Morgunblaðið - 10.01.1993, Page 1

Morgunblaðið - 10.01.1993, Page 1
80 SÍÐUR B 7. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tupolev-154 þota brotlendir á flugvellinum í Nýju Delhí Gengur kraftaverki næst að allir um borð lifðu af Nýju Delhí. Reuter. RÚSSNESK Tupolev-154 farþega- flugvél fórst I lendingu í Nýju Delhí aðfaranótt laugardags. Allir um borð komust lífs af og þykir það ganga kraftaverki næst. Þotan brotlenti, valt á flugbrautinni og vængur og stél vélarinnar brotnuðu af. Loks kviknaði í vélinni en samt sluppu farþegar og áhöfn lifandi út úr henni. Satish Lumba, tals- maður félags atvinnuflugmanna í Indlandi, sagði í gær að líklega hefði það bjargað far- þegunum að gat kom á vélina er hún brot- lenti og farþegar gátu flúið skjótt undan eldin- um. Madhavrao Scindia, flugmálaráðherra Ind- lands, hefur boðist til að segja af sér vegna slyssins. Indverskir flugmenn eru í verkfalli og því hafa verið leigðar vélar með áhöfn erlendis frá. Tupolev-flugvélin var leigð frá Úzbekístan svo dæmi sé tekið. Flugmennimir í verkfalli höfðu varað stjórnvöld við því að erlendu flugvélarnar og áhafnirnar uppfylltu engan veginn kröfur um öryggi. Áhöfn Tup- olev-vélarinnar var rússnesk. Lumba sagði í gær að hann hefði talað við flugmanninn og hefði hann að líkindum verið örþreyttur í flug- inu. Irakar hlíta flugbanni Bagdad. Washington. Reuter. ÍRAKAR hafa gengið að skilmálum Bandaríkjamanna, Breta og Frakka að nokkru leyti að því er Phil Coady, flotaforingi Bandaríkjanna á Persaflóa, segir. Þeir hafi stöðvað óleyfílegt flug sitt yfir Suður-írak. Hins vegar er ekki vitað með vissu hvar skotpallar þeir fyrir loftvarnaeldflaugar sem írakar höfðu komið fyrir i Suður-írak eru nú niður komnir. Mikil hreyfíng hefur verið á skotpöllunum að undanförnu en írökum hafði verið gert að flytja þá norður fyrir 32. breiddarbaug fyrir kl. 22.30 á föstudagskvöld. Málgögn íraks- stjómar fóru hörðum orðum um Bandaríkin í gær og sögðu íraka undir stríð búna. Sendi- herra Iraka hjá SÞ sagðist hins vegar vona að tekist hefði að afstýra átökum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur skorað á íraka að aflétta banni við flugi Sam- einuðu þjóðanna í írak sem sett var á föstu- dag. Ella verði gripið til harkalegra aðgerða. Þórður Jónsson yfirmaður flugrekstrar Sam- einuðu þjóðanna í írak segist bjartsýnn á að geta hafíð flug aftur innan skamms. Sjá samtal við Þórð Jónsson á bls. 2. KOMIÐ UR ROÐRI Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kæstri síld dengt á Dani? DANIR hafa mótmælt kröftuglega þeirri ákvörðun Svía að hefja aftur starfsemi Barsebáck-kjarnorkuvers- ins. Verið er Svíþjóðarmegin Eyrar- sunds og hefur lengi verið Dönum þyrnir í augum enda sést það frá höf- uðborginni Kaupmannahöfn. Eins og vænta mátti hefur þó verið gamansam- ur undirtónn í deilum frændþjóðanna um þetta efni nú í vikunni. Danski inn- anríkisráðherrann, Thor Pedersen, sagði að ef þjóðaréttur heimilaði þá myndi hann senda danska herinn til Svíþjóðar til að hindra að Barsebáck opnaði. Sænski vamarmálaráðherr- ann, Artders Björck, sagði að Svíar myndu svara innrás með því að varpa þjóðarréttinum, kæstri síld, sem þykir afar lyktsterk, á Dani. Pedersen sagð- ist þá vera mát, danski herinn hefði ekki yfir að ráða aðvörunarbúnaði sem þekkti óvininn á lyktinni. Swift-Tuttle í öruggri fjarlægð BRIAN Marsden hjá Alþjóðlegu stjörnufræðistofnuninni olli miklu upp- námi í haust með því að segja að líkurn- ar á því að halastjarnan Swift-Tuttle rækist á jörðina árið 2126 væru 1 á móti 10.000. Hann hvatti til þess að reiknað yrði út nákvæmlega hver yrði braut Swift-Tuttle svo hægt yrði að grípa til viðeigandi ráðstafana ef hætta reyndist á árekstri. Samkvæmt út- reikningum sem síðan hafa verið gerð- ir mun Swift-Tuttle komast næst sólu 11. júlí 2126. Mánuði síðar fer hala- stjarnan framhjá jörðu í 45 milljón km fjarlægð. Tékkar leita að þjálla nafni ÞAÐ vefst enn fyrir Tékkum að fínna heiti á nýja ríkið sitt. Opinbert nafn er Tékkneska lýðveldið en ljóst þykir að það sé ekki nógu þjált í daglegu tali. Stungið hefur verið upp á nöfnun- um Tékkía, Tékkaland, Tékkómæri og Tékkóslavía. Helstu dagblöð eru farin að nota heitið Cesco en talið er erfitt að snara þessu heiti á aðrar tungur. Á þýsku yrði niðurstaðan Tschechei sem var nafn Þjóðveija á Bæheimi og Mæri í síðari heimsstyrjöldinni er land- ið var innlimað í Þýskaland Hitlers. Ekki þykirþetta því að öllu leyti heppi- legt heiti. Önnur útgáfa er Czecho, sem sumum þykir skárra en ýmsar ná- grannaþjóðir hafa valið þá leið að tala um CR, upphafsstafina í opinberu heiti lýðveldisins á tékknesku. GÁLEYSI 14 ég gcfst ekkí upp Nýstúdentinn Ásdís Jenna Ást- ráðsdóttir lætur mikla fbtlun ekki hindra sig _ _ 20 A ELDFJALLAVAKT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.