Morgunblaðið - 19.12.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
9
Franskirjakkar -pils -
buxur -hnébuxur
frá stœrð 34
l|<r y NEÐST VIÐ Opið virka daga frá 9-18
■ ■iílSlWV DUNHAGA, laugardag 10-22,
[ X S. 622230. sunnudag 13-17.
/----------\
RODIER
30%
desemberafsláttur
aföllum fatnaði.
RODIER
BORGARKRINGLUNNI • SÍMI: 67 80 55
V___________________________/
i
Sérstœð og sígild gjafabók
FÓLKIP Í FIRPINUM
UÓSMYNDIR OG ÆVIÁGRIP LOKABINDI
• Þriðja bindið (lokabindi) er komið út. Verð kr. 3.200.
• 220 Ijósmyndir með æviágripum 297 eldri Hafnfirðinga.
• Bókin fæst á Austurgötu 10, Hafnarfirði. Sfmi 50764.
• Fyrsta og annað bindi enn fáanleg á gömlu verði.
• Öll bindin geyma 612 Ijósmyndir og 750 æviágrip.
Opið í dag, laugardag, frá kl. 10-18.
TEXTI OG MYNDIR: ÁRNI GUNNLAUGSSON
Nýkomin sófasett
og stakir sófar
úr leðri og taui
Teg.: BARBARA 3. I.l.
Teg.: VENERE 2ja sæta.
I Visa-Euro raðgreiðslur.
Ath.: Opið sunnudag frá kl. 14-17
□QH0EH
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SlMI 654 100
Röngleið
að matí ASÍ
Ásmundur Stefánsson
segir í forystugrein Vinn-
unnar:
„Síðastliðin þijú ár hef-
ur í meginatriðum haldizt
breið samstaða um að-
gerðir í efnahagsmálum.
Með heildarsamstöðu
tókst í ársbyijun 1990 að
ná verðbólgunni niður. Á
liðnum vetri lagði ný rík-
isstjóm drög að alvar-
legri atlögu að velferðar-
kéi'finu en valdi eftir
samskipti við verkalýðs-
hreyfinguna að draga
þau áform að mestu til
baka til að ijúfa ekki sam-
stöðuna. Nú í haust þurfti
að bregðast við aðsteðj-
andi vanda sjávarútvegs
og erfiðu atvinnuástandi
í öðmm greinum. Jafnt
fulltrúar ASI sem fulltrú-
ar atvinnurekenda vom
reiðubúnir til samstarfs.
Forsendur ASI fyrir sam-
starfinu vom:
* Gripa til aðgerða tíl
þess að auka atvinnu.
* Lækka vexti.
* Treysta stöðu lág-
Iaunafólks.
* Láta þá sem betur
mega sín bera þyngstu
byrðamar.
* Halda óskertum fé-
lagslegum réttindum í
samningum.
* Herða skatteftMit.
Forseti ASÍ lagði fram
hugmynd um telgujöfn-
unaraðgerðir þar sem
staða láglaunafólks hefði
verið treyst en tekjuhærri
látnir axla byrðamar, svo
og þeir sem njóta vaxta-
tekna og þeir sem hingað
tíl hafa komið sér undan
skattgreiðslum. Ríkis-
stjómin var ekki reiðubú-
in tíl þess að beita sér
fyrir slíkri tekjujöfnun...
Ríkisstjómin vildi held-
ur gengisfeUingu, meiri
almenna skattheimtu,
skerðingu á bamabótum
[innskot: sem trúlega
verður ekki af] og aukna
kostnaðarhlutdeUd al-
mennings vegna lyfja og
Ásmundur Stefánsson
tannlækninga bama og
aldraðra. Ríkisstjórnin
vUdi heldur ijúfa sam-
stöðuna, ijúfa grið lág-
tekjufólks, en ganga að
þeim sem betur mega sin.
Ríkisstjómin veit að það
verður ekki sátt um 7,5%
kjaraskerðingu...
Ríkisstjómin á enn
tækifæri tU að taka málið
upp. Hún getur enn ráðist
í aukna skatflagningu á
hærri tekjur. Hún getur
enn skattlagt vaxtatekjur
og hún getur enn gripið
til öflugra aðgerða gegn
skattsvikum. Hún hefur
valdið og niðurstaðan
ræðst af vilja hennar“.
Staða útflutn-
ingsatvinnu-
veganna
I grein Ásmundar og
Gylfa segir m.a.:
„Ríkisstjómin gerir ráð
fyrir úreldingarsjóði sem
lagt geti fram fjóra millj-
Gylfi Arnbjörnsson
arða króna tíl úreldingar
á húsum, skipum og tækj-
um í sjávarútvegi. Tekna
tíl sjóðins verði aflað síð-
ar með gjaldi á sjávarút-
veginn.
Verkefni þessa sjóðs er
mun þrengra en gert er
ráð fyrir í hugmyndum
ASI og heildarQárhæðir
mun lægri. Óljóst virðist
vera hve miklum árangri
verður náð með sjóði sem
er ekki ætlað að byggja
upp á ný atvinnutækifæri
jafnframt þvi að veita fé
tU úreldingar. Hugmynd-
in var að lögð yrðu drög
að öflugri byggðastofn-
un...
RUdsstjómin hyggst
aðeins efla atvinnu sem
nemur einum þriðja af
því sem gert er ráð fyrir
í hugmyndum forseta ASÍ
og áhrifin af bættri sam-
keppnisstöðu koma lítið
sem ekkert fram þar sem
fyrirtækin mæta sam-
drætti samhUða þvi sem
samkeppnisstaðan batn-
ar. Rétt er að benda á að
þar sem tUganguriim með
aðgerðum ríkisstjómar-
innar er að hluta til sá
að treysta afkomu ríkis-
sjóðs munu ráðstafanir í
fjárlögum auka sam-
drátt. Vaxtalækkun er í
verulegri óvissu og nafn-
vextir munu hækka
vegna aukinnar verð-
bólgu. Háir vextir hindra
því áfram uppbyggingu
atvinnu. Sex prósenta
gengisfelling bætir stöð-
una í sjávarútvegi um
rúm tvö prósent en
hækkar verðlag um þijú.
Þetta er álika mikill bati
á afkomu sjávarútvegs
og fengizt hefði ef þeirri
stefnu hefði verið haldið
til streitu sem mörkuð
var í síðustu kjarasamn-
ingum, að halda verðlagi
hér innanlands undir
þeirri verðþróun sem er
hjá helztu samkeppnis-
löndum okkar.
Að öllu samanlögðu er
óhjákvæmilegt að gera
ráð fyrir vaxandi at-
vinnuleysi..."
Framtíð
óvissunnar
Loks segir:
„Gerðir ríkisstjómar-
innar treysta hvorki
kaupmátt launa né
tryggja afkomu atvinnu-
veganna með viðunandi
hætti. Sú forsenda ríkis-
stjómarinnar að laun
haldist óbreytt á næsta
ári er úr lausu lofti grip-
in, í [jósi þeirrar kjara-
skerðingar sem fyrirsjá-
anleg er. í stað þess að
ve[ja þá leið að halda
áfram þeirri samstöðu,
sem verið hefur um efna-
hagsstefnuna undanfarin
ár, hefur ríkisstjórnin
valið að ijúfa samstöð-
una og stefna þjóðinni
út á braut óvissu á kom-
andi ámm. Þetta leiðir
til þess að stöðugleikan-
um er fómað og þar með
þvi sóknarfæri, sem haiin
hefði getað skapað okkur
í nýrri sókn í uppbygg-
ingu atvinnu."
Af sjónarhóli ASÍ
Ásmundur Stefánsson, fráfarinn for-
seti ASÍ, skrifar leiðara í Vinnuna. í ritinu
er einnig að finna stöðumat Ásmundar
og Gylfa Arnbjörnssonar, hagfræðings
ASÍ. Staksteinar horfa í dag á stöðu
mála gegnum gleraugu nafngreindra höf-
unda.
Pelsjakkar og kápur
í stórum stærðum.
Falleg ný snið.
Pelsfóðursjakkar
og kápur.
Falleg ný snið
í öllum stærðum.
Kirkjuhvoli • sími 20160
Griðslukjör
við allra
hæfi
PEISINN