Morgunblaðið - 10.01.1993, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ MIIVNINGAR SUNNUDÁGUR 10. JANÚAR 1993
----------------------------------:-------------:------—
Músíkleikfimin
hefst fimmtudaginn 14. janúar
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á
öllum aldri.
Byrjenda- og framhaldstímar.
Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022 um
helgar og virka daga í sama síma eftir kl. 16.
FAGOR
m •
Brynjólfur Brynj-
ólfsson - Minning
Fæddur 25. apríl 1899
Dáinn 2. janúar 1993
Á morgun verður til moldar borinn
tengdafaðir minn Brynjólfur Brynj-
ólfsson. Hann andaðist á St. Jó-
sefsspítala, Hafnarfirði, 2. janúar sl.
eftir stutta en erfiða legu.
Brynjólfur fæddist 25. apríl 1899
í Akurhúsum, Grindavík, sonur hjón-
anna Guðrúnar Jóhönnu (1865-
1963) Jónsdóttur bónda Jónssonar á
Þórkötlustöðum við Grindavík og
Brynjólfs (1857-1941) Ambjöms-
sonar (Ampa) bónda í Króktúni á
Landi Guðbrandssonar bónda í Lækj-
arbotnum á Landi Sæmundssonar.
Brynjólfur var sjötti ættliður frá
Bjama Halldórssyni á Víkingslæk.
Þegar Brynjólfur var 5 daga gam-
all var hann skírður og þann sama
dag var honum komið fyrir hjá
vandalausum hjónum og var þar í 5
ár.
Vegna atvinnuleysis og fátæktar
hröktust foreldrar Brynjólfs frá
Grindavík austur á Vopnafjörð og
síðast til Seyðisfjarðar. í Grindavík
urðu eftir böm þeirra þijú, Brynjólf-
ur og tvíburamir Guðrún og Guð-
mundur (f. 1897) og auk þess Lovísa
dóttir Brynjólfs, og synir Jóhönnu,
Jón og Júlíus Brandssynir. Á Vopna-
firði eignuðust þau Valgerði (1900)
og síðar Sigþór (1905) og Júlíus
(1909). Þau em nú öll látin. Það er
erfitt að reyna að setja sig í spor
þessara hjóna, svo blýþung sem þau
hafa verið.
Þegar Brynjólfur var 5 ára gam-
all var honum komið fyrir hjá öðmm
hjónum. Þeim Jóhanni Pétri Áma-
syni og Guðrúnu Guttormsdóttur,
Eyvindarstöðum, miklu sómafólki.
Þar dvaldi Brynjólfur alla sína æsku
eða þar til fóstri hans dó 13. júní
1914. Eftir að fóstri Brynjólfs dó
vom þau tvö eftir á Eyvindarstöðum,
Guðrún fósturmóðir og Brynjóifur.
Um sumarið fékk Brynjólfur vinnu
við að leggja Grindavíkurveginn. En
um veturinn vann hann við að taka
á móti og flytja lifur fyrir Einar í
Garðhúsum. Var lifrin flutt út í
Hverfi á hestum.
Ekki gat Brynjólfur, sem þá var
aðeins 15 ára gamall, stundað fulla
vinnu, þar sem fóstra hans var orðin
það heilsulaus. Svo fór að þau neydd-
ust til að selja húsið, með því skil-
yrði að Guðrún fóstra Brynjólfs fengi
eitt herbergi og þá umhugsun sem
hún þurfti með. Húsið keypti Guð-
mann Jónsson. Var Brynjólfur eitt
KYNNINGARVERÐ
GERÐFE54-STAÐGREITTKR.
39900
KR. 41990 -MEÐAFBORGUNUM
RÖNNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
UTSALAN
HEFST Á MORGUN
DIMMALIMM
Bankastræti 4
,101 reykjavík,
sfmi 11222
UegeimÍQuaUm barnafötáo-6ára
ár vinnumaður hjá Guðmanni.
Þegar Brynjólfur var 16 ára gam-
all, reri hann svo sína fyrstu vetrar-
vertíð og var síðan 6 vertíðar hjá
Hjálmari á Þórkötlustöðum. Eftir
fyrstu vetrarvertíðina fór Brynjólfur
til Austurlands og reri í 8 sumur,
þar af 7 sumur hjá sama formanni,
Guðmundi Bjömssyni i Hellisfirði við
Norðfjörð.
Árið 1926 bauðst svo Brynjólfi
vinna hjá Böðvari Böðvarssyni á
Óseyri í Hafnarfirði. Þá réðst Brynj-
ólfur á botnvörpunginn Ver og á
togurum var hann síðan til 1952 eða
í 26 ár. Lengst af kallaður Brynki
bræðslumaður.
Þegar Brynjólfur hætti sjó-
mennsku 1952 réðst hann sem
starfsmaður hjá Hafnarfjarðarbæ
sem húsvörður við Ráðhúsið og Bæj-
arbíó. Eru eflaust margir Hafnfirð-
ingar sem muna eftir Brynka í Bæj-
arbíói. Þar starfaði Brynjólfur til
1975, er hann lét af störfum vegna
aldurs sakir.
Stiklað hefur verið á stóru um
æviferil Brynjólfs. En margar sögur
Blóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla daga frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20
Á FERÐ UM
Starfsmenn Kerfisþróunar munu leggja land
undirfót næstu daga og svara fyrirspurnum um
notkun STÓLPA-viðskiptahugbúnaðarins.
Kynntar verða fjölmargar nýjungar og farið
verður yfir einstök kerfi.
Þátttaka er endurgjaldslaus og verða fundirnir
haldnir kl. 13.00 -17.00 í samvinnu við sölu-
og þjónustuaðila sem hér segir:
Egilstaðir 11 .janúar:
ViðskiptaþjónustanTraust, Miðási 11,
sími 97-11095.
Reykjavík 12. janúar:
Kerfisþróun hf., Skeifunni 17,
OPIÐ HÚS KL. 9-18, sími 91-688055.
Sauðárkrókur 13. janúar:
Stuðull sf., Stefán Evertsson, sími 95-36676.
Akureyri 14. janúar:
Tölvuvinnsla Jóhanns Jóhannssonar,
Skipagötu 7, sími 96-11184.
Húsavík 15. janúar:
Hótel Húsavík, Kristján Ö. Hjálmarsson,
sími 96-11184.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku tii fyrrnefndra
sölu- og þjónustuaðila. Allir velkomnir!
SKERFISÞRÓUN HF.
SKEIFUNNI 17, 1 08 REYKJAVfK
Símar: 68 80 55 - 68 74 66
Við erum öll...
'í
f