Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
anasonic
KX-T9000 - Kr. 30.326 stgr.
Þráðlaus sími -10 númera minni
Langdrægni innanhús allt að 200m
Lltanhús altt að 400m.
KX-TR 2395 - Kr. 10.825 stgr.
Sími með símsvara -12 númera minni
Handfrjáls notkun - Veggfesting.
KX-T 2322 E - Kr. 5.680 stgr.
KX-T 2342 E - Kr. 7.400 stgr.
KX-T 2342 E handfrjáls notkun
KX-T 2322 E hálfhandfrjáls notkun
26 númera minni - Veggfesting.
FARSÍMI - Frá kr. 96.773 stgr.
Panasonic farsíminn er léttur og
meðfærilegur, vegur aðeins 4,9 kg
með rafhlöðu. Hægt er að flytja tækið
með sér, hvert sem er, ótal möguleikar
á að hafa símtækið fast í bílnum,
bátnum eða sumarbústaðnum.
HEKLA
LAUGAVE6I 174 - S 695500/695550
KX-T 2365 E - Kr. 10.849 stgr.
Skjásími, sýnir klukku, símanúmer sem
valið er, timalengd símtals - Handfrjáls
notkun - 28 númera minni - Veggfesting.
KX-F50 - Kr. 69.379 stgr.
Telefax, sími og símsvari í einu og sama
tækinu.
PANAFAX UF 121 - Kr. 64.562 stgr.
Telefaxtæki með 10 númera skammvals-
minni - Sendir A4síðu á aðeins 17
sekúndum - í fyrirtækið - Á heimilið.
ALLTAF
TIL í SLAGINN
Brot úr ævisögu Sigurðar Þorsteinssonar skipstjóra
sem Friðrik Erlingsson skráði
Sigurður Þorsteinsson skipstjóri
hefur verið á sjó frá fermingu —
í hartnær hálfa öld. Vaka-Helga-
fell hefur gefið út ævisögu hans,
Alltaf til í slaginn, sem Friðrik
Erlingsson, ungur rithöfundur,
skráði. Morgunblaðið birtir nú
nokkur kaflabrot úr bókinni með
leyfi útgefanda.
Sigurður Þorsteinsson hefur
jafnt kynnst vosbúð og illviðrum á
Islandsmiðum sem mildum vindum
Karíbahafsins. Hann hóf feril sinn
á íslenskum togurum en hefur siglt
um öll heimsins höf á ýmsum fleyt-
um, allt frá litlu björgunarskipi til
risaflutningaskipa og lent í ótrú-
legum ævintýrum á sjó og í landi.
Fastur í Amazon
Eftir að hafa verið stýrimaður
og skipstjóri á strandferðaskipum
á íslandi réð Sigurður sig á Hvíta-
nesið, flutningaskip í eigu íslend-
inga sem var í verkefnum erlendis.
Aðstandendur útgerðarinnar komu
fljótlega auga á æði álitlegt verk-
efni sem enginn virtist hafa áhuga
á að taka að sér. Franska ríkið
leitaði að skipi til að sækja góðvið
úr Amazon-frumskóginum sem
átti að gera tilraunir með til hús-
gagnaframleiðslu. Þeir tóku verkið
að sér og héldu til Suður-Ameríku
og sigldu upp fljótið. Þar komust
þeir að því af hveiju enginn hafði
haft áhuga á verkinu: Þetta var
erfið og áhættusöm sigling. Sig-
urður fór á undan á hraðbát til
að kanna aðstæður og lagði síðan
af stað upp fljótið á Hvítanesinu.
„Siglingin upp ána var mjög
þægileg og allt gekk eins og í sögu.
Af og til sáum við allsnakta indí-
ána inni á milli tijánna en þeir
gáfu sig aldrei neitt að okkur eða
virtu okkur viðlits. Þegar okkur
bar þar að sem verið var að höggva
trén var komið þó nokkurt ijóður.
En um leið og við skriðum fram-
hjá og virtum þetta fyrir okkur
vaknaði ég upp við vondan draum.
Nú þurfti nefnilega að huga að því
að snúa skipinu við. En það var
hægara sagt en gert. Ég áttaði
mig skyndilega á því að áin væri
ekki nógu breið til að snúa því.
Það var það eina sem mér hafði
láðst að athuga.
Sambandslausir við
umheiminn
Ég gætti þess að halda andlitinu
og láta engan sjá hversu mér brá
en bölvaði í hljóði og reyndi að
láta mér detta eitthvað í hug. Ég
vildi ekki að áhöfnin vissi í hvers
lags klípu við værum svo ég þagði
og braut heilann. Ég sigldi í róleg-
heitum eina mílu upp ána til að
athuga hvort þar væri nokkurt
svigrúm en áin var alls staðar jafn-
breið. Trén uxu út fyrir árbakkana
beggja vegna. Nú voru góð ráð
dýr. Annaðhvort varð ég að finna
lausn í skyndi eða við sætum fastir
inni í miðjum frumskóginum, sam-
bandslausir við umheiminn. Þarna
er frumskógurinn svo þykkur að
hann gleypir öll radíóboð og það
var engin leið að ná sambandi.
Eina leiðin virtist vera sú að keyra
á fullri ferð inn í árbakkann, láta
skipið reka aftur til baka og keyra
svo aftur inn í bakkann þar til
svigrúm myndaðist til að snúa þvi.
Þetta lét ég gera og enginn virtist
undrandi á þessari tilhögun því ég
leit að minnsta kosti út fyrir að
vita hvað ég var að gera. Þetta tók
þijá daga og hafðist í rólegheitum
og alveg hávaðalaust. Öllum virtist
þetta vera hið eðlilegasta mál og
ég varð auðvitað guðs lifandi feg-
inn að þetta skyldi heppnast svona
vel. Þegar við komum út úr þykkn-
inu og gátum farið að hlusta á
radíóið fréttum við af morðinu á
Kennedy Bandaríkjaforseta. Þá
voru tvær vikur liðnar frá þeim
atburði en við komum auðvitað af
fjöllum, ef svo má segja.“
Ennið á brúarglugganum
Á sjöunda áratugnum var Sig-
urður á Haferninum, birgðaskipi
íslenska síldarflotans. Veturinn
1968-69 var mikill hafís hér við
land. Þann vetur komu þeir á Haf-
erninum eitt sinn með olíufarm frá
Evrópu, losuðu á Siglufirði, Akur-
eyri og Húsavík en komust ekki
fyrir Melrakkasléttu fyrir ís. Að
lokum lentu þeir í sjálfheldu. „ísinn
þrýsti að okkur frá öllum hliðum
og við gátum ekkert gert. Við vor-
um fastir. Ég svaf ekkert í heila
viku, stóð bara í brúnni og fylgdist
með ísnum þangað til fæturnir
bólgnuðu og hugurinn var gjör-
samlega kominn í hring. Þá fer
maður að hætta að hugsa rökrétt
sem er hættulegt í stöðu sem þess-
ari ... Eitt skiptið hlýt ég að hafa
sofnað standandi því ég hrökk upp
við það að ennið á mér var frosið
fast við rúðu í brúarglugganum.
Ég varð að rífa mig frá og skilja
ennið eftir á rúðunni en gekk með
grisju það sem eftir var ferðar.
Isinn allt um kring náði eins langt
og augað eygði. Upp úr breiðunni
stóðu tveir borgarísjakar sem mér
fannst stöðugt nálgast, líkt og
þeir væru að elta mig.“
Bjarni Þorsteinsson, Sigurður og Guðmundur Bjarnason inni í frum-
skógum Amazon. Hvítanesið er í baksýn.
ERLENDI BOKAMARKAÐURINN
Þúsundir titla af erlendum bókum á ótrúlega lágu verði.
Jólavörur með helmings afslœtti. Opið alla helgina.
ÍÐUNN Forlagsverslun, Bræðraborgarstíg 16, sími 628973