Morgunblaðið - 19.12.1992, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
Á meðan allt lék í lyndi. Thelma og Fredí, fyrrverandi eiginmaður hennar, með börnunum. Anton er
lengst til vinstri, þá Alexander og Valentín og telpurnar, Tina og Victoria.
feta sín fyrstu spor á ferlinum þeg-
ar ég starfaði í London. Ég gleymi
því aldrei þegar henni var fylgt inn
í myndver þar sem ég var að vinna.
Fyrst átti hún að fylgjast með og
taka eftir hvernig ég hreyfði mig
og síðan átti að mynda okkur saman
fyrir franskt tímarit.
Twiggy var þá fimmtán ára og
helst hægt að líkja henni við lítinn
gegnsæjan fugl úr gleri. Hún kom
úr mjög fátækri fjölskyldu og var
átakanlega horuð og föl. Hún hafði
nánast lifað við hungursneyð og bar
þess merki. Svo hræðilega hvít,
æðaber og algjörlega flatbijósta.
Óörugg og afskaplega feimin. Ég
hafði það á tilfinningunni að hún
gæti brotnað. í þokkabót talaði hún
enskuna með sérkennilegum cockn-
ey-hreim. Það var enginn eins og
hún.
Einhver kunningi hennar hafði
fengið þá hugmynd að gera hana
að fyrirsætu og láta hana vekja
athygli fyrir sérstakt útlit sitt. Eg
leiðbeindi henni og sýndi hvemig
hún ætti að bera sig að fyrir framan
myndavélamar. Hún var mjög þakk-
lát fyrir hjálpina. Mér virtist þetta
vera hin elskulegasta stúlka, en
sannarlega gmnaði mig ekki á þeirri
stundu að hún ætti eftir að slá í
gegn og verða fyrirmynd milljóna
stúlkna um heim allan. En Twiggy
varð heimsfræg á augabragði og
allar konur urðu allt í einu að vera
algjörar horrenglur.
I tískunni verður alltaf að koma
fram eitthvað nýtt. Aðra stundina
eiga konur að hafa góðar mjaðmir
og bijóst en þá næstu verða þær
að vera alveg flatar. Þótt konur
hafí löngum haft grannar fyrir-
myndir til að bera sig saman við
var Twiggy-útlitið engu líkt. Sagt
er að megrunarsjúkdómurinn
anorexía, lystarstol, hafi fyrst gert
vart við sig svo um munaði á
Twiggy-tímanum. Löngu eftir að
við unnum saman fékk ég af og til
kveðjur frá henni með fólki sem hún
vissi að ég þekkti. Hún virtist ekki
gleyma mér, enda hlýtur það að
hafa verið eftirminnileg stund fyrir
hana þegar hún var dregin í mynda-
töku í fyrsta sinn, algjör nýgræðing-
ur úr fátækrahverfi sem kunni ekk-
ert fyrir sér í þessum efnum og
hafði aldrei látið sér detta íhug að
starfa sem fyrirsæta. En áður en
hún vissi af var hún orðin milljóna-
mæringur. Twiggy er dæmi um fyr-
irsætu sem var langt frá því að
vera fegurðardís. En hið sérstaka
útlit hennar skapaði henni vel-
gengni. Hún var horaðri en nokkur
önnur og mun lágvaxnari en flestar
fyrirsætur. Hún reyndi síðar fyrir
sér við kvikmyndaleik en náði ekki
mjög langt á því sviði. Þótt hún virt-
ist ekki mikill bógur þegar ég hitti
hana í fyrsta sinn er ég sannfærð
um að hún er greind og hæfileika-
rík, annars hefði hún ekki náð eins
langt og raun ber vitni. Sjálf lét ég
tilleiðast að fara í prufumyndatökur
vegna kvikmyndahlutverks þegar
ég var í London, en hugurinn fylgdi
ekki með. Kvikmyndaleikur hefur
aldrei heillað mig. Mér fannst til-
hugsunin um að þurfa kannski að
kyssa einhveija ókunnuga karlmenn
mjög fráhrindandi.
Umboðsmaður minn í London
vildi að ég færi í prufutöku hjá
ítölsku leikstjórunum og framleið-
endunum Carlo Ponti, eiginmanni
Sophiu Loren, og Antonioni. Þeir
voru þá staddir í borginni og Antoni-
oni var að undirbúa myndina Blow
up. Ég ákvað að slá til, fremur í
gamni en alvöru.
Ég fór að heiman í fínu veðri og
brá mér á hjólið mitt eins og oft
endranær. Ég hafði haft mig til
fyrir væntanlega myndatöku, greitt
mér vel og farðað. Á leiðinni kom
úrhellisrigning og þegar ég komst
loks á staðinn var ekki sjón að sjá
mig. Málningin lak niður kinnarnar
og fína hárgreiðslan hafði rignt nið-
ur.
Carlo Ponti rak upp mikinn hlátur
þegar hann sá útganginn á mér.
Annars var hann mjög vingjarnlegur
og þægilegur. Margar aðrar stúlkur
voru mættar á staðinn og voru allar
uppstrílaðar og fínar. Mér fannst
hálfneyðarlegt að standa þarna
blaut og klesst við hlið þeirra. Ég
var heldur ekki látin gera annað en
að koma fram fyrir leikstjórann og
kynna mig. Verið var að leita að
stúlku í aðalhlutverk myndar sem
fjallaði um samband fyrirsætu og
ljósmyndara. Ég, með minn dökka
drengjakoll, var ekki sú týpa sem
þeir voru að leita að. Sú sem var
valin í hlutverkið var fræg ensk
fyrirsæta, Jane Shrimpton, sem oft
var kölluð Rækjan. Hún var með
ljóst sítt hár niður á bak. Mér hefur
alltaf þótt voðalega stressandi að
koma fram fyrir framan kvikmynda-
tökuvélar. Ef ég hef þurft að tala
í sjónvarpi hef ég haft miklar
áhyggjur af tungumálinu, því ég hef
sífellt verið að læra ný mál og þá
á kostnað íslenskunnar. Það hefur
örugglega líka haft áhrif á að ég
sóttist aldrei eftir kvikmyndahlut-
verki.
Minningar mínar frá London snú-
ast nær eingöngu um vinnu og aft-
ur vinnu. Eg vann frá morgni til
kvölds og var vinnudagurinn oft
12-14 tímar. Ég komst að hjá allra
færustu Ijósmyndurum þess tíma
og fékk himinhácr upphæðir í laun.
Sömu sögu var ekki að segja um
Ole. Hann náði ekki þeim árangri
sem vonir hans stóðu til og fékk
ekki næg tækifæri. Því fór honum
fljótt að leiðast. Þótt hann hefði
sannarlega hæfileika til að ná langt
hafði hann ekki tök á þeirri list að
koma sér áfram. Ákveðna fram-
komu og lagni þarf til að ná á topp-
inn, ekki síst þegar komið er út
fyrir heimahagana og samkeppnin
verður enn harðari. Það er mjög
mikilvægt að kunna að koma sér á
framfæri og kynna sig og vinnu sína
á réttan hátt. Ole tókst það ekki.
Fljótt varð málum þannig háttað
að ég vann fyrir heimilinu á meðan
hann beið eftir verkefnum. Það fyr-
irkomulag reyndi mjög á samband
okkar. Ole átti erfitt með að þola
að ég væri sá aðilinn sem aflaði fjár
og sæi um uppihald okkar. Ég hafði
miklar telqur og markmið mitt var
að safna peningum, því ég vissi að
það gæti komið sér vel síðar að eiga
varasjóð upp á að hlaupa. Dvölin í
London varð ekki ýkja löng, aðeins
tæpt ár. Um mitt sumar 1966
ákváðum við enn að leggja land
undir fót og reyna að koma okkur
á framfæri í háborg tískunnar, Par-
ís. Ole eygði þá von að hann næði
betra sambandi við Frakka en Breta
og þar ætti hann möguleika á meiri
vinnu en í London. Mig langaði til
að reyna aftur fyrir mér í París og
þóttist vita að nú gengi mér betur
en í fyrra skiptið. Allt frá því ég
man eftir mér hef ég verið ber-
dreymin. Mig hefur dreymt drauma
sem ég hef getað túlkað og litið á
sem vísbendingu um hvað ætti eftir
að henda mig. Einnig dreymir mig
fyrir daglátum. Ég held að draumar
SJÁ NÆSTU SÍÐU
frá ÍSLENSKUM
MATVÆLUM
Jóla- / Krydd-
SÍLD
Konfekt-/ Marineruð-
SILD
Hádegis- / Sinneps-
SÍLD
Karrí- ^Hvítlauks-
SILD
Portvíns- / Tómat-
SÍLD
HOLL OG NÆRINGARÍK
'káW
□®\] ÍSLENSK
IMI MATVÆLI
ICEFOOD
Slysavarnafélag íslands
Gjöf á Gjöf, til bjargar mannslífum
Útsölustaðir á höfuðborgarsvæðinu eru: Flestir stórmarkaðir, bókaverslanir, blóma-
búðir, útsölustaðir Lottós, bensinstöðvar Olís og skrifstofa SVFÍ.
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS, sími 627063.
ARGUS/SlA