Morgunblaðið - 19.12.1992, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Ekki byrgja tilfinningar þín-
ar inni. Þér gæti mislíkað
eitthvað í fari tengdafólks.
Þú finnur það sem þú leitar
að.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Persónulegt framlag þitt
veitir þér velgengni í starfi.
Láttu ekki hlunnfara þig í
peningamálum. Ljúktu jóla-
innkaupunum.
Tvíburar
(21. maf - 20. júní) 4»
Eining ríkir milli ástvina,
en einhver ágreiningur get-
ur komið upp um fjármálin.
Þiggðu aðstoð við lausn
vandamáls.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlf) HB
Láttu ekki skapið hlaupa
með þig í gönur þótt ekki
séu allir sammála þér. Þú
getur átt von á gestum í
heimsókn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ástin og vináttan veita þér
mikla ánægju í dag. Þú
færð góðar fréttir af ætt-
ingja. Njóttu samvista við
fjölskyldu í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentemhorf <fí^
Síðkvöldið er helgað ástinni.
Þú hefur heppnina með þér
í starfi og peningamálum.
Vinur gæti móðgað ætt-
ingja.
Vog
(23. sept. - 22. oktðber)
Þú ert í jólaskapi, en eitt-
hvað tengt vinnunni gæti
valdið þér vonbrigðum. Þú
lýkur jólainnkaupunum í
kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhver ágreiningur gæti
komið upp um peninga. Nú
er upplagt að bjóða heim
vinum eða ættingjum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þar sem útlit er fyrir sam-
kvæmi eða stefnumót með
kvöldinu ættir þú að taka
lífinu með ró framan af degi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Dagurinn lofar góðu með
vinnuna. Þú færð tækifæri
til að auka tekjumar. Þú
ættir að fagna með góðum
vinum í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Óleyst vandamál gæti valdið
ágreiningi milli vina. Svo
virðist sem þú gætir verið á
skemmtiferðalagi um hátíð-
amar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Ef þú ferð út að skemmta
þér með ástvini er til
skemmtilegra umræðuefni
en starf þitt. Leyfðu róman-
tíkinni að komast að.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
Stundum ligg ég vakandi á nótt- Hvers vegna ég?
unni og spyr sjálfan mig...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Kastþröng má skilgreina á
einfaldan hátt: „Spilari er í kast-
þröng þegar hann getur ekki
hent af sér án þess að gefa slag.“
Kastþröng kemur venjulega upp
þegar sami spilarinn þarf að
valda tvo eða þrjá liti. En það
er til í dæminu að þvingunin sé
í einum lit. Daninn Lars Blakset
náði nýlega upp slíkri stöðu
Hann varð að beijast fyrir yfir
slag í tveimur spöðum:
Norður gefur; enginn á hættu
Norður
♦ KDG7
♦10543
♦ K73
+ Á10
Vestur
♦ 872
♦ KD8
♦ D1092
♦ D72
Austur
♦ Á
VÁG92
♦ 84
, ♦ K98653
Vestur
Pass
Suður
♦ 109653'
V76
♦ ÁG65
♦ G4
Norður Austur Suður
1 grand 2 lauf* 2 spaðar
_ . Pass Pass
* hálitur og láglitur
Vestur tók fyrst tvo slagi á
KD í hjarta, en skipti síðan yfir
í tromp. Austur átti þann slag
og hélt áfram með hjartað. Lars
trompaði með tíu, spilaði blind-
um inn á spaða og trompaði síð-
asta hjartað með níu. Tók svo
þriðja trompið . . .
Norður
♦ K
¥-
♦ K73
♦ Á10
Vestur
♦ -
*-
♦ D1092
♦ D7
Austur
♦ -
¥-
♦ 84
♦ K986
Suður
♦ -
y-
♦ ÁG65
♦ G4
Nú sá Blakset glitta í goð-
sögnina um einlitaþvingun.
Hann spilaði spaðakóngi og bjóst
við að vestur myndi kasta laufi.
Þá var hugmyndin um að taka
laufás og þvinga vestur síðan í
tígli með því að leggja niður tíg-
uikóngi!
Láti vestur tvistinn undir
kónginn fær hann næsta slag
ódýrt á níuna en verður síðan
að spila upp í ÁG. Vestur getur
ekki bjargað sér með því að láta
níuna undir kónginn. Þá kemur
sjöa, átta, gosi og drottning, og
suður á eftir sem áður gaffal í
tíglinum: ÁG yfir 102.
En vestur eyðilagði spilið fyr-
ir Blakset með því að henda tígli
í spaðakónginn. Þá var yfirslag-
urinn kominn með því einu að
dúkka tígulinn. j
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á móti í Montreal í Kanada
fyrr á þessu ári kom þessi staða
upp í skák bandaríska stórmeist-
arans Boris Gulkos (2.560), sem
hafði hvítt og átti leik, og Rúss-
ans A. Barsovs (2.415). Svartur
Iék síðast 19. — Dd8-b6? en rétt
var 19. — Bc8-b7 með viðunandi
stöðu á svart.
20. Rxf7! — e6 (Það jafngildir
auðvitað uppgjöf að taka ekki
riddarann, en 20. - Hxf7 er
svarað með 21. De7! — Hb7, 22.
Bxf7+ - Kh8, 23. Dc5! - Dxc5,
24. dxc5 - Hxf7, 25. Hd8+ og
vinnur mann. Líklega hefur
Rússanum yfirsést 23. Dc5! í
þessu afbrigði þegar hann illu
heiili tók drottninguna úr vöm-
inni) 21. Rg5 - Dxb2,22. Bxe6+
- Bxe6, 23. Dxe6+ - Kh8, 24.
Hbl — Dxc3, 25. Hxb8 og svart-
ir hætti skömmu seinna þessari
'onlausu baráttu.