Morgunblaðið - 19.12.1992, Side 58

Morgunblaðið - 19.12.1992, Side 58
’MÓ'RéÖNBLA'ÐÍÖ LAÖGÁ’RÓA'GÚR íb".1 'DESEMB’ER 1992 58 + Systir mín og mágkona, SOFFÍA ODDNÝ ANDRÉSDÓTTIR, Skipasundi 72, lést í Landspítalanum 17. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Dýrleif Andrésdóttir, Jóhann Helgason, Leirhöfn. + Ástkær móðir okkar, KRISTJANA ALEXANDERSDÓTTIR, Stigahlíð 36, lést í Borgarspítalanum 17. desember. Alla Óskarsdóttir, Daníel Óskarsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EMIL BOGASON, Haðalandi 16, Reykjavík, lést fimmtudaginn 17. desember. Steingerður Halldórsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Bróðir okkar, RAGNARHERMANNSSON cand. ing. chemie, Hraunbæ 90, Reykjavik, lést 15. desember. Jarðað verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. desember kl. 10.30. Systur hins látna. + Elskuleg sambýliskona mín og móðir okkar, ANNA HJÁLMARSDÓTTIR, Varmalandi, sem lést af slysförum 15. desember, verður jarðsungin frá Hvammskirkju mánudaginn 21. desember kl. 14.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á björgunarsveitina Heiðar. Guðmundur Finnsson og börn. + Sonur minn, bróðir okkar og mágur, RÚNAR JÓHANN NORDQUIST, Strandgötu 37 B, Hafnarfirði, sem lést í Borgarspítalanúm 10. desember, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 21. desember kl. 15.00. Fanney Sigurlaugsdóttir, Sigurlaug Rögnvaldsdóttir, Reynir Helgason, Sigþrúður Rögnvaldsdóttir, Reynir Njálsson. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 21. des- ember kl. 13.30. Ólafía Kristjánsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Áslaug Sigurðardóttir, Kári Friðriksson, Sigrún Siguröardóttir, Magnús Torfason, Jón Sigurðsson, Jónina Thorarensen. + Þökkum auðsýnda vinsemd og samúð við andlát og útför föður míns, sr. KÁRA VALSSONAR frá Hrísey. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Elín Káradóttir, Karl Sigurgeirsson og synir. Kveðjuorð * Guðný Amadóttir „í niðamyrkri nætursvörtu upp náðar rennur sól.“ Það reyndu hirðar Betlehemsvalla forðum er óþekktar lífsvíddir opnuðust þeim og engill Drottins stóð hjá þeim skyndilega og dýrð Drottins ljóm- aði í kringum þá, til að boða fæð- ingu frelsarans í borg Davíðs. Leiðarstjama björt leiddi um líkt leyti vitringa svonefnda úr austri, að þeir mættu finna frelsarann, sem þeir þráðu að kæmi og fædd- ist inn í sögu manns og heims, og þeir færðu honum fundnum og nýfæddum gull, reykelsi og mirru. Er ég hugsa nú í þökk og sökn- uði um Guðnýju Ámadóttur, sem lést hinn 5. þessa mánaðar í byrjun aðventu, undirbúningstíma jóla, leitar frásögnin helga mjög á mig og ekki einvörðungu vegna þess að sú bjarta hátíð, sem lýsir upp mannlíf og vetrarmyrkur, er nú í nánd. Ókunnugt var mér um veikindi hennar undangengna mánuði en síðast mun fundum okkar Stellu, en svo var hún nefnd meðal kunn- ingja og vina, hafa borið saman á málverkasýningu Bjargar dóttur hennar í Norræna húsinu fyrir nokkram áram. Hún sýndi þar fín- legar og framlegar myndir, unnar á japanskan pappír. Þá var svipur Stellu sem fyrr heiður og bjartur og yfírbragð hennar allt fágað og fjörlegt. Það lýsti innri ró og yfír- vegun, sem einkenndi hana jafnan, og fór einkar vel við þessar mynd- ir, er vora í senn einfaldar að gerð og nærtækar en leyndu þó á sér vegna fjölbreyttra skirskotana. Sú var tíð að ég hafði komið nær daglega á heimili þeirra Þorsteins Davíðssonar í Faxaskjóli 16, sem var mér þá eins konar „Davíðs- borg“ því Davíð sonur þeirra var mér þá kærastur vina. Það hafði verið sérlega ánægju- legt að líta inn til vinafólksins í Faxaskjóli um jólaleytið, fá að bragða á smákökunum hennar Stellu og vera tekinn nánast sem einn úr ijölskyldunni. Það var hrífandi, að horfa þar, inni í hlýjunni, út um stofuglugga- na móti fjöra og sjó, sem svarraði í kambinum skammt undan og sjá þaðan Reykjanesíjöllin í hvítum skrúða, Keili tignarlegan og Helgafellið — eins og við blasti fagurt jólakort og vera líkt og inni í því sjálfur á þessum góða stað. Þau Stella og Þorsteinn tengd- ust lika jólum með nokkuð sér- stæðum hætti. Þau áttu verslun í miðbænum, sem hét Mirra, og þar fengust ilmsmyrsl margs konar og minnti nafnið á eina af gjöfunum dýra, sem vitringarnir úr austri era sagðir hafa gefið sveininum ný- fædda, er himninstjaman skæra benti þeim á. Innihaldsríkt nafn verslunarinnar sæmdi þeim báðum því þau höfðu miklu að miðla af lífsvisku og skilningi. Stella var enda af gáfu- og andans fólki kom- in. Víðsýni hennar og viska átti sér djúpar rætur, en sú auðmýkt og yfirlætisleysið, sem einkenndi hana, lét ekki á því bera. Jól, ár og dagar hafa margir lið- ið frá því, að við Davíð vorum á unglingsaldri og áttum daglega samleið, sem varð til þess að móð- ir hans Stella varð ein af mínum góðu leiðarstjörnum. Við eram nú orðnir nokkuð + Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför PÉTURS JÓNSSONAR bifvélavirkja. Ingibjörg Jónsdóttir, Kristbjörg Stefánsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar elsku litlu dóttur minnar og barnabarns, ELÍNAR ÓLAFAR HELGUDÓTTUR, Heiðarbóli 8, Keflavík. Helga Jóna Guðbrandsdóttir, Guðbrandur Guðmundsson, Elín Ólöf Jónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU GUNNLAUGSDÓTTUR frá Hallgiisstöðum á Langanesi. Sérstakar þakkir færum við þeim, sem önnuðust hana á hjúkrunar- heimilinu Skjóli. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu, vinum og vandamönnum, er sýndu okkur svo mikla samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, sonar, föður, tengdaföður og afa, KRISTINS STEINGRÍMSSONAR frá Tjaldanesi, Nóatúni 31. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki heimahlynningar Krabba- meinsfélags íslands fyrir þá miklu umhyggju og hlýju, sem það sýndi í veikindum hans, og þann mikla styrk, er þau veittu okkur. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur sanna jólagleði. Una Jóhannsdóttir, Steinunn J. Guðmundsdóttir, Yvonne Johansson, Eggert Kristinsson, Sesselja Gunnarsdóttir, Ólöf Sigurlín Kristinsdóttir, Ari Jóhannesson, Steinunn Grima Kristinsdóttir, Pétur Einarsson, Boga Kristín Kristinsdóttir, Bjarni Ingvarsson, Kolbrún Rut Stephens og barnabörn. reyndir í lífsins ólgusjó enda komn- ir út á hann miðjan en metum þó eflaust báðir að geta átt okkur áfram öragg leiðarmerki. Aldan fellur enn með líkum hætti og fyrr við Faxaskjól og Ægissíðu og kýs sér takt og þunga eftir árstíðum og veðram hveiju sinni. Slag hennar og ómur minnir mig nú á margt sem heyrir til horfinni tíð en verður þó áfram hluti eigin sögu, reyndar veigamik- ill þáttur hennar eins og framþætt- ir jafnan era og fyrsta gerð sem lengi er búið að, þó þess sé sjaldan gætt í amstri daga og það þakkað sem skyldi, er gaf þeim veig og styrk. Það er nú nokkuð um liðið frá því að ég kom síðast á heimilið góða í Faxaskjóli og fann þar sem fyrr viðmótið ljúfa og heimilisbrag- inn listræna og þýða. Fjölskyldan var þar þá saman- komin öll eins og ég hafði þekkt hana frá fyrri tíð, Stella og Þor- steinn, Björg, Davíð og Dóra að viðbættri yngstu kynslóðinni, barnabömunum og yngstur þeirra var þá Þorsteinn Davíðsson, sem ég var kominn til að skíra. Hann er nú á líku reki og við Davíð þeg- ar við urðum nánir félagar og vin- ir og á sér vonandi trausta og trygga vini. Hann saknar nú og syrgir Stellu ömmu sína. Það gera allir sem nutu kærleika hennar, vináttu og samfylgdar og áttu hana að bjartri leiðarstjömu, en þeir fá sefað sorg- ina í vitundinni um að „Stella" mun áfram varpa birtu á þeirra veg þó með öðram hætti sé en fyrr. „Þér elskaðir nú þegar erum vér Guðs böm og það er enn þá ekki orðið bert hvað vér munum verða,“ segir postulinn Jóhannes í fyrsta bréfí sínu og þau orð hans era gild á hverri tíð, líkt og skírnin er það, aðventan og jólin. Djúpur lífsskilningur Stellu hef- ur byggst á trúarvitund og virð- ingu fyrir lífsleyndardómum, sem yfírborðsskoðun áþreyfanlegra efnisfyrirbæra fær hvorki skilið né túlkað. Það er mér ljóst nú, er ég sé hana fyrir rnér brosandi með leiftrandi augnsvip, athugula og glögga, uppörvandi og alúðarríka. Og þó hún hafi átt í erfiðu loka- stríði er það þessi mynd hennar sem mun enn verða skírari og full- komnast, vegna þess ljóss af hæð- um, sem lýsir í gegnum vetrar og dauðans myrkur, og jólin boða og allar himins stjörnur. Lýsi það bjarta stjörnuskin nú og jafnan ástvinum Stellu. „Ljómar nú jata lausnarans/ ljósið gefur oss nóttin hans./ Ekk- ert myrkur það kefja kann/ kristin trú býr við Ijóma þann.“ Gunnþór. -------♦■ ♦ ---- Kveðja Franz E. Siemsen Fæddur 14. nóvember 1922 Dáinn 30. október 1992 Við viljum minnast Franz E. Siemsen, ræðismanns Islands í Schleswig-Holsteins. Þau ár sem við sáum um íslandskynningu á alþjóðlegri siglingaviku Kiel-borg- ar voram við þess aðnjótandi að Franz E. Siemsen studdi okkur með ráðum og dáð og þá sérstak- lega miðlaði hann á milli okkar og embættismanna Kielarborgar og lagði góð orð til okkar í þeirra eyru. Forráðamenn Kiel-vikunnar fóra heldur ekki dult með það að þeir mátu Franz E. Siemsen mikils. Nú hefur þessi heillastjarna slokknað en geislar hennar munu lýsa áfram í bijóstum okkar. Um leið og við minnumst starfs Franz E. Siemsen sendum við eiginkonu hans og öðram aðstand- endum okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Lovísa, Daníel, Erla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.