Morgunblaðið - 19.12.1992, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992
fíftmnfí
„þ&ttZK [/erðix /75Ö fcroruJr. "
Mamma. Geturðu ekki kom-
ið? Lilli litli er að kalla á þig.
Þetta er sennilega ekkert
rómantískt, en auðveldara
er það.
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF HL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Þyngd á deigi er önnur
en þyngd á brauði
Frá Hauki Leifi Haukssyni:
I tilefni verðkönnunar Neytenda-
samtakanna á brauðum og kökum
leyfir Borgarbakarí og Ódýri brauð-
og kökumarkaðurinn sér að gera
eftirfarandi athugasemdir:
1. Með stofnun Ódýra brauð- og
kökumarkaðarins hefur verið leitast
við að bjóða brauð og kökur á lægra
verði en almennt gerist á þessum
markaði. Hefur í verðlagningunni
verið sleppt smásöluálagningu og
brauðin og kökurnar seldar á heild-
söluverði.
2. Fyrirtækin tvö Borgarbakarí
og Ódýri brauð- og kökumarkaður-
inn eru rekin af sama aðila. Hafa
þau leitast við sitt í hvoru lagi og
saman að verðkannanir fari fram
sem oftast til að gefa neytendum
til kynna hvar ódýrast og best sé
að versla hverju sinni.
3. Hefur verðlagning í Ódýra
brauð- og kökumarkaðnum leitt til
harðra andsvara annarra brauð- og
kökugerðarhúsa.
4. í könnun Neytendasamtak-
anna var tekin til samanburðar
verðlagning í fjórum bakaríum á
höfuðborgarsvæðinu ásamt fjöl-
mörgum á landsbyggðinni. Af þess-
um fjórum í Reykjavík voru Borgar-
bakarí og Ódýri brauð- og köku-
markaðurinn eða helmingur bakarí-
anna.
5. Eftir því sem fram kemur í
ijölmiðlum var könnunin gerð með
tvennt í huga:
a) að finna út kílóverð á brauð-
um.
b) að staðreyna hvort þær upp-
lýsingar væru réttar sem viðkom-
andi bakarí gæfi upp.
Var könnunin þannig fram-
kvæmd að viktuð voru fimm brauð
og síðan reiknað út frá því kílóverð-
ið. Síðan var borin saman þyngdin
sem gefín var upp af viðkomandi
bakara og hún borin saman við vikt-
aða þyngd.
6. I tilvikum Borgarbakarís og
Ódýra brauð- og kökumarkaðarins
var bakarinn spurður um þyngd
brauðsins og gaf hann upp þyngd-
ina á deiginu en sú viðmiðun er
ætíð notuð þegar Verðlagsstofnun
framkvæmir sínar kannanir. Var
þetta sérstaklega tekið fram við
þann starfsmann Neytendasamtak-
anna sem sá um könnunina. Vitað
er að brauð rýrna um 13 til 15%
við bakstur. Gengið var út frá því
að starfsmenn Neytendasamtak-
anna gerðu sér grein fyrir þessari
staðreynd.
7. I fréttatilkynningu Neytenda-
samtakanna er sérstök athygli vak-
in á því og ein helsta niðurstaða
könnunarinnar að Borgarbakarí og
Ódýri brauð- og kökumarkaðurinn
svíni á neytendum og brauð frá
þessum bakaríum aðeins 87% af
þeirri þyngd sem gefin er upp.
8. Borgarbakarí og Ódýri brauð-
og kökumarkaðurinn geta ekki set-
ið undir þessum ásökunum Neyt-
endasamtakanna og telja sig því
knúin til að senda frá sér þessa
fréttatilkynningu. Harma þau jafn-
framt að Neytendasamtökin neiti
að draga til baka þessar tilhæfu-
lausu og röngu fullyrðingu.
9. Borgarbakarí og Ódýri brauð-
og kökumarkaðurinn mun hér eftir
sem hingað til leitast við að halda
verðum sínum í iágmarki. Frábiðja
þau sig jafnframt kannanir af því
tagi sem Neytendasamtökin stóðu
fyrir og telja slíkar kannanir ekki
til þess fallnar að auka verðskyn
neytenda.
HAUKUR LEIFUR HAUKSSON
Borgarbakarí og Ódýri brauð- og
kökumarkaðurinn,
Grensásvegi 26, Reykjavík.
HEILRÆÐI
Yíkveiji skrifar
Ymis tilboð eru nú í gangi rétt
fyrir jólahátíðina. Kona ein,
sem á ungt bam, fór bæði í Kaup-
stað og Hagkaup á dögunum og
með barn sitt og lenti þá í því að
starfsfólk var að gefa krökkum sæl-
gæti, stóra og mikla sleikjubrjót-
sykra. Auðvitað urðu börnin himin-
lifandi, og sleiktu bijóstsykurinn í
erg og gríð.
En frá sjónarhóli mæðranna eru
slíkar sælgætisgjafír enginn sérstak-
ur fagnaður. Þær beijast hetjulegri
baráttu við freistingar, sem börnin
verða alls staðar fyrir og fjöldi
mæðra hefur komið þeirri reglu á á
heimilum sínum að aðeins einn dag-
ur vikunnar sé sérstakur „nammi-
dagur", eins og krakkamir gjaman
nefna hann. Þessar óvæntu gjafir
stórmarkaðanna eru því ákveðið nið-
urbrot á þessum reglum, því að auð-
vitað þýðir ekkert fyrir mömmuna
að rífa bijóstsykurinn af bamjnu og
halda því fram, að það megi ekki
neyta hans fyrr en á laugardag.
Þama er sem sagt óviðkomandi að-
ili að þrengja sér inn í einkamál fjöl-
skyldunnar, þar sem mamman vill
hafa tögl og hagldir og er þetta svo
annarlega til vansa.
Það mætti segja Víkveija, að
mamman forðist verzlun, sem slíkt
hefur hent, næst þegar hún fer f
innkaupaferð og er þá tilgangurinn
sjálfsagt orðinn þveröfugur við
ásetning kaupmannsins.
xxx
Og þar sem Víkveiji er farinn
að ræða um sælgæti, þá kom
kunningi hans, sælkeri mikill að
máli við hann allhneykslaður og
sagði farir sínar ekki sléttar. Hann
hafði sem sé fengið tilboð með gull-
kortinu sínu, þar sem honum voru
boðnar jólakökur frá Texas. Hann
gat pantað slíkar kökur og fengið
þær heimsendar með hraðpósti frá
fyrirtækinu Collin’s Street Bakery,
bandarískar „Christmas Cakes“,
sem mjög eru vinsælar þar vestra.
Hann pantaði tvær kökur eða öllu
heldur tertur og kostuðu þær 75
dollara eða á genginu, þegar þær
komu 4.820,88 krónur.
En það var ekki verð tertanna,
sem hneykslaði kunningjann, heldur
var hann bæði sár og reiður yfír því
að þurfa að greiða í tolla 2.589 krón-
ur áður en hann fékk kökumar í
hendur. Það verður nú að segjast
að Víkveiji er ekki sama sinnis og
kunninginn, auðvitað verða menn
að greiða tolla af slíku luxusgóm-
sæti, en hins vegar hefur Víkveiji
haft spumir af því að sendi einhver
þriðji aðili slíkar kökur til aðila hér-
lendis, er litið á kökumar sem gjafir
og sé verðmæti þeirra innan hæfí-
legra marka, er ekki greiddur tollur
af þeim.
Annars er þessi kökuþjónusta í
Texas dálítið skemmtileg. Það getur
verið gaman að eiga möguleika á
að senda rétt fyrir jól gómsæta köku
heim til kunningja sinna með jóla-
kveðju og nýársóskum, og slíka þjón-
ustu býður þetta ameríska bakarí
upp á. Annars verður Víkverji bara
að vona, að tvær tertur, sem kosta
hingað komnar 7.409,88 krónur hafí
smakkazt vel.
XXX
Víkveiji heyrði hádegisfréttirnar
svona rétt með öðra eyranu í
fyrradag. Þar var verið að fjalla um
frumvarp um veiðar í náttúru ís-
lands, sem lagt hefði verið fyrir Al-
þingi og ekki heyrði Víkveiji betur
en verið væri að setja enn eina ríkis-
nefndina á stofn með heitinu „villi-
dýranefnd". Skyldi formaðurinn
vera refur?