Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 21
Ásdís Jenna hefur verið brautryðj-
andi í mörgu og það er víst að al-
menna skólakerfið hefur varla fengið
flóknara viðfangsefni en að veita
henni almenna menntun, fötlun
hennar er þess eðlis.“
Jákvœd vióhorff i MH
Ásdís Jenna lauk stúdentsprófi af
félagsfræðibraut, hún tók 148 ein-
ingar, þótt aðeins sé krafist 132 ein-
inga til stúdentsprófs. „Mér er minn-
isstæðast hvað krakkamir tóku mér
vel,“ segir Ásdís Jenna um mennta-
skólaárin. „Tungumálin og félags-
fræði þóttu mér skemmtilegustu
greinamar. Ég held að ritgerðimar
í íslensku hafi verið leiðinlegastar.
Það ríkja mjög jákvæð og skemmti-
leg viðhorf í MH og mikil sam-
heldni." Ásdís Jenna naut hjálpar
margra við námið, komu þar við sögu
nemendur, kennarar og námsráð-
gjafar. Kennarar og táknmálstúlkur,
Morgunblaðið/Kristinn
sem jafnframt er sjúkraliði, hjálpuðu
við umönnun hennar á skólatíma.
„Ég hafði aðstoðarmenn úr hópi
nemenda, þeir skrifuðu glósur og
hagræddu bókunum svo ég sæi á
þær. Skólasystkinin lögðu mikið á
sig til að hjálpa mér, einn skólabróð-
ir minn kom alltaf of seint í tíma,
nema þegar hann átti að aðstoða
mig, þá mætti hann stundvíslega!"
Fjölskylda Ásdísar Jennu lýkur miklu
lofsorði á forráðamenn MH. Þegar
Ásdís Jenna hóf nám við skólann var
aðstaða fyrir fatlaða fremur frum-
stæð. Það hefur mikið breyst til batn-
aðar og hefur skólastjómin kapp-
kostað að koma til móts við þarfír
fatlaðra. Nú stunda 17 fatlaðir nem-
endur nám við skólann.
Vegna fötlunarinnar vinnst Ásdísi
hægt, hún sat oft uppi fram á nætur
við að ljúka verkefnum. í prófum var
tekið tillit til þessa og fékk hún lengri
tíma til að leysa verkefnin en ófatlað-
ir nemendur. Sumir kennarar út-
bjuggu sérstaklega krossapróf fyrir
hana, enda er hún fljótari að svara
þeim en skriflegum prófum. „Mér
fínnst að öll próf ættu að vera krossa-
próf eða munnleg," segir Ásdís og
minnist þess að hafa setið samfleytt
átta klukkustundir við að svara eðlis-
fræðiprófi.
Á lýóháskóla
Ásdís hyggur á frekara nám og
er farin til Danmerkur til náms við
Egmont lýðháskólann í Hou, nálægt
Árósum. Þar ætlar hún að dvelja
fram á sumar, ef allt gengur að ósk-
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JANÚAR' 1993 21
um. Hugurinn stendur síðan til há-
skólanáms og koma þá rómönsk mál
helst til greina. Egmont lýðháskólinn
var stofnaður af fötluðum manni
fyrir fatlaða nemendur. Nú eru 140
nemendur við nám í skólanum, bæði
fatlaðir og ófatlaðir. Ásdís innritaði
sig á fjölmiðlabraut, enda hefur hún
áhuga á að starfa við þýðingar og
skriftir í framtíðinni. Það er stórt
skref fýrir hana að flytjast að heim-
an, en hún óttast það ekki. „Aum-
ingja fjölskyldan hefur svp miklar
áhyggjur af mér,“ segir Ásdís og
hlær. Hún er búin að fá samskipta-
búnað í tölvu sem hún tekur með sér
til Danmerkur. Önnur samskonar
tölva er svo heima hjá henni og þann-
ig getur hún skrifast á við fjölskyld-
una í gegnum símamótald eða fax-
tæki.
Tölvutæknin og rafknúinn hjóla-
stóllinn hefur gjörbreytt tilveru Ás-
dísar. Hún kemst allra sinna ferða
þar sem er hjólastólafært og tölvan
hjálpar henni að tjá sig. Tölvunni og
hjólastólnum stjórnar Ásdís Jenna
með því að styðja á tvo hnappa með
Nýslúdentinn
Ásdis Jenna
Ástráósdóttir
lætur mikla fötlun
ekki hindra sig
á námsbrautinni
og er ffarin til
Danmerkur
á lýóháskóla.
hökunni. í augnhæð Ásdísar er lítill
tölvuskjár og úr hátalara berast
hljóðmerki þegar hún styður á val-
hnappinn. Flókið samspil skjátákna
og hljóðmerkja gefur til kynna hvað
valið er hveiju sinni. Ásdís er mjög
leikin í að stjórna þessum búnaði,
en fjölskylda hennar segist lítið botna
í tækninni. Ásdís bindur miklar von-
ir við talgervil sem nú er að koma á
markað. Þá getur hún ritað hugsan-
ir sínar og tölvan ljær þeim mál.
„Mér fínnst ekki alltaf gaman að lifa
við þessa fötlun," segir Ásdís Jenna.
„Það er oft erfítt að geta ekki tjáð
sig, kennarnir misskildu mig oft í
skólanum. Mér fínnst andlega hliðin
samt skipta meira máli en sú líkam-
lega. Að geta hugsað og lært er
mikilvægara en að geta gengið."
Áhugamálin eru mörg
Ásdís hefur mörg áhugamál,
skemmtilegast þykir henni að lesa
góðar skáldsögur og hún les mikið.
Hún hefur gaman af að fara í sund
og bíó, hitta kunningjana og vera
með íjölskyldunni. Hún á marga vini.
Meðan blaðamaður stóð við í heimili
Ásdísar linnti ekki símhringingum
þeirra sem boðuðu komu sína til að
kveðja hana. „Hún hefur kynnst
ótrúlega mörgum á lífsleiðinni," seg-
ir Ásta móðir hennar. „í skólanum
eignaðist hún marga vini, svo hefur
hún verið í þjálfun á Reykjalundi á
sumrin og kynnst þar fjölda fólks."
Fyrir jólin 1990 kom út ljóðabók
Ásdísar, Ég hugsa eins og þið. Vakti
bókin mikla athygli og var tvíprent-
uð, sem er fátítt þegar um ljóðabæk-
ur ungra skálda er að ræða._„Ég hef
ekki ort um sinn,“ segir Ásdís og
segir námið hafa krafíst allrar henn-
ar orku og tíma. Hún ætlar að halda
áfram að yrkja og er einnig með
barnaævintýri í smíðum. Ásdís Jenna
á ekki langt að sækja skáldskapar-
gáfuna, því barnabókahöfundamir
vinsælu, Jenna og Hreiðar Stefáns-
son, eru föðurforeldrar hennar. „Mér
fínnst gaman að nota ímyndunarafl-
ið. Stundum streyma hugmyndimar
fram og stundum er ég alveg tóm,“
segir skáldkonan unga.
Ásdís Jenna er mjög viljasterk og
hefur það oft og einatt hjálpað
henni.„Hún hefur aldrei sætt sig við
að ekki sé hægt að gera hlutina,“
segir Ásta móðir hennar. Þessi skap-
gerð hjálpar Ásdísi vafalaust yfír
þröskuldana sem hún mætir á lífs-
leiðinni, og eru margir óyfirstígan-
legir í annarra augum. „Ég gefst
ekki upp,“ segir Ásdís Jenna.
X-Iöföar til
XJL fólks í öllum
starfsgreinum!
MÁLUN - TEIKNUN
Myndlistarnámskeið fyrir byrjendur og lengra
komna. Undirstöðuatriði kennd í teiknun og
meðferð vatns- og olíulita. Myndbygging.
Upplýsingar og innritun eftir kl. 1 3 í dag
og næstu daga.
Kennari: Rúna Gisladóttir, listmálari,
simi 611525.
ÚTSALA - ÚTSALA ]
LOKAÐ Á MORGUN
UTSAIAN HEFST
ÞRIÐJUDAG Kl. 10
^ÓBÚ0/
SKÆEN MÍLANÖ
KR/NGLUNN/8-12 S. 689345
LAUGAVEGI 61-63, SÍMI 10656 .
FLUGLEIÐIR BJÓÐA
DAGLEGAR FERÐIR
TIL KAUPM/ HA
Verð frá. 26.940 kr*
Frá Kaupmannahöfn
til Hamborgar, Frankfurt,
Hannover, Berlínar, Míinchen,
EINSTÖK KJÖR
TIL
EVRÓPUBORGA
Stuttgart og Dusseldorf:
Verð 9060 kr.
Frá Kaupmannahöfn
til Aþenu, Feneyja, Barcelona,
Alicante, Rómar, Mílanó,
Malaga, Madrid, Lissabon, Nice,
Parísar og Brússel:
Verð miðast við gengi 7. janúar 1993.
Flugvallarskattar eni ekki innifaldir í verði,
ísland 1250 kr., Danmörk 670 kr.
Verð 12.490 kr.**
*Hámarksdvöl er 4 nætur. Lágmarksdvöl
aðfaranótt sunnudags. Bókunarfýrirvari enginn.
**Ef höfð er viðdvöl í Kaupmannahöfn bætist
danskur flugvallarskattur við verðið, 670 kr.
Verð gildir til 15. janúar; síðasti heimkomu-
dagur er 31. mars.
Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn félagsins um allt land,
ferðaskrifstofurnar eða í síma 690 300 (svarað alla
7 daga vikunnar frá kl. 8-18).
FLUGLEIÐIR
Traustur islenskur ferðafélagt. j