiðinlega hefð að takmarka ekki
ræðutíma þingmanna," sagði hann.
Bjöm Tore Godal viðskiptaráð-
herra Noregs sem er forseti EFTA-
ráðsins sagði á blaðamannafundin-
um í gær að ráðherramir vonuðust
til að EES-samningurinn gæti geng-
ið í gildi ekki síðar en 1. júlí 1993.
Fundir árdegis um EES
Ráðherrar í ríkisstjóminni munu
ijalla um niðurstöðuna af fundi ráð-
herranefndar EFTA fyrir hádegi í
dag en Jón Baldvin var væntanlegur
til landsins í nótt. Einnig hefur utan-
ríkismálanefnd verið boðuð til fund-
ar kl. 10 til að fjalla um málið. Er
búist við að utanríkisráðherra gefí
Alþingi síðan skýrslu um niðurstöð-
una eftir hádegi en önnur umræða
á þingi um EES-frumvarpið á að
hefjast kl. 13 í dag samkvæmt dag-
skrá þingsins.
Sjá nánar bls. 35
Alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki telur gármálafrísvæði á íslandi ekki fýsilegan kost
Stofna ber markaðsfyrirtæki
vegna erlendra fiárféstinga
ALÞJÓÐLEGA ráðgjafarfyrirtækið KPMG
Management Consulting sem ríkisstjórnin
réð til að kanna möguleika á stofnun alþjóð-
legs fjármálafrísvæðis leggur til að stofnað
verði sérstakt markaðsíyrirtæki hér á landi
sem hafi það hlutverk að örva erlenda fjár-
festingu í landinu. Ráðgjafarfyrirtækið telur
hins vegar að stofnun Qármálafrísvæðis á
íslandi sé ekki fýsilegur kostur að sinni.
Við athuganir sínar á því hvort mögulegt
væri að stofna alþjóðlegt Qármálafrísvæði hér
á landi komust ráðgjafar KPMG Management
Consulting að raun um að hér á landi eru marg-
víslegar hugmyndir uppi um ný atvinnutæki-
færi i samvinnu við útlendinga. Hins vegar
skortir ákveðna og samræmda stefnu um það
hvemig eigi að laða erlendar fjárfestingar til
landsins. Telja þeir m.a. þörf á stofnun sem
veiti erlendum flárfestum upplýsingar, aðstoð
og ráð. Einnig þurfí hún að geta komið fram
fyrir hönd íslenskra stjómvalda þegar það eigi
við og haft frumkvæði.
Ráðgjafamir telja jafnframt íslenskar skatta-
reglur mjög óaðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta
og þess vegna sé nauðsynlegt að endurskoða
reglurnar með tilliti til þess. Rekja þeir ýmsar
skattaívilnanir sem frland og Noregur beita til
að örva fjárfestingu í atvinnulífi hjá sér. Þá
telja þeir nauðsynlegt að unnið sé skipulega að
því að örva ijármagnsmarkaðinn, bæta fram-
leiðni á honum og efla vöxt hans og þroska.
Ennfremur benda þeir á nauðsyn hagræðingar
í lífeyrissjóðakerfinu. Sjá einnig miðopnu.
DAGAR
TIL JÓLA